Tíminn - 31.03.1978, Side 18
18
Föstudagur 31. marz 1978
oc ALFA-LAVAL
Bændur - Athugið!
Eigum aftur Alfa-Laval
rörmjaltakerfi
til afgreiðslu í maí
Hagstætt verð og greiðslukjör
Leitið nánari upplýsinga sem fyrst
Samband íslenzkra samvinnufélaga VÉLADEILD
Ármúla 3 Reykjavík sími 38900
§]E]E]ElG]E]E|G|ElE]gE]BlE!ElB]G]B]E]
Lausar stöður
forstöðumanna
Laus er staða forstöðumanns barna-
heimilisins að Hliðarenda og barna-
heimilisins Völvuborgar.
Laun samkv.æmt kjarasamningi
borgarstarfsmanna.
Umsóknarfrestur til 15. april. Umsókn-
ir skilist til skrifstofu dagvistunar
Fornhaga 8 en þar eru veittar nánari
upplýsingar.
V________________________________—
ISl Felagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Dagvistun barna, Fornhaga 8, simi 2 72 77
Tilboð óskast i byggingu
heilsugæ z u stöðvar
á Seltiarnarnesi.
Verkið nær til uppsteypu og lokafrágangs
utanhúss.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Sel-
tjarnarnesbæjar i Mýrarhúsaskóla eldri,
gegn 50 þús. kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað, þriðju-
daginn 18. april kl. 11.
Bæjarstjórinn á Seltjarnarnesi.
Pípulagnir — Ofnar
Tek að mér nýlagnir og viðgerðir.
Söluumboð fyrir Silrad-panelofna.
Mjög hagstætt verð.
Stefán H. Jónsson
pipulagningameistari, simi 4-25-78
„Mörg ljón verða
í veginum”
- segir Jóhann Kjartansson
— Ég hef að sjálfsögðu sett stefnuna á Islandsmeistara-
titilinn i einliðaleik. Það verður ekkert gefið eftir í bar-
áttunni um hann, því að mörg Ijón verða íveginumog
róðurinn því erfiður, sagði Jóhann Kjartansson, badmin-
tonspilarinn snjalli, sem hefur mikinn hug á að verða
meistari i einliðaleik á Islandsmeistaramótinu, sem fer
fram í Laugardalshöllinni um helgina.
Meistaramót
Islands í
badminton
hefst á morgun
Jóhann lék til úrslita i einliöa-
leik 1977, en þá mátti hann þola
tap fyrir Sigurði Haraldssyni,
sem hefur verið meistari tvö sl.
ár. — Sigurður verður erfiður, og
einnig þeir Sigurður Kolbeinsson
og Broddi Kristjánsson.sem eru i
stöðugri framför, sagði Jóhann.
Jóhann hefur verð mjög sigur-
sæll i einliðaleik á badminton-
mótum i vetur, en aftur á móti
hefur Sigurður látið litið að sér
kveða, enda ekki æft eins vel og
undanfarin ár. Þess má geta að
Sigurður varð þrefaldur meistari
á siðasta landsmoti.
tslandsmeistararnir i tviliöa-
leik — þeir Sigurður og Jóhann
mæta mörgum erfiöum mótherj-
um, þar sem þeir Sigurður Kol-
beinsson og Sigfús Ægir Arnason,
og þeir Haraldur Korneliusson og
Steinar Pedersen eru.
I tvenndarleik má búast við að
tslandsmeistararnir Siguröur og
Hanna Láraverði ekki auðsigruð.
Keppnin i einliðaleik kvenna
verður örugglega mjög tvisýn og
spennandi, og búast menn við aö
sigurganga Lovisu Sigurðardótt-
urverði rofin, en hún hefur veriö
nær ósigrandi siöan hún vann
meistaratitilinn fyrst 1961.
Kristin Magnúsdóttir, sem vann
sigur i Tropicana-keppninni og
siðan aftur i Reykjavikurmótinu,
mun ógna veldi Lovisu. Kristin er
aðeins 15 ára gömul og hefur hún
unnið stórmótin i meistaraflokki
sem hún hefur tekið þátt i.
Lovisa og Hanna Lára eiga ör-
ugglega i vök að verjast i tviliða-
leiknum — Kristin og vinkona
hennar, Kristin Kristjánsdóttir,
hafa sýnt það að undanförnu að
þær eru til alls liklegar. Þessar
ungu stúlkur munu þó örugglega
ekki ná að leggja þær Lovisu og
Hönnu Láru að velli að sinni, þar
sem þessar þekktu badminton-
konur hafa yfir margra áraa
reynslu að ráða — sú reynsla mun
örugglega ráða úrslitum.
tslandsmeistaramótið hefst i
Laugardalshöllinni kl. 10 i fyrra-
málið, en úrslitaleikir mótsins
verða leiknir á sunnudaginn —
keppni hefst þá kl. 2. Það má bú-
ast við mjög skemmtilegri viður-
eign á meistaramótinu. —SOS.
JÓHANN KJARTANSSON... varð Reykjavikurmeistari í
einliðaleik á dögunum. (Timamýnd: Róbert).
Tómas sýndi
mikið örýggi
— þegar hann tryggði sér Islandsmeistara
titilinn í borðtennis
KR-ingurinn Tómas
Guðjónsson tryggði sér
íslandsmeistaratitilinn i
borðtennis, þegar hann
vann öruggan sigur
(3:1) yfir félaga sinum
Hjálmtýr Hafsteinssyni
í úrslitaleik. Þessi efni-
legi borðtennisspilari
lék af miklu öryggi í
mótinu og var sigur
hans aldrei i hættu.
einliðaleik kvenna—sigraði Astu
Urbancicúr Erninum i úrslitum
með 15:21, 21:16, 21:16 og 21:18.
Guðrún Einarsdóttir úr Gerplu
varð tvöfaldur meistari — hún
varð sigurvegari i tviliðaleik
kvenna ásamt Sveinu Svein-
björnsdótturog i tvenndarkeppni,
þarsem hún lék meö Stefáni Kon-
ráðssyniúr Gerplu.
Tómas lék af mikilli snilld i úr-
slitaleiknum gegn Hjálmtý og
sigraði — 21:11, 14:21, 21:10 og
21:16. Tómas varð einnig sigur-
vegari i tviliðaleik, ásamt Hjálm-
tý — þeir unnu (3:2) Arnar-leik-
mennina Ragnar Ragnarsson og
Gunnar Fin nbjörnsson i úrslitum
17:21,21:15,21:17, 16:21 og 21:17.
Ragnhildur Sigurðardóttir
(UMSB) varð íslandsmeistari i
GUÐRCN ElNARSDÓTTIR...varð tvöfaldur meistari ls-
landsmeistaramótinu I borðtennis.