Tíminn - 04.05.1978, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 4. mai 1978
17
17 ára „Evrópumúr”
oooooooo
Celtic rofinn
„Þurfum að
berjast grimmi-
lega fyrir
hverjum bita
— sem við náöum”, sagöi Jóhannes
Eðvaldsson í viðtali við „Scottish
Daily Express”
SOS—Reykjavík. —
,# Evrópumúr" Celtic
hefur veriö rofinn.
Jóhannes Eövaldsson og
félagar hans á
Parkhead munu ekki
leika í Evrópukeppni
næsta keppnisfímabil,
og er það í fyrsta skipti í
17 ár, sem Celtic tekur
I ekki þátt í Evrópu-
i ■■■■■■■■■■■■■■■
Marteinn
og Stefán
ætla að
keppni. Þrátt fyrir góð-
an lokasprett í skozku
„úrvalsdeildinni" náðu
leikmenn Celtic ekki
Evrópusæti.
Parkhead-leikmennirnir
lögðu hart að sér i lokabarátt-
unni og sýndu oft sinar gömlu
góðu hliðar, en þrátt fyrir það
tókst þeim ekki að tryggja sér
Evrópusæti. Skozka blaðið
„Scottish Daily Express”
sagði að „STÓRI” Jo
Eðvaldsson hefði staðið sig
mjög vel með Celtic-liðinu
undir lokin — hann hafi leikið
allsstaðar á vellinum i loka-
baráttunni.
„Scottish Daily Express”
sagði: — „Þessi stóri
Islendingur hefur leikið á
miðjunni, i fremstu viglinu og
stöðu sina „Sweeper”, þar
sem hann kann alltaf bezt við
sig. Hann hefur ávallt verið
sjálfum sér samkvæmur og
uppfyllt þær kröfur sem voru
gerðar til hpns i hinum
margbreytilegu stöðum —
hann var sifellt á ferðinni,
vinnandi fyrir liðið”.
Jöhannes sagði i stuttu
viðtali við blaðið, að keppnis-
timabilið hafi verið mjög erfitt
fyrir leikmenn Celtic — „Það
hefur verið mjög eftirtektar-
vert að við höfum þurft að
berjast grimmilega fyrir
hverjum bita sem við náðum.
— Ahangendur Celtic hafa
veitt okkur ómetanlega aðstoð
i erfiðleikum okkar — við
þökkum þeim fyrir þann
mikla stuðning og tryggð, sem
þeir hafa sýnt okkur. Þeir
sneru aldrei bakinu við okkur
þótt á móti hafi blásið”, sagði
Jóhannes.
Jóhannes sagði að þvi miður
hefðu leikmenn Celtic ekki
getað þakkað áhangendum
^ JÓHANNES EÐVALDSSON.. sýndi mjög
góða lciki ineð Celtic-liðinu undir lokin, en
hann lék ílestar stöður á vellinum.
liðsins hinn mikla stuðning,
með þvi að tryggja Celtic
Evrópusæti. — „Það hefði
verið stórkostlegt, þvi að ekk-
ert er skemmtilegra heldur en
að leika i Evrópukeppni”,
sagði Jóhannes.
Ásgeir
kominn
breyta til
Þeir eru komnir
á sölulista hjá
Royale Union
SOS—Reykjavik. — Ég óskaði
eftir að verða settur á sölu-
ILsta, þar sem cg hafði áhuga á
að brcyta til, sagði landsliðs-
miðvörðurinn i knattspyrnu,
Marteinn Geirsson, sent er
kominná sölulista hjábelgiska
liðinu Hoyale Union frá Brúss-
cl. Stefán Halldórsson er
einnig kominn á sölulista.
Marteinn sagði að hann sé
nú að kanna tilboð, sem hann
hefur fengið frá öðrum
belgfskum féiögum. — Ég hef
áhuga á að vera hér i Belgiu
svona tvöár til viðbótar, sagði
Marteinn.
— Gefuröu kost á þér i
islenzka landsliðið i sumar?
— Já, égkent til með að gefa
kost á mér, svo framarlega
sem landsliðsnefndin telur, að
hún geti notað krafta mina. —
Ég er ávallt tilbúinn i slaginn,
sagði Marteinn.
Pétur hefur
tekið fram
skotskóna
— hefur nú skorað 7 mörk á
keppnistimabilinu
Pétur Pétursson, hinn
marksækni leikmaður
Skagamanna, hefur heldur
betur verið á skotskónum
að undanförnu — hann hef-
ur alls skorað 7 mörk það
sem af er keppnistímabil-
inu, og varð hann fyrstur
til að skora „Hat-Trick" í
leik — skoraði þrjú mörk
gegn Vestmannaeyingum í
Meistarakeppni K.S.Í.
Ingi Björn Albertsson skoraði 4
mörk i leik gegn Armanni, og i
þeim leik skoraði félagi hans,
Guðmundur Þorbjörnsson, 3
mörk. Þá hefur Akureyringurinn
Óskar Ingimundarson, sem leikur
með KA, einnig skorað „Hat-
trick” — þrjú mörk gegn Völsungi
frá Húsavik i bikarkeppni K.R.A.
Eins og undanfarin ár mun
Timinn halda lista yfir þá leik-
menn 1. og 2. deildarliðanna, sem
skora flest mörk á keppnistima-
bilinu — i opinberum mótsleikj-
um.
Þeir, sem hafa nú skorað flest
mörk, eru eftirtaldir leikmenn.
Pétur Pétursson, Akranes 7
Guðmundur Þorbjörnss., Val ...6
Ingi Björn Albertsson, Val.....5
Sverrir Herbertsson, KR .......4
Atli Eðvaldsson, Val...........4
Óskar Ingimundarson, KA........3
Sigurður Indriðason, KR........3
Gunnar örn Kristjánss., Vikingi 3
PÉTUR PÉTURSSON... er
byrjaður að hrella markverði.
heim
Hann mun
leika alla
landsleiki
Islands i sumar
Knattspy rnukappinn Asgeir
Sigurvinsson er kominn heim i
sumarfrí. Asgeir sem skrifaöi
undir þriggja ára samning við
Standard Liege i si. viku, kom
til landsins i gær og mun hann
verða hér f sumarleyfi fram til
20. júni en þá heldur hann aftur
til Belgfu.
Asgeir mun leika alla lands-
leiki tslands I sumar — þar af
tvo hér heima, gegn Dönum og
Pólverjum.
Þegar Asgeir endurnýjaði
samning sinn við Standard
Liege, gekk hann þannig frá
málum, að hann fengi fri til að
leika með islenzka landsliðinu.'
-sos.
f 1111 I ■—
Teitur — „íslenzki
f ellibylurinn”....
— hefur vakið athygli í Sviþjóð fyrir kraft
sinn
Teitur Þórðarson,
knattspyrnukappi frá
Akranesi, hefur vakið
mikla athygli í Svíþjóð,
en þar leikur hann með
1. deildarliðinu öster í
„Allsvenska".
Sænska stórblaöiö
„Expressen” birti grein um
Teit fyrir stuttu og sagði blað-
ið að „islenzki fellibylurinn’
hcföi fengið fljúgandi byrjun
meðöster— skoraðgóð mörk I
fyrstu tveimur leikjum liðsins,
sem er nú i þriðja sæti i
„Allsvenskan” — meö 6 stig,
en efstu liöin hafa hlotiö 7 stig.
„Exprfssen” sagöi að
Teitur ætti örugglega eftir aö
hrella markverði — meö
dugnaði sinum og krafti. Blaö-
ið sagði að islendingurinn
gerði sér fullkomlega grein
fyrir þvi til hvers væri ætlað af
honum — hann ætti aö skora
mörk — mörk og aftur mörk.
—SOS