Fréttablaðið - 22.07.2006, Síða 44

Fréttablaðið - 22.07.2006, Síða 44
18 TILKYNNINGAR 22. júlí 2006 LAUGARDAGUR KÓPAVOGSBÆR AUGLÝSING UM SKIPULAG Í KÓPAVOGI Smiðjuvegur 7. Deiliskipulag. Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. auglýsist hér með tillaga að breyttu deiliskipulagi við Smiðjuveg 7. Í tillögunni felst að byggt er að sunnan verðu við núverandi hús einnar hæðar bygging með sömu vegg- og mænishæð og núverandi bygging. Byggingin verður um 450 m2 að grunnfleti. Fyrirkomulag og fjöldi bílastæða breytist. Tillagan er sett fram á upp- drætti í mkv. 1:1000 ásamt skýringarmyndum og greinar- gerð dags. 15. maí 2006. Nánar vísast til kynningargagna. Kópavogsbakki. Deiliskipulag. Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. auglýsist hér með tillaga að breyttu deiliskipulagi við Kópavogsbakka. Í tillögunni felst eftirfar- andi: • Húsagatan Kópavogsbakki er færð til suðurs sem nemur 2 metrum. • Lóðir ofan götu þ.e. Kópavogsbakki 1-15 (húsagerð E1) stækka sem nemur færslu götunnar þ.e. stækka um 2 metra til suðurs. • Byggingarreitur húsa ofan götu þ.e. við Kópavogsbakka 1-15 stækkar að hluta um 2 metra til suðurs (suðurhlið bílskúrs færist nær götu) og hámarksgrunnflötur stækkar í 187 m2 úr 175 m2. • Lóðir neðan götu þ.e. við Kópavogsbakka 2-10 ásamt húsum fyrir húsagerð E2 hliðrast til um tvo metra til suðurs. Lóðirnar eru að auki stækkaðar um 4 metra til suðurs og breikkaðar um 1,5 til 2,8 m. Lóðirnar neðan götu hliðrast til vesturs og sameiginlegum bílastæðum við Urðarbraut er fækkað úr 10 í 6. • Byggingarreitur og hámarksgrunnflötur fyrir Kópavogs- bakka 2 verður 307 m2 og fyrir Kópavogsbakka 4-10 verður 271 m2 í stað 230 m2. Tillagan er sett fram í mkv. 1:1000 ásamt skýringarmynd- um og greinargerð dags. 29. apríl 2006. Nánar vísast til kynningargagna. Ofangreindar tillögur verða til sýnis á Bæjarskipulagi Kópavogs, Fannborg 6, 2. hæð frá kl. 8.00 til 16.00 mánu- daga til fimmtudaga og á föstudögum frá 8.00 til 14.00 frá 24. júlí til 21. ágúst 2006. Upplýsingar um tillögurnar eru einnig á heimasíðu bæjarins www.kopavogur.is. Athugasemdir eða ábendingar skulu hafa borist skriflega bæjarskipulagi eigi síðar en kl. 15:00 mánudaginn 4. september 2006. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunum. Skipulagsstjóri Kópavogs. ATVINNA 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI 34-46 Smáar 21.7.2006 15:56 Page 12

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.