Tíminn - 25.01.1978, Síða 12
12
Miðvikudagur 25. janúar 1978.
^ David Graham Phillips:
122
SUSANNA LENOX
JánHélgason
,ð\
er hann, hvislaði Ellen, — og hann er meira að segja í
bif reið.
Það varð úr, að Ellen færi til dyra, og um leið og hún
opnaði átti Súsanna að ganga kæruleysislega gegnum
forstofuna. Og þetta gerðu þær. Gideon var í fallegum
og dýrum fötum, mjög smekklegum. Hann angaði af
ilmefnum. En hann varð hvumsa við — þar til hann
mundi eftir því, að hún var bara sýningarstúlka, þó að
hún væri svona glæsibúin, en hann maður með f immtán
þúsund dala árskaup og á leiðinni að verða meðeigandi
f yrirtækisins.
— Fyndist yður ekki, að við ættum að borða á svölun-
um hjá Sherry? sagði hann.— Það er þægilega svalt þar.
Hún hafði hert upp hugann, er hún sá hann — hafði
hleypt í sig kjarki. Nú var hún komin út í orrahríðina, og
nú vildi hún duga. Ekkert hugleysi! Engan kveifarskap!
Hvers vegna ekki að njóta þeirrar gleði, sem hún átti
kost á? En hjá Sherry? Var það þorandi? Jú, hún gat far-
ið hvert sem var i Fimmtu-götu — nema kannski i Wal-
dorf. Spenser og kunningjar hans héldu sig á öðrum slóð-
um. Hann hafði aðeins einu sinni farið með hana til
Sherry, svo að hún gæti séð dásemdir kvöldlifsins þar. —
Eins og þér viljið, sagði hún.
Gideon var í essinu sínu. Hann langaði til þess að sýna
sig með veiði sína. Þegar þau óku brott, leit Súsanna upp
í gluggana. Hún sá, að gluggatjöldin bærðust, og bak við
þau gat hún greint þrjú vingjarnleg og eftirvæntingar-
full andlit. Hún hallaði sér út um gluggann á bifreiðinni
og veifaði til þeirra og brosti. Andlitin komu undireins
alveg út að glugganum, en drógu sig svo f Ijótt í hlé aftur
til þess að Gideon sæi þau ekki.
En Gideon var allt of niðursokkinn i hugsanir sínar til
þess að gefa gaum að slíku. Hann var að velta því fyrir
sér, hvernig hann ætti að haga samræðunum. Hann þótt-
ist vita, að þessi ungfrú Sackville væri — ekki verri en
allar hinar — og sjálfsagt margreynd á lífsins svelli. En
hann gat ekki gert áhlaupið beint framan frá — hann
varð að læðast að henni. — Þér eruð í fallegum kjól,
sagði hann svo
— Já, svaraði Súsanna, jaf n hreinskilnislega og venju-
lega. — Ungf rú Hinkle fékk hann lánaðan handa mér af
birgðunum.
Gideon vissi ekki, hvaðan á sig stóð veðrið. Auðvitað
grunaðihannhvar hún hafði fengið hattinn og kjólinn, en
hann hafði gert ráð fyrir allt öðru svari. Hann botnaði
hvorki upp né niður í þessu. Hann hafði lítið kynnzt
hreinskilninni í þeim leik, sem hann hafði þreytt við kon-
ur um dagana. Konur— konur af öllum stigum — lugu og
sviku i öllum sínum viðskiptum, rétt eins og karlmenn-
irnir, þegar þeir seldu vörur og keyptu. Og rödd hennar
og málfar kom einnig flatt upp á hann. Hann varð að
verða sér úti um áfengi eins fIjótt og ástæður leyfðu, þá
myndi hann jaf na sig. Já, eitt staup — það myndi hressa
hann. Og eitt staup handa henni — það myndi reka úr
henni þessa duttlunga. — Hún hlýtur að vera úr einhverri
göfugri stétt — ósvikin hefðarmær — og hún ekki af
venjulegu tagi. En hún kemur til sjálfrar sín, þegar hún
er búin að fá eitt staup. Eitt staup af ósviknu áfengi ger-
ir okkur öll hvert öðru lík. Samtalið gekk stirt alla leiðina
— snerist aðallega um veðrið. Súsanna gaf nánar gætur
að öllu, þreifaði fyrir sér og kunni orðið vel við sig. En
þegar bifreiðin sveigði af Fimmtu-götu og staðnæmdist
við aðaldyrnar á veitingahúsi Sherrys sá hún, að húsið
stóð við Fertugustu-og-f jórðu-götu — einmitt götuna, þar
sem þau Spenser höfðu búið þar til í gær. Nei, ekki í gær
— það var ómögulegt. Hún lokaði augunum og hallaði sér
aftur á bak í sætinu.
. Gideon beið til þess að hjálpa henni út úr bifreiðinni.
Hann sá, að eitthvað hafði komið fyrir hana — það gat
hann glöggt lesið út úr fölu andliti hennar. Hann varð
smeykur um, að þjónarnir við dyrnar myndu sjá, að
hann var í f ylgd með stúlku, sem var svo óvön viðhöf n og
skrauti, að henni lá við öngviti. — Herðið upp hugann,
sagði hann hranalega. Súsanna tók á sig rögg, stóð upp,
fór út úr bif reiðinni og gekk inn, mjög álút og skjálfandi
á beinunum. í ákaf a sínum að útvega borð og f á eitthvað
á það gleymdi Gideon alveg, hve f öl hún var.
Hann byrjaði umsvifalaust að panta það,sem hann
vildi fá, án þess að bera það undir hana, enda hrósaði
hann sér af því, hve gott vit hann hefði á mat og drykk,
en gerði á hinn bóginn ráð fyrir, að hún bæri lítið skyn-
bragð á slíkt. „Ætti það ekki að vera vínblanda?'' sagði
hann. ,,Jú, auðvitað. Yður veitir ekki af því, og það
fljótt.
Hún vildi heldur sherrý. Upphaf lega hafði hún hugsað
sér að bragða ekki vín, en nú fann hún, að hún varð at fá
eitthvað, sem styrkti hana og hressti. Gideon bað um eitt
glas af Martini, og þegar það kom, bað hann um annað
og hafði lokið úr þeim báðum, áður en hún var búin úr
sherrýstaupi sínu. — Svo hef ég beðið um kampavín,
sagði hann.
Sá grunur, að henni fyndist ekki meira en svo tii um
hann, kom honum undarlega fyrir, þegar áhrifin af vín-
inu voru farin að berast frá tómum maganum upp í
höf uðið. — Mér f innst einhvern veginn, að það muni fara
þokkalega á með okkur. Við sómum okkur ekki heldur
svo illa saman. — Hvað heitið þér — skírnarnaf nið?
— Lorna.
— Lorna, einmitt. Ég heiti Eðvald, en ég er alltaf
kallaður Giddi.
Þegar þjónninn kom með melónurnar, skipaði hann
honum að opna kampavínsflöskuna. — Skál fyrir kunn-
ingsskap okkar, sagði hann og hóf glas sitt á lof t.
— Þakka yður fyrir, sagði hún með erfiðismunum og
bar-glasið upp að vörunum.
Hann var allt of kurteis til þess að ympra á því, sem
hann hélt að væri orsök þess, hve fálát hún var. En hann
varð að binda enda á barnalega aðdáun hennar á um-
hverfinu, svo að hann sagði:
— Það er eins og þér séuð feimin, Lorna. Eða er það
allt uppgerð?
— Ég veit það ekki. Þér hljótið að lifa mjög til-
breytingamiklu lífi. Viljið þér ekki segja mér einhver
ævintýr yðar?
— O-o— ekki nema eins og gengur og gerist, svaraði
hann af hæfilegu lítillæti. En samt sem áður byrjaði
hann strax að lýsa sjálfum sér mjög nákvæmlega, eins
og það væri stærsta ævintýrið. Það var gamla sagan um
þrekmikinn og framgjarnan mann, sem byrjaði með
tveggja eða þriggja dala kaup á viku, en olbogaði sig
áfram. Súsanna lét eins og hún hlustaði á hann af at-
hygii, en samt kveinkaði hún sér við að hugsa um svona
hversdagslega frásögn. í samanburði við Roderick og
félaga hans var þessi grobbni kaupsýslumaður aðeins
leiðinlegur þöngulhaus. í hvert skipti, sem hann hló að
lýsingunni á kænsku sinni — hvernig hann hafði farið í
kringum þennan og gert hinum líf ið súrt— brosti hún. Og
hann hélt, eins og karlmönnum er títt, að hún hlustaði á
þessa sjálfsævisögu hans af jaf n miklum áhuga og aðdá-
un og hann sjálfur. — En ég hef haldið áfram að vera
„Ég týndi pabba hér inni, er mér
ekki óhætt a& öskra einu sinni og
þá er ég viss um að við finnum
hvorn annan.”
DENNI
DÆMALAUSI
hljóðvarp
Miðvikudagur
25. janúar
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15og 10.10.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. Við vinnuna:
Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: ,,A
skönsunum” eftir Pál Hall-
björnsson Höfundur les
sögulok (19).
15.00 Miðdegistónleikar
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn Halldór
Gunnarsson kynnir.
17.30 Útvarpssaga barnanna:
,,Upp á lif og dauða” eftir
Ragnar Þorsteinsson.Björg
Árnadóttir les (2).
17.50 Tónleikar. Tiikynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Samleikur i útvarpssal
20.00 Af ungu fólki Anders
Hansen sér um þátt fyrir
unglinga.
20.40 Dómsmál Björn Helga-
son hæstaréttarritari segir
frá.
21.00 Einsöngur: Tom Krause
syngur lög úr ,,Schwanenge-
sang"
21.25 „Fiðrið úr sæng Dala-
drottningar” Þorsteinn frá
Hamri les úr nýrri ljóðabók
sinni.
21.35 Sellótónlist: Igor Gav-
rysh leikur
21.55 Kvöldsagan: „Sagan af
Dibs litla” eftir Virginiu M.
Alexine.Þórir Guðbergsson
les þýöingu sina (4).
22.20 Lestur Passiusálma (3)
Dalla Þórðardóttir stud.
theol. les.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.50 Djassþáttur i umsjá
Jóns Múla Arnasonar.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
sjonvarp
Miðvikudagur
25. janúar 1978
18.00 Daglegt lif i dýragarði.
Tékkneskur myndafbkkur.
Þýðandi Jóhanna Þráins-
dóttir.
18.10 Björninn Jóki.Bandarisk
teiknimyndasyrpa. Þýðandi
Guðbrandur Gislason.
18.35 Cook skipstjóri. Bresk
myndasaga. Þýðandi og
þulur óskar Ingimarsson.
19.00 On We Go. Ensku-
kennsla. 13. þáttur frum-
sýndur.
19.15 Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Nýjasta tækni og vísindi.
Umsjónarmaður Sigurður
H. Richter.
20.55 Ul mikils að vinna (L)
Breskur myndaflokkur i sex
þáttum . 2. þáttur Tilhugalif-
ið. Efni fyrsta þáttar: Gyð-
ingurinn Adam Morris hef-
ur hlotið styrk til náms I
Cambridge. Herbergisfél-
agi hans er af tignum ættum
og rómversk-kaþólskrar-
trúar, og oft kastast i kekki
með þeim vegna trúarskoð-
ana. Herbergisfélaginn,
Davidson, býður Adam
heim til sin i páskafriinu.
Þýðandi Jón O. Edwald.
22.10 K vikm ynda þá ttur.
Umsjónarmenn Erlendur
Sveinsson og Sigurður
Sverrir Pálsson. Rifjuð eru
upp grundvallaratriði kvik-
myndaþáttunum á siðast-
liðnum vetri.
22.45 Dagskrárlok
^ ---------------------------