Tíminn - 25.01.1978, Side 3
Miðvikudagur 25. janúar 1978.
3
Óveður á Siglu-
firði á mánudag
FI — Já, við urðum að loka
barnaskólanum á mánudaginn,
þvi að veðrið var stórhættulegt
á tlmabili. Járnplötur fuku af
skúrum og einu ibúðarhúsi og
bátar I höfninni urðu fyrir ein-
hverju hnjaski, sagði Jóhann
Helgason, skólastjóri barna-
skólans á Siglufirði, þegar hann
var spurður um óveðrið, sem
gekk yfir Siglufjörö aðfararnótt
mánudagsins og á mánudag.
Jóhann sagði, að mest hefði
veðurhæðin verið á milli kl. 9 og
13 á mánudaginn, þá hefði
stormurinn komizt upp í ein tíu
vindstig. Gengiö hefði á meö
roknabyljum og bleytuhríð, en
oft blæjalogn þess á milli.
Um nóttina gerði frost mikið
og var jörðin líkust hákarla-
skráp, þegar ég gekk út i
morgun, sagði Jóhann. Nú er
logn og bliða og sólin teygir sig
niöur i miðjar fjallshliðar.
Ríkisstj órnin
ræðir vanda
fiskvinnslu
GV — „Rikisstjórnin hefur fjallað
um vanda sjávarútvegsins og
fiskvinnslunnar fyrir og eftir
hugsanlega fiskverðshækkun og
hefur málið verið mjög til um-
ræðu innan rikisstjórnarinnar”,
sagði Jón Sigurðsson, oddamaður
yfirnefndar Verðlagsráðs sjávar-
útvegsins, er hann var spurður
um, hvort til afskipta rikis-
stjórnarinnar kæmi af fiskverðs-
máiinu. Jón sagðiennfremur i bvl
sambandi, að ekki kæmi til
beinna afskipta rikisstjórnarinn-
ar af ákvörðuninni sjálfri, þótt
hún tengdist vitaskuld almennum
ákvöröunum rikisstjórnarinnar I
efnahagsmálum.
Horfúr í fiskverðsmálinu eru
enn þær sömu, fiskverðiö verður
sennilega ákveðið með atkvæðum
fulltrúa sjómanna, útvegsmanna
og oddamanns og átti Jón ekki
von á því aö þær horfur breyttust.
Akvörðun almenna fiskverðsins liggur nú brátt fyrir og má leiða
iikum að þvi að til töluverðrar hækkunar fiskverðs komi, þó að yfir-
nefndarmenn hafi ekki viljað tjá sig um máliö I gær. Til hvaða að-
gerða hyggst rlkisstjórnin gripa til að mæta auknum hallarekstri
fiskiðnaðarins?
„Verðjöfn-
unarsjóður
nánast not-
aður til að
búa til
sveiflur”
— segir Bíkharð Jónsson forstjóri
GV — Ef ákveðið verður 13%
hækkun á fiskverði eins og talað
hefur verið um án þess að nokk-
uð verði lagt fram til mótvægis
við þetta getum viö vart haldið
áfram okkar rekstri, sagði Rík-
harð Jónsson forstjóri Hrað-
frystihúss SIS á Kirkjusandi i
viðtali við blaðið i gær.
— Manni skilst að rikisstjórn-
in hafi talað um gengismálin i
þessu sambandi á löngum rlkis-
stjórnarfundum, en við mynd-
um heldur vilja að létt yrði á
einhverjum kostnaðarliðum,
heldur en að kostnaðargengi
yrði lækkað til okkar, sagði Rik-
harð ennfremur. Rikharð taldi
einnig að það væri ekki æskilegt
að Verðjöfnunarsjóður ætti ekki
að greiða hallann á fiskvinnsl-
unni. — Hlutverk Verðjöfnunar-
sjóðs er upphaflega til að jafna
sveiflur á erlendu markaðs-
verði, en nú hefur hann nánast
verið notaður til að búa til
sveiflur, auk þess sem þangaö
er litiö fjármagn að sækja.
Rikharð taldi að útgerðin
þyrfti á hækkun fiskverðs að
halda og væri það eðlilegt að
sjómenn fengju kauphækkun. —
En við teljum gengislækkun
ekki heppilega lausn og er það
skammvinn breyting. Við erum
með gengistryggð lán, sem
byggja á erlendum gengis-
skráningum. Það þarf fyrst og
fremst að hafa hemil á verð-
bólgunni þvi örar verðhækkanir
skapa okkar vandamál, sagði
Rikharð að lokum.
Tekj uþróunin 1977
sjómönnum í hag
SKJ — Samkvæmt skýrslu þjóð-
hagsstofnunar hafa tekjur sjó-
manna hækkað mun meira en
tekjur verkamanna og iðnaðar-
manna á árunum 1976 og 1977.
SSt — Eins og kunnugt er hefur
veriö stofnaður nýr stjórnmála-
flokkur, sem heitir einfaldlega
Stjórnmálaflokkurinn og hefur
stjórn hans þegar verið valin.
Formaður er Ólafur E. Einars-
son, sem er formaður og er hann
sá eini i stjórninni sem eitthvaö
hefur tekiö þátt I stjórnmálum, en
hann var ábur flokksbundinn
sjálfstæðismaður. Varaformaður
flokksins er Kristmundur Sörla-
son, ritari er Eirikur Rósberg,
gjaldkeri Steinunn ólafsdóttir og
meðstjórnandi Tryggvi Bjarna-
Hér er miðab við meðaltekjur sjó-
manna en tekjur þeirra geta ver-
ið afar misjafnar eftir þv.i hvaða
veiðar eru stundaðar og hve mik-
iil afli fæst. t þessum samanburði
mánuði á vegum landsmálasam-
takanna „Sterk stjórn”, og tekur
flokkurinn upp þrjú atriði, sem
landsmálasamtökin auglýstu.
