Fréttablaðið - 22.07.2006, Qupperneq 33
LAUGARDAGUR 22. júlí 2006 7
BJÖRGUNARSVEITIR Á HÁLENDINU
Veiðisumarið
með Stefáni Jóni Hafstein
Fleiri veiðifréttir og heilræði við veiðar á www.flugur.is.
FÆRT FLESTUM Á SLYDDUJEPPUM.
Björgunarsveitin Stefán úr Mývatns-
sveit var í vikunni sem leið á svæðinu
norðan Vatnajökuls. „Við erum að
skoða leiðir hér og aðstoða fólk ef
þarf,“ segir Jón Óskar Ferdinandsson
björgunarsveitarmaður. „Núna erum
við að koma frá Herðubreiðalindum,
Öskju og Dreka og erum á leiðinni í
Dyngjufjalladal. Við fréttum af litlum
jepplingum á ferð þar og ætlum að
athuga hvernig þeim gengur. Vegur-
inn hér er mjög leiðinlegur og grófur.“
Svæðið sem sveitin sér um er mjög
stórt og reiknar Jón ekki með því að
komast yfir hvern hluta nema einu
sinni í vikunni. Um helgina verða
fjölskyldubúðir Íslandsvina í Snæfelli
en Jón segir að leiðin þangað inn eftir
sé greiðfær.
„Annars ættu flestir sem eru á litlum
slyddujeppum að komast um allt
svæðið ef þeir fara varlega. Sumstað-
ar eru vondir vegir og grófir en eins
og þeir segja, maður fer allt ef maður
fer varlega. Svo eru nokkur vöð líka
og flæðurnar inni við Kistufell. Þar
flæðir áin yfir sandinn og færið getur
verið þungt. Sandurinn verður þungur
og erfitt nema fyrir fjórhjóladrifsbíla
að komast þar yfir. Ég veit um einn
sem lenti í veseni þar á rútukálfi,“
segir Jón.
Nú um helgina lýkur vakt björgun-
arsveitarinnar Stefáns á svæðinu og
björgunarsveitin Súlur mun taka við.
-elí
Norðan Vatnajökuls
Frá Öskju í Dyngjufjöllum, einnar náttúruperlunnar á svæðinu norðan Vatnajökuls.
Laxveiðisumarið verður aldrei
gott úr því sem komið er. Stóri
straumurinn sem átti að skila
miklum smálaxagöngum um síð-
ustu helgi brást að þessu leyti.
Þær ár sem standa upp úr eru
Norðurá, með yfir 1000 laxa í
vikunni, og Blanda, með einn af
þeim stærstu, en aðrar eru miklu
síðri. Í Eystri- og Ytri-Rangá, þar
sem menn byggja á miklum
seiðasleppingum, eru menn jafn-
vel orðnir áhyggjufullir enda
veiðin mun slakari en á sama
tíma og í fyrra. Í Elliðaánum
hefur veiðin verið góð, veiddir
meira en 400 laxar, en þar er ekki
allt sem sýnist. Samkvæmt telj-
aranum eru göngur upp ána
miklu lélegri en á sama tíma í
fyrra. Nú í vikunni voru um 700
laxar gengnir upp, en voru nærri
1800 á sama tíma í fyrra. Þetta er
mikið áhyggjuefni.
Veitt og sleppt
Ég veiddi í Elliðaánum í vikunni
og skemmti mér vel. Ég setti
sjálfum mér þá reglu að veiða
bara á flugu í yfirborðinu meðan
karlarnir tóku fjögurra laxa
kvótann sinn á maðk á innan við
klukkutíma. Yfirborðstökurnar
eru stórskemmtilegar, einn lax-
inn kom tvö fet upp í loft og hékk
þar eins og heimsmeistaramark-
maður í loftinu þar til hann lét
sig detta og greip fluguna á nið-
urleið. Á einni morgunvakt reisti
ég (það er: fékk laxa til að elta
fluguna) í níu til tíu skipti, þar af
tóku fjórir og ég landaði tveimur
sem ég sleppti auðvitað. Ég bið
ekki um meira fjör á einni morg-
unvakt.
