Tíminn - 20.04.1978, Side 2

Tíminn - 20.04.1978, Side 2
2 Áköf leit aö liki Moros — árangxir enginn Hóm/Reuter Gifurleg leit hefur veriö gerðað liki Aldos Moro við Duchessavatn og i nálægum vötn- um. Duchessavatn liggur nærri 2000 metum fyrir ofan sjávarmál og er vatnið isi lagt og snjór yfir öliu. Samkvæmt tilkynningu frá Raðu herdeildinni var liki Moros fleygt i vatnið, en nú er talið nær ómögulegt að svo hafi verið. Lögreglumenn, hermenn, froskmenn og björgunarlið, sér- þjálfað til starfa i fjallasvæðum, hafa tekið þátt i leitinni sem hefur verið með öllu árangurslaus. Orð- sendingin sem greindi frá þvi hvar likið væri að finna er að ÖU- um likindum frá Rauðu herdeild- inni, þó að sérfræðingar telji sig ekki geta fuUyrt að svo sé. 1 gær var isinn á Duchessavatni sprengdur og froskmenn sendir i vatnið til aö leita liksins. Frosk- menn sem köfuðu i það fundu ekkert, enda var ishraflið gifur- legt eftir sjö öflugar sprengingar. Lögreglan fann felustað skæru- liða úr Rauðu herdeildinni i fyrradaga, en þar var ekkert sem visbendingu gaf i sambandi við hvarfið á Moro. 1 ibúðinni fannst talsvert af vopnum, og leiðbein- ingar ætlaðar skæruliðum. f leið- beiningunum stóð meðal annars, að ef skæruliði kæmist undir heldur laganna varða, mætti við- komandiaðeins tala við yfirmann rannsóknarinnar, gefa ekki upp annað nafn en stendur á þeim fölsku skilrikjum er skæruliðar bera. Engum spurningum má svara, og öðrum skæruliðum er skipað að yfirgefa felustað sinn um leið og félagi þeirra lendir i höndum lögreglunnar. Libanska stjórn- in segir af sér Beirut/Reuter.Libanska stjórnin sagði af sér i gær, -og kom sú ákvörðun mjög á óvart. Heil- brigðismálaráðherra landsins, sagði við fréttamenn eftir fund stjórnarinnar, að stjórnin hefði dregið sig i hlé til að gefa stjórn- málamönnum kost á að axla ábyrgðina sjálfir. Hægrimenn hafa að undanförnu gagnrýnt stjórnina mjög fyrir að nota sýr- lenzkar friðargæzlusveitir til að stöðva bardaga kristinna manna og múhameðstrúarmanna í Bei- rut i siðustu viku. Selim Al-Hoss forsætisráðherra myndaði átta manna stjórn 9. desember 1976, þrem vikum eftir að borgarastyrjöldinni i Libanon lauk. Enginn ráðherra i stjörninni hafði íormleg tengsl við stjórn- málaflokka i landinu. Fyrstu verk stjórnarinnar voru að reyna að sætta múhameðstrúarmenn og kristna ibúa landsins, ogstuðla að uppbyggingu efnahags landsins. t lausnarbeiðni til Eliasar Sarkis forseta, sagði Hoss, að hann teldi að stjórnin hefði leyst skyldur sinar sómasamlega af hendi. Forsætisráðherrann kvaðst telja, að stjórnmálaþróun- in i Libanon að undanförnu hefði i för meðsér að unnt væri að stofna nýja stjórn. Sarkis forseti hefur veitt stjórninni lausn frá störfum en bað ráðherrana að gegna áfram embætti þar til 'ný stjórn hefur verið mynduð. Stjórnmála- fræðingar telja að liklegt sé að leiðtogar stjórnmálaflokka krist- inna- og múhameðstrúarmanna muni taka sæti i nýju stjórninni. Hægrisinnaðir flokkar i landinu njóta einkum fylgis kristinna manna á meðan múhameðstrúar- menna styðja vinstri flokkanna. Japan: Verkföll trufla sam- göngur Tokyo/Reuter.Um fimm milljón- ir manna urðu að dvelja á heimil- um si'num eða eyða nóttinni á vinnustað, þvi að samgöngur trufluðust gifurlega vegna þess að Verkalýðsfélag járnbrautar- starfsmanna boðaöi ti) allsherj- arverkfalls, sem nú hefur staðið i tvo daga. Talsmaður japönsku járnbrautanna sagði, að meir en 7 þúsund lestir hefðu stöðvazt og 64% áætlunarferða járnbrut- anna lægju niðri af þeim sökum. Þrir slösuðust i Tokyo, þegar far- þegar tróðust inn i' nokkrar of- hlaðnar lestir og strætisvagna sem voru á leið til miðborgarinn- ar. Járnbrautarstarfsmenn krefj- ast 7,2% launahækkunar. Stórskotaliðs- og skriðdrekasveit- ir Sovétmanna i A-Evrópu þykja öflugar. Varnamálaráðherrar NATO-ríkja: Hvetja Sovétmenn til jákvæðrar afstöðu i afvopn- unarmálum Friðrikshöfn/Reuter. Sex evrópskir varnarmálaráðherrar, sem nú fjalla um afstöðu Carters Bandarikjaforseta til nevtrónu- sprengjunnar, lögðu i gær áherzlu á að Sovétmenn brygðust við frestun framleiðslu hins um- deilda vopns á jákvæðan hátt. í tilkynningu, sem birt var við lok tveggja daga fundar kjarnorku- nefndar NATO, en bandariskur fulltrúi á sæti i henni, var lýst yfir ugg vegna stöðugrar uppbygging- ar sovézka hersins. Varnarmálaráðherra Banda- rikjanna, Harold Brown, sagði á blaöamannafundi, að enn hefði ekkert svar borizt frá Moskvu, en full snemmt væri að segja til um hvort það þýddi að svar ráða- manna þar væri neikvætt. Hann gaf i skyn að sovézkir ráðamenn ættu að gefa svar sitt á alþjóðleg- um vettvangi, svo sem á ráð- stefnu Sameinuðu þjóðanna um afvopnunarmál, sem hefst i næsta mánuði, eða með einkaskilaboð- um til Bandarikjastjórnar. Brown sagði, að staðsetninging kjarnorkuvopna i Evrópu væri staðgóð trygging fyrir þvi að ekki yrði gerð árás að austan. Innrás Varsjárbandalagsrikis i NATO land myndi að öllum likindum leiða til þess að gripið yrði til kjarnorkuvopna. Varnarmálaráðherrar Band- aríkjanna, Vestur-Þýzkalands, Bretlands, Italiu, Danmerkur, Tyrklands og Belgiu eiga nú sæti i kjarnorkunefnd NATO. Fimmtudagur 20. april 1978 Rauðinúpur i slipp i Reykjavik — erlendir aöilar sýna áhuga á viðgerð Togarinn Rauðunúpur ÞH 160, sem strandaði á Raufarhöfn fyrir rúmri viku, var tekinn i slipp í Reykjavik I gær, en þar mun vera fyrirhugað að gera við skemmdir á botni togarans til bráðabirgða a.m.k. Siöar mun fara fram útboö á viðgerð á togaranum og hefur heyrzt að erlendir aðilar hafi sýnt þvi verki mikinn áhuga. Að sögn yfirverkstjóra hjá Slippfélaginu þá eru talsvert Eins og sjá má þá var það heldur óþrifaiegt verk að koma svartoli- unni á réttan stað. Togarinn Rauðihupur i slipp i gaer. miklar skemmdir á botni togar- ans stjórnborðsmegin, en minni á bakborða. Þá eru einnig göt á svartoliutönkum togarans og var haföur sérstakur viðbún- aður í gær af þeim sökum, þar sem hætta var á oliumengun. Sérstakri oliugirðingu var kom- ið fyrir, og þegar eftir að togar- inn var kominn á þurrt var haf- izt handa við að dæla oliu úr sjónum í þar til gerð Ilát. Svartolia og sjór leka át um rifur bakborðsmegin á botni Rauðanúps en aðalskemmdirnar voru stjfirnborðsmegin. Timamyndir: Gunnar Þessi mynd var tekin i Austur- stræti i gær, þegar smiðir kepptust við að koma upp ein- unt þeirra palla, sem skenuntiatriði verða framin á i dag, sumardaginn fyrsta. Þrir pallar verða settir upp, auk margs konar tivolipósta, sem fólki gefst kostur á aö spreyta sig á i þvi skyni að það skemmti sér sjálft og hverfi þannig frá fastmótuðu hátiöa- haldi. Skátasamband Reykja- vikur hefur veg og vanda af skipulagningu hátiðahaldanna i Iteykjvik i dag. Timamynd: Gunnar. Tónskáld styrkir skáld SJ — t gær seidi Rithöfundasamband tsiands áritaðar bækur eftir féiagsmenn sina tii ágóða fyrir starf- semi sambandsins. Salan gekk vei, en bækurnar voru áritaðar og voru seldar á 2000 kr. hver. Hér eru sölukonurnar Maria Guðmundsdóttir og Inga Rós Loftsdóttir að selja Jóni Asgeirssyni tónskáldi eina bókina. Tfmamynd: Róbert.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.