Tíminn - 20.01.1978, Side 3
3
Föstudagur 20. janúar 1978
Á þessum myndum sem teknar voru hjá Hildu h.f., má sjá dæmium erlenda ullarvöruframleiöslu sem
stælir hina islenzku. Á annarri myndinni má sjá tvær peysur er önnur islenzk en hin úr Shetlandsull.
Stælingin er auöljós og vörumerki hinnar erlendu er Lopo. Peysur meö þessu vörumerki hafa sézt meö
munstrum frá islenzkum framleiöendum. A hinni myndinni er nákvæm eftirliking á jakka frá Prjóna-
stofunni á Blönduósi, en sala á honum hefur hrapaö eftir tilkomu þessarar stældu vöru, sem er mun ó-
dýrari. Mesta ógnin stendur hins vegar af vöru unninni úr islenzkum lopa og ullargarni, sem hefur veriö
aö koma á markaöinn aö undanförnu. Timamyndir: Robert.
Iðnaðardeild SIS Akureyri:
Stefna okkar að
flytja ekki at-
vinnu úr landi
— gætum þó hagnazt meira á vinnslu erlendis,
segir Bergþór Konráðsson
aðstoðarframkvæmdastjóri
KEJ — ,,Þaö hefur alltaf veriö
stefna Sambands Islenzkra sam-
vinnufélaga aö flytja ekki úr landi
vélprjónagarn, enda litum viö svo
á, aö meö þvi sé veriö aö flytja úr
landi atvinnumöguleika. Þetta
hefur auk þess siæm áhrif á
markaöinn erlendis. Fáist hins
vegar ekki skýr stefnumörkun i
þessu efni og veröi ekki hægt aö
byggja upp frekari iönaö I kring-
um þetta hér á landi, erum viö
hálfneyddir til aö taka þátt I sam-
keppninni á þessum grundvelli”,
sagöi Bergþór Konráösson, aö-
stoöarframkvæmdastjóri Iön-
aöardeildar StS á Akureyri I sam-
tali viö Timann i gær þegar blaöiö
leitaöi eftir áliti hans á útflutningi
Álafoss á vélprjónagarni til
Suöur-Kóreu og fleiri landa.
Bergþór sagöi aö aöeins tvö
fyrirtæki á íslandi flyttu út lopa
og band, Gefjun og Alafoss. Voru
á 11 fyrstu mánuöum slöasta árs
fluttar út slíkar vörur fyrir tæpar
460 milljónir en hlutur Gefjunar I
þeirri upphæö væri innan viö 10%,
sagöi Bergþór og aöeins hand-
prjónagarn.
Kvaöst Bergþór álita aö marka
þyrfti ákveöna stefnu i þessum
efnum. Eins og fyrr segir væri
stefna SIS sú og heföi veriö aö
flytja ekki út vélprjónaband og
væri þaö til verndar Islenzkum
iönaöi. Þegar hálfopinbert fyrir-
tæki eins og Álafoss fer fullkom-
lega á ská viö þessa stefnu og þaö
kannski af skiljanlegum ástæöum
þegar athugaö er hversu mikill
framleiöslukostnaöurinn er hér á
landi, þá er ekki viö þvi aö búast
aö viö getum keppt án þess aö
, gripa til svipaðra ráöa sagði
Bergþór.
Vélprjónabandið sem ."Áhafoss
flytur út til Suöur-Kóreu er svipað
að magni og fer til vinnslu hjá
Heklu og Dyngju, og ég efast ekki
Framhald á bls. 23
ull að kaf-
færa okkur
— segir Þráinn Þorvaldsson
framkvæmdastjóri Hildu
KEJ — Þaö hefur tekiö langan
tima og mikiö erfiöi aö byggja
upp þennan ullarvörumarkaö er-
lendis, og er hart til þess aö hugsa
aö erlendir framleiöendur nota
sér nú rudda braut og ryöjast inn
á markaöinn meö nákvæmar
eftirlikingar af vörum okkar. Meö
þessu móti er hægt aö eyöiieggja
markaöinn á einum til tveimur
árum, sagöi Þráinn Þorvaldsson
framkvæmdastjóri Hildu h.f. I
samtali viö Timann I gær.
Þráinn sagöi ennfremur aö þaö
væri nú fyrst sem veruleg hætta
stafaöi af erlendri samkeppni og
undirboöum, einfaldlega vegna
þess aö hin undirboöna vara er
vönduð og nákvæm eftirllking Is-
lenzku framleiöslunnar, og þaö
meira að segja úr Islenzkum lopa
sem Álafoss væri nú farinn aö
flytja út I nokkuö stórum stil.
Aöur, sagöi hann, voru eftirlik-
ingarnar lélegar og ekki ''r is-
lenzkri ull og af þeim stafaöi litil
hætta.
