Fréttablaðið - 24.07.2006, Page 56
28 24. júlí 2006 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
KR mætir ÍBV í kvöld
Átta liða úrslit VISA-bikars karla klárast í
kvöld þegar ÍBV mætir KR í Frostaskjól-
inu. Leikurinn hefst klukkan 19.15 en
ÍBV vann KR í leik liðanna í Landsbanka-
deild karla fyrr í sumar 2-0 á heimavelli
sínum í Vestmannaeyjum.
> Ólík hlutskipti landsliðanna
Íslensku ungmennalandsliðið í
körfubolta stóðu í ströngu í gær á
Evrópumótum piltalandsliða. 20 ára lið
Íslands tapaði illa fyrir Svíum í lokaleik
sínum í mótinu með 36 stiga mun,
101-65. Ísland endaði þar með í tólfta
sæti á mótinu sem fór fram í Portúgal
en Alexander Dungal var stigahæstur í
gær með fjórtán stig. 18 ára liðið gerði
þó góða hluti á móti sínu í A-deild í
Grikklandi þar sem það
vann Slóvena 83-65
í gær en leikur gegn
Ísrael í dag. Hörður
Axel Vilhjálmsson fór á
kostum í leiknum og
skoraði 30 stig, Hjört-
ur Einarsson skoraði
13, Þröstur Jóhannsson
12 og Brynjar Björns-
son 11.
GOLF Atvinnukylfingurinn Birgir
Leifur Hafþórsson átti skelfileg-
an lokadag á Man No mótinu í
Austurríki sem er hluti af áskor-
endamótaröðinni. Birgir var í
frábærri stöðu fyrir gærdaginn
en hann hafði leikið vel fyrstu
þrjá dagana og var ásamt þrem-
ur öðrum kylfingum í þriðja sæti
áður en leikur hans fór algjör-
lega út um þúfur.
Birgir gerði hver mistökin á
fætur öðrum í gær og slæm byrj-
un setti hann út af laginu. Hann
fékk skolla og skramba á tveim-
ur fyrstu holunum og leiðin lá
ekki upp á við eftir það. Hann
lauk keppni á fyrri níu holunum
á 42 höggum, sjö höggum yfir
pari, og þar með var draumur
hans um að vera á meðal efstu
manna fokinn út um veður og
vind.
Birgir rétti aðeins úr kútnum
á seinni hringnum sem hann lék
á einu höggi yfir pari en hann
fékk tvo skolla, á 13. og 14. holu,
en lagaði stöðuna með fugli á 16.
holu vallarins. Hann lauk hringn-
um því á átta höggum yfir pari
og mótinu á tveimur höggum
undir pari. Það dugði honum
skammt en hann var ásamt fimm
öðrum kylfingum í 49. sæti móts-
ins. Spánverjinn Rafael Cabrera
Bello sigraði á mótinu en hann
lék á sextán höggum undir pari.
Besti árangur Birgis Leifs á
mótaröðinni í ár er fjórtánda
sæti sem hann náði á móti í Skot-
landi. Sem stendur er hann í 105.
sæti á styrkleikalista áskorenda-
mótaraðarinnar en mun væntan-
lega hífa sig upp um nokkur sæti
eftir mótið í vikunni. Birgir hefur
hæst verið í sæti 85 á listanum.
Fimmtán efstu kylfingar á
styrkleikalistanum í lok mótar-
aðarinnar fá keppnisrétt á Evr-
ópumótaröðinni og því er að
miklu að keppa fyrir Birgi Leif.
Auk þess fá aðrir kylfingar sem
eru þar rétt á eftir sæti í loka-
stigi úrtökumóts sem verður
fyrir Evrópumótaröðina. Til þess
að komast þangað þarf Birgir að
laga leik sinn en greinilegt er að
stöðugleika skortir í spila-
mennsku hans. Þetta er ekki
fyrsta mótið þar sem hann er í
góðri stöðu eftir þrjá daga en
gloprar niður góðri stöðu á síð-
asta deginum. - hþh
Birgir Leifur Hafþórsson fór illa að ráði sínu á Áskorendamótaröðinni í Austurríki:
Allan stöðugleika vantar í spilið
BIRGIR LEIFUR Lék vel á þremur dögum af
fjórum á mótinu í Austurríki.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Karl-Heinz Rummenigge,
framkvæmdastjóri Bayern
München, staðfesti við þýska blað-
ið Bild í gær að félagið væri í við-
ræðum við hollenska framherjann
Ruud van Nistelrooy. Þrátt fyrir
það er félagið ekki búið að ná sam-
komulagi um kaupverð á fram-
herjanum en félag hans, Manchest-
er United, er búið að sætta sig við
hann sé á förum.
„Ruud bað um að fara frá okkur
fyrir bikarúrslitaleikinn gegn Ars-
enal í fyrra, síðan bað umboðs-
maður hans um að hann yrði seld-
ur og nú hefur Ruud ítrekað þá
ósk sína í bréfi til okkar,“ sagði Sir
Alex Ferguson, stjóri Man. Utd.
