Tíminn - 08.02.1978, Page 3

Tíminn - 08.02.1978, Page 3
Miðvikudagur 8. febrúar 1978 3 Prófkjör fram- sóknarmanna á Egilsstöðum HEI — Pröfkjör Framsóknarfé- lags Egilsstaðahrepps, til sveitarstjórnarkosninga verður i barnaskólanum á Egilsstöðum laugardaginn 11. og sunnudaginn 12. febrúar. Kosið verður frá kl. 13-19 báða dagana. Kynningarfundur fyrir próf- kjörið verður i barnaskólanum fimmtudaginn 9. febrúar kl. 21. Fundurinn hefst með framsögu- erindum frambjóðenda, en þeir eru: Benedikt Vilhjálmsson, radió- virki, Friðrik Ingvarsson, bóndi, Magnús Einarsson, bankastjóri, Sveinn Herjólfsson, kennari, og bórhallurEinarsson, byggingam. Á eftir verða almennar umræð- ur og er fundurinn opinn öllum. Utankjörstaðakosning fer fram á tveim stöðum miðvikudaginn 8. febrúar. Er það hjá Páli Lárus- syni, formanni kjörstjórnar, Laufási 6, Egilsstöðum kl. 20-22 og á skrifstofu Framsóknar- flokksins, Rauðarárstíg 18, i Reykjavik, á skrifstofutima kl. 9-12 og 13-17. Uppsagnarfrest- ur miðast við fardaga — segir Húseigenda- félag Reykj avikur JS — Til þess að uppsögn heillar ibúðar eða atvinnuhúsnæðis telj- ist lögleg, miðað við næstu vor- fardaga, verður uppsögnin að hafa borizt gagnaðila i siðasta lagi 14. febrúarnæstkomandi, það er að segja á þriðjudaginn i næstu viku, sagði fulitrúi Húseigenda- félags Reykjavikur i samtali við blaðið i gær. Húseigendafélag Reykjavikur vill vekja sérstaka athygli á þvi að uppsagnir heilla ibúða, það er að segja þar sem ekki er einungis um að ræða útleigu einstakra her- bergja, og uppsögn atvinnuhús- næðis ber að miöa viö nma ai- mennu fardaga, en þeir eru sem kunnugter 14. mai að vorinu og 1. október að hausti, hafi eigi veriö um leigu samið á annan veg. Uppsagnarfrestur er þrir mánuð- ir. innlendar fréttir Sviðsmynd úr ,,Klukkustrengjum” eftir Jökul Jakobsson. Ungmennafélag Heykdæla sýnir verkið um þessar mundir I Logalandi. Ljósmynd: Vilhjálmur Einarsson skólastjóri í Reykholti. UNGMENNAFÉLAG REYKDÆLA: Sýnir ,JGukkustrengi” eftir Jökul Jakobsson í Logalandi JE Borgarnesi — Þann fjórða febrúar s.l. var frumsýnt f Logalandi leikritið Klukku- strengir eftir Jökul Jakobsson við mikinn fögnuð áhorfenda. Leikendur og leikstjóri voru hvað eftir annað kallaðir fram með miklu lófaklappi og þeim færð blóm. Ungmennafélag Reykdæla sá um uppfærslu verksins í tilefni af 70 ára afmæli félagsins á vori kom- anda, en Umf. Reykdæla hefur alltaf verið mjög framarlega i leiklistarstarfsemi um árautga skeið. Leikstjóri „Klukkustrengja” er Guðrún Alfreðsdóttir. Hún stundaði nám við Leiklistar- skóla Ævars Kvaran 1965-1966 og var f Leiklistarskóla Þjóð- leikhússins 1967-1970. Guðrún hefur tekið þátt í sýningum Þjóðleikhússins t.d. Sjálfstæðu fólki, Lysiströtu, Ertu nú ánægð kerling, Sjö stelpur og Herbergi 213 ásamt ýmsum verkefnum i hljóðvarpi og sjónvarpi. ..Klukkustrengir” er 5. leik- stjórnarverkefni hennar. Áður hefur hún stjórnað: Selurinn hefur mannsaugu, á Siglufirði, Tony vaknar til lifsins, i Ólafs- vfk,Péturog Rúna, á Dah'1; og Skirn, Höfn i Hornafirði. Persónur og leikendur eru sjö talsins ásamt stofulæðunni Dolly. Fjölmargir aðrir hafa unniö að sýningunni. Höfundinn Jökul Jakobsson er óþarfi að kynna, en leikritið „Klukku- strengi” samdi hann fyrir Leik- félag Akureyrar, sérstaklega ráðinn til þess arna. Leikritið var frumsýnt leikárið 1971-1972. Siðan var það sýnt i Þjóöleik- húsinu og þá, aö margra dómi, i mjög frumlegri uppsetningu Brynju Benediktsdóttur. Upp- setning Guðrúnar Alfreðsdóttur i Logalandi er þvi þriðja upp- færsla Klukkustrengja og sú fyrsta hjá áhugafólki. Leikendur i „Klukkustrengj- um” eru Ingibjörg Helgadóttir, Gréta Ingvarsdóttir, Kristófer Már Kristinsson, Páll Guðna- son, Hugrún Hauksdóttir, Þor- steinn Pétursson, Sigurður Þ. Jónsson og stofulæðan Dolly Brandur Högnason. Málm- og Skipasmíðasambandið: Yfirvofandi efnahags- aðgeröir skerði ekki kaupmátt launa JB — Miðstjórn Málm- og skipa- smi"ðasambands tslands hefur sent frá sér ályktun vegna um- ræðna um yfirvofandi efnahags- aðgerðir. Er i ályktunninni varað við þvi að stjórnvöld geri ráðstafanir, sem skerði kaupmátt launa eða verðbótaákvæði kjara- samninga verkalýðsfélaganna frá þvi i fyrravor, og bent á að slikar ráðstafanir jafngildi riftun kjarasamninga og myndi leiöa til deilna og átaka á vinnumarkaön- um. Siðan segir: — Kjarasamningar verkalýös- félagana i júni voru gerðir til að endurheimta kaupmátt vinnu- launa sem skertur hafði verið stórlega á árunum 1974-1977. Endurheimt kaupmáttar launa vegna kjarsetkðinganna l974-’77 er samkvæmt kjarasamningun- um dreift yfir sextán mánaða timabil og eru tvær siðustu áfangahækkanir launa ekki enn komnar til framkvæmda. Kaupmáttaraukning vinnu- launa samkvæmt kjarasamning- unum 1977 er sizt meiri en verð- mæta aukning sjóðarframleiðslu síðustu ára. Núgildandi kjarasamningar verkalýðsfélaganna eru þvi alls ekki orsök efnahagsvandamála atvinnuveganna. Vegna stjórnlausrar veröbólgu siðustu árin eru ákvæði kjara- samninganna um verðbætur launa grundvallaratriði þeirra. Verðbótaákvæðið hefur verndað kaupmátt launanna eftir siðustu kjarasamninga fyrir hömlulaus- um verðhækkunum almennra neyzluvara og stöðugs gengissigs sfðustu mánuði. An verðbóta- ákvæðis kjarasamninganna myndi kaupmáttargildi vinnu- launa minnka stöðugt af völdum verðhækkana. Verðlækkanir h'fsnauðsynja al- mennings þurfa þvi að vera fyrsta ráöstöfunin til að stöðva og draga úr verðbólgu eins og verka- lýðshreyf ingin hefur gert tillögur um i upphafi siðustu samninga- gerða, þá.m. söluskattslækkun. Skert kaupmáttargildi jafngildir ógildingu síðustu kjarasamninga JB- Blaðinu hefur borizt svolát- andi tilkynning frá Félagi járn- iðnaðarmanna: „A fundi stjórnar Félags járn- iðnaðarmanna 6. febrúar 1978 var samþykkt eftirfarandi ályktun i tilefni umræðna um fyrirhugaðar efnahagsaðgerðir: Stjórn Félags járniðnaðar- manna varar rikisstjórn og Alþingi við að gera ráðstafanir sem skerða kaupmáttargildi eða verðlagsbótaákvæði núgildandi kjarasamninga. Verði slikar ráð- stafanir gerðar telur stjórn Fél- ags járniðnaðarmanna þær jafn- gilda ógildingu siðustu kjara- samninga, sem óhjákvæmilega myndi leiða til alvarlegra kjara- deilna og átaka á vinnumarkaðn- um”. Ráðstefna BSRB: Fjallað um starf verkfallsnefndar GV —-1 dag er fimmti og siðasti fundur ráðstefnu BSRB um kjarasamninga og verkfall bandalagsins, og verður fundur- inn haldinn kl. 16 i Hreyfilshús- inu. PáU Guðmundsson og Guðni Jónsson hafa framsögu um starf verkfallsnefndar bandalagsins og Július Sigurbjörnsson fjallar um framkvæmd verkfallsins. Ráð- stefnan hófst þann 26. janúar en henni lýkur með hópstarfi i Munaðarnesi um næstu helgi. Ráðstefnan er einn Uöur i fræðslustarfi bandalagsins og er þvi ekki si'zt haldin fyrir hinn al- menna félagsmann. Mjög góð þátttaka hefur verið á ráðstefn- unni. Skráðir þátttakendur eru 120. Þorbjörg Pálsdóttir frá Gilsá látin Þorbjörg Pálsdóttir frá Gilsá I Breiödal andaðist i Hafnarfiröi á mánudagsmorguninn, þar sem hún dvaldist i sjúkrahúsi siöustu árin 92 ára gömul. Þorbjörg var mikil skörungs- kona sem lét mjög til sin taka margvísleg félagsmál. Hún giftist Lárusi Kr. Jónssyni og hófu þau búskap á Höskulds- stööum i Breiödal vorið 1916, en fluttust þaöan að Gilsá fjórum ár- um siðar. Lárus andaöist áriö 1933, en Þorbjörg hélt áfram bú- skap að Gilsá meö börnum sínum fram yfir 1942. A siðari árum dvaldist hún siöan hjá þeim til skiptis unz hana þraut þrek til langferða. Samningþóf blaðamanna: Miðar lítið áfram GV — Samninganefnd blaöa- mannafélagsins og fulltrúar blaðaútgefenda sátu lengi dags fund Sáttasemjara ríkisins,Torfa Hjartarsonar i gær, en ekkert miðaði i samkomulagsátt. Boðað hefur verið til fundar á ný I dag kl. 2.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.