Lærið gárubragðið
Ég notaði einkum gárutúpu, Sun
Ray Shadow, af minni gerðinni,
en einnig flottúpur af stærri
gerð og dró þær hratt. Það er
gríðarlega gaman að sjá laxana
skjótast upp og lemja yfirborðið,
eða aðra skella sporðinum í flug-
una, eða enn aðra kíkja upp með
gogginn alveg við agnið. Þó að
þeir taki ekki er maður svo sann-
arlega í sambandi! Nú er einmitt
rétti tíminn fyrir yfirborðsflug-
ur. Þeir sem ekki kunna gáru-
bragðið („hitsið“) bendi ég á
grein á flugur.is þar sem þetta er
kennt, og hvernig best er að beita
gárutúpunni. Í veiðibúðum má
líka fá góð ráð. Ég má svo til með
að benda höfuðborgarbúum á að
Elliðavatn er í sannkölluðum
blóma þessa heitu sumardaga,
hann vakir um allt! Ég tók 14 sil-
unga á klukkutíma eitt kvöld í
vikunni, reynið brúnan eða svart-
an Tailor eða Pheasant tail,
stærðir 14-16, og svo er þurr-
flugan að koma sterk inn!
Ekki er allt sem sýnist
Stefán Jón sleppir laxi í Elliðaánum
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Dagana 27. júlí til 30. júlí verður
haldin gönguhátíð í Vesturbyggð
á Vestfjörðum. Þessi hátíð ætti
að vera göngumönnum kærkom-
in enda eina hátíðin sem haldin
er með göngutengdu þema.
Vestfirðir hafa löngum verið þekkt-
ir fyrir náttúrufegurð sína og fjöl-
margar gönguleiðir. Um næstu
helgi gefst gönguglöðum tækifæri
til að kynnast svæðinu á sérstakri
gönguhátíð í Vesturbyggð. Á hátíð-
inni er vakin athygli á gönguleiðum
í nágrenni Vesturbyggðar og
Tálknafjarðar undir leiðsögn
reyndra manna auk fjölmargra
annarra uppákoma.
Hátíðin hefst fimmtudaginn 27.
júlí en þá er fyrsti göngudagurinn
af fjórum. Alla dagana skiptast á
aðalgöngur og léttari göngur ásamt
því að boðið er upp á sérstaka dag-
skrá fyrir börnin.
Meðal þeirra gönguleiða sem
farin verður sem aðalganga er
ganga úr Krossdal í Tálknafirði yfir
í Selárdal og mun leiðsögumaður
fræða göngugarpa um svæðið. Á
öðrum göngudegi verður siglt inn í
Geirþjófsfjörð þar sem fluttur
verður einleikur um Gísla Súrsson
á Einhamri og þar á eftir gengið
upp á Lónfell, þar sem Hrafna-
Flóki stóð þegar hann gaf landinu
nafn og gengið niður í Vatnsfjörð.
Á sunnudeginum verður gengið
frá Rauðasandi yfir í Keflavík og
þaðan yfir að Bjargtöngum um leið
og náttúrufar og fuglalíf er skoðað.
Einnig eru styttri leiðir í boði líkt
og milli Verdals og Selárdals, geng-
ið að Gíslahelli í Vatnsfirði, frá
Kollsvík yfir í Selavík og margar
fleiri leiðir.
Börnunum er boðið upp á sund-
ferðir, sögustundir, safnaferðir,
íþróttasprell og fleira.
Allar gönguferðir eru ókeypis
en greitt er fyrir rútuferðir og sigl-
ingu. Jafnframt verða seldir nestis-
pakkar fyrir ferðirnar og kvöld-
verðir á ýmsum veitingastöðum á
hóflegu verði.
Að hátíðinni standa tímaritið Úti-
vera og Arnfirðingafélagið. - joa
Gönguhátíð á suð-
urhluta Vestfjarða
Á gönguhátíð Vesturbyggðar gefst börnum og fullorðnum tækifæri til að kynnast einstakri
náttúrufegurð Vestfjarða og þeim fjölmörgu gönguleiðum sem þar leynast. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Ertu á leið í fríið? Nýir bílar - Árgerð 2006
Úrval nýrra húsbíla tilbúnir
til skráningar á lager á
Egilsstöðum. Erum einnig
með úrval notaðra bíla.
Upplýsingar veitir Bóas í síma 0049 175 2711 783 eða Eðvald í 896-6456
Við bjóðum flug til Egilsstaða fyrir tvo við kaup á hverjum bíl!
Erum með umboð fyrir
Rockwood Íbúð á hjólum.
Árgerð ‘93 V8 Sjálfskiptur. Einn með öllu,
ekinn 100.000 km, lengd 8,5 metrar.
Kr. 3.300.000,-
Blucamp Sky 20, Ford 125 hestöfl TDCI,
lengd 6,3m, svefnpláss fyrir 4, loftkæling,
rafm. rúður, tveir airbag, geislaspilari m/fjarstýringu.
Verð 4,6 skráður