Fréttablaðið - 14.08.2006, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 14.08.2006, Blaðsíða 72
32 14. ágúst 2006 MÁNUDAGUR sport@frettabladid.is Kvennalið Breiðabliks lék í gær sinn síðasta leik í riðlinum í Evrópukeppni félagsliða en hann var gegn meisturun- um frá Norður-Írlandi, Newtownabbey. Blikastelpur áttu ekki í erfiðleikum í þeim leik og unnu sannfærandi 7-0 sigur. Þrír leikmenn skoruðu tvö mörk í þeim leik en það voru Fanndís Friðriksdóttir, Sandra Sif Magnúsdóttir og Erna Björk Sigurðardóttir. Greta Mjöll Samúelsdóttir skoraði hitt markið en það var beint úr aukaspyrnu og var stórglæsilegt. Blikastelpurnar fóru rólega inn í leikinn en það var mjög sólríkt og heitt meðan á leik stóð. Þrátt fyrir það réðu þær gangi leiksins frá byrjun. Riðillinn var spilaður í Austurríki en Breiðablik vann hann á stórglæsilegan hátt. Liðið skoraði fjórtán mörk í þremur leikjum og hélt Þóra B. Helgadóttir markinu hreinu í öllum leikjunum. Breiðablik hefur nú tryggt sér sæti í milliriðli keppninnar en leikið verður í honum 12.-19. september og mun liðið meðal annars mæta Evrópumeisturum Frankfurt. Breiðablik byrjaði keppnina á að vinna fjögurra marka sigur á portúgölsku meisturunum í SU 1°Dezembro og þar á eftir vann það heimastúlkur í Neulengbach 3-0. Markahæsti leik- maður Breiðabliks í riðlinum í Austurríki var Erna Björk Sigurðardóttir en hún skoraði sex af mörkunum fjórtán. Það er þó ljóst að baráttan verður hörð þegar kemur að milliriðlinum og spennandi að sjá hvort Blikastúlkur nái að fylgja eftir árangrinum í Austurríki og kom- ast í átta liða úrslit keppninnar. Auk Frankfurt og Breiðabliks verða í milliriðlinum finnsku meistararnir í HJK og Vitebsk sem eru meistarar í Hvíta- Rússlandi. Það kemur tals- vert á óvart að Vitebsk skuli hafa náð að slá út ítölsku meistarana en þetta er frum- raun liðsins í Evrópukeppninni. KVENNALIÐ BREIÐABLIKS: BURSTAÐI NORÐUR-ÍRSKU MEISTARANA OG ENDAÐI Í EFSTA SÆTI RIÐILSINS Blikastúlkur í banastuði í Austurríki Loksins sigur hjá Silkeborg Danska úrvalsdeildarliðið Silkeborg vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu í Danmörku eftir fjóra tapleiki í röð. Liðið vann Viborg, 3-2, og það eftir að hafa lent 2-0 undir. Hörður Sveinsson og Bjarni Ólafur Eiríksson léku að vanda allan leikinn fyrir Silkeborg en Hörður var nálægt því að skora í leiknum. > Heiðar Geir í Svíþjóð Framarinn Heiðar Geir Júlíusson er þessa dagana staddur í Svíþjóð þar sem hann mun æfa með toppliði Hammarby fram á fimmtudag. Heiðar Geir, sem er 19 ára gamall, hefur verið fastamaður í liði Fram í sumar og hittir hjá Hammar- by fyrir fyrrum félaga sinn, Gunnar Þór Gunnarsson. Einnig er á mála hjá félag- inu Pétur Marteinsson en allir eru þeir uppaldir Framarar. Fram hefur góða for- ystu í 1. deildinni þegar enn á eftir að leika fjórar umferðir. Næst mætir liðið Þrótti á föstudaginn kemur. FÓTBOLTI Evrópumeistarar Barce- lona léku sinn síðasta æfingaleik í keppnisferðinni um Ameríku þegar þeir lögðu bandaríska liðið Red Bulls 4-1 en leikurinn fór fram í New York í fyrrinótt. Ronaldinho skoraði tvö mörk fyrir Barcelona en hin mörkin skoruðu hinir argentínsku Lionel Messi og Javier Saviola. Gamla kempan Youri Djorkaeff skoraði eina mark Red Bulls. Eiður Smári Guðjohn- sen lék síðari hálfleikinn í leikn- um og lagði upp markið sem Messi skoraði. „Ég er ánægður með þennan leik. Mér fannst Red Bulls spila þetta vel, leikmenn liðsins voru komnir með það að markmiði að sækja og úr varð þessi skemmti- legi leikur,“ sagði Frank Rijkaard, þjálfari Barcelona, en hann var ánægður með vel heppnaða æfingaferð liðsins. Keppni í spænsku deildinni hefst sunnudaginn 10. september en fyrsti leikur Barcelona verður á heimavelli gegn Osasuna. Það er búist við miklu af Börsungum en portúgalski miðvallarleikmaður- inn Deco sagði í viðtali í gær að leikmenn liðsins létu pressuna ekki á sig fá. „Við erum vel undir- búnir og liðið hefur styrkst frá síðasta tímabili svo stefnan er að sjálfsögðu að vinna alla titla sem við eigum möguleika á,“ sagði Deco. - egm Æfingaferð Barcelona lauk með stórsigri gegn bandaríska liðinu Red Bulls: Eiður lagði upp mark Messis FAGNAÐ Eiður Smári fagnar einu af mörkunum með félögum sínum. NORDICPHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Hólmar Örn Rúnarsson, knattspyrnumaður frá Keflavík, sagði við Fréttablaðið í gær að ekki væri spurning um hvort hann gengi til liðs við danska úrvals- deildarliðið Silkeborg heldur hve- nær. Hólmar Örn hefur samið um kaup og kjör við danska félagið en félögin tvö eiga eftir að ná saman um kaupverð. Faðir Hólmars, Rúnar Arnars- son sem einnig er formaður knatt- spyrnudeildar Keflavíkur, sagði í gær að boltinn væri hjá Silkeborg. „Þeir virðast ekki vera að flýta sér að ganga frá þessu máli og gætu þess vegna verið að bíða eftir því að samningur Hólmars við Kefla- vík renni út. En það myndi þýða að hann fengi ekki leikheimild með liðinu fyrr en í janúar,“ sagði Hólmar en félagaskiptaglugginn alþjóðlegi lokar hinn 1. septem- ber. Keflavík á tvo leiki eftir í ágúst- mánuði, gegn FH á sunnudag og ÍA fimmtudaginn 24. ágúst. Liðið er í þriðja sæti deildarinnar með nítján stig. - esá Hólmar Örn til Silkeborgar: Ekki hvort heldur hvenær HÓLMAR ÖRN RÚNARSSON Fer til Silke- borg, bara spurning hvenær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FÓTBOLTI Nú fyrir helgi bárust þær fregnir að norska úrvalsdeildar- liðið Molde hefði gert Breiðabliki tilboð í framherjann Marel Bald- vinsson. Í gær var sagt frá því í norskum fjölmiðlum að Molde hefði einnig augastað á Ármanni Smára Björnssyni, leikmanninum fjölhæfa hjá FH, en báðir voru þeir valdir í íslenska landsliðið sem mætir Spáni á morgun. Ármann Smári kannaðist ekki við áhuga norska liðsins er Frétta- blaðið hafði samband við hann í gær en hann sagði aðspurður að atvinnumennskan heillaði ef rétta tilboðið bærist. Hann var fyrir fjórum árum á mála hjá Brann í Noregi í fáeina mánuði. - esá Íslendingar vinsælir: Molde vill Ármann Smára LANDSLIÐSMENNIRNIR Ármann Smári Björnsson, FH, og Valsarinn Matthías Guð- mundsson. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA HANDBOLTI Viggó Sigurðsson byrj- ar vel sem þjálfari þýska úrvals- deildarliðsins Flensburg en liðið vann um helgina sigur á æfinga- móti í Þýskalandi. Liðið vann fremur óvænt tíu marka sigur á Lemgo í úrslitum og greinilegt að liðið er að standa sig vonum fram- ar undir stjórn Viggós. Logi Geirsson skoraði ekki í leiknum en Ásgeir Örn Hallgríms- son skoraði eitt fyrir Lemgo. Magdeburg varð í þriðja sæti á mótinu eftir sigur á Grosswall- stadt, liði Einars Hólmgeirssonar. Skoraði hann þrjú mörk í gær. Gummersbach, undir stjórn Alfreðs Gíslasonar, náði ekki nema sjötta sæti á mótinu en einn þriggja Íslendinga hjá liðinu, Guðjón Valur Sigurðsson var markahæsti leik- maður mótsins. Hinir tveir, Róbert Gunnarsson og Sverre Jakobsson spiluðu báðir í gær. - esá Æfingamót í Þýskalandi: Flensborg og Viggó unnu RÓBERT GUNNARSSON Skoraði tvö mörk fyrir Gummersbach í gær. BONGARTS FÓTBOLTI Svo gæti farið að Hjálm- ar Þórarinsson yrði lánaður í neðrideildarlið í Skotlandi en hann er á mála hjá úrvalsdeildarliðinu Hearts. Honum var tilkynnt ekki fyrir löngu að hann væri ekki í framtíðaráætlun liðsins og fór þá að líta í kringum sig. Nú síðast fór hann til norska liðsins Aalesund á reynslu en liðið ákvað að bjóða honum ekki samning þar sem for- ráðamönnum liðsins þótti hann vera sams konar knattspyrnumað- ur og eru fyrir hjá liðinu. Að sögn Ólafs Garðarssonar, umboðsmanns hans, er líklegast að Hjálmar verði lánaður í neðri- deildarlið í Skotlandi og verði þar út tímabilið. - esá Hjálmar Þórarinsson: Lánaður í neðri deild? HJÁLMAR ÞÓRARINSSON Hér í leik með Hearts en líklegt er að hann leiki í neðri deildunum í Skotlandi í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/SNS FÓTBOLTI Miklar vangaveltur hafa verið undanfarið um hvort lands- liðsfyrirliðinn, Eiður Smári Guð- johnsen, spili með Íslandi gegn Spáni á Laugardalsvelli annað kvöld. Eiður Smári kom í gær- kvöldi aftur til Barcelona eftir æfingaferð liðsins í Mið- og Norður-Ameríku. Geir Þorsteins- son, framkvæmdastjóri KSÍ, stað- festi við Fréttablaðið að ekki væri útlit fyrir annað en að Eiður Smári kæmi til landsins í dag og spili því leikinn á morgun. „Barcelona sendi KSÍ bréf fyrr í sumar þar sem þeir fóru fram á að Eiður Smári yrði ekki valinn í hópinn. Það var að ég held staðlað bréf sem Barcelona sendi á fleiri staði enda eiga þeir marga lands- liðsmenn í sínum röðum,“ sagði Geir. „En Eiður Smári var valinn og það er í raun það eina sem ég get sagt um málið. Hvort einhverj- ar frekari óskir berist okkur í fyrramálið (í dag) verður bara að koma í ljós.“ Geir sagði að KSÍ hefði verið í góðu sambandi við Eið Smára til að skipuleggja ferð hans hingað til lands. „Við höfum verið í sam- bandi við hann og unnið þetta allt í góðu samstarfi. Hann hefur sjálf- ur aldrei minnst á annað en að spila þennan leik en félögin setja oft þrýsting á leikmennina, það er alþekkt.“ Luis Aragones, landsliðsþjálf- ari Spánar, valdi leikmenn úr röðum Barcelona þó svo að félagið hafi sjálfsagt farið fram á að sínir menn yrðu hvíldir í leiknum. KSÍ hefur þegar fært leikinn til að koma til móts við þarfir Barcelona og Espanyol en liðin mætast á fimmtudag í fyrri leik liðanna um ofurbikarinn svokallaða á Spáni, keppni meistara meistaranna. Upphaflega átti leikurinn að fara fram á miðvikudag enda er það dagurinn sem er merktur sem landsleikjadagur á dagatali knatt- spyrnusambands Evrópu. Geir sagði það alls ekki ólíklegt að Eiður Smári ferðaðist hingað til lands með þeim leikmönnum Bar- celona sem voru valdir í spænska landsliðið. Fleiri íslenskir lands- liðsmenn koma hingað til lands í dag en þeir voru margir að leika með sínum liðum, einkum á Norð- urlöndunum. Þeir landsliðsmenn sem voru hér á landi í gær æfðu á Laugar- dalsvelli. eirikur.asgeirsson@frettabladid.is ÆFÐU Á LAUGARDALSVELLI Landsliðsmennirnir Hannes Þ. Stefánsson (til vinsti), Sigurvin Ólafsson (í miðju) og Ólafur Ingi Skúlason. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR Eiður Smári kemur í kvöld Barcelona sendi KSÍ beiðni fyrr í sumar um að Eiður Smári Guðjohnsen yrði ekki valinn í íslenska landsliðið sem mætir Spáni á morgun. Geir Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri KSÍ, sagði að Eiður kæmi til landsins seinni partinn eða í kvöld. Á ÆFINGU Eyjólfur Sverrisson þjálfari og Birkir Kristinsson markmannsþjálfari.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.