Fréttablaðið - 24.07.2006, Page 22
24. júlí 2006 MÁNUDAGUR4
Úrval tilbúinna gosbrunna
hefur sjaldan verið meira.
Hvern dreymir ekki um að hafa
gosbrunn í garðinum? Nú til dags er
það ekki mikið mál, þú þarft ekki að
vera neinn sérfræðingur til að koma
upp gosbrunni og í verslunum má
finna mikið úrval tilbúinna gos-
brunna. Hægt er að fá alls kyns
styttur og fígúrur sem spúa vatni
en einnig eru hefðbundnir gos-
brunnar sem settir eru í tjarnir.
Gosbrunnar lífga upp á garðinn
og eru sannarlega mikil prýði. Svo
er líka svo notalegt að hlusta á
gjálfrið í vatninu meðan maður
slappar af í garðinum.
Gosbrunnur í garðinn
Þessi gosbrunnur sem fæst í Garðheim-
um lætur lítið fyrir sér fara en er ákaflega
fallegur.
Skemmtilegur froskagosbrunnur sem fæst í Garðheimum. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Sprænandi drengur. Þessi gosbrunnur fæst
í Garðheimum.
Rómantískur gosbrunnur úr Blómavali.
Klassískur og einfaldur gosbrunnur úr Byko.
Froskur og fiskur sem spúa vatni. Þessir
félagar fást í Byko.
Sjálfsíkviknun getur orðið í
tuskum með viðar- og fúavörn.
Á sumrin fara menn gjarnan að
huga að viðar- og fúavörn grind-
verka, sólpalla og viðarveggja.
Því er ástæða til að minna á að
sjálfsíkviknun getur orðið í tusk-
um sem notaðar hafa verið til að
bera olíu á yfirborð úr tré. Sjálfs-
íkviknunin getur ekki gerst í dós-
inni og gerist ekki heldur þegar
olían er borin á yfirborðið. Hún
getur hins vegar orðið þegar olíu-
blautum tuskum er safnað saman í
einn haug.
Dæmi eru um að eldri timbur-
hús og sumarbústaðir hafi brunn-
ið vegna þess að olíublautum tusk-
um og penslum hefur verið safnað
saman í haug eða í poka og þetta
svo skilið eftir í húsinu eða á sól-
pallinum. Nokkrum klukkustund-
um síðar kemur upp eldur.
En hvernig verður sjálfsíkvikn-
un vegna olíu? Þegar búið er að
bera olíuna á viðinn gengur hún í
efnasamband við súrefni loftsins,
sem gerir það að verkum að olían
getur þornað og harðnað. Við þetta
efnasamband verður til örlítil
orka, í formi hita. Undir venjuleg-
um kringumstæðum hverfur þessi
örlitli hiti þegar yfirborðið sem
olían var borin á kólnar og engin
hætta stafar af því. Eins er engin
hætta á að eldur kvikni sjálfkrafa
þegar efnið er í dósinni. Hins
vegar er það vel þekkt staðreynd
að þegar tuskur eru bleyttar í olíu
og svo safnað saman í haug, eða
settar saman í poka, nær ekki sá
örlitli hiti sem myndast að leiðast
út úr haugnum. Hitinn vex því
smátt og smátt. Því heitara sem
verður í haugnum, því meiri orka
myndast. Hitinn verður sífellt
meiri og að lokum kviknar í haugn-
um. Þetta er það sem kallast sjálfs-
íkviknun.
Hvernig má svo koma í veg
fyrir svona bruna? Með því að
breiða sem mest úr tuskunum
þannig að loft eigi sem greiðastan
aðgang að þeim. Þegar tuskurnar
eru orðnar þurrar er í lagi að safna
þeim saman til seinni tíma nota.
(www.bsr.is)
Olíublautar tuskur
skapa eldhættu
������������������������������
�������������������������������������������
�����������������������������������������������������
Borð
H
úsgagna
Lagersala 20. - 31. júlí 9-18 virka daga10-16 laugadag Krókhálsi 10simi: 557-9510
Allt að 80% afsláttur
af útlitsgölluðum vörum
Komdu og gerðu góð kaup
Sófar og margt fleira...Rúm Skápar Speglar Púðar Nuddstólar