Tíminn - 07.01.1978, Page 17
Laugardagur 7. janúar 1978
17
llþróttir/
Hreinn Halldórsson
íþróttamaður ársins 1977
Hann var sæmdur nafnbótinni í
hófi hjá Samtökum íþrótta-
fréttamann og Veltis h.f. i gær
Strandamaðurinn sterki Hreinn
Iialldórsson — Evrópumeistari I
kúluvarpi, var i gær útnefndur
Iþróttamaður ársins 1977 I hófi,
sem Samtök iþróttafréttamanna
og Veltir h.f., umboðsaðili Volvos
á tslandi, efndi til. Hreinn hlaut 70
stig, en það er hæsti mögulegi
stigafjöldi i atkvæðagreiðslu
Iþróttafréttamanna.
Steinar J. Lúðvíksson, for-
maður Samtaka íþróttafrétta-
manna afhenti Hreini hina fögru
og glæsilegu styttu, sem hann
mun varöveita i eitt ár. Steinar
sagöi, þegar hann afhenti Hreini
styttuna:
,,1 raun og veru er óþarfi aö
fara mörgum oröum um afrek
Hreins Halldórssonar á þessu
keppnistimabili. Þau voru eölileg
þróun hjá iþróttamanni sem ætlar
sér aö ná alla leiöina á toppinn og
veit að meö elju og ástundun get-
ur hann náö þvl takmarki. Há-
punktur keppnistlmabilsins hjá
Hreini var tvlmælalaust sigur á
Evrópumeistaramótinu I San Se-
bastian á Spáni I fyrravetur, þar
TIU
EFSTU
SiETIN
Þeir fræknu iþróttamenn, sem
hlutu tiu efstu sætin i kosningunni
um iþróttamann ársins 1977 voru:
Hreinn Halldórsson
frjálsar iþróttir .............70
Ásgeir Sigurvinsson,
knattspyrna................... 53
Vilmundur Vilhjálmsson
frjálsarlþróttir ..............52
Geir Hallsteinsson,
handknattleikur................39
Gústaf Agnarsson,
lyftingar......................24
GIsli Þorsteinsson, júdó ......21
Ingunn Einarsdóttir
frjálsar iþróttir .............20
Guðmundur Sigurðsson,
lyftingar......................18
Björgvin Þorsteinss., golf....11
Ingi Björn Albertsson,
knattspyrna....................10
Alls hlutu 26 iþróttamenn stig í
kjöri iþróttafréttamanna.
sem hann skaut flestum beztu
kúluvörpurum heims aftur fyrir
sig. Sá sigur var fyrsta skrefiö á
glæsilegum ferli Hreins I sumar.
Tvlvegis varpaöi hann kúlunni
lengra en 21 metra I sumar, og er
ljóst að slikt er ekki á færi nema
afburöamanna I Iþróttagreininni.
Sem Iþróttamaöur er Hreinn
sjálfum sér og þjóö sinni ekki
aöeins til sóma meö afrekum sln-
um, heldur er öll framkoma hans
slík að unnt er aö tala um sanna
íþróttamennsku I þvl sambandi.
Titlinum og verölaunagripnum
fylgja beztu hamingjuóskir til
Hreins Halldórssonar, svo og
framtlöaróskir, en viö Hrein eru
bundnar miklar vonir. Þaö veit
hann manna bezt sjálfur, og ég er
þess fullviss aö hann mun gera
sitt til þess aö standa undir þeim
kröfum sem til hans eru geröar —
uppfylla þær vonir sem viö hann
eru bundnar.”
Útnefning „Iþróttamanns árs-
ins” hefur verið fastur liður i
starfi Samtaka Iþróttafrétta-
manna allt frá stofnun samtak-
anna, eöa I rösk tuttugu ár. Hér er
þvl um að ræða árvissan viöburö I
Iþróttastarfinu — viöburð sem
jafnan er beðiö meö nokkurri
eftirvæntingu — viöburö sem tvi-
mælalaust hefur gildi, ekki aöeins
fyrir þann Iþróttamann sem út-
valinn er hverju sinni, heldur og
fyrir allt Iþróttastarf I landinu.
Sllk verölaunaveiting sem þessi
er fallin til þess aö vera hvati,
vekja umtal, og allt slíkt er
Iþróttunum i heild til góös. Vert er
að vekja athygli á þvi aö islenzkir
iþróttafréttamenn eru ekki þeir
einu sem standa aö sllku valí og
útnefningu, heldur hefur þaö tlök-
azt um langan aldur vlöa um lönd
aö Iþróttafréttamenn stæöu aö
vali „Iþróttamanns ársins” I
heimalöndum sínum, og þykir
alls staöar mikil sæmd aö slikum
titli. Alþjóðasamtök íþrótta-
fréttamanna gangast síöan fyrir
vali á „Iþróttamanni heimsins”,
og einnig má geta þess aö
Norðurlandasamtök Iþrótta-
fréttamanna hafa um árabil staö-
ið aö útnefningu „Iþróttamanns
Noröurlanda” I góöri samvinnu
viö verksmiöjurnar i Svlþjóö,
sem gefiö hafa mjög svo myndar-
leg verðlaun sem fylgja þvi
sæmdarheiti.
Hér á landi hefur Veltir h.f.,
umboösaöili Volvo, veriö þátttak-
andi I vali Iþróttamanns ársins I
nokkur ár á þann hátt, aö fyrir-
tækiö hefur gefiö verölaun vegna
utnefningarinnar, og kunnum viö
i Samtökum Iþróttafréttamanna
fyrirtækinu hinar beztu þakkir
fyrir velvilja þeirra stuðning og
áhuga. Er vissulega uppörvandi
aö fá jafngóðar viötökur og viö
höfum jafnan fengiö þegar viö
höfum leitaö til forráöamanna
Veltis h.f., sem jafnan hafa veriö
boönir og búnir aö veita okkur
stuðning.
I'í. rr /r /r sr sr sr sr 1
WJM Hópferö á heims- meistaramótið i
ur*
handknattieik
rr^ 26. janúar til 5. febrúar VERÐ KR. 98.100
INNIFALIÐ: Flug, rútuferðir, gisting,
morgunverður og
aðgöngumiðar á alla leikina
BEINT FLUG til Árósa og heim frá
Kaupmannahöfn.
^ Samvinnuferöir
Austurstræti 12 Rvk. simi 27077
STEINAR J. LÚÐVIKSSON... formaður Samtaka iþróttafréttamanna sést hér afhenda Hreini Haildórs-
syni, hina glæsilegu styttu sem tilheyrir náfnbótinni eftirsóttu — iþróttamaður ársins.
„Ég mun ekki
leggja. árar í bát’
— þótt á móti hafi blásið að undan
förnu”, sagði Hreinn Halldórsson
— Ég er aö sjálfsögðu i heiðri sem mér hefur verið
sjöunda himni yfir þeim sýndur, sagði Hreinn Hall-
HREINN HALLDÓRSSON... sést hér ásamt nokkrum af þeim fþróttamönnum, sem voru I tfu efstu sætunum I kosningunni um Iþróttamann
ársins 1977 og nokkrum fyrrverandi Iþróttamönnum ársins. Aftari röö frá vinstri: Jón Þ. Ólafsson (tþróttamaður ársins 1963), Erlendur
Valdimarsson (1970), Gisli Þorsteinsson (6. sæti), Gústaf Agnarsson (5), Ingi Björn Albertsson (10), Hjalti Einarsson (1971) og Guðni Kjart-
ansson (1973). Fremri röö: Guðmundur Sigurðsson (8), Sigríður Sigurðardóttir (1964), Hreinn Halldórsson, Ingunn Einarsdóttir (7), og
Guðmundur Hermannsson (1967). Timamynd: Gunnar.
dórsson eftir að hann var
útnefndur iþróttamaður
ársins 1977 af Samtökum i-
þróttafréttamanna i gær.
Hreinn sagði að hann hafi ekk-
ert getað æft að undanförnu þar
sem hann hafi átt við meiðsli aö
striöa. — Þessi meiðsli háðu mér
allt s.l. ár — og ef ég hefði ekki átt
við þau að glima, hefði ég tvi-
mælalaust náð betri árangri held-
ur en ég náöi, sagði Hreinn.
— Ég reikna með að ég geti ekki
takið þátt i erfiðum keppnum
næsta sumar, vegna meiðslanna.
Ég mun þó ekki leggja árar i bát,
þvi ég mun æfa af fullum krafti og
reyndar að undirbúa mig sem
bezt fyrir átökin sem framundan
eru, sagöi Hreinn.
Asgeir Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri Veltis h.f. tilkynnti
Hreini i hófinu I gær, að Volvo
myndi greiða allan kostnað viö
ferð hans, þegar Iþróttamaður
Norðurlanda verður krýndur. As-
geir sagði að Hreinn hefði ekki
séð sér fært að vera viðstaddur
krýninguna sl. ár þar sem hann
hafi verið aö keppa á sama tima.
— Þar sem hann gat ekki farið þá
höfum við ákveðið að bjóða einn-
ig eiginkonu hans i ár, þegar hann
heldur utan, sagði Asgeir.
örn Eiðsson formaður FRl, af-
henti Hreini fagran skjöld frá
Stokkhólmi til minningar um þaö
að hann setti glæsilegt vallarmet
á Stokkhólms-vellinum fræga
þegar hann kastaði kúlunni 21.09
m þar sl. sumar.