Tíminn - 21.05.1978, Blaðsíða 9

Tíminn - 21.05.1978, Blaðsíða 9
Sunnudagur 21. mai 1978 9 Votheysturn aft Gafli I Villingaholtshreppi f smlBum myndin tekin fyrir nokkrum árum. Gisli Kristjánsson: Viðhald votheys- hlöðunnar Verður plastklæðn- ing innan á veggina bezta vörnin- gegn sýruverk- unum? Langflestar votheyshlööur okkar, hvort sem um er að ræða turna eða venjulegar grunnar og strendar hlöður, eru gerðar úr steinsteypu. Það mun öllum kunnugt, að það eru sýrur, sem verka verndandi á magn næringarefn- anna á geymsluskeiðinu, en sýr- urnar eru hins vegar ágengar þar sem þær snerta steinsteypta veggina og tæra þá svo um munar. Þess vegna er tals- verður viðhaldskostnaður á hlöðum af þessum gerðum. En hvernig er bezt aö hindra ágengni sýrnanna? Erlendis er algengt að kalka veggina, þannig eru sýrurnar gerðar óvirkar, en þetta þarf að endurtaka árlega. Þvi hafa verið gerðar tilraunir með ýmis efni til sýruvarnar, er reynzt hafa mjög misjöfn svo ekki sé meira sagt. Um skeið var sér- lega mælt með blöndum vita- minefna til þessara þarfa. Lökk af ýmsum gerðum hafa verið reynd, en einkum hafa menn staðnæmzt við „Epoxyefni” sem talin hafa verið öðrum þén- legri og haldbetri. En fleira er reynt. í erlendum timaritum eru nú auglýstir plastdúkar af sér- stökum gerðum til. þessara þarfa. Er ekki óliklegt aö hér verði staðnæmzt við einhverjar tegundir plastefna, sem hér verði öðrum virkari, haldbetri og ódýrari. Um þessi efni þurfum við að vera vel á verði. Ef plastdúkar reynast öðrum efnum betri er liklegt að viðeig- andi þyki bara að þvo gamla og tærða steinveggi votheyshlaðna . með lútvatni og klæða siðan með dúk. Ég veit ekki til þess að dúkur af umræddum gerðum hafi til þessa verið prófaður hér, en það væri á fyrsta stigi sjálfsögð skylda Rannsóknastofnunar landbúnaðarins að gera, svo að bændur fari ekki að eyða stórfé til dúkakaupa nema reynsla og tilraunir sýni að það sé hag- kvæmt. Umræddir dúkar til þessara þarfa eru nýlega komnir á markað og hef ég ekki séð um þá skrifað (utan auglýsinga) nema hjá Bondebladet, sem gefið er út hjá Norges Bondelag. Þar segir i lauslegri þýðingu: ,,Nú er kominn á markaö ofinn plastdúkur, sem festur er efst á veggjum votheys- hlöðunnar. Samkvæmt fyrir- sögn framleiðandans þarf ekki annan undirbúning að klæðn- ingu með hann en að bursta rækilega burt gamlar fóður- leifar á veggjunum. Veggirnir mega vera sirakir. Dúkurinn er gljáður áannarri hliðinni en voð felldur á hinni og gljáða hliöin á að snúa inn að fóðrinu i hlöð- unni. Loðfellda hliðin fellur vel að veggnum en gljáða hliðin veitir litið viðnám svo að fóðrið úti við vegg sigur vel saman. Framleiðendur tjá, að umrædd plastgerð þoli vel verk- anir sýrunnar i votheyshlöðum. Þess má geta um leið, að á markaði eru nú plastdúkar, sem hægt er að lima á votheyshlöðu- veggi að innan. Þeir þétta vel hvort sem þær eru geröar úr timbri eða steinsteypu”. XXX Fleiri orð þarf raunar ekki aö hafa um þessi efni eins og sakir standa, en i þvi trausti að vot- heysgerð aukist svo um munar á komandi árum hljóta bændur að auka hlöðurými að miklum mun og þá er ekki bara viðeig- andi — heldur nauðsynlegt — að kanna jafnframt hvað við á til þess að tryggja endingu hlaön- anna. Þessa er ekki bara þörf, það er nauðsyn og vegna þess þarf eitthvað aö gera. Aðalfundur Bandalags kvenna í Reykjavík: Mæðralaun með einu barni allt of 1 ág Aðalfundur Bandaiags kvenna i Reykjavik haldinn þ. 26. og 27. febrúar sl. gerir þá lágmarkskröfu, að elli- og ör- orku-, ekkju- og ekkilsbætur þeirra, er ekki hafa iifeyrissjóð á bak við sig eða önnur eftir- laun, séu aldrei lægri en 70% af öðrum taxta Dagsbrúnarlauna. Fleiri tillögur i tryggingamál- um komu fram á fundinum svo sem um það, að hjón fái greidd- an ellilifeyri á sama hátt og væru þau tveir einstaklingar. Einnig lýsti fundurinn yfir fylgi sinu við þá kröfu einstæðra for- eldra að mæðralaun með einu barni hækki. Mæðraiaun meö einu barni séu alit of iág miðað við þau mæðralaun, sem fást mcð fleiri en einu barni. „Aðalfundurinn telur það réttlætismál, að fráskildar kon- ur, sem fá greiddan lifeyri frá fyrrverandi maka, geti fengið hann greiddan i gegnum Trygg- ingastofnun rikisins á sama hátt og meðlagsgreiðslur. Lögð er fram tillaga þess efn- is, að 13. grein almannatrygg- ingalaganna frá 1975 nái einnig tileinstæðs foreldris, sem verð- ur aö annast vanheilt barn á heimili sinu. 113. grein segir að greiða megi maka- og örorkulif- eyrisþega makabætur allt að 80% einstaklingslifeyris, ef sér- stakar ástæður eru fyrir hendi. crkpallaleiqa sala umboðssala Stálverkpallar til hverskonar viöhalds- og málningarvinnu úti sem inni. Viðurkenndur öryggisbúnaöur. Sