Fréttablaðið - 13.08.2006, Qupperneq 73
������� ����� �������������� ���� �������� ���
������
�������
�������
�����
������
����
�������
�����
������ �������
�������
���
�����
�����
������
����
����
������
�������
����
�����
����
������
������
��������
���������
�����
�������
���
�������
����
�����
�������
������
������
���
����
������
������
����
�����
�������
���
������
�����
���
������
����
�����
�����
����
�����
�����
������
�����
�����
�����
������
����
��������
��
����
�����
�����
�������
���������
��������
������
��������
����
�������
������
������
��������
�������
�����
���
���
�����
�������
������
���
����
�����
������
����
���������
����
�������
�����
����
�������
����
�������
�������������������������������������������������������������������
��
��
��
� ����
��
��
�
�������
��
��
�
�
�
�
�
13. ágúst 2006 SUNNUDAGUR22
Dregið úr réttum svörum n.k.
fimmtudag kl. 12. - 99 kr. smsið
Þú sendir SMS skeytið JA LAUSN LAUSNARORÐIÐ
á númerið 1900!
Dæmi hvernig SMS gæti litið út ef svarið er Jón.
Þá sendir þú SMS-ið JA LAUSN JON.
LEYSTU
KROSSGÁTUNA!
Þú gætir unnið
þætti 1-13 úr fyrstu
seríu Prison Brake!
Í krossferð
gegn óhollustu
Dr. Steven Komadina,
þingmaður í New Mexico
í Bandaríkjunum, kom til
landsins fyrr í vikunni til að
halda fyrirlestur um nær-
ingu og heilbrigðan lífsstíl
en hann er þekktur innan
og utan Bandaríkjanna
fyrir baráttu sína gegn off-
itu og sjúkdómum tengdum
óhollum lifnaðarháttum.
Dr. Komadina hefur verið ríkis-
þingmaður frá árinu 2000 en með-
fram þingstörfum, sem hann
sinnir í sjálfboðavinnu, rekur
hann læknisstofu sem sérfræð-
ingur í fæðinga- og kvensjúk-
dómalækningum. Komadina
hefur komið víða við og George
W. Bush Bandaríkjaforseti er
meðal þeirra sem hann hefur
veitt ráðgjöf. „Bush er mikill
áhugamaður um holla lifnaðar-
hætti enda gerir hann sér grein
fyrir heilsuvandamálunum í
Bandaríkjunum, svo við höfum
spjallað nokkrum sinnum saman,“
segir Komadina. „Það sem mér
finnst svo merkilegt á Vestur-
löndum er að við erum ekki leng-
ur að sinna heilbrigðisþjónustu,
heldur sjúkraþjónustu. Læknar
hugsa fyrst og fremst um ný lyf
og meðferðir til að vinna á ein-
kennum sjúkdóma í stað þess að
hugsa um hvað er að valda þeim
og koma í veg fyrir þá með, til
dæmis, betra mataræði,“ segir
Komadina.
Offita flókið fyrirbæri
„Ég hef mestar áhyggjur af offitu.
Offita getur leitt til krabbameins
og hjartasjúkdóma sem eru aðal
dánarorsakirnar í dag, svo þetta
er grafalvarlegt mál. Ef við tökum
frá dauðsföll vegna ofbeldisglæpa
í Bandaríkjunum er stærstur hluti
þeirra dauðsfalla sem eftir eru
rakinn til offitu eða tengdra sjúk-
dóma. Með þessu áframhaldi mun
maðurinn deyja út,“ segir
Komadina.
Hann segir að ástæðurnar að
baki offituvandanum séu afar
flóknar en efst á blaði eru unnin
næringarsnauð matvæli. „Það er
búið að eiga svo mikið við allar
unnar vörur, til dæmis skyndimat,
að líkaminn skynjar matvælin
sem ókunn efni í staðinn fyrir mat,
og kallar á meira af óhollustunni.“
Hert fita, kjöt sem er ekki lífrænt
vottað og gervisykur eiga þar
stórt hlutverk, sem og kornvörur.
Komadina segir að manninum
hafi ekki verið ætlað að borða
hveiti. „Korn og afurðir unnar af
því, svo sem hveiti, innihalda efni
sem veldur vellíðan og kemur af
stað ákveðinni fíkn. Þetta er í raun
fíkniefni. Þegar þú færð þér
beyglu líður þér vel, en eftir
nokkra stund þarft þú meira.
Þannig versnar fíknin sífellt, en
samt skortir okkur næringu,“
segir Komadino.
Þvert á það sem almennt er
talið segir Komadina að hvítt
hveiti sé að mörgu leyti hollara en
gróft hveiti. „Fólki hefur verið
sagt að borða gróft hveiti. En rann-
sóknir sýna að efni í grófu hveiti
geti hrint af stað sjúkdómum á
borð við MS og iktsýki. Ég fæ mér
stundum eitthvað með korni en ég
er þá meðvitaður um að þetta er
ákveðið fíkniefni. En ég er alveg
hættur að borða brauð,“ segir Dr.
Komadina.
Ísland heilsuparadís
Dr. Komadina segir að Ísland búi
yfir miklum möguleikum sem
heilsuparadís. „Þið eruð með
hreina vatnið, náttúruna, og vand-
að kjöt og fisk. Ég hef sjálfur
tekið íslenskar fiskiolíur lengi til
að fá Omega 3, en það er alveg
nauðsynlegt núna þegar það er
búið að eiga svo mikið við mat-
vælin. Til dæmis er mun minna af
Omega 3 í kjúklingi í Bandaríkj-
unum en áður var vegna breyttra
framleiðsluaðferða sem eiga að
spara tíma,“ segir hann. „Ísland
gæti tekið við af spa-stöðunum í
Austurríki,“ segir læknirinn, en
varar jafnframt við því að Íslend-
ingar þurfi að standa vörðinn til
að koma í veg fyrir að heilbrigðis-
vandamál Bandaríkjanna verði
jafn alvarlegt á Íslandi.
rosag@frettabladid.is
DR. STEVEN KOMADINA Læknirinn og ríkisþingmaðurinn í New Mexico hélt fyrirlestur á fimmtudagskvöld á fundi með læknum og
hjúkrunarfólki.