Tíminn - 04.05.1978, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 4. mai 1978
62. árgangur —92. tölublað
Ræða Eysteins á
N áttúruvemdarþingi
— bls. 12-13
Slðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavik • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392
Samgöngubót milli
N orðurlanda:
Bílferja
í förum
allt árið?
— reksturinn talinn hagkvæmur
HEI — Niburstaða norrænnar
vinnunefndar, sem ég hef átt sæti
i ásamt fulltrúum frá Panmörku,
Noregi og Færeyjum, er að rekst-
ur bQaferju á milli Norðurland-
anna yrði hagkvæmur — að
undanskildum fyrstu árunum,
sagði Guðmundur Einarsson hjá
Skipaútgerð rikisins i gær.
Um væntanlega áætlun sagði
Guðmundur, að hún væri að sjálf-
sögðu óráðin ennþá og margt
kæmi til greina. Það yrðu
væntanlega viðkomustaðir i
Noregi, Danmörku, Færeyjum og
Islandi og einnig hefði komið til
tals að hafa viðkomu í Skotlandi,
en ferðir ættu að geta verið viku-
lega yfir sumarið. Yrði ferjan
rekin allt árið, sem Guðmundur
telur persónulega æskilegast.
Liklegasta íslenzka höfnin væri
Þorlákshöfn. Aftur á móti sagði
hann, að sjálfsagt mætti telja að
Færeyjar yrðu fyrir valinu sem
heimahöfn, af hagkvæmnisástæð-
um. Færeyingar reka skip með
fámennari áhöfn en tíðkast t.d. i
dönskum siglingareglum. Þar er
aðeins eitt sjómannafélag að
semja við og virðist rikja gagn-
kvæmur skilningur á þvi sem
hagkvæmt má telja. Að sjálf-
sögðu fara þeir eftir alþjóðlegum
reglum, t.d. eru á Smyrli 2 loft-
skeytamenn, eins ogeiga að vera,
en þeir gegna bara öðrum störf-
um á skipinu jafnframt, þótt þeir
séu alltaf til taks ef á þarf að
halda.
Guðmundur sagði þó engar
ákvarðanir hafa verið teknar
ennþá. Málið ætti eftir að fara
fyrir embættismannanefnd frá
Norðurlöndunum og siðan fyrir
Norðurlandaráð að ári. Ef það
samþykkti þessa áætlun væri það
siðan á valdi rQcisstjórna við-
komandi landa, að hrinda þvi i
framkvæmd. Þótt allt gengi þetta
að óskum þá mætti reikna með að
tvö ár tæki að smiða skip svo við
förum ekki að ferðast með þess-
ari nýju ferju alveg á næstunni,
þótt vonandi verði af þessu, ssgði
Guðmundur.
Munu vafalaust margir taka
undir það með honum eftir þá
góðu reynslu sem fengizt hefur af
Smyrli hingað til. Einnig er sagð-
ur verulegur áhugi fyrir ferjunni
á Norðurlöndum og i SkotlandL
Verður Dagný
keypt til Rauf-
arhafnar í stað
Rauðanúps?
JB — Að þvi erblaðið hefur fregn-
að hafa staðið yfir viðræður um
möguleika á þvi, að kaupa skut- ’
togarann DagnýjuF.I., eign Tog-
skips h/f. á Siglufirði til Raufar-
hafnar i stað togarans Rauða-
núps. En Rauðinúpur stór-
skemmdist er hann strandaði
skammt utan við höfnina i
Raufarhöfn þ. 12. april sl.
Viðræður þessar ku hafa verið
gerðar i ljósi athugunar á tjóni
Raufarhafnar á þvi aö missa
þennan togara, sem verið hefur
burðarásinn i atvinnulifi bæjar-
ins. Kemur þar fram, að tjón Jök-
uls h/f. eigenda Rauðanúps,
nemur um tuttugu og einni millj-
ón króna á mánuði og tjón
hreppsins er talið nema um 2.7
milljónum i aðstöðugjöldum og
útsvari. A þá eftir að meta þátt
fólksins á staðnum.
Það liggur ekki á ljósu enn
hvernig mál þessi æxlast en
heyrzt hefur að Siglfirðingar vilji
selja.
Er málið var borið undir Ólaf
H. Kjartansson, framkvæmda-
stjóra Jökuls h/f, vildi hann ekki
staðfesta þetta, þvert á móti kvað
hann menn aldrei hafa látið sér
detta slikt i hug nóg væri að eiga
einn bilaðan togara.
Fyrirsjáanlegur verkefnaskortur í ullariðnaði
45 manns sagt
upp í Heklu,
en uppsagnir þyrftu ekki að verða að veru-
leika að sögn aðstoðarframkvæmdastjóra
JB — „Það litur ekki vel út hjá
okkur með verkefni. Við höfðum
treyst á að samningar næðust við
SovétrQcin um sölu á ullarvörum,
en þeir hafa enn ekki náðst.
Sovétmarkaður var langstærsti
markaðurinn okkar i fyrra, en þá
fóru þangað um helmingur prjón-
útflutnings okkar, og nam verð-
mæti hans um einum milljarð.
Sökum þess hversu horfir, höfum
við þurft að segja upp um 45
manns i Fataverksmiðjunni
Heklu og höfðum áður þurft að
fækka um 18. Við viljum ekki
þurfa að halda uppi fólki á laun-
um, ef verkefnaskortur verður
hjá fyrirtækinu, en það er alls
ekki öruggt, að þessar uppsagnir
þurfi að koma til framkvæmda,
þvi að fóUcinu er sagt upp frá og
með 1. júli og þá gætu samningar
hafa tekizt við Rússa.”
Þetta sagði Bergþór Konráðs-
son, aðstoðarframkvæmdastjóri
Iðnaðardeildar Sambandsins á
Akureyri, i viðtali við Timann, er
hann var spurður um útlitið i
ullariðnaðinum.
Bergþór sagði, að unnið væri að
þvi að vinna nýja markaði það
væri erfitt með svo litlum fyrir-
vara en þeir hafi beðið svo lengi
eftir sovétsamningnum auk þess
sem þessi árstimi væri alltaf
nokkuð daufur. Annars sagði
hann að mikil aukning hefði verið
á vestrænum mörkuðum og hefðu
þeir stækkað um helming miöað
við sama tima i fyrra. Vest-
ur-Evrópa er stærsti markaður-
inn og Amerika sá næststærsti, en
þar er samkeppni erfiðari sökum
hárra innflutningstolla. Þá er
Japan vaxandi markaöur og
nefndi Bergþór einnig Norður-
löndin og Þýzkaland i þvf sam-
bandi.
„Það rOcir enn töluverð óvissa
um þessi mál. Það standa yfir
samningar við Rússland, og siðar
i þessum mánuði fer sendinefnd
héðan til Moskvu til viðræðna og
gerum við okkur vonir um að
málin fari að skýrast i lok mai.
Og þá er alls ekkert vist aö þessar
uppsagnir starfsfólksins verði að
veruleika.
Flutti fé ólöglega yfir tvær EyíaIlrði t
sauðfj ár veikivar nalínur Vopnafjarðar
SJ — I októbcr siðastliðnum flutti
bóndinn á Búastöðum i Vopna-
firði um 30 kindur á Íaún úr Eyja-
firði til Vopnafjarðar —yfir tvær
s auðfjárveikivarnalinur. Maður-
inn hefur nú játað verknað þenn-
an og kvaðst ekki hafa getað
fengið keypt eins margt fé og
liann vildi fá heima i Vopnafirði,
en hann hafði nýlega hafið búskap
þegar hann flutti féð. 31 kind úr
Eyjafirði og 1 kind úr Vopnafirði
var slátrað á Búastöðum nú fyrir
nokkrum vikum og sýni send til-
raunastöðinni að Keldum til
rannsóknar. Tímanum tókst ekki
aðkoinastað niðurstöðum hennar
i gærkvöldi. Mæðiveiki hefur
aldrei orðið vart i Vopnafirði en
hins vegar var hún til fyrr á árum
i Eyjafirði.
Bóndinn á Búastöðum flutti
kindurnar á laun að næturlagi i
flutningabifreið sl. haust. Bændur
i Vopnafirði urðu þess ekki varir
fyrr en nú i vor að ókunnugar
kindur voru innan um fé þeirra.
Asamt sauðf járveikinefnd i
ReykjavOc kærðu þeir málið til
sýslumannsembættisins á Seyðis-
firði. Erlendur Björnsson sýslu-
maður sagði i gær að rannsókn
málsins væri lokið eystra og hefði
gær að rannsókn málsins væri
lokið eystra og hefði það verið
sent rikissaksóknara. Kvað hann
slikt trtál aldrei áður hafa komið
upp i sinni embættistíð á Seyðis-
firði.
Bóndinn á Búastöðum hefur
játaðbrot á landslögum, en hann
flutti féð i gegnum tvær sauðfjár-
veikigirðingar — við Skjálfanda-
fljót og Jökulsá á Fjöllum.