Fréttablaðið - 14.08.2006, Qupperneq 25
MÁNUDAGUR 14. ágúst 2006 5
ECC Skúlagötu 63 – Sími 511 1001
Hreinsar loftið
Eyðir lykt
Drepur bakteríur Bætt líðan með betra lofti
Ný sending komin.
Kröftug ryksöfnun. Ryðfrí stálblöð safna á sig ryki og öðrum óhreinindum í stað hefðbundins fílters.
Öflugt jónastreymi. Gefur frá sér mínus hlaðnar jónir sem hjálpa til við að eyða bakteríum, ryki,
mengun, veirum og frjódufti. Heldur herbergisloftinu hreinu og bætir heilsuna. Bakteríudrepandi
útfjólublár lampi. Útfjólubláa ljósið drepur ýmsa sýkla og bakteríur. Áhrifamikil lyktareyðing. Tækið
eyðir lykt auðveldlega svo sem reykingalykt, matarlykt og fúkalykt. Ljóshvatasía. Ljóshvati er efni
sem sýnir hvötunarviðbrögð þegar ljós skín á það. Þessi sía eyðir lífrænum efnasamböndum eins og
köfnunarefnisoxíði, úrgangsgasi, ýmsum bakteríum, vondri lykt o.s.frv. Þrjú skref. HI, MED og LOW
stillingar og Turbo stilling fyrir mismunandi aðstæður. (Blá ljós sýna stillingu). Gaumljós. Ljós sýna hvort
þrífa þarf fílterinn (stál blöðin) eða hvort tækið þarfnast annars viðhalds. Falleg og hentug hönnun.
Tækið er afar vel hannað bæði með útlit og notagildi í huga. Orkusparandi hönnun. Vegna orkusparandi
hönnunar notar tækið aðeins 28W á klst.
Grunnur að góðri
steinhæð
VAL Á GRJÓTI OG PLÖNTUM
SKIPTIR MIKLU MÁLI ÞEGAR GERA Á
FALLEGA STEINHÆÐ Í GARÐINUM.
Hraun, holta- eða sjávargrjót kemur
til greina, en af plöntum sem dafna
á steinhæðum má nefna smáa
runna eins og fjalldrapa og víði,
eini og furu og fjallajurtir á borð við
steinbrjóta og hnoðra. Áburðargjöf
ætti að vera í lágmarki og steinhæð-
in höfð á sólríkum stað.
Trjásnyrting
TRJÁSNYRTING EÐA -KLIPPING ER
VANDASAMT VERK, ÞAR SEM TÍMI
OG AÐFERÐ SKIPTA HÖFUÐ MÁLI
SVO ÓGAGN SÉ EKKI UNNIÐ.
Best er að klippa tré frá miðjum
júní út fyrri hluta ágúst og aftur frá
desember til mars. Á fyrra tímabilinu
eru tré í fullum vexti, en sár gróa
skjótar á þeim tíma, og í vetrardvala
á því síðara. Hætt er við að sár trjáa
smitist af fúasveppum séu þau klippt
á haustin. Þegar greinar eru teknar
af er sagað upp undir greinina 20-30
cm frá stofni, síðan er greinin söguð
af utan við upphaflegan sögunar-
stað en þá fellur hún af svo stubbur
verður eftir. Stubburinn er því næst
sagaður af með varkárni.
góð ráð }
Einnig samsettar einingar til
að gera læki.
Lækur tifar létt um
máða steina, segir í
kvæðinu. Á heima-
síðunni gosbrunnar.
is er hægt að fá allt í
garðinn sem tengist
tjarnagerð, gos-
brunnum og vökva-
flæði.
Hægt er að fá til-
búnar einingar til
samsetningar.
Lækjareiningarnar
líkjast flögusteinum
að gerð og eru fáan-
legar í mörgum
útfærslum. Lækja-
kerfin eru auðveld í uppsetningu
og þegar einingarnar veðrast
verða þær mjög raunverulegar
þar sem mosi og
annar rakagróður
festist í skuggasvæð-
um sem gerir lækinn
enn raunverulegri.
Hægt er að byrja
smátt og bæta ein-
ingum við síðar meir.
Hver tjarnar- og
lækareining er seld
sér og án dælu en
tenglar fyrir dælur
eru í öllum eining-
urm. Einnig er hægt
að fá fullsamsettar
einingar með
dælum. - elí
Gosbrunn í garðinn
Einingarnar eru til í öllum stærð-
um, frá lítilli syllu upp í þessa
187 cm fossaeiningu.
Kjöraðastæður
málunar
EF MÁLAÐ ER MEÐ VATNSMÁLN-
INGU VIÐ MIKINN HITA SKAPAST
HÆTTA Á ÞVÍ AÐ MÁLNINGIN ÞORNI
OF HRATT.
Í kjölfarið geta rúllu- og pensilför
orðið greinileg. Ef hitastigið er of
mikið má einfaldlega lækka kynd-
ingu, en auka rakastig með þartil-
gerðu tæki eða skrúfa frá heitu vatni
og loka gluggum til að halda raka
inni. Að málun lokinni má hleypa
raka út og hækka kyndingu að nýju
til að flýta fyrir þurrkinum. Sjá nánar
á www.flugger.is
Óhentugt er og dýrt að hafa
glugga opna lengi.
Nauðsynlegt er að endurnýja loft í
híbýlum okkar reglubundið. Það
er mikil sóun á hita og fjármunum
að hafa glugga opna langtímum
saman. Slík síloftun er afar
ómarkviss leið til loftskipta og
veldur miklu hitatapi. Skilvirkasta
leiðin til markvissra loftskipta er
að lofta vel út í 10-15 mínútur en
hafa alla glugga lokaða þess á
milli.
Opnir gluggar skila litlum loft-
skiptum en valda miklu hitatapi
með tilheyrandi kostnaði. „Að
henda peningum út um gluggann“
er ekki góð aðferð til loftskipta.
(www.orkusetur.is)
Loftskipti húsnæðis
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓBERT