Fréttablaðið - 13.08.2006, Síða 78
SUNNUDAGUR 13. ágúst 2006
Glitnir efnir til opinnar tveggja þrepa samkeppni
um hönnun höfuðstöðva bankans og um tillögu að
deiliskipulagi á tæplega 6 hektara lóð fyrir Glitni og
samrýmanlega atvinnustarfsemi. Samkeppnin fer fram
í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og samkvæmt
samkeppnisreglum þess.
Allir sem greiða skráningargjald að fjárhæð EUR 100 hafa
rétt til þátttöku á fyrra þrepi samkeppninnar og skulu þeir
leggja fram tillögur sínar til lausnar verkefnisins. Á síðara
þrepi samkeppninnar verða 4–6 aðilar valdir til að þróa
áfram tillögur sínar. Nafnleynd verður ekki rofin fyrr en
lokið verður við að dæma bæði þrep keppninnar. Stefnt er
að því að sá aðili (hópur) sem vinnur samkeppnina starfi
áfram í nánu samstarfi við verkkaupa og hlutdeildarfélag
hans að hönnun höfuðstöðva Glitnis og skipulagningu
svæðisins.
VERKEFNIÐ
Verkefnið felur annars vegar í sér gerð deiliskipulags
á Kirkjusandsreitnum og hins vegar tillögur að nýjum
höfuðstöðvum Glitnis. Gert er ráð fyrir að uppbyggingin
verði áfangaskipt sem greint verður nánar frá í
samkeppnisgögnum. Lóðin er alls 5,7 hektarar að
stærð. Meginhluti lóðarinnar verði skrifstofubyggingar
með nýtingarhlutfalli allt að 1,9 eða liðlega 90 þúsund
fermetrar, þar af eru núverandi höfuðstöðvar um 7
þúsund fermetrar. Í samráði við Reykjavíkurborg verða
að minnsta kosti 8.500 fermetrar af lóðinni skipulagðir
fyrir lágreista íbúðabyggð með nýtingarhlutfalli 0,7. Við
gerð skipulagstillagna er gert ráð fyrir að stærsti hluti
bílastæða nýbygginga sé ekki sýnilegur. Aðkoma að
deiliskipulagsreitnum verður frá Borgartúni og Kirkjusandi.
Gert er ráð fyrir að nýjar höfuðstöðvar Glitnis verði að fullu
teknar í notkun árið 2009.
UM NÝJAR HÖFUÐSTÖÐVAR GLITNIS
OG DEILISKIPULAG KIRKJUSANDSREITSINS
OPIN SAMKEPPNI
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
TÍMAÁÆTLUN
Verkkaupi gerir ráð fyrir eftirfarandi dagsetningum:
• Samkeppnisgögn fyrir fyrra þrep afhent frá og með 15. ágúst 2006
• Lok fyrirspurnartíma 3. október 2006
• Skil tillagna á fyrra þrepi 24. október 2006
• Niðurstaða dómnefndar vegna fyrra þreps og samkeppnisgögn fyrir síðara þrep
afhent 14. nóvember 2006
• Skil tillagna á síðara þrepi í 2. viku janúarmánaðar 2007
• Niðurstaða dómnefndar vegna síðara þreps er áætluð síðari hluta febrúar 2007
• Hönnun hefst í mars 2007
• Framkvæmdum lokið 2009
Samkeppnislýsingin verður aðgengileg á vef Arkitektafélags Íslands, www.ai.is, frá og með
15. ágúst 2006. Þar geta keppendur skráð sig til þátttöku og sent fyrirspurnir til trúnaðarmanns.
Sýnt í Landnámssetri í Borgarnesi
Sýningar í ágúst og september
Laugardagur 19. ágúst kl. 20 uppselt
Sunnudagur 20. ágúst kl. 15 örfá sæti laus
Sunnudagru 20. ágúst kl. 20 örfá sæti laus
Föstudagur 25. ágúst kl. 20 örfá sæti laus
Laugardagur 26. ágúst kl. 15 uppselt
Laugardagur 26. ágúst kl. 20 uppselt
Laugardagur 2. sept kl. 20
Sunnudagur 3. sept kl. 15
Sunnudagur 3. sept kl. 20
KVÖLDVERÐARTILBOÐ
Tvíréttaður matur og
leikhúsmiði 4300 - 4800
Pantið miða tímanlega í síma
437 1600 Staðfesta þarf miða
með greiðslu viku fyrir
sýningardag.
Aðsóknarmesta sýning
síðasta leikárs!
Drepfyndinn
gamanleikur í Reykjavík!
Miðasala er þegar hafin!
Miðasala í síma 551 4700 // opið 13:00-17:00 // www.midi.is //Austurbæjarbíó – Snorrabraut 37
Föstudaginn 18. ágúst kl. 20:00
Laugardaginn 19. ágúst kl. 20:00
Laugardaginn 26. ágúst kl. 19:00
Laugardaginn 26. ágúst kl. 22:00
Á ÞAKINU
17. ágúst - kl.20:00 - Uppselt
18. ágúst - kl.20:00 - Örfá sæti
24. ágúst - kl.20:00 - Örfá sæti
25. ágúst - kl.20:00 - laus sæti
31. ágúst - kl.20:00 - laus sæti
01. sept - kl.20:00 - laus sæti
Myndlistarkonan Jóhanna Boga-
dóttir opnaði sýningu í galleríi
grafíkfélagsins í Hafnarhúsinu við
Tryggvagötu í gær. Um er að ræða
innlit í viðfangefni listakonnunnar
þar sem kennir margra grasa en
þar sýnir hún málverk, teikningar,
litógrafíur, ljósmyndir og fleira.
„Þetta kom til með fremur stutt-
um fyrirvara en ég ákvað að setja
saman sýningu með svona vinnu-
stofustemningu með sýnishornum af
því sem ég hef verið að fást við síð-
ustu árin. Ég spilaði síðan uppsetn-
inguna af fingrum fram. Þetta er
óformleg sýning sem er eins og opið
hús,“ segir Jóhanna, sem verður á
staðnum á meðan á sýningunni stend-
ur og ræðir við gesti og gangandi.
Jóhanna útskýrir að sýningin sé
helguð þema sem hvílt hefur á
henni lengi en sem hún tengir við
misheppnaðar tilraunir mannsins
við að skapa betri heim. Þemað
kennir hún við línuna „Þrátt fyrir
sólskinið og bros barnanna vörpuðu
menn sprengjum“. Á sýningunni
eru verk þar sem unnið er með hita
og sólskin en líka jöklana, hafið og
bláu birtuna.
Börnin koma oft fyrir og á sýn-
ingunni má sjá ljósmyndir Jóhönnu,
til dæmis eru myndir hennar af
palestínskum börnum í flótta-
mannabúðum í Líbanon á sýning-
unni og á myndum sem hún tók í
ferð sinni til Afríku fyrir skömmu
en þær eru ásamt fleiru heimild
sem varpar ljósi á innblástur lista-
konunnar.
Sýningin verður opin í dag milli
15-18 en á menningarnótt næstkom-
andi laugardag verður hún opin
milli 14-22. Aðgangur er ókeypis og
allir velkomnir. - khh
„Sýning eða ekki sýning“
JÓHANNA BOGADÓTTIR MYNDLISTAKONA Verkið „Þrátt fyrir sólskinið...“ má sjá á óformlegri
sýningu í galleríi grafíkfélagsins.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
ÁGÚST
10 11 12 13 14 15 16
Sunnudagur
■ ■ TÓNLEIKAR
16.00 Gunnhildur Einarsdóttir
hörpuleikari og Kristjana Helga-
dóttir flautuleikari koma fram á
stofutónleikum á Gljúfrasteini.
17.00 Tékkneski tónlistarhópur-
inn Musica ad Gaudium heldur
tónleika í Akureyrarkirkju ásamt
Eydísi Franzdóttur óbóleikara.
■ ■ LEIKLIST
18.00 Leikhópurinn E.L.A sýnir
Meyjarheftið á sviðlistahátíðinni
Art Fart í húsi Ó. Jónssons &
Kaaber við Sætún
■ ■ DANSLIST
18.00 Íslenska hreyfiþróunar-
samsteypan sýnir Meyjarheftið á
sviðlistahátíðinni Art Fart í húsi Ó.
Jónssons & Kaaber við Sætún.
20.00 Danshópurinn Brite
Theatre frumsýnir dansverkið Kjöt
á sviðlistahátíðinni Art Fart í húsi Ó.
Jónssons & Kaaber við Sætún.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.