Tíminn - 19.05.1978, Qupperneq 5

Tíminn - 19.05.1978, Qupperneq 5
Föstudagur 19. mal 1978 5 Óskar Sigfinnur Friörik Birnir Anna Sveinn Framboðslisti Framsóknarmanna á Höfn Framboðslisti Framsóknar- manna og stuðningsmanna þeirra við sv.eitarstjórna- kosningarnar á Höfn I Hornafirði '28. mal n.k. er þannig skipaður: 1. Óskar Helgáson, stöðvarstjóri 2. Sigfinnur Gunnarsson, útgerðarmað'ur 3. Friðrik Kristjánsson, rafveitustjóri 4. Björn Axelsson, verzlunarmaður 5. Birnir Bjarnason, héraðsdýralæknir 6. Anna Halldórsdóttir, gjaldkeri 7. Sveinn Sighvatsson, trésmíðameistari 8. Stefán Arngrlmsson, skipstjóri 9. Guðný Guðmundsdóttir, húsmóðir 10. Sverrir Þórhallsson, vélstjóri 11. Egill Jónasson, verkstjóri 12. Haukur Runólfsson, skipstjóri 13 . Sva va Kristbjörg Guðmundsd., fulltrúi 14. Asgrimur Halldórsson, framkvæmdastjóri. Blómlegt starf SÍ á síðasta ári: Mörg stórverkefni framundan Sýning á verkum Jóns í kjallara Norræna hússins — hefði orðið sjötugur 23. maí FI — Jón Engilberts listmálari hefði orðið sjötugur þann 23. mai, ef hann hefði lifað og verður af þvi tilefni opnuð minningarsýning á verkum eftir hann i kjailara Norræna hússins i kvöld 18. mai. Myndirnar, sem sýndar verða, eru teikningar, vatnslitamyndir og fjölmargar litkritarmyndir. Ýmsar þessara mynda eru til sölu. Jón Reykdal hefur ásamt Þórði Hall og Ólafi Kvaran valið mynd- ir á sýninguna úr safni Tove Engilberts. Jón sagði i samtali við blaðið, að hér væri um að ræða yfirlit yfir feril Jóns Engil- berts i grófum dráttum. Þarna Jón Engilberts listmálari við eitt verka sinna. Myndin er tekin árið 1965. væru módelmyndir frá námsár- unum i Kaupmannahöfn og kreppuárunum, litkritarmyndir frá 1937-1968, en hvorki málverk né grafik. Margar þessara mynda hafa aldrei verið sýndar áður en legiðupprúllaðar eða inni i möpp- um á vinnustofu málarans. Elzta myndin er litil vatnslita- mynd frá 1925 eignuð Tove og einnig fá sýningargestir að skoða stutt ástarbréf til Tove frá Jóni skrifað sama ári, 1925. Þá var hann aðeins 18 ára. Hvað lit- kritarmyndirnar áhrærir, þá má flokka þær niður eftir efni: myndir trúarlegs eðlis, skækjur og hafið. Minningarsýningin verður opin til 30. mai nk. ATLAS & YOKOHAMA hjólbarðar Hagstætt verð Véladeild Sambandsins HJÓLBARÐAR BORGARTÚNI 29 SÍMAR 16740 OG 38900 SSt — Aðalfundur Skáksambands tslands var haldinn 6. mai s.l. og sóttu fundinn 59 félagar frá 18 félögum. Einar S. Einarsson flutti skýrslu fráfarandi stjórnar og rakti i itarlegu máli umsvifa- mikla starfsemi sambandsins á liðnu ári og helztu verkefni þessa árs. Það eru mörg verkefni sem S.I hefur með höndum á þessu ári. Meðal þeirra helztu má nefna framboð Friðriks Ólafssonar til forsetakjörs FIDE, sem fram fer i haust og mun sambandið leggja áherzlu á að vinna vel að þvi næstu mánuðina með þvi að kynna Friðrik itarlega i skák- heiminum erlendis og vinna þannig að stuðningi við hann. Samhhða þvi sem forsetakjör FIDE i'erfram i Argentinu ihaust verður Olympiuskákmótið. Þang- að verður send karlasveit fyrir tslands hönd, en enn er ekki ákveðið hvort kvennasveit veröur þareinnig meðal keppenda. Áætl- að er að kostnaður við þátttöku karlaflokks á þvi móti verði um 3 milljónir kr. Kosin var nýstjórnS.t. Einar S. Einarsson var endurkjörinn for- seti sambandsins. en aðrir i stjórn voru kjörnir þeir Þorsteinn Þorsteinsson, Gisli Arnason, Þrá- inn Guðmundsson, Högni Torfa- son, Arni B. Jónasson og Guðfinn- ur Kjartansson. I varastjórn sitja Helgi Samúelsson, Ingimar Jóns- son, Jörundur Þóröarson og Sig- fús Kristjánsson. Einar S. Einarsson, forseti S.i. næsta kjörtimabil Athugið Stúlka á 12. ári óskar eftir að komast i sveit. Er vön barnagæzlu. Upplýsingar i sima (99)1591, Selfossi. OFNINN CEFUfí GÓÐAN YL STÓ ofninn er Islensk framleiösla og framleiddur fyrir islenskar aðstæöur. Hann er smiðaður úr 1,5 mm þykku holstáli, rafsoöinn saman að mjög miklu leyti með fullkomnum sjálfvirkum vélum, sem tryggja jöfn gæöi suðunnar. STÓ ofninn hefur þá sérstöðu að allar mælingar á hitanýtingu og styrkleika hafa verið gerðar á ts- landi af Rannsóknarstofnun Byggingariðnaðarins að Keldnaholti, og þá notuð hitaveita. STó ofninn er stilhreinn og fer alls staðar vel. Þeir fagmenn sem hafa kynnt sér STó ofninn mæla sérstaklega með honum, ekki eingöngu vegna útlits, heldur miklu frekar hvernig hann er upp- byggður, hve vel hann nýtir hitann, og handhægt er að leggja pipulagnir að honum. Leitið nánari upplýsinga. Gerum föst verðtilboð VELDU STÓ OFNINN QG HANN MUN YLJA ÞÉR UM ÓKOMINN TÍMA: STÁLOFNAR HF. ra;w

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.