Fréttablaðið - 14.08.2006, Blaðsíða 60
14. ágúst 2006 MÁNUDAGUR40
Sígild samtímatónlist Sígild samtímatónlist Sígild samtímatónlist
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
7
1
3
4
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
7
1
3
4
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
7
1
3
4
IÐNÓ
Iðnó eða Iðnaðar-
mannahúsið var
reist árið 1896 af
Iðnaðarmannafélagi
Reykjavíkur, eins
og nafnið gefur til
kynna. Arkitekt húss-
ins var Einar Pálsson,
sem einnig sá um
byggingu þess, en
það er í nýklassísk-
um stíl og kostaði alls 29.000 krónur í byggingu. Leiksýningar hófust þar
í byrjun árs 1897 og í lok sama árs var húsið gert að höfuðstöðvum hins
nýstofnaða Leikfélags Reykjavíkur. Iðnaðarmannafélagið átti húsið til 1918
og seldi það þá norskum bakarameistara, Frans Haakanson, sem rak þar
veitingasölu allt til 1928. Húsið hefur tekið nokkrum breytingum í tímans
rás og til dæmis voru arkitektarnir Gunnlaugur Halldórsson og Einar
Sveinsson fengnir árið 1930 til þess að lagfæra húsið. Reykjavíkurborg
keypti síðan húsið árið 1992 og hófust þá miklar endurbætur á því. Í dag er
þar bæði veitingasala og leikhúsrekstur. (heimild: www.leikminjasafn.is)
Útlán banka vegna íbúða-
kaupa náðu sögulegri lægð í
síðasta mánuði.
Íbúðalán bankanna námu rúmlega
3,6 milljörðum króna í júlí síðast-
liðnum og hafa aldrei verið minni
frá því bankarnir hófu að veita
slík lán fyrir tæpum tveimur
árum. Eftirspurnin eftir lánum
hefur minnkað og einnig gætir
tregðu hjá bönkunum til lánveit-
inga þar sem þeir gera meiri
kröfur til lántakenda nú en áður.
Þeir lána lægra hlutfall af markaðs-
virði fasteignanna og setja hámark
á hvert lán.
Í júlí 2005 námu útlán bankanna
til íbúðakaupa rúmum 16,6 millj-
örðum króna, en hæstu hæðum
náðu þau í október árið 2004 er þau
námu 34 milljörðum króna.
Meðalupphæð í hverju láni
hefur verið tæpar tíu milljónir
síðasta eitt og hálfa árið, um einni
milljón lægra en þegar mest var
um útlán, veturinn 2004. Grein-
ingardeild Landsbanka Íslands
telur ekki útlit fyrir miklar breyt-
ingar á fasteignaverði til ára-
móta.
Útlán drag-
ast saman
Líklega verða litlar breytingar á fasteigna-
verði fram að áramótum.
„Ég var nú að kaupa mér íbúð sem er í raun draumaíbúð-
in mín,“ segir Einar glaður. „Þetta er 100 fermetra íbúð
sem uppfyllir allar mínar kröfur um góða íbúð. Það er
mikil lofthæð þar sem íbúðin er á tveimur hæðum. Svo er
húsbóndaherbergi þar sem gamla skrifborðið hans langafa
míns fær aðsetur,“ bætir Einar við og tilkynnir stoltur að
húsbóndaherberginu verði breytt í barnaherbergi strax á
næsta ári. „Ég geri kröfur um stórt og rúmgott eldhús en
samt sem áður að það sé skipulagt á þann máta að auðvelt
sé að teygja sig í alla hluti og legg áherslu á það að fleiri en
einn geti eldað í einu,“ segir Einar hæstánægður með nýja
eldhúsið sitt. „Einnig er baðherbergið fullkomið þar sem
tveir komast fyrir í baðkarinu og það er hreint afskaplega
þægilegt. Það besta við þessa íbúð er þó að við fengum
frystikistu fyrri eiganda með í kaupunum. Þessir höfðingjar
sem seldu okkur skildu eftir humar í kistunni og færi ég
þeim bestu þakkir fyrir. Sá humar verður svo grillaður á
stóru svölunum okkar, þar sem hópur manna getur grillað
saman og notið útsýnisins suður á Reykjanes um leið.“
DRAUMAHÚSIÐ MITT: EINAR ÞORSTEINSSON FRÉTTAMAÐUR
Humar í frystikistunni
SELDAR EIGNIR Á
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU*
*þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisins.
300
250
200
150
100
50
0
FJÖLDI
30/6-
6/7
121
7/7-
13/7
116
14/7-
20/7
126
21/7-
27/7
104
28/7-
3/8
107
4/8-
10/8
67