Tíminn - 20.04.1978, Síða 9

Tíminn - 20.04.1978, Síða 9
Fimmtudagur 20. april 1978 9 á víðavangi Margur held- ur mig sig Athyglisverður er leiðari Al- þýðublaðsins i gær þar sem leiðarahöfundur reynir að nota ábyrga afstöðu forystu- manna verkalýðshreyfingar- innar i Noregi sem tilcfni til þess að rökstyðja misnotkun launþegahreyfingarinnar á ts- landi i flokkspólitiskum til- gangi. í Noregi gerðist það, eins og kunnugt er af fréttum, að verkatýðshreyfingin lýsti yfir stuðningi við og fullum skilningi á harla harkalegum kjaraskerðingaraðgerðum stjórnvalda,þar eðsýnt var að i óefni var var komið um þró- un efnahagsmála þar i landi, ,og að samdrátturinn myndi endast um nokkur komandi ár. Um þetta segir Alþýðublað- ið m.a. i forystugrein sinni i gær: „Siðustu mánuði hafa verið nær daglegir fundir forystu norska Alþýðusambandsins og rikisstjórnarinnar. Norski for- sætisráðherrann, Odvar Nordli, og forseti Alþýðusam- bands N’oregs, Tor Halvorsen, hafa haft forystu um þær efna- hagsaðgerðir, er islenzku stjórnarblöðin hafa sagt frá. Norska rikisstjórnin og verka- lýðshreyfingin eru greinar af saina meiði". Siðan upphefst leiðarahöf- undur meðákúrur á hendur is- lenzkum ráðamönnum og reynir að nota dæmi Norð- manna irafári sinu til stuðn- ings. Það má vera að rétt sé að samráð og sameiginleg funda- höld ríkisstjórnar og forystu- manna verka lýðshrey fin ga r- innar hefðu átt að vera meiri hérlendis en verið hefur, og sennilega verða samráð þess- ara aðila aldrei of ná in eða tið, svo mikiö semer i húfi fyrir þjóðarbúið i þessum efnum. Ilitt hefur þó getið að líta i Al- þýöublaðinu sjálfu aftur og aftur að þeir, sem l'orráö hafa fyrir ver kalýðssam tökum inörgum á tslandi, séu reynd- ar ekki sem traustastir við- ræðuaðilar, og Alþýðublaðið liefur meira að segja tekið undii- þau orð aftur og aftur, að islenzkum launþegasam- tökuin hafi veriö beitt i flokks- pólitiskum tilgangi. Og satt að segja verður ekki betur skilið af leiðaranum, sem vitnað var til, en að Al- þýðublaðið sé að gera norsk- um verkalýðsleiðtogum það upp, að þeir hafi litið meira á hagsmuni rikisstjórnarinnar og jafnaðarmannaflokksins en á hagsinuni launþeganna sjálfra. Þvi mun um stund verða trúað, þrátt fyrir orð Al- þýðublaðsins, að foringjar norskra launþega hafi þvert á móti tekið ábyrga afstöðu fyr- ir hönd launþega, enda þótt jafnaðarmenn fari með rOíis- stjórnarvöld. Hérlendis cru þess dæmin að forystumenn launþega- samtakanna hal'a brugðizt öðru visi við, jafnvel þótt vinstri in e nn hafi setið að völdum, og hafi með afstöðu smni beinlinis valdið þvi að slfk stjórn hrökklaöist úr valdastóli. Nægja um það efni dæmin frá 1959 og afstaða for- seta ASÍ í og utan rikisstjórn- ar 1974. .IS Útboð Selfosshreppur óskar eftir tilboðum i byggingu undirstaða og frárennslislagna i fyrsta áfanga verknámsbyggingar á Sel- fossi. Útboðsgögn verða afhent frá og með 21. april á skrifstofu tæknifræðings Selfoss- hrepps, Eyrarvegi 8, Selfossi, gegn 10 þús. kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn 2. mai kl. 2 e.h. á sama stað. Tæknifræðingur Selfosshrepps. HÚSBYGGJENDUR, Norður- og Vesturlandi Eigum á. lager milliveggjaplötur stærð 50x50 cm. þykkt 5, 7 og 10 cm. Verð og greiðsluskilmálar við flestra hæfi. Sölu- aðilar: Hafnarfjörður: Loftorka s.f. Dalshraun 8 sími 50877 Akranes: Trésmiðjan Akur h.f. simi 2006 Búðardalur: Kaupfélag Hvammsfjarðar simi 2180 V-Húnavatnssýsla: Magnús Gislason, Stað simi 1153 Blönduós: Sigurgeir Jónasson simi 4223 Sauðárkrókur: Þórður Hansen simi 5514 Rögnvaldur Árnason simi 5541 Akureyri: Byggingavörudeild KEA simi 21400 Húsavik: Björn Sigurðsson simi 41534 Dalvik, Ólafsfjörður: Óskar Jónsson, simi 61444 Siglufjörður, Hofsós: Geir Gunnarsson, sími 6325 Loftorka s.f. Borgarnesi simi 7113, kvöldsimi 7155 ATLAS sumarhjólbarðar: A-78-13 Verð kr. 13.343.- B-78-13 Verð kr. 13.679.- C-78-13 Verð kr. 14.255.- C-78-14 Verð kr. 14.441.- E-78-14 Verð kr. 15.270.- F-78-14 Verð kr. 16.046.- Vörubílstjórar kynnið ykkur okkar hagstæða verð á vörubílahjólbörðum Véladeild HJÓLBARÐAR Sambandsins ^ 1SS,,SSS"«9M«.0 Óðalsostur^ ostur of »konungakyni« o Oðalsostur er afbrigði af svissneska Emmentaler ostinum, sem oft hefur verið nefndur „ konungur ostanna”. Helstu einkenni eru glæsileg bygging, með stórum fallegum holum, og sérstætt bragð sem þykir minna svolítið á sætar hnetur. Oðalsosturinn hefur aukið mjög á hróður íslenskra ostagerðarmanna innanlands og utan.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.