Tíminn - 21.05.1978, Page 1
Sunnudagur 21. maí 1978
62. árgangur — 104. tölublað
40 síður
Siðumúla 15 ■ Pósthólf 370 • Reykjavík • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392
Einar Ágnstsson:
Glundroðakenningin
er ódýr áróðursbrella
— Ég tel stööu Framsóknar-
manna i borgarstjórnarkosn-
ingunum góöa, sagöi Einar
Agústsson utanrikisráðherra i
stuttu viðtali viö Timann i gær.
— „Við höfum góða fram-
bjóðendur og mjög vel undir-
búna málefnaskrá sem ég vona
að fóik kynni sér.
Ég vil aðeins koma að þessari
margendurteknu „glundroða-
kenningu”, sem ég satt að segja
skil ekki aðfólk leggi eyrun við.
Hvernig mætti það vera að
Reykjavik, einni af öllum sveit-
arfélögum I landinu, þurfi að
verastjórnað af einum og sama
stjórnmálaflokknum áratugum
saman? Ég vil minna á það að
viö höfum hér i landinu sam-
steypustjórnir á landsmálasvið-
inu, í rikisstjórn, og ég geri
raunar ekki ráð fyrir að Sjálf-
stæðismenn vilji telja þær allar
gagnslausar með öllur a.m.k.
tæplega þær sem þeir sjálfir
hafa tekið þátt i.
Þessi „glundroðakenning” er
augljóslega aðeins ódýr
áróðursbrella.
É g verð einnig að segjaþað er
ótrúlegt að það skuli enn heyr-
ast að einhverjir eru að reyna
að halda þvi fram að Fram-
sóknarmenn séueinhvers konar
„óvinir” Reykjavikur.
Málflutningur af þessu tagi er
forkastanlegur. Hvernig má það
vera að sjötti hver borgarbúi sé
óvinur sinnar eigin borgar? Það
tekur auövitaö engu tali að ann-
að eins skuli heyrast.
Þvert á móti hafa reykviskir
Framsóknarmenn átt mikinnog
góðan þátt i framfaramálum i
höfuðborginni og þeir hafa sýnt
að þeir hafa fullan vilja og getu
til að vinna áfram að málefnum
borgarbúanna f framtiðinni”.
Einar Agústsson utanrikis-
ráðherra er nú á förum vegna
embættiserinda til útlanda. Um
för sina sagði hann m.a.:
„Ég get þvi miður ekki tekiö
þátt i baráttunni fram að sveit-
arstjórnakosningunum, en kem
heim aftur eftir mánaðamótin
og mun þá að sjálfsögðu taka
fullan þátt i baráttunni fyrir
Alþingiskosningarnar. Enn er
það svo að ég hef skyldum að
gegna vegna mins ráðherra-
starfs, og vil ég siður að sæti ís-
lands sé autt þegar rætt er um
mál sem okkur snerta á
alþjóðavettvangi”.
Einar mun sitja fundi á
afvopnunarráöstefnu Samein-
uðu þjóðanna, en að þeim lokn-
um hefst ráðherrafundur
Atlantshafsbandalagsins sem
að þessu sinni er haldinn i
Washington.
Um fundinn i Washington
sagði utanrikisráðherra:
„Fundurþessi veröur stærri i
sniðum en endranær. Ég geri
t.d. ráð fyrir þvi að þjóðaleið-
togar aðildarrikjanna muni
sækja fundinn, og vænti þess að
forsætisráðherra íslands veröi
þar með mér. Enn fremur þarf
ég fyrir okkar hönd að ræða við
bandariska forystumenn um
samskipti rikjanna”.
Um stöðuna I stjórnmálunum
um þessar mundir sagði Einar
Agústsson utanrikisráðherra
m.a.:
Launajöfnunar-
stefnan er
okkar mál
„Það er satt að segja furðu-
legt þegar maöur heyrir það að
einhverjirleyfa sér að halda þvf
fram að Framsóknarmenn hafi
ekki sýnt þvi áhuga að láta sér-
stakar aðgerðir koma til að
verja þá lægst launuðu þegar
greinilega þurfti að taka i taum-
ana iefnahags- og atvinnumái-
um.
Það hefur þvert á móti alla tið
verið meginatriði hjá okkur að
framfylgja launajöfnunar-
stefnu.
Hins vegar hafa menn óneit-
anlega tekið eftir þvi, hvað eftir
annað, að þeir sem nú tala hæst
um kauprán” og annað i þeim
dúr hafa sjálfir látið sér lynda
þann launamismun sem hefur
verið að þróast i þjóðfélaginu.
Þeir hafa aftur og aftur gert
kjarasamninga sem skildu þá
lægstlaunuðu raunverulega eft-
ir, en hafa svo samið um miklu
betri kjör fyrirýmsa aðra hópa.
Ef. það eru einhverjir sem
hafa verið einhvers konar drag-
bitar f þessum málum, þá eru
það aðrir en Framsóknarmenn,
svo mikið er vist.
Um efnahagsaðgerðirnar,
sem svo mikið er rætt og ritað
um, vil ég segja það þær voru
nauðsynlegar til þess að treysta
stöðu atvinnuveganna og
tryggja fulla atvinnu og lifs-
kjörin í landinu. Þegar sýnt var
hvert stefndi varð að gripa til
úrræða, og var þá fyrst þessi
gamalkunna leið að fella geng-
ið.
Þegar ljóst varð að meira
þurfti til, gerðum við að sjálf-
sögðu skyldu okkar. Og ég held
satt að segja að almenningur
geri sér þetta ljóst.
Um umræðurnar um ákvæði
annarrar greinar laganna um
efnahagsaðgeröir, sem svo mik-
ið hefur verið rætt um, sagði
Einar Ágústsson m.a.:
— Þessiákvæði voru beinlinis
sett til þess að tryggja hag
þeirra lægst launuðu. Það var
vissulega athyglisvert að fylgj-
ast með viðbrögðum stjórnar-
andstæðinga viðþessum ákvæö-
um. Þeir settu upp hundshaus
og vildu ekkert af þvi vita aö
gripiöyrði til sérstakraaðgerða
til að verja þá lægst launuðu
áföllum.
Það er þvi hæpið að leggja
trúnað á orð þeirra nú, og allt
eins lfklegt aö þeir hafi önnur
sjónarmið i huga. Launajöfnun-
arstefnan á ekki visan fram-
gang i höndum þessara manna.
Hún hefur verið okkar mál”.
Um þær umræðursem nú eiga
sér stað um kjaramálin sagði
Einar Agústsson m.a.:
— Nú er rikisstjórnin aö
kanna það hvort eitthvað það
hafi gerzt i' efnahagsmálunum,
siðan efnahagsaðgerðirnar voru
samþykktar, sem gæti valdið
þvi að lögin næðu ekki lengur
fyllilega tilgangi sinum eins og
var þegar þau voru sett. Ef það
kemur fram að aðstæður hafi að
einhverjuleyti breytzt, þá er aö
athuga það.
En ég held að þeir sem vilja
fylgjast með þessum málum og
gera sér ljóst hvernig málin i
raunogverustandasjáiað allur
þessi háværi áróður um
„ástæðulausa kjaraskerðingu”
og um „kauprán” og annað þar
af verra á enga stoð i raunveru-
leikanum og miðast ekki við hag
þeirra lægst launuðu.
Nú er það t.d. ljóst að um
næstu mánaðamót munu menn
fá kauphækkun, og geta menn
þá séð hvert mark er takandi á
öllum stóryrðunum”, sagði Ein-
ar Agústsson utanrikisráðherra
aö lokum.
Er gikt
ættgeng?
Umkringdnr á áUa vegu
í hverri frumu manns-
likamans eru 46 litningar,
tveir og tveir saman og bera
númerin 1—22,auk kynlitning-
anna. Erfðafræðingar hafa
smám saman aflað sér
vitneskju um hvaða eiginleik-
ar fylgja hverri litningasam-
stæðu en þó er margt enn
ókannað i erfðafræðinni. A
siðari árum hefur komið i ljós
að litningur nr. 6 framleiðif
mótefnavaka, sem hafa áhrif
á mótstöðu fólks gagnvart
sjúkdómum, m.a. gikt, sem
virðist Uggja mjög i ættum.
Sjúkdómaerfðafræði er vax-
andi visindagrein og þar, eins
og I erfðafræði almennt,
getum við tslendingar lagt
rikulegan skerf af mörkum.
Dr. Alfreð Arnason erfðafræð-
ingur og forstöðumaður erfða-
fræðirannsóknadeiidar Blóð-
bankans hefur gert merkar
uppgötvaniri sinni grein, m.a.
rannsakað áður litt kannaðan
eríðavisi, BFS prótin. Það er
ekki sizt Alfreð að þakka að
tslendingar hafa tekiö þátt i
aiþjóðasamstarfi varðandi
sjúkdóma og vefjagerð frá
upphafi og sat hann fyrsta al-
þjóðaþingið i þeirri grein i
París 1976. Jón Þorsteinsson
yfirlæknir spjallaði ásamt
Alfreð Arnasyni við blaöa-
mann Tfmans um rannsóknir i
sjúkdómaerfðafræöi, sem þeir
vinna sameiginlega að hér á
landi.
Sjá grein á bls. 14-15.
Eins og séstá myndinni þá eru
ýmsir erfiðleikar sem mæta
slökkviliðsmönnum þegar þeir
eru áferð um borgina jafnvel
þó að eldur sé ekki laus. t
þessu tilviki var slökkviblllinn
í æfingarakstri og þvi lá e.t.v.
ekki svo mikiðá að hann kæm-
ist leiðar sinnar, en eins og s já
má á myndinni þá er bflum
lagt þvert á leið slökk vibflsins,
en ef um eldsvoða væri aö
ræða þá sjá aUir að iUa hefði
getað farið ekki sizt I hverfi
einsogGrjótaþorpinu þar sem
flest ÖU hús eru úr timbri og
þvi fljót að fuðra upp.
Timamynd Tryggvi/ESE
Hverjar eru
afleiðingar
stúdenta-
uppreisnar-
innar
Fyrir tíu árum hófst í
Frakklandi óvenjuleg og
ævintýraleg uppreisn.
Andóf stúdenta við há-
skólann í Paris olli því,
að herlið var sent inn í
fornfræga byggingu
Sorbonne í hjarta París-
ar og hófust upp úr því
götubardagar og átök,
sem stóðu á annan mán-
uð. Lýðveldið riðaði og
de Gaulle endurskipu-
lagði stjórn sína. En
hver urðu áhrifin þegar
fram liðu stundir? Bls
10-11
Hryðjuverk gömul og ný
baráttuaðferð
Hryðjuverlo mannrán
og pólitísk morð hafa
verið fyrirferðarmikil í
fréttum undanfarnar
vikur. En eru hryðju-
verk meiri nú en áður og
eru kannski pólitísk
hermdarverk sjaldgæf-
ari í Vestur-Evrópu en
öðrum heimshlutum?
Bls 20-21.