Fréttablaðið - 13.08.2006, Page 83
32 13. ágúst 2006 SUNNUDAGUR
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
ÁGÚST
10 11 12 13 14 15 16
Sunnudagur
■ ■ LEIKIR
16.00 Þróttur og Víkingur Ó.
mætast í 1. deild karla í fótbolta sem
og lið KA og HK.
■ ■ SJÓNVARP
11.40 EM í frjálsum í beinni
útsendingu á RÚV.
21.40 Helgarsportið á RÚV.
13.45 Chelsea og Liverpool mæt-
ast í leik um Samfélagsskjöldinn og
er leikurinn sýndur í beinni á Sýn.
FÓTBOLTI Víkingar hafa vakið mikla
athygli í Landsbankadeildinni í
sumar fyrir leikgleði og baráttu.
Eftir þrettán umferðir er liðið í
fjórða sæti deildarinnar en í síðasta
leik burstaði það ÍBV á heimavelli
sínum, 5-0. Arnar Jón Sigurgeirs-
son átti glimrandi leik og hefur
verið valinn leikmaður þrettándu
umferðar af Fréttablaðinu.
„Þetta var mjög sérstakur leik-
ur, fram að fyrsta markinu höfðu
Eyjamenn verið betra liðið á vellin-
um. Við sýndum þolinmæði og
biðum aðeins til baka. Um leið og
við komumst yfir gáfust þeir eigin-
lega strax upp,“ sagði Arnar Jón en
fyrsta markið í leiknum kom ekki
fyrr en á 44. mínútu.
Arnar er uppalinn hjá KR og var
í herbúðum félagsins þar til hann
fékk félagaskipti í Víking í febrúar-
mánuði. Hann gat ekkert spilað í
fyrrasumar vegna hjartagalla en
hann fór í hjartaþræðingu í júní-
mánuði. Þau veikindi settu þó feril
hans ekki í hættu. „Ég fékk alveg að
vita það að ég gæti snúið aftur í fót-
boltann þannig að það var aldrei í
hættu. Ég þurfti að bíða eftir þess-
ari aðgerð sem ég fór í og hefði
getað spilað eitthvað í fyrra ef ég
hefði farið í hana fyrr.“
Arnar segir það vissulega hafa
verið sérstaka tilfinningu í fyrstu
að spila í öðrum búningi en KR-bún-
ingnum. „Maggi (Magnús Gylfason,
þjálfari Víkings) hafði samband við
mig en Víkingur sýndi mikinn
áhuga á að fá mig. Ég þekkti náttúr-
lega Magga vel frá því ég var í KR
og ákvað að slá til. Stærsta ástæðan
fyrir því var sú að ég
taldi að ég myndi fá
stærra hlutverk
hjá Víkingi. Ég sé
svo sannarlega
ekki eftir því
enda hefur geng-
ið mjög vel í
sumar,“ sagði
Arnar Jón.
Hann
hefur leikið
frábærlega
á tímabil-
inu og verið
í lykilhlut-
verki hjá Víkingi. „Þetta hefur
verið alveg stórskemmtilegt og
persónulega hefur gengið mjög
vel hjá mér. En það spilar náttúr-
lega inn í að það eru mjög góðir
leikmenn sem eru í kringum
mig,“ sagði Arnar Jón en samn-
ingurinn sem hann gerði við Vík-
ing var bara út þetta tímabil. „Ég
er byrjaður að ræða við Vík-
ingana um nýjan samning, þeir
vilja halda mér og við erum bara
að skoða þetta í sameiningu.“
Víkingar hafa einnig fundið sig
vel í bikarkeppninni en þeir eru
komnir alla leið í undanúrslitin þar.
Arnar Jón vann fjóra titla með
meistaraflokki KR á árunum 1999-
2003 og þekkir því sigurtilfinning-
una vel. „ Það er mjög jákvætt að
venja sig á það að vinna titla og von-
andi náum við að skila bikar í hús á
þessu tímabili,“ sagði Arnar Jón.
elvargeir@frettabladid.is
Fékk stærra hlutverk hjá Víkingum
Arnar Jón Sigurgeirsson hefur blómstrað með Víkingi í Landsbankadeildinni í sumar. Á fimmtudag vann
liðið stórsigur á ÍBV á heimavelli en Arnar Jón lék fantavel í leiknum og er leikmaður 13. umferðarinnar.
HEFUR BLÓMSTRAÐ Í SUMAR Arnar Jón Sigurgeirsson er hér með boltann í leik gegn Fylki
fyrr í sumar en varnarmaðurinn Guðni Rúnar Helgason er að tækla. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
LIÐ UMFERÐARINNAR
Grétar S. Sigurðsson
Sigmundur Kristjánsson Óskar Örn Hauksson
Tryggvi Guðmundsson
Arnar Jón Sigurgeirsson
Ingvar Þór Kale
David Hannah
Jóhann Þórhallsson
Höskuldur Eiríksson
Viktor Bjarki Arnarsson
Bjarni Guðjónsson
3-4-3
FÓTBOLTI Miðarnir renna hratt út á
vináttulandsleik Íslands og Spán-
ar sem fram fer á þriðjudaginn á
Laugardalsvelli. Salan tók góðan
kipp eftir að sterkur hópur Spán-
verja var tilkynntur. Ekki eru
margir miðar eftir í stúku en
einnig er hægt að kaupa miða í
stæði á þennan leik þar sem um
vináttulandsleik er að ræða. Spánn
er einnig í sama riðli og Ísland í
undankeppni EM 2008.
Hægt er að kaupa miða á heima-
síðunni www.midi.is og einnig í
verslunum Skífunnar á höfuðborg-
arsvæðinu og BT-tölva á Akureyri
og Egilsstöðum.
- egm
Landsleikurinn gegn Spáni:
Miðarnir
renna hratt út
Ásdís keppti í spjótkasti
Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir
hafnaði í 25. sæti af 27 keppendum
á Evrópumeistaramótinu í frjálsum
íþróttum í Gautaborg í gær. Hún var
7,32 metra frá því að komast í úrslit með
því að kasta spjótinu 51,33 metra.
Skora eitt eða leggja upp tvö? Leggja
upp tvö.
Hver er seinastur á æfingar? Kiddi
Hafliða.
Erfiðasti andstæðingur? Kristján Örn.
Auðveldasti andstæðingur? Sigur-
björn Hreiðarsson.
Willum er... klassaþjálfari.
Hver er besti leikmaður heims?
Henry.
Að vera valinn í landsliðið er...
draumur og heiður.
Óttastu að vera rassskelltur eftir
Spánarleikinn? Var ekki farinn að hugsa
út í það.
Spænski eða enski boltinn? Enski.
Bold and the Beautiful eða
Neighbours? Neighbours.
Nýja klippingin er... mögnuð.
Gillzenegger er... sætur strákur.
> Stelpurnar urðu neðstar
Íslenska landsliðið í körfuknattleik
stúlkna 16 ára og yngri tapaði í gær
fyrir Portúgal 58-66 í lokaleik sínum í
B-deild Evrópumótsins sem fram fór í
Finnlandi. Hafrún Hálfdánardóttir var
stigahæst í íslenska liðinu sem byrjaði
leikinn vel en svo fór að halla undan
fæti en Hafrún skoraði tuttugu stig.
Íslensku stúlkurnar töpuðu öllum sjö
leikjum sínum á mótinu og höfnuðu í
sautjánda og neðsta sæti B-deildarinn-
ar. Jafnaldrar þeirra í piltalandsliðinu
töpuðu fyrir Úkraínumönnum 64-76 í
A-deild Evrópumótsins á
Spáni í gær þar sem
Pétur Jakobsson
var stigahæstur
í íslenska liðinu
með þrettán
stig. Þetta var
annað tap strák-
ana í jafnmörgum
leikjum.
FÓTBOLTI Peter Gravesen, leikmað-
ur Fylkis, gæti hafa leikið sinn síð-
asta leik með liðinu í sumar. Hann
lenti í samstuði við Guðmund Sæv-
arsson, leikmann FH, í leik liðanna
á fimmtudag og þurfti að fara af
velli í kjölfarið.
„Hnéð er enn mjög bólgið og er
ekki hægt að segja með vissu
hversu alvarleg meiðslin eru,“
sagði Peter í samtali við Frétta-
blaðið í gær. „Vitaskuld hef ég
áhyggjur af liðböndunum en ég er
þó aðeins skárri núna en gat til að
mynda varla gengið fyrsta daginn.
Vonandi næ ég fleiri leikjum í
sumar.“ - esá
Peter Gravesen:
Óttast um
hnémeiðsli
PETER GRAVESEN Hefur átt mjög gott tíma-
bil með Fylkismönnum í sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
MEÐ MATTHÍASI
GUÐMUNDSSYNI60 SEKÚNDUR