„Ef ég á að vera heiðarlegur þá
ætla ég ekki að standa í vegi hans
ef hann vill virkilega fara frá
okkur. Ég get ekki sagt ykkur af
hverju hann vill fara, allt sem ég
get sagt er að hann vill fara og við
höfum sætt okkur við það.“
- hbg
Ruud van Nistelrooy:
Í viðræðum
við Bayern
Á FÖRUM Ruud hefur að öllum líkindum
leikið sinn síðasta leik fyrir United.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Brotist var inn á heimili
foreldra Waynes Rooney um helg-
ina og gripum stolið sem eru í eigu
enska landsliðsframherjans.
Meðal þess sem var stolið voru
enskar landsliðstreyjur og bikar-
inn sem hann hlaut fyrir að vera
besti ungi leikmaður ensku úrvals-
deildarinnar 2002.
Almenningur hefur verið beð-
inn um að setja sig í samband við
lögregluna ef fólki er boðinn varn-
ingurinn á netinu eða á kránni
sinni.
- hbg
Innbrot í Liverpool:
Stolið af
Wayne Rooney
RÆNDUR Rooney tapaði derhúfum, treyj-
um og öðru í ráninu.
FÓTBOLTI Hólmar Örn Rúnarsson,
leikmaður Keflavíkur, fer í dag til
reynslu hjá danska liðinu Silke-
borg. Þar hittir hann fyrir Íslend-
ingana Bjarna Ólaf Eiríksson og
vin sin úr Keflavík, Hörð Sveins-
son sem skoraði einmitt eina mark
liðsins í 4-1 tapi gegn FC Kaup-
mannahöfn um helgina.
Rúnar Arnarson, formaður
knattspyrnudeildar Keflavíkur og
faðir Hólmars, sagði við Frétta-
blaðið í gær að miðjumaðurinn
yrði líklega fram á sunnudag hjá
Silkeborg en liðin hafa enn ekkert
rætt sín á milli um kaupverð á
Hólmari, sem er spenntur fyrir
förinni samkvæmt Rúnari. - hþh
Hólmar Örn Rúnarsson:
Fer til Silke-
borg í dag
HJÓLREIÐAR Floyd Landis varð í
gær þriðji Bandaríkjamaðurinn til
að vinna Frakklandshjólreiðarnar,
Tour de France, en hann lauk
keppni eftir maraþonmótið 57 sek-
úndum á undan Oscar Pereiro.
Samtals hjólaði Landis á 89 klukku-
stundum, 39 mínútum og 30 sek-
úndum. Mótið varð loksins spenn-
andi eftir glæstan árangur landa
Landis, Lance Armstrong, en sá
magnaði kappi fór með sigur af
hólmi í mótinu sjö ár í röð. Hann
tók ekki þátt að þessu sinni og
gerði það keppnina enn meira
spennandi en sigur Landis var á
meðal tæpustu sigra í sögu keppn-
innar. - hþh
Frakklandshjólreiðarnar:
Landis örugg-
ur sigurvegari
Íslandsmeistarar Fram í handbolta gætu
misst tvo leikmenn fyrir næsta tímabil,
Úkraínumanninn Sergiy Serenko og
Bosníumanninn Samir Avdibegovic sem
þeir sömdu við nýverið. Nýjar og hertari
reglur hafa verið settar um dvalar- og
atvinnuleyfi fyrir leikmenn sem eru frá
löndum utan Evrópska efnahagssvæð-
isins.
„Við erum búnir að undirbúa okkur og
ef þetta fer á versta veg þurfum við klár-
lega að styrkja hópinn okkar enn frekar
ef þeir koma ekki fyrir næsta tímabil,“
sagði Hjálmar Vilhjálmsson, varafor-
maður handknattleiksdeildar Fram, við
Fréttablaðið í gær. Sergiy er reyndar
nánast kominn með atvinnuleyfið en
litlar líkur eru á því að fjölskylda hans
fái dvalarleyfið. Hann og kona hans
eignuðust barn nýverið.
Serenko og Avdibegovic eru ekki einu
leikmennirnir sem eru í vandræðum
með leyfið. Nina Voronina, sem kvenna-
lið Fram hefur samið við, er í sömu
sporum og líklega Florentina Grecu og
Tite Kalandadze hjá Stjörnunni. Vinnu-
málastofnun hafa þegar borist nokkrar
umsóknir um leyfi fyrir
handboltamenn á Íslandi.
Um næstu helgi verður
dregið í Meistaradeild-
inni í handbolta en
Framarar verða á meðal
liða í pottinum. Ný
stúka sem Framarar
ætla að fá sér á heima-
völl sinn í Safamýrinni er
enn ekki komin og líklegt
er að tafir verði á afhendingu hennar.
Handknattleikssamband Evrópu hefur
þegar skoðað Framheimilið og setti
nokkrar athugasemdir á húsið, þar á
meðal vegna áhorfendaðstöðunnar, en
ekki er leyfilegt að selja í stæði heldur
einungis í stúku. Auk þess var kvartað
yfir perum í ljósum hússins og fjölda
auglýsinga á gólfinu.
„Það kemur vel til greina að við
spilum okkar leiki í Laugardals-
höllinni, sérstaklega ef við
lendum í riðli með Íslend-
ingaliðunum, en þetta verður
að koma í ljós. Við viljum
spila okkar leiki í Safamýr-
inni en því miður er ekki
víst að það hafist,“ sagði
Hjálmar.
ÍSLANDSMEISTARAR FRAM Í HANDBOLTA: GÆTU LENT Í LEIKMANNAVANDRÆÐUM FYRIR TÍMABILIÐ
Vandamál með atvinnuleyfi í Safamýri
FÓTBOLTI Búist er við því að áfrýj-
unardómstóll muni í dag skera úr
um hvort dómar ítölsku liðanna
fjögurra verða styttir eða ekki. Öll
fjögur félögin sem fengu refsing-
ar fyrir að vera viðriðin Ítalíu-
skandalinn áfrýjuðu dómnum en
þau eru Juventus, Lazio og Fior-
entina, sem dæmd voru niður í
B-deildina, auk AC Milan.
„Við teljum að Juventus þurfi
að ná því sem nemur 80 stigum,
sem jafngildir því að vinna 27 af
34 leikjum, bara til að tóra í Serie
B deildinni,“ sagði Cesare Zacc-
one, lögfræðingur Juventus, fyrir
framan áfrýjunardómstólinn.
Hann minnti einnig á að ef refs-
ingunni yrði ekki breytt myndi
það hafa gríðarleg áhrif á fjár-
hagsstöðu félagsins. - hþh
Ítalíuskandallinn:
Refsingarnar
linaðar í dag?
ÓSÁTTIR Vieira og félagar í Juve telja dóm-
inn harðan.
GOLF Tiger Woods varð í gær fyrsti
kylfingurinn í sextán ár sem ver
titil sinn á opna Breska meistara-
mótinu. Tiger var öryggið upp-
málað á lokadegi mótsins á
Hoylake-vellinum og tapaði aldrei
forystunni sem hann hafði fyrir
daginn. Tiger hefur unnið öll þau
risamót sem hann hefur leitt fyrir
lokadaginn. Þetta var þriðji sigur
Tigers á þessu elsta risamóti golf-
sins.
Chris DiMarco varð annar
tveim höggum á eftir Tiger og
Ernie Els varð þriðji, fimm högg-
um á eftir hinum stórkostlega
Bandaríkjamanni. DiMarco náði
um tíma að minnka muninn í eitt
högg en en Tiger svaraði með
góðum fuglum og sigurinn var
aldrei í hættu eftir það.
Þetta var ellefti risatitill Tig-
ers en sá fyrsti eftir að hann
missti föður sinn. Þá tók Tiger sér
frí frá golfiðkun í níu vikur og
þegar hann sneri til baka á opna
bandaríska meistaramótið var
hann heillum horfinn og komst
ekki í gegnum niðurskurðinn í
fyrsta sinn á risamóti. Það var allt
annað upp á teningnum núna.
„Stevie (kylfusveinn Tigers,
innsk. blm.) sagði við mig þegar
við löbbuðum upp að átjándu flöt-
ina að þessi sigur væri fyrir
pabba. Í kjölfarið fóru tilfinning-
arnar að flæða en þær hafa verið
læstar inn í mér,“ sagði Tiger auð-
mjúkur en hann hræðist ekki að
ræða um tilfinningar sínar.
„Ég sakna föður míns svo rosa-
lega mikið. Ég vildi að hann hefði
verið hérna og orðið vitni að
þessu. Ég reyndi að láta hann upp-
lifa það í síðasta sinn að sjá mig
sigra á Masters en það gekk ekki.
Hann naut þess innilega að sjá
mig vinna risamót og hann hefði
brosað breitt hefði hann verið hér
í dag.“
Þakkarræða Tigers var innileg
þar sem hann þakkaði vallar-
starfsmönnum fyrir þeirra hlut
og hrósaði síðan DiMarco, sem
varð fyrir álíka áfalli á dögunum
þegar móðir hans féll frá. Tiger er
nú í öðru sæti yfir þá kylfinga
sem hafa unnið risamót, jafn Walt-
er Hagen.
Enn nokkuð í Jack Nicklaus,
sem sigraði á átján risamótum á
sínum ferli.
henry@frettabladid.is
Þessi titill var fyrir pabba
Besti kylfingur heims brotnaði niður og grét eftir að hann tryggði sér sigur á
opna Breska meistaramótinu. Þetta var fyrsti sigur Tigers eftir að faðir hans féll
frá í upphafi sumars og hann tileinkaði föður sínum titilinn.
TILFINNINGAÞRUNGIN STUND Tilfinningarnar báru Tiger Woods ofurliði eftir að hann
tryggði sér sigur á opna Breska meistaramótinu í golfi. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES