Fréttablaðið - 13.08.2006, Qupperneq 24
ATVINNA
4 13. ágúst 2006 SUNNUDAGUR
Barnaspítali Hringsins
Hjúkrunarfræðingar
Vegna aukinna verkefna og endurskipulagningar á hágæsluþjónustu Barnaspítala Hringsins leitum við eftir áhugasömum og metnaðarfullum
hjúkrunarfræðingum til liðs við okkur. Við leitum að hjúkrunarfræðingum sem áhuga hafa á barna- og fjölskylduhjúkrun mikið veikra barna
og vilja leggja sitt af mörkum við hjúkrun þessara einstaklinga.
Boðið verður upp á markvissa aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum ásamt miklum möguleikum á starfsþróun og verkefnavinnu.
Kostur verður gefinn á að kynnast hinum ýmsu deildum spítalans ásamt gjörgæslu- og bráðaþjónustu.
Á Barnaspítala Hringsins er annast um börn og unglinga að 18 ára aldri. Áhersla er lögð á fjölskylduhjúkrun þar sem barnið
og fjölskylda þess er í forgrunni. Barnaspítali Hringsins er staðsettur í nýju og björtu húsnæði þar sem öll aðstaða er til fyrirmyndar.
Þar er starfandi hópur fagfólks þar sem samheldni og samvinna allra stétta er höfð í fyrirrúmi.
Laun samkvæmt gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Umsóknareyðublöð fást í upplýsingum Fossvogi og Hringbraut, skrifstofu starfsmannamála Eiríksgötu 5, á heimasíðu www.landspitali.is.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í störf á Landspítala - háskólasjúkrahúsi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Landspítali - háskólasjúkrahús er reyklaus vinnustaður.
Umsóknir berist fyrir 28. ágúst nk. til Auðar Ragnarsdóttur, deildarstjóra göngudeildar 20E, sími 543 3787, 824 5819, netfang audurr@landspitali.is
og veitir hún upplýsingar ásamt Elísabetu Halldórsdóttur, deildarstjóra á vökudeild, sími 543 3777, 824 5826, netfang elisabha@landspitali.is
Áfengisráðgjafar
Hjá Samtökum áhugafólks um áfengis og
vímuefnavandann starfa nú um 45 ráðgjafar við
áfengis og vímuefnameðferð á hinum ýmsum
starfsstöðvum samtakanna.
Vegna aukinna umsvifa viljum við fjölga í hópnum,
því eru nú auglýst laus störf áfengis og vímuefna-
ráðgjafa.Um er að ræða áhugaverð störf er hefjast
með 2ja ára starfsþjálfun sem fram fer á Sjúkrahús-
inu Vogi og öðrum starfstöðvum SÁÁ.
Unnið er á vöktum á öllum starfsstöðvum SÁÁ.
Upplýsingar um störfin gefur Hjalti Björnsson
dagskrárstjóri hjalti@saa.is sími 824 7620
Umsóknaeyðublöð eru hjá móttökuriturum á Vogi
Umsóknir berist SÁÁ, Stórhöfða 45, 112 Reykjavík í
síðasta lagi 25. ágúst n.k. (eldri umsóknir óskast
endurnýjaðar)
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
LY
F
33
71
1
0
8/
20
06
- Lifið heil
www.lyfja.is
Atvinnutækifæri hjá Lyfju
Vegna breytinga og vaxandi starfsemi getum við bætt lyfjatæknum, snyrti- eða
förðunarfræðingum og sölu- og afgreiðslufólki í okkar frábæra starfsmannahóp.
Störfin felast í ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum í verslun, afgreiðslu á
kassa, afhendingu lyfja gegn lyfseðli og afgreiðslu á lausasölulyfjum ásamt
ráðgjöf um val og notkun þeirra.
Um er að ræða fullt starf og hlutastarf í apótekum okkar á höfuðborgarsvæðinu.
Í boði eru líflegir vinnustaðir, gott vinnuumhverfi, samkeppnishæf laun og möguleiki á
starfsþróun.
Við leitum að drífandi starfsfólki með ríka þjónustulund, söluhæfileika, góða tölvu-
kunnáttu og getu til að vinna undir álagi. Reynsla af verslunarstörfum er æskileg og
reynsla úr apóteki er kostur.
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri (thorgerdur@lyfja.is) í síma 530-3800.
Tekið er við umsóknum á vefslóðinni www.lyfja.is.
Við leitum að sjálfstæðu,
skipulögðu og metnaðarfullu
starfsfólki sem hefur áhuga
á að ganga til liðs við framsækið
og spennandi fyrirtæki.
Hlutverk Lyfju er að stuðla að góðri heilsu og vellíðan. Frá upphafi hefur Lyfja verið brautryðjandi í lækkun lyfjaverðs og
boðið upp á ýmsar nýjungar í faglegri þjónustu. Fyrirtækið rekur apótek og heilsubúðir víðs vegar um landið ásamt því að
starfrækja lyfjaskömmtun til einstaklinga og stofnana. Hjá fyrirtækinu starfa um 300 manns. Lykillinn að árangri er
starfsfólkið okkar og því höfum við það að markmiði að fá hæft fólk til liðs við okkur, skapa eftirsóknarverða vinnustaði
þar sem góður starfsandi ríkir og að starfsfólk fái tækifæri til að öðlast faglegan og persónulegan þroska í starfi.
Einkunnarorð okkar eru áreiðanleiki, umhyggja og metnaður.
Smiðir
Kraftafl ehf auglýsir
Erum með vana smiði sem óska eftir mikilli vinnu.
Upplýsingar í síma 891 8667