Tíminn - 08.02.1978, Qupperneq 1
Þaö var mannfátt I þingsal Alþingishússins er ijósmyndara Tlmans bar þar að slödegis I gær enda
var þá Irestun á þingfundi. En búast má viö aö þingmenn flykkist I sæti sln I dag til aö hlýöa á er
rikisstjórnin leggur fram frumvarp sitt um gengisbreytingu.
Timamynd Róbert
Tilkynningar
um gengis-
skráningu að
vænta í dag
JB—Um klukkan hálfþrjú i gær-
dag lauk fundi formanna stjórn-
málaflokkanna og allra þing-
flokkanna þar sem lagðar voru
fyrir og samþykktar tillögur
rikisstjórnarinnar i gjaldeyris-
málum.
I framhaldi af þvi mun rikis-
stjórnin i dag leggja fram á þingi
frumvarp um gengismunar-
skráningu og aðrar ráðstafanir
viö gengisbreytingar, þ.e. beinar
peningalegar afleiðingar af
gengisbreytingu. Verður frum-
varpið rætt á þingi i dag og af-
greitt á morgun.
Þá mun rikisstjórnin leggja
annað frumvarp fyrir þingið á
fimmtudaginn. Fjallar það um
hliðarráðstafanir i efnahagsmál-
um, en að öðru leyti er efni þess
ekki ljóst. Frumvarp þetta verður
tekið til umræðu á föstudag en
ekki afgreitt fyrr en eftir helgi.
Þá var fjallað um gengisskrán-
inguna á fundi hjá bankaráði
Seðlabankans i gær og voru þar
ræddar tillögur, sem fram hafa
komið i þeim efnum. Ekkert var
endanlega ákveðið á fundinum i
gær og mun niðurstöðu ekki aö
vænta fyrr en siðar i dag.
Friðrik vann Ögaard
— margar liflegar skákir í gærkvöldi
SSt — Margar liflegar skákir
voru tefldar I fjórðu umferð
Reykjavikurskákmótsins, sem
tefld var I gærkveldi. Skák-
mennirnir fóru rólega af staö,
en þegar leiö aö 30 leikja
mörkunum jókst spennanog
tlmahrakiö virtist breiöast út
meöal keppenda eins og smit-
andi sjúkdómur. Þannig lenti
Browne I afarmiklu timahraki á
móti Kuzmin, en gat bjargað sér
á siöustu stundu. Smejkal, sem
tefldi á móti Miles, lenti einnig I
taimahraki en slapp naumiega.
Ögaard fór sér allt of róiega á
móti Friðrik, lék iililega af sér
rétt áöur en hann náöi 30 ieikj-
um og gafst síðan fljótlega upp.
Guðmundur Sigurjónsson
tefldi fjöruga skák á móti Polu-
gaevsky með nokkrum svipting-
um. Guðmundur tapaði peði um
miðbik skákarinnar og eftir það
saumaði Polugaevsky jafnt og
þétt að honum og mátti Guð-
mundur gefast upp i 36. leik.
Önnur úrslit i fjórðu umferð
voru sem hér segir: Helgi og
Hort gerðu jafntefli.
Miles vann Smejkal. Þá fóru i
biö skák Margeirs Péturssonar
og Jóns L. Árnasonar og hefur
Margeir peð yfir. Kuzmin og
Browne gerðu jafntefli. Skák
Lombardys og Larsens fór i bið
og er Larsen talinn hafa heldur
betri stöðu.
Að loknum fjórum umferðum
er staðan á Reykjavikurskák-
mótinu þannig: •
1 Browne 3 1/2 v.
2-3 Friðrik 3 v
2-3 Miles 3 v
4-5 Polugaevsky 2 1/2 v
4-5 Hort 2 1/2 v
6-8 Larsen 2 v og biðskák
6-8 Kuzmin 2 v
6-8 Guðmundur Sigurjónsson 2 v
9 Lombardy 1 1/2 v og biðskák
10 Helgi Ólafsson 1 v
11-12 Margeir Pétursson 1/2 v og
biðskák
11-12 Jón L. Arnason 1/2 vinn-
ingur og biðskák
13-14 Smejkal 1/2 v og ein skák
inni
13-14 Ogaard 1/2 v og ein skák
inni.
Verðbólgu-
nefnd lýkur
störfum í dag
ESE — Timinn hafði samband viö
Guðmund G. Þórarinsson verk-
fræðing, i gær, en hann á sæti i
verðbólgunefnd og spurði hann
hvort hann gæti varpað einhverju
ljósi á það sem fram færii verð-
bólgunefnd og til hvaða ráða yrði
gripið i efnahagsmálum.
Guðmundur sagði að hann gæti
ekki gefið upplýsingar um það.
hvað verðbólgunefnd myndi
leggja til, því að fundum nefndar-
innar væri ekki lokið, en þó væri
það ljóst aö I tillögum veröbólgu-
nefndar yrði einkum tekiö tillit
til, annars vegar til vanda út-
flutningsatvinnuveganna og hins
vegar þeirrar þarfar að færa
framtiðarskipulag efnahagsmála
i ákveðinn farveg.
Metsala Ögra
í Þýzkalandí
GV — í fyrradag seldi togarinn
ögri RE, 241 tonn i Þýzkalandi
fyrir 451 þúsund þýzk mörk, og
reiknast það vera 47.3 milljónir á
siðast skráða gengi. Þetta er
hæsta sala i islenzkum krónum
sem farið hefur fram, að þvi er
Agúst Einarsson hjá Landssam-
bandi islenzkra útvegsmanna
tjáði blaðinu igær. Meðalverð var
195 krónur.
I gær seldi Þórunn Sveinsdóttir
VE 63 tonn einnig i Þyzkalandi
fyrir 105 þúsund mörk og var
meðalverö 174 krónur.
Alþýðusambandið
hefur ekkert frá
ríkisstjórninni heyrt
— fulltrúi Alþýðusambandsins i verðbólgunefnd
skilar séráliti
ESE — Miðstjórn Alþýöusam-
bands Islands kom saman til
fundar i gær vegna efnahags-
málanna. A fundinum var fyrir-
hugað að fulltrúi Alþýðusam-
bandsins I verðbólgunefnd geröi
grein fyrir störfum nefndarinn-
ar og þeim tillögum, sem þar
hafa verið til umræðu.
Timinn ræddi stuttlega viö
Björn Jónsson formann Alþýöu-
sambandsins fyrir fundinn og
innti hann eftir þvi hvort Al-
þýðusambandið hefði fengið
einhverjar ákveðnar tillögur til
úrlausnar frá rikisstjórninni og
ef svo væri i hverju þær væru
fólgnar.
Björn Jónsson sagði, að rikis-
stjórnin hefði ekkert samband
haft við Alþýðusambandið öðru
visi en I gegn um verðbólgu-
nefnd en bæði Alþýöusam-
bandiö og rikisstjórnin ættu full-
trúa þar.
Björn kvaö það ljóst vera að
afstaða þeirra hjá Alþýöusam-
bandinu og afstaða rikis-
stjórnarinnar i efnahagsmálum
færi ekki saman og myndi full-
trúi Alþýöusambandsins i verð-
bólgunefnd skila séráliti á
slöasta fundi verðbólgunefndar
sem veröur i dag.
Miöstjórn Alþýöusambandsins á fundi I gær. Tlmamynd Róbert