Nú er maður hreinlega kaf-
færöur I undirboöum á nákvæm-
um eftirlíkingum og óvist hvaö
hægt er aö halda þessari fram-
leiðslu lengi áfram eins og nú
Rækjuveiðar í ísafjarð-
ardjúpi hef jast í dag
GV — Rækjuveiöar á miöunum i <
isafjaröardjúpi hefjast i dag. Sjó-
menn og verksmiöjueigendur
höföu komizt aö þvi samkomu-
lagi aö hefja ekki veiöar fyrr en
þann 20. tii aö lengja veiöitimann
fram á voriö. Rækjusjómenn eru
nú langt komnir meö aö veiöa upp
iheiidarkvótann, sem er 2500 tonn
yfir báöar vertiöarnar. Haust-
verötiöinni hjá rækjuhátunum
viö Djúp lauk þann 9. desember
og höföu þeir þá aflaö 1.120 lestir,
aö þvi er segir I skýrslu Fiskifé-
lags tslands um rækjuveiöarnar I
Vestfiröingafjóröungi.
Frá verstöövunum viö Isafjarö-
ardjúp hafa róið 40 bátar , og var
afli þeirra 1 desember 340 lestir.
Aflinn á haustvertiöinni I fyrra
var 1.010 lestir hjá 42 bátum.
1 skýrslu Fiskifélagsins segir
um heildarafla rækjubáta á
haustvertlðinni: „A þessu hausti
stunduöu 58 bátar rækjuveiöar
frá Vestfjörðum og öfluöu 1.555
lestir, en I fyrra var afli 65 báta á
haustvertiðinni 1.497 lestir.”
horfir, sagöi Þráinn ennfremur.
Þá taídi hann nauösyn á ákveö-
inni stefnu, og fást yröi á hreint
hvort útflutning á vélprjónabandi
ætti aö liöa til frambúöar.
Þegar væri fariö að bera á sölu-
tregöu á ákveönum vörum vegna
þess aö komnar eru á markaö er-
iendis nákvæmar eftirlikingar
40% ódýrari,
Þráinn sagði aö lokum, aö siö-
astliöiö ár heföi veriö mjög gott
ár fyrir Hildu og aö sjálfsgööu
mundu þeir berjast til þrautar. Af
eftirlikingunum stafaði hins veg-
ar óumræöileg hætta, og hún heföi
aldrei veriö meiri vegna þess
hversu eftirlikingarnar væru
orðnar góöar. Enn verri væri
jafnvel aöstaöa Sambandsins,
sagöi hann, sem heföi lagt mikiö
fjármagn i stórar og dýrar verk-
smiðjur.
Ónýtur
eftir
veltu
ÁÞ — Þaö óhapp vildi tiil gær, aö
fólksbifreiö lenti á staur i .Artúns-
brekkunni meö þeim afleiöingum
aö bifreiöin fór útaf veginum og
valt.
Okumaöurinn var einn I bifreiö-
inni og slapp hann litt meiddur,
en bifreiöin er mikiö skemmd, ef
ekki ónýt.
Orsakir óhappsins eru ekki
ljósar, en eflaust hefur hálka átt
sinn þátt i þvi.
Flug komið
í samt horf
eftir óveðrið
SSt — Flugsamgöngur eru aftur
komnar i eölilegt horf eftir óveör-
iö sem gekk hér yfir I vikunni, en
flugáætlanir bæöi innan lands og
utan röskuöust töluvert af þess
völdum, og innanlandsflug lá t.d.
alveg niöri á þriöjudag. Loftleiöa-
vél, sem fór héöan á þriöjudag og
átti aö lenda i Luxembourg, gat
ekki lent þar vegna veöurs og
varö aö lenda i Frankfurt, og
máttu þeir sem ætluöu til Luxem-
bourgar léggja á sig sex tima
ökuferö þangaö. Vél, sem fljúga
átti frá Luxembourg tii Chicago,
seinkaöi vegna veöurs. Vél Flug-
, félagsins, sem fór frá Kaup-
mannahöfn áleiöis til Keflavikur
á þriöjudag, varö aö snúa viö,
: þegar hún nálgaöist landiö og
: lenti I Glasgow.
A þriöjudag lá allt innanlands-
flug niöri, og á miövikudag var
aöeins flogiö til Akureyrar, Sauö-
árkróks og Húsavikur.
Að sögn Sveins Sæmundssonar,
blaöafulltrúa Flugleiöa, var allt
flug meö eðlilegum hætti i gær
bæöi utanlands — og innanlands-
flug nema hvað ekki var flogið til
Eyja.
SJ 1 vetur hefur nær 1800 tonnum af salti veriö mokaö á götur höfuöborgarinnar I þvi skyni aö auö-
velda bilaumferö og gera ökumönnum kleift aö aka á ónegldum hjólböröum. Þegar gerir asahláku eins
og að undanförnu safnast saltiö hins vegar saman ásamt krapa og fyllir niöurföll.
Um tiu menn vinna aö jafnaði aö þvi hjá borginni aö auövelda umferö i snjó og hálku, en þegar sér-
staka nauösyn ber til cr liðið eflt og 30-40 manns vinna viö slik verkefni. Undanfarna daga hefur stööugt
veriö unniö aö þvl aö losa um salt og krap viö niðurföll svo aö þau geti gegnt hlutverki sinu og göturnar
geti sem fyrst oröiö auöar og snyrtilegar, ef ekki snjóar þá ofan I og sagan byrjar upp á nýtt.
s Timamynd: Robert
N ákvæmar
eftirlík-
ingar úr
íslenzkri