Fréttablaðið - 14.08.2006, Qupperneq 66
14. ágúst 2006 MÁNUDAGUR26
menning@frettabladid.is
!
Aðsóknarmesta sýning
síðasta leikárs!
Drepfyndinn
gamanleikur í Reykjavík!
Miðasala er þegar hafin!
Miðasala í síma 551 4700 // opið 13:00-17:00 // www.midi.is //Austurbæjarbíó – Snorrabraut 37
Föstudaginn 18. ágúst kl. 20:00
Laugardaginn 19. ágúst kl. 20:00
Laugardaginn 26. ágúst kl. 19:00
Laugardaginn 26. ágúst kl. 22:00
Á ÞAKINU
17. ágúst - kl.20:00 - Uppselt
18. ágúst - kl.20:00 - Örfá sæti
24. ágúst - kl.20:00 - Örfá sæti
25. ágúst - kl.20:00 - laus sæti
31. ágúst - kl.20:00 - laus sæti
01. sept - kl.20:00 - laus sæti
Sýnt í Landnámssetri í Borgarnesi
Sýningar í ágúst og september
Laugardagur 19. ágúst kl. 20 uppselt
Sunnudagur 20. ágúst kl. 15 örfá sæti laus
Sunnudagru 20. ágúst kl. 20 örfá sæti laus
Föstudagur 25. ágúst kl. 20 örfá sæti laus
Laugardagur 26. ágúst kl. 15 uppselt
Laugardagur 26. ágúst kl. 20 uppselt
Laugardagur 2. sept kl. 20
Sunnudagur 3. sept kl. 15
Sunnudagur 3. sept kl. 20
KVÖLDVERÐARTILBOÐ
Tvíréttaður matur og
leikhúsmiði 4300 - 4800
Pantið miða tímanlega í síma
437 1600 Staðfesta þarf miða
með greiðslu viku fyrir
sýningardag.
Kl. 11
Arnar Ingi Gylfason heldur aðra
einkasýningu sína á Thorvaldsen
Bar í Austurstræti. Sýningin stendur
til 8. ágúst.
Fæst okkar vilja henda
bókum þrátt fyrir vissuna
um að við munum ekki lesa
margar þeirra nema einu
sinni. Fyrir þá sem vilja losna
við lesnar bækur og fá í
staðinn önnur og fýsilegri rit
má benda á heimasíðuna
www.bookmooch.com sem
er nokkurs konar alþjóðlegur
rafrænn skiptimarkaður fyrir
bækur. Kerfið virkar þannig
að lesendur fá gefins bók í
hvert sinn sem þeir gefa ein-
tak, hægt er að skrá inn bæði
lista yfir gjafabækur og óska-
lista yfir þær sem eru á leslistanum og kerfið sér
til þess að óþreyjufullir lesendur með takmarkað
hillupláss eru tengdir saman á fljótvirkan hátt.
Markmið síðurnnar er að halda bókum í
umferð því líkt og getið
er á síðunni er ekkert
verra fyrir bókmennt-
irnar en að en bækur
stöðvist í hillunum og
séu ekki lesnar. Það
kostar ekkert að nýta
sér þjónustu heimasíð-
unnar en hún er rekin
á auglýsingatekjum frá
vefversluninni Amazon
sem hefur hlekk inni
á skiptisíðunni fyrir þá
sem ekki finna þar allt
sem þeir leita að.
Þess má einnig geta
að sérstakt stigakerfi er skipulagt fyrir notendur
síðunnar þar sem þeir geta safnað fé til að niður-
greiða flutningskostnað bókanna eða safnað fyrir
líknarfélög eða hjálparsamtök.
Nýtt líf fyrir gamlar bækur >Ekki missa af...
fjölbreyttri sviðslistahátíð í fyrr-
um húsakynnum Ó. Jónssons
& Kaaber við Sætún. Á Art Fart
er leiklist og danslist í bland við
aðra menningarlega tilrauna-
starfsemi.
myndlistarsýningu Tedda í Perl-
unni. Tilkomumiklir viðarskúlpt-
úrar með sál og langa sögu.
Fullkomnu brúðkaupi Leikfé-
lags Akureyrar sem nú er sýnt í
Borgarleikhúsinu. Aðsóknar-
mesta leiksýning ársins kitlar
hláturtaugarnar.
Félagar í tékkneska tónlistar-
hópnum Musica ad Gaudium
sækja Ísland heim í annað
skipti og flytja hlustendum
endurreisnar og barokk-
tónlist í bland við heillandi
nýsmíðar.
Hópurinn hefur verið á ferð ásamt
Eydísi Franzdóttur, óbóleikara,
sem hefur starfað talsvert með
hópnum á undanförum árum en
samstarfið hófst þegar Eydís var
búsett í Tékklandi og lék með
útvarpshljómsveitinni í héraðinu
Pilzen þaðan sem hópurinn rekur
rætur sínar.
„Þessi hópur hefur starfað lengi
saman og farið víða, sérstaklega á
meginlandi Evrópu,“ útskýrir
Eydís. „Þau sérhæfa sig í flutningi
á barokk- og endurreisnartónlist,
það er þeirra aðalfag en þau spila
gjarnan nýja tónlist í bland svo efn-
isskráin er krydduð með nútíma-
tónlist.“ Á tónleikunum nú flytur
hópurinn til að mynda nýtt verk
eftir Jiri Bezdek, dúó fyrir óbó og
sembal, sem sérstaklega er samið
fyrir Alenu Tichá semballeikara
hópsins og Eydísi.
Hópinn skipa, auk Alenu, flautu-
leikarinn Jaromír Tichý, Václav
Kapusta fagottleikari og sópran-
söngkonan Andrea Brozáková en
þau taka öll virkan þátt í hinu fjöl-
breytilega tónlistarlífi Tékklands
sem einleikarar, í hljómsveitar- og
kammertónlist auk þess að starfa
við kennslu.
Í fyrri heimsókn sinni hélt hóp-
urinn rómaða tónleika í Sigurjóns-
safni og Eydís kveðst nokkuð
spennt fyrir efnisskránni þar sem
hún nefnir sérstaklega tvær kant-
ötur, annars vegar fyrir sópran,
flautu og bassafylgirödd eftir
Georg Phillip Telemann og hins
vegar ástarkantötu eftir Georg
Friedrich Händel þar sem allur
hópurinn leikur saman. „Þetta eru
verk sem þau hafa grafið upp og ég
hafði aldrei heyrt áður. Alveg rosa-
lega falleg tónlist og algjörir gull-
molar í mínum eyrum,“ segir Eydís.
Auk fyrrgreindra verka flytur hóp-
urinn líka lagaflokk eftir tékk-
neska tónskáldið Jiri Bezdek, ein-
leiksverk fyrir sembal eftir Ditrich
Buxtehude og sönglagasyrpu eftir
John Dowland.
Hún útskýrir einnig að nafn
hópsins, Musica ad Gaudium - tón-
list gleðinnar - sé einkar viðeigandi
því tónlistarfólkið sé með afbirgð-
um lífsglatt auk þess að leika undur-
fagra músík.
Hópurinn heldur tónleika í Reyk-
holti í Borgarfirði á morgun kl. 20
og kemur síðan fram í Salnum í
Kópavogi kl. 20 á miðvikudags-
kvöldið. Tónleikaferðalaginu lýkur
síðan í Vestmannaeyjum næstkom-
andi laugardag þar sem þau leika í
safnaðarheimili Landakirkju kl. 17.
Ókeypis aðgangur er á alla tónleik-
ana. - khh
Gamlar perlur og nýir gullmolar
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í
Reykjavík (RIFF) efnir til sam-
keppni um bestu heimagerðu
heimildarmyndina í samstarfi við
Apple IMC.
Landsmenn luma án efa á
óborganlegum myndbrotum úr
afmælum og fermingum en nú er
tækifærið til þess að nýta upp-
tökuvélina til stærri verkefna og
gera fjölskyldunni skil með staf-
rænum hætti.
Fyrirkomulag keppninnar er
með því sniði að þátttakendur
senda inn mynd, að hámarki tíu
mínútna langa, þar sem fjölskyld-
an er umfjöllunarefni eða yfir-
skrift. Myndin verður að vera
klippt með iMovie-hugbúnaði og
skal henni skilað inn á DVD-diski
fyrir 15. september. Þeir þátttak-
endur sem ekki hafa aðgang að
hugbúnaðinum get fengið aðstöðu
til þess að klippa myndina hjá
Apple á Íslandi.
Dómnefndina skipa leikkonan
Ilmur Kristjánsdóttir, Árni Ólafur
Ásgeirsson leikstjóri og Bjarki
Guðjónsson frá Apple.
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í
Reykjavík fer fram 28. september
til 8. október og verður myndin
sýnd á lokadegi hátíðarinnar sem
helguð er fjölskyldunni. Í verð-
laun eru augljós heiður og Mac-
Book fartölva.
Nánari upplýsingar má finna á
heimasíðu hátíðarinnar, en slóðin
er www.filmfest.is - khh
Fjölskylduvæn heimildarmyndasamkeppni
HVERNIG MYNDAST FJÖLSKYLDAN ÞÍN?
Heimildamyndasamkeppni fyrir heimagerðar fjölskyldumyndir.
EYDÍS FRANZDÓTTIR ÓBÓLEIKARI ÁSAMT TÓNLISTARHÓPNUM MUSICA AD GAUDIUM Góðir gestir frá Tékklandi leika barokk- og endur-
reisnartónlist í blandi við nútímatónlist. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
ÁTTU MARGT ÓLESIÐ ENN? Margar einnota bækur
öðlast framhaldslíf með hjálp heimasíðunnar
Book Mooch. MYND/AP
Líka fyrir þig;
lífið, fréttirnar
og fjörið á ensku