Fréttablaðið - 14.08.2006, Qupperneq 23
MÁNUDAGUR 14. ágúst 2006 3
Guðmundur Óli Scheving
SKRIFAR UM MEINDÝR OG MEINDÝRAVARNIR
Lesendum Fréttablaðsins er velkomið að senda fyrirspurn á netfangið gudmunduroli@simnet.is.
Vegna fjölda fyrispurna til mín um
lýs, flær og maura ákvað ég að taka
saman stuttan pistil um þessi dýr.
Mörg þessara dýra lifa í nánasta
umhverfi mannsins og á honum. Öll
sníkjudýr eru háð hýsli sínum og hér
er fyrst og fremst átt við manninn. Hér
verður eingöngu fjallað um „útsníkla“
á mönnum og nánasta umhverfi.
Reglulega verður vart við „útsníkla“
á mönnum eins og flatlús, mannafló,
veggjalús, höfuðlús og rottufló/rottu-
maur. Allsherjar skordýraúðun þarf í
þeim híbýlum sem þessi dýr finnast.
Ef um er að ræða fjölbýlishús þarf að
úða allar vistarverur, líka geymslur og
alla sameign.
Það ætti alltaf að láta sérfræðinga
greina lýs, flær og maura ef menn
þekkja þau ekki, svo það sé alveg
ljóst hvaða dýr eru á ferðinni áður en
úðað er.
Lýs og flær hafa fylgt manninum
alla tíð og heimildir frá um 1944
segja frá því að það sé svo mikil lús
og kláðamaur í landinu að ráðleg-
ast sé að reisa aflúsunarstöðvar og
kláðalækningastöðvar í Reykjavík og
stærri kaupstöðum. En sem betur fer
byggðum við betri hús og hreinlæti
varð almennt og hirðing á gripahús-
um og húsdýrum breyttist til batnað-
ar. Mjög sjaldgæft er að mannkláða-
maur greinist hér á landi í dag, það
er þá helst að ferðamenn beri hann
með sér frá útlöndum og eru slík til-
felli alveg einangruð. Sömu sögu er
að segja um veggjalús.
Heibrigðisvandamál
Greining á rottufló og rottumaur í
híbýlum manna er mjög alvarlegt
mál og þarf strax að tilkynna þess-
ar niðurstöður til heilbrigðiseftirlits í
því sveitarfélagi sem um er að ræða
vegna hættu á að heilbrigðisvanda-
mál komi upp hjá íbúum í viðkom-
andi húsnæði.
Rottuflær og maurar lifa líka á
músum. Á Indlandi t.d. er talið að
um 20.000 þúsund manns hafi lát-
ist af svartadauða sem rakið var til
rottuflóar/rottumaurs á síðasta ári.
Mannalýs
Mannalýs: (Pediculus humanus)
höfuðlús og (Phthirus pubis) flatlús.
Þegar vísindamenn og fræði-
menn nota orðið lús er það ekki mög
afmarkað. Hugtakið lús er notað um
flest lítil dýr er lifa á skinni og húð dýra
og manna. Hins vegar þegar kemur
að því að flokka lýs er um að ræða
tvo mjög afmarkaða ættbálka lúsa:
Naglýs (Mallophaga) sem lifa af því að
naga hár, húð og fiður fugla og sog-
lýs (Anoplura) sem lifa af því að sjúga
blóð og aðra vessa úr hýslum sínum.
Soglýs eru flatar að vexti og með
sogmunn, yfirleitt gráar eða brúnleit-
ar, húð þeirra er leðurkennd og stinn
og hún getur þanist töluvert út þegar
hún er að sjúga blóð. Naglýs eru
vængjalausar og mjög smávaxnar, allt
að 2 mm. Þær eru sníkjudýr á fuglum
og spendýrum og hafa dýrategund-
irnar og fuglarnir sína sérstöku lús.
Egg lúsar eru kölluð nit. Lúsin fest-
ir eitt egg á líkamshárin eða þræði í
fötum með lími sem hún framleiðir.
Mannkláðamaurinn
Mannkláðamaurinn (Sarcoptes
scabiei) er af ætt áttfættlumaura og
lifir á mönnum en skyldar undirteg-
undir lifa t.d. á svínum og fara stund-
um yfir á menn. Maurinn grefur göng
í ysta lag húðarinnar og kvendýrin
verpa þar eggjum sínum. Það líða 3-
5 dagar þar til úr eggjunum klekjast
ungar sem líkjast fullorðnu dýrunum
en hafa aðeins sex fætur. Eftir nokkur
hamskipti fá þeir átta fætur. Maurinn
er svo smár að hann er vart greinan-
legur með berum augum enda 3/10
úr millimetra að stærð. Mikill kláði
fylgir maurnum.
Rykmaurar
Rykmaurar (Dermatophagoides pter-
onyssinus og D. farinea) eru af ætt
áttfætlumaura. Þá er að finna víða í
híbýlum manna, hreiðrum fugla og
alls staðar þar sem hiti, raki og húð-
flögur spendýra eru til staðar. Í tilfelli
mannsins eru það rúmin sem þeir
halda sig í en þar verpa þeir eggjum
sem úr koma ungar sem eru nauða-
líkir fullorðnu dýrunum. Ungarnir
hafa aðeins sex fætur en eftir nokk-
ur hamskipti eru fæturnir orðnir átta.
Rykmaurar fjölga sér gríðarlega hratt
og lifa í einn mánuð. Í einu rúmi geta
verið hundruð þúsunda rykmaura.
Þeir eru hálfgagnsæir, u.þ.b. 3/10
úr millimetra og vart sýnilegir með
berum augum. Margir hafa ofnæmi
fyrir húsaryki eða hafa ofnæmi fyrir
rykmaurum.
Í næsta pistli verður fjallað meira
um lýs, flær og maura.
Heimildir: Upplýsingar og fróðleikur
um Meindýr og varnir 2004
Pöddur Rit Landverndar nr. 9 1989
Stóra Skordýrabók Fjölva 1974
Meindýr í húsum og gróðri 1944
Maðurinn er hýsill fyrir... lýs, flær og maura
Síðsumarið er tíminn til að
líta yfir garðinn og athuga
hvort einhverju þurfi að breyta
næsta vor.
Síðsumarið er besti tíminn til að
huga að framtíðarskipulaginu í
garðinum því þá er gróðurinn
kominn í hámarksvöxt. Athuga
hvort grænmetishornið eða
jarðarberjaræktin fái ekki örugg-
lega næga birtu eða runnar, tré
eða annar hávaxinn gróður sé
hugsanlega farinn að skyggja á og
draga úr uppskerunni. Svo er um
að gera að skrifa hjá sér það sem
betur má fara, taka mynd eða
teikna upp það sem þarf að laga. Á
vorin eru nefnilega öll blóm niður
við jörð og erfiðara að átta sig á
hvernig gróðurinn þróast. Alltaf
er viss hætta á að lágvaxnar plönt-
ur lendi aftan við hávaxnari þegar
verið er að færa til plöntur og
setja nýjar niður.
Horfum á heildina
Hér hefur greinilega verið staðið rétt að öllu.
�����������
Faxafeni 5 • Reykjavík • Sími 588 8477 • betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
Opið virka daga frá kl. 10-18
Lokað á laugardögum í júní og júlí
ww
w.
de
sig
n.i
s ©
20
06
������
��
�
��
�
���������
��
�
�
�
��
�
�
���
����
�������
�������
������
�������������������������
���������������������
��������������������������
���������������������
������������������������
���������������������
������������������������
���������������������