Þau voru: t fyrsta lagi, að breyta
stjórnarskrá lýöveldisins, meðal
Framhald á bls. 19.
er heidur ekki gerð nein tilraun til
að meta þann vinnutima, er að
baki býr.
Ljóst virðist þó af samanburði
tekna sjómanna og annarra stétt.
að þróunin hefur snúizt sjómönn-
am i hag á siðustu tveim árum.
Tekjur sjómanna hafa ekki
breytzt að marki siöan á miöju
síöasta ári, nema vegna afla-
breytinga en sildar- og loönuveiði
var góð s.l. haust.
Annar mælikvarði á kjaraþró-
un sjómanna og annarra starfs-
stétta fæst meö samanburöi á
breytingu almenns fiskverös sem
mestu ræöur um sjómannatekjur
og kauptaxta launþega. Hlutur
sjómanna i skiptaverði botnfisks-
afla hækkaði talsvert umfram
kauptaxta árin 1975 og 1976 og allt
fram undir mitt ár 1977. A siöara
hluta árs 1977 hefur þetta siðan
snúizt við vegna þess aö fiskverð
hefur haldizt óbreytt frá miðju
ári.
Járnblendifélagiö:
Tekur fiórar
S t j ór nmálaf lokkurinn:
„Höfum fengið góð-
ar undirtektir”
— segir Ólafur E. Einarsson
son.
A6 sögn formanns flokksins,
Ólafs E. Einarssonar, hefur verið
gerður góður rómur að stofnun
Stjórnmálaflokksins og fjölmarg-
ir einstaklingar viðs vegar um
land gerzt stuöningsmenn hans,
þegar á fyrstu dögum. Aöspuröur
sagði Ólafur, að ákvörðun um
framboð yrði tekin nú á næstu
dögum.
Stefnuskrá flokksins hefur þeg-
ar veriö mótuö og verður bráð-
lega kynnt landsmönnum. Flokk-
urinn er stofnaður I beinu fram-
haldi af skoöanakönnun þeirri,
sem staðiö hefur yfir undanfarna
innlendar fréttir
Rólegt hjá
lögreglunni
í gær
SJ— Mjög rólegt var hjá lögregl-
unni I Reykjavlk i gær og engin
umferðarslys urðu.
A mánudagskvöld voru þrir
piltar teknir fyrir að stela bensini
úr bilum við Laugarásbió. Gistu
þeir hjá lögreglunni um nóttina,
en um ölvun mun einnig hafa ver-
ið að ræða.
Þá var brotizt inn i Sundhöll
Hafnarfjarðar i fyrrinótt, þrjár
rúður brotnar og óskilamunum
hent út i laugina. Annaö höfðu
innbrotsmenn ekki upp úr krafs-
inu.
íbúðir á leigu
á Akranesi
— Lánar bændum
13 milljónir
FI — Ákveðið hefur verið, að
bæjarstjórn Akraness leigi Járn-
blendiféiaginu f jórar ibúðir af 16,
sem eru i byggingu á Akranesi,
samkvæmt samningi við Hús-
næðismálastjórn. Verða ibúðirn-
ar ieigðar til fimm ára og hyggst
Járnblendifélagið nota þær fyrir
fjölskyldur starfsmanna sinna.
Mun hver fjölskylda fá hálfs árs
afnot af ibúö I senn, sem þýöir að
40 fjölskyldur koma til búsetu á
Akranesi á fimm árum. A móti
lánar Járnblendifélagiö Akranes-
kaupstað 13 milljónir króna til
byggingar ibúðanna.
króna
Hagurinn sem við sjáum i
þessu, sagði Magnús Oddsson
bejarstjóri á Akranesi I samtali
v ö Timann i gær. er aðflutningur
af fólki, sem nýtir þá þessar
ibúðir á meðan það er aö finna sér
annaö húsnæði i bænum.
Magnús kvaöst búast við aö
fjölskyldurnar myndu ekki eiga i
neinum erfiðleikum með að finna
sér framtiðarhúsnæði i bænum,
en tíminn yröi að leiöa slikt i ljós.
Nýbyggingar væru fjölmargar á
döfinni og frá áramótum hefðu
verið veittar lóðir fyrir um 90-100
Ibúðir
Veður skánandi á miðunum:
Loðnan farin
að veiðast
GV — I gær dró til tiöinda af
loðnuveiðum, en ekkert hafði
þá veiðzt i þrjá sólarhringa
vegna veöurs. Þrir bátar
höfðu tilkynnt um afla til
loðnunefndar siðdegis i gær,
Gisli Arni með 400 tonn,
Stapavik með 250 tonn og
Loftur Baldvinsson með 230
tonn, og fékkst aflinn á Kol-
beinseyjarmiðum.
A mánudagskvöld héldu
loönuskip á miöin þar sem út-
lit var fyrir betra veöur, en
skip höföu þá legið um tima
við Grimsey, i Raufarhöfn og
á fleiri stöðum. Veður fer nú
skánandi á miðunum og ef svo
fer sem horfir ætti að aflast
vel i dag.