Fréttablaðið - 13.08.2006, Page 85
13. ágúst 2006 SUNNUDAGUR34
Öldungadeild MH
Viltu læra eitthvað nýtt og spennandi?
Viltu gæðakennslu?
Viltu styrkja undirstöðuna?
Skelltu þér þá í skemmtilegt og fjölbreytt nám hjá okkur.
Innritað verður dagana 16., 17. og 18. ágúst í skólanum frá 16:00 - 19:00, í
síma frá 9:00 – 15:00 og yfir netið allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar á heimasíðu MH - www.mh.is.
Áfangar í boði á haustönn 2006
Danska Hagfræði Náttúrufræði Stærðfræði
DAN1036 ÞJÓ1036 NÁT1036 STÆ1036
NÁT1136 STÆ2636
Eðlisfræði Íslenska NÁT1236 STÆ3036
NÁT1336 ÍSL1036 NÁT1336 STÆ5036
EÐL1036 ÍSL2036 STÆSTO (Stoðtími)
ÍSL3036 Norska
Efnafræði ÍSL3224 NOR1036 Sænska
EFN2036 ÍSL3736 NOR3036 SÆN1036
NÁT1236 ÍSL4036 SÆN2036
ÍSL4224 Saga SÆN3036
Enska ÍSL5036 SAG1036
ENS1036 SAG3036 Tölvufræði
ENS3036 ÍTA1036 SAG3836 TÖL1036 (Dreifnám)
ENS4036 ÍTA3036 TÖL1136 (Dreifnám)
ÍTA4036 Sálfræði
Félagsfræði SÁL1036 Þýska
FÉL1036 (Dreifnám) Jarðfræði SÁL2036 ÞÝS1036
FÉL2036 (Dreifnám) NÁT1136 ÞÝS3036
FÉL2636 JAR1036 Spænska ÞÝS5136
SPÆ1036
Franska Líffræði SPÆ3036
FRA1036 NÁT1036
FRA3036 LÍF1036
FORMÚLA 1 Ástralski ökuþórinn
Mark Webber var staddur hér á
landi í vikunni og heilsaði upp á
aðdáendur í Smáralindinni auk þess
sem hann spjallaði við sigurvegara
í dekkjaskiptakeppni sem Baugur
stóð fyrir í Vetrargarðinum. Webb-
er var einnig staddur hér á landi í
fyrra og er því orðinn félagi í hinu
fræga Íslandsvinafélagi.
„Þetta er stutt og gott stopp.
Mér líkar vel við fólkið hérna og
finnst gaman að koma í heimsókn,“
sagði Webber í samtali við Frétta-
blaðið. „Það er alltaf gaman að
keppnum eins og þessari sem fór
hér fram og sérstaklega gaman
fyrir sigurvegarana sem fá nú að
upplifa keppni í eigin persónu.“
Webber er orðinn einn af þekkt-
ustu ökuþórum Formúlunnar enda
er hann á sínu fimmta keppnisári.
Hann verður þrítugur eftir réttar
tvær vikur en sagði að kappakstur
hafi alltaf verið hluti af sínu lífi.
„Pabbi minn leyfði mér alltaf að
vaka og horfa á kappakstur í sjón-
varpinu,“ sagði Webber en eins og
gefur að skilja eru flestar keppnir
sýndar frekar seint að kvöldi til í
Ástralíu. „Ég missti aldrei af For-
múlukeppni og var mjög svekktur
frá nóvember og fram í mars þegar
engar keppnir voru. En ég fylgdist
líka með bandarísku keppnunum
eins og Indy 500 og tókst mömmu
minni aldrei að vekja mig á morgn-
ana til að senda mig í skólann dag-
inn eftir keppni enda lauk þeim
ekki fyrr en um 3-4 leytið um nótt-
ina.“
Faðir Marks, Alan Webber, var
eigandi mótorhjólaverslunar og
segir Mark að þó svo að hann hafi
aldrei keppt á mótorhjólum hafi
hann unun af því að aka á þeim.
Eins og svo margir aðrir ökuþórar
hóf hann sinn feril sem ungur tán-
ingur í Go-Kart kappakstri.
„Ferillinn minn hefur verið
nokkuð farsæll en ég vil samt gera
betur. Það er mikil áskorun að kom-
ast í Formúlu 1 keppnina og enn
meiri að halda sér inn í henni. Ég
tel mig vera samkeppnishæfan þó
að ég hafi ekki náð á toppinn en
hver veit hvað gerist í framtíð-
inni.“
Webber hóf ferilinn árið 2002 í
Minardi-liðinu, sem var aðallega
þekkt fyrir að vera hreinlega léleg-
asta liðið í Formúlu 1. Hann neitar
því ekki að ferill Minardi sé lítið
annað en hver vonbrigðin á fætur
öðrum. „Það er erfitt fyrir lið eins
og Minardi að bæta sig umfram
önnur lið. En þessir tólf mánuðir
sem ég var þar voru frábærir. Þetta
er rekið eins og fjölskyldufyrir-
tæki og er ég enn nákominn mörg-
um af þeim sem ég kynntist þar.
Þetta var mjög sérstakur tími í
mínu lífi.“
Þar næst lá leiðin til Jordan-liðs-
ins þar sem hann var í tvö ár áður
en hann gekk til liðs við Williams,
þar sem hann er á sínu öðru ári.
„Jagúar var frábær stökkpallur
fyrir mig og vann ég þar með
mörgu góðu fólki. Hjá Williams
hafa hlutirnir ekki gengið eins vel
og ég hafði vonast til. Þetta hafa
verið vonbrigði fyrir marga, bæði
sjálft liðið og mig og minn feril. En ég vona að ég komi mér aftur á rétt-
an kjöl á næsta ári.“
Ekki fyrir löngu síðan samdi
Webber við lið Red Bull og keppir
fyrir liðið á næsta ári. Hann var
einnig um tíma orðaður sem eftir-
maður Fernando Alonso hjá Ren-
ault og segir hann að það hafi verið
sannleikskorn í þeim fregnum.
„Þetta gerist hratt í samningsmál-
um sem þessum en í raun var ég
mun nær því að semja aftur við
Williams en nokkurn tíma að ganga
til liðs við Renault. Frank (Willi-
ams, eigandi liðsins) hefði getað
haldið mér. En hann vildi semja við
mig á breyttum forsendum og þá
kom upp tækifærið með Red Bull.“
Webber neitar því ekki að hlut-
irnir breytist þegar ökuþórar semji
um að ganga til liðs við önnur lið.
„Fyrst og fremst vill maður klára
tímabilið með sæmd en það er ekki
hægt að láta eins og ekkert hafi í
skorist. Og það gengur í báðar áttir,
til dæmis fær maður minna að
prufukeyra bílana eftir að hafa
samið við annað lið.“
Og hann segir að hann búist við
miklu af tíma sínum hjá Red Bull.
„Ég vona að ég eigi mín bestu ár
fram undan og það hjá Red Bull.
Það er ekki topplið eins og er en ég
hef lært mikið á undanförum árum
og vonandi á það eftir að nýtast mér
og liðinu vel. Ég hef ekki enn náð
þeim markmiðum sem ég setti mér
í upphafi ferilsins en vonandi verð
ég búinn að bæta úr því á næstu
árum.“ eirikur.asgeirsson@frettabladid.is
FLOTTIR KRÆKLINGAR Það var hópur frá Sauðárkróki sem bar sigur úr býtum í dekkja-
skiptakeppninni og skiptu þeir um öll fjögur hjól Williams-bifreiðarinnar á 4,2 sekúndum.
FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
VINSÆLL Webber gaf sér góðan tíma til að
gefa eiginhandaáritanir fyrir aðdáendur
sína sem komu í Smáralindina.
FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
MARK WEBBER Stillti sér upp á vinstra framdekk Williams-bifreiðarinnar í Vetrargarði
Smáralindarinnar í fyrradag fyrir ljósmyndara. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Ætla að ná mínu besta hjá Red Bull
Mark Webber segir í einkaviðtali við Fréttablaðið að hann ætli sér langt með liði Red Bull í Formúlu 1
kappakstrinum en hann er á leið til liðsins eftir tveggja ára vonbrigðaveru með Williams-liðinu.
FORMÚLA 1 Mark Webber viður-
kenndi í samtali við Fréttablaðið
að það hefðu verið hans eigin
mistök sem urðu til þess að hann
varð að hætta keppni eftir aðeins
einn hring í síðustu keppni sinni,
í Ungverjalandi. Hann var
fimmti á ráslínu en lenti í óhappi
á öðrum hring og varð að hætta
keppni.
„Stundum gerir maður mistök
og maður verður bara að viður-
kenna þau. Ég er ekki hræddur
við það. En þetta var einnig í
fyrsta skipti í ár sem ég geri mig
sekan um eitthvað slíkt og ekk-
ert við því að gera. Það fylgir því
mikil ábyrgð að aka í Formúl-
unni og í langflestum tilvikum
gengur allt að óskum.“ - esá
Webber um ungverska kappaksturinn:
Var algerlega mér að kenna
FÓTBOLTI Tímabilið hjá Sunderland í
ensku 1. deildinni byrjar ekki vel.
Liðið féll úr úrvalsdeildinni á síð-
asta tímabili en það hefur tapað
öllum þremur leikjum sínum í 1.
deildinni til þessa og lífið leikur því
ekki við Niall Quinn, sem nýlega
tók við liðinu. Í gær tapaði Sunder-
land 3-2 fyrir Plymouth. Hannes Þ.
Sigurðsson var ónotaður varamað-
ur þegar Stoke gerði markalaust
jafntefli við Sunderland. Ólafur
Ingi Skúlason spilaði allan leikinn
og fékk gult þegar Brentford gerði
2-2 jafntefli gegn Brighton á úti-
velli í 2. deildinni. - egm
Enska 1. deildin í gær:
Slæm byrjun
Sunderland
NIALL QUINN Á ekki sjö dagana sæla um
þessar mundir. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Gunnar Heiðar Þorvalds-
son mun í dag leika sinn fyrsta
deildarleik fyrir þýska liðið Hann-
over er það tekur á móti Werder
Bremen. Keppni í þýsku deildinni
hófst á föstudag og byrjuðu meist-
ararnir í Bayern München á 2-0
sigri gegn Borussia Dortmund.
Sex leikir fóru fram í gær og
vann Bayer Leverkusen 3-0 sigur á
Alemannia Aachen, Mönchenglad-
bach vann Cottbus 2-0, Mainz vann
Bochum 2-1, Hamborg og Bielefeld
gerðu 1-1 jafntefli, sömu úrslit urðu
í viðureign Schalke og Eintracht
Frankfurt og þá vann Nürnberg 3-0
útisigur á Stuttgart. - egm
Þýska úrvalsdeildin:
Fyrsti leikur
Gunnars í dag