Tíminn - 04.05.1978, Blaðsíða 8
8
Fimmtudagur 4. mai 1978
^Vörubifreiðastjórar
■ffSiii'f-illllllmk
~:MSgfL.
k\s Á "t .-'"S
A ’ i -CMéi/g
Sendið okkur
hjólbarða
og látið setja
VUL-CAP
kaldsólningar-
munstrið á
barðann.
t'LLIiUiLr •
Smidjuvegi 32-34 — Símar 4-39-88 & 4-48-80 — Kópavogi
Stranglers á íslandi
ESE— Eins og greint hefur verið
frá þá kom brezka nýbylgju-
hljómsveitin The Stranglers
hingað til lands s.l. þriðjudag en
hingað eru Stranglers komnir til
þess að kynna erlendum blaða- og
útvarpsmönnum væntanlega
hljómplötu hljómsveitarinnar,
sem koma mun á markað innan
skamms. Stranglers héldu siðan
hljómleika i Laugardalshöllinni i
gærkvöldi en héðan halda þeir svo
i dag áleiðis til Noregs.
Á þriðjudaginn héldu
Stranglers blaðamannafund með
islenzkum blaðamönnum i Hljóð-
rita i Hafnarfirði en segja má að
sá fundur hafi farið fyrir ofan
garð og neðan hjá flestum
viðstaddra, a.m.k. hjá islenzkum
blaðamönnum þvi að bæði voru
Stranglers ekki viðræðugóðir —
að undanskildum Jet Black
trommuleikara hljómsveitarinn-
ar auk þess sem hið furðulega
fylgdarlið hljómsveitarinnar kom
hálfgerðum losarabrag á sam-
komuna með nærveru sinni.
1 gær var svo nýja platan
„Black and White” kynnt með
pomp og pragt i Skiðaskálanum i
Hveradölum og var ekki annaðað
sjá að Stranglers og co. kynnu vel
að meta á hvern hátt var að kynn-
ingunni staðið. Á leiðinni frá
Reykjavik voru hinir erlendu
ljósmyndarar sem með voru i för
iðnir við kolann og voru þeir auð-
sjáanlega mjög hrifnir af þeim
myndefnum sem við blöstu á
leiðinni.
I Skíðaskálanum voru svo gest-
um bornar veitingar, en að þvi
búnu var tekið til við kynninguna
og má segja að hún hafi i alla
staði verið mjög óformleg og
ósvipuð þvi sem menn áttu von á.
Seinna kom i ljós að ekki var um
eiginlegan blaðamannafund að
ræða eins og islenzku blaða-
mennirnir héldu heldur fór þarna
frameins konar ,,reception” eins
og forráðamenn kynningarinnar
orðuðu það en hinn eiginlegi
blaðamannafundur vegna út-
komu plötunnar mun fara fram i
Bretlandi 13. mai n.k.
Efniðá Black and White erekki
ósvipað þvi sem er á fyrri hljóm-
plötum hljómsveitarinnar en þó
má segja að það sé mun þróaðra
og allur hljóðfæraleikur betri en
fyrr.
A kynningunni brugðu
Stranglers á leik i auglýsinga-
skyni fyrir blaðamenn og má
segja að þeir og fylgdarlið þeirra
hafi leikið á alls oddi m.a. fékk
Cornwéll lánuð skiði og tölti með
þau á bakinu upp um allar brekk-
ur með skara af ljósmyndurum á
hælunum en á meðan brá bassa-
leikarinn sér úr að ofan og
þambaði íslenzka nýmjólk og var
ekki annað að sjá að honum yrði
hið bezta af veigunum.
Úr Hveradölum héldu síðan
Stranglers niður í Laugardalshöll
þar sem þeir fóru yfir tækjabúnað
sinn, en að þvi búnu var haldinn
annar fundur i Hljóðrita þar sem
fyrirhugað var að kynna hinum
erlendu gestum islenzka popp
tónlist og af þvi tilefni var gestun-
um færð segulbandsspóla með is-
lenzku efni að gjöf.
1 gærkvöldi héldu siðan
Stranglers hljómleika i Laugar-
dalshöllinni en þeir hljómleikar
voru hinir fyrstu i hljómleikaferð
hljómsveitarinnar um Evrópu.
Ásamt Stranglers komu islenzku
hljómsveitirnar Póker og Þursa-
flokkurinn fram auk skemmti-
kraftanna Halla og Ladda.
I dag var svo áætlað að drifa
Stranglers á hestbak og veita
þeim góðgjörðir í hitaveituvatni
en í kvöld heldur hljómsveitin af
landi brott eins og áður segir i
áframhaldapdi hljómleikaför um
meginland Evrópu.
Herra og frú Greenfield. A milli
þeirra má sjá Jean Jacques
Burnel.
Byggjum upp — drekkum fslenzka nýmjólk —
Stranglers skálar fyrir nýju plötunni f mjólk.
Burnel bassafeikari
Timamyndir Róbert
Áætlað verð kr. 520.000
Eigum væntanlegar Fella sláttuþyrlur með
160 sm vinnslubreidd. Vélin er mjög einföld
i byggingu/ tromlurnar drifnar með einni
reim og því mjög lítill viðhaidskostnaður.
Útboð
Rafmagnsveitur rikisins óska eftir tilboði
i spenna fyrir aðveitustöðvar Vesturlinu,
Hrútatungu, Glerárskóga og Mjólká.
Útboðsgagna má vitja á skrifstofu Raf-
magnsveitna rikisins, Laugavegi 116,
Reykjavik, gegn greiðslu á kr. 5.000.
Útboð
Rafmagnsveitur rikisins óska eftir tilboði
i rafbúnað fyrir aðveitustöðvar
Vesturlinu, Hrútatungu, Glerárskóga og
Mjólká.
Útboðsgagna má vitja á skrifstofu Raf-
magnsveitna rikisins, Laugavegi 116,
Reykjavik, gegn greiðslu á kr. 5.000.
— kynntu væntanlega hljómplötu sína
á „hjara veraldar” í gær
G/obus?
LÁGMÚLI 5, SlMI 81555
V/frí?.
V/Zfr.
V//.
V/för.
V///7/.
sláttuþyrlur
Það er óþarfi að kynna náið heyvinnutæki
frá Fella verksmiðjunni. Þau eru löngu
landskunn fyrir styrkleika og vinnugæði.