Tíminn - 20.04.1978, Side 5
Fimmtudagur 20. april 1978
5
Jónas sýnir
í Keflavík
Jónas Guðmundsson opnar á
sumardaginn fyrsta málverka
sýningu i Keflavik, eða nánar
tiltekið 20.april næstkomandi.
Sýningin verður i sal Iðnaðar-
mannafélags Suðurnesja að
Tjarnargötu 3 Keflavik.
Jónas Guðmundsson sýnir að
þessusinni um 30 myndir, flestar
málaðará þessuog siðasta ári, og
eru viðfangsefni hans bátar og
sjósókn og annað i tengslum við
sjóinn.
Sýningin i Keflavfk verður opin
daglega frákl. 1400 — 2200 nema á
föstudag, þá verður opið frá 1800
— 2200, en sýningunni lýkur á
sunnudagskvöld 23. april.
Jónas Guðmundsson hefur
tvisvar áður sýnt i Keflavik, sein-
ast fyrir þrem árum, eða vorið
1975.
Ráðstefna um mál-
efni innflytjenda
— haldin í Svíþjóð 3.-5. apríl s.l.
Dagana 3.-5. april vari Kungalv i
Sviþjóð haldin ráðstefna á vegum
Nordens Folkliga Adademi um
málefni innflytjenda fyrr og
siðar.
Ráðstefnuna sóttu fulltrúar frá
Sviþjóð, Finnlandi, Noregi og
Danmörku, en i öllum þessum
löndum hefur fjöldi innflytjenda
aukizt mjög mikið á undanförn-
um árum. Hergi hefur þó fjöldi
innflytjenda aukizt eins mikið og i
Sviþjóð. t ræðu eins af framsögu-
mönnunum á ráðstefnunni, Tove
Skutnabb-Kangas, kom fram, að
um næstu aldamót myndu 25%
Svia eiga ættir sinar að rekja til
innflytjenda.
Hugmyndin með ráðstefnunni
var sú, að vekja menn til um-
hugsunar um málefni innflytj-
endanna og gera viðeigandi ráð-
stafanir til þess að tryggja rétt
þeirra, hvað menntun og önnur
sjálfsögð mannréttindi varðar,
s.s. að fá að halda móðurmáli
sinu en oft hefur það verið svo að
farið hefur verið með innflytj-
endur eins og annars og þriðja
flokks fólk, en lokað augunum
fyrir þvi hvaða gagn þetta fólk
gerir viðkomandi landi með vinnu
sinni.
Eins og áður segir var aðal-
markmiðið með ráðstefnunni
það, að bæta úr menntunarskil-
yrðum innflytjendanna og i þvi
sambandi starfaði starfshópur á
ráðstefnunni og fara hér á eftir
nokkri punktar úr þeim ályktun-
um sem gerðar voru af honum:
Leggja verður áherzlu á að
móðurmál innflytjendanna verði
metið að verðleikum og tillit til
þess tekið við atvinnuráðningar
og i námi.
Börnum innflytjenda verði
tryggður réttur til þess að læra
mál feðra sinna.
Lögð verði sérstök áherzla á að
kennsla verði tekin upp i skólum i
finnsku, en Finnar eru fjölmenn-
astir innflytjendanna og oft jafn-
framt þeir einangruðustu.
Aherzla verði lögð á að fræða
almenning um það gagn sem inn-
flytjendur vinna.
Áherzla lögð á hlutverk fjöl-
miðla við að kynna það ástand
sem rikir i þessum málum.
Sú krafa verði gerð, að fjöl-
miðlarfjalli um innflytjendurna á
jákvæðari hátt en gert hefur
verið, og að útvarp og sjónvarp
sendi út dagskrár á tungumálum
fjölmennustu innflytjendahóp-
anna i samræmi við fjölda þeirra
af þjóðarheildinni.
Skorað er á stjórnvöld að beita
sér gegn þeim hópum ogfélögum,
sem sýni innflytjendum neikvæða
framkomu, eða hafi neikvæða af-
stöðu til þeirra.
Spurningakeppni
kvenfélaga í
Skagafirði lokið
AS Mælifelli S1 laugardag lauk
spurningakeppni kvenfélaga 1
Skagafjarðarhéraði, sem Ung-
mennasamband Skagafjarðar
gekkst fyrir i vetur. Tóku öll 14
kvenfélögin i héraðinu þátt i leik
þessum, sem háður var á ýms-
um stöðum i sýslunni og á Sauð-
árkróki. Var aðsókn mikil og
áhugi almennings auðfundinn,
en keppendur þurftu að fara
langar leiðir eftir atvikum. Hér
sem ella sýndu kvenfélagskonur
mikinn dugnað og ósérplægni.
Til úrslita kepptu lið frá kven-
féíögunum á Hofsósi og i Lýt-
ingstaðahreppi og sigraði hiö
siðaranefnda, sem Gislina Guð-
mundsdóttir, Ytra-Vatni,
Guðrún Ásgeirsdóttir, Mælifelli
og Heiðbjört Jóhannesdóttir,
Hamrahlið skipuðu. Fram-
kvæmdastjóri U.M.S.S.,
Guðmundur Gunnarsson, og
samstarfsmenn hans, Gestur
Þorsteinsson og Þórarinn
Magnússon, hafa lagt af mörk-
um mikið starf við undirbúning
og framkvæmd keppninnar sem
mörgum þykir hafa lifgað upp á
félagslif og samkomuhald vetr-
arins.
Guðmundur
Gunnlaugur
Sigurður
Guðrún
Edda
Framboðslisti vinstri
manna og óháðra
— til bæjarstjórnarkosninga á Seltjarnarnesi
Birtur hefur verið framboðslisti
vinstri manna og óháðra —
H-listinn — við bæjarstjórnar-
kosningarnar á Seltjarnarnesi.
Að listanum standa Alþýðu-
bandalagið, Alþýðuflokkurinn,
Framsóknarflokkurinn og óháðir
borgarar og er hann þannig skip-
aður:
1. Guðrún K. Þorbergsdóttir,
skrifstofumaður.
2. Guðmundur Einarsson, við-
skiptafræðingur.
3. Gunnlaugur Árnason, verk-
stjóri.
4. Sigurður Kr. Árnason, bygg-
ingameistari.
5. Edda Magnúsdóttir, húsmóðir.
6. Stefán Bergmann, liffræðing-
ur.
7. Vilhjálmur Hjálmarsson,
arkitekt.
8. Helgi Kristjánsson, húsa-
smiðameistari.
9. Njörður P. Njarðvik, lektor.
10. Felix Þorsteinsson, húsa-
smiðameistari.
11. Leifur N. Dungal, læknir.
12. Njáll Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri.
13. Auður Sigurðardóttir, verzl-
unarmaður.
14. Njáll Ingjaldsson, skrif-
stofumaður.
Framboöslisti vinstri
manna á Blönduósi
— við sveitastj órnarkosningarnar í vor
Birtur hefur verið listi vinstri
manna við sveitarstjórnarkosn-
ingarnar á Blönduósi 28. mai i
vor. Að listanum standa fram-
sóknarmenn, frjálslyndir og
vinstri og alþýðubandalagsmenn
og er hann þannig skipaður:
1. Arni S. Jóhannsson, kaup-
félagsstjóri.
2. Hilmar Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri.
3. Sturla Þórðarson, tannlæknir.
4. Páll Svavarsson, mjólkurfræð-
ingur.
5. Jón Arason, vélstj. form.
verkalýðsfél. A-Hún.
G. Kári Snorrason, framkvæmda-
stjóri.
7. Theodóre Berndsen, húsmóðir.
8. Guðmundur Theódórsson, iðn-
verkamaður.
9. Pétur A. Pétursson, verzlunar-
stjóri.
10. Jónas Tryggvason, verzlunar-
stjóri.
LOFTRÆSTIVIFTUR
H
Á undanfömum tveimur áratugum höfum við byggt upp stcerztu og reyndustu sér-
verzlun landsins með loftrcestiviftur í híbýli, skrifstofur, skóla, samkomuhús,
verksmiðjur, vörugeymslur, gripahús og aðra þá staði þar sem loftrcestingar er þörf
Veitum tceknilega ráðgjöf vio val á loftrcestiviftum.
FÁLKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Þjonust
Fálkinn
póstsendir
allar nánari
upplýsingar,
sé þess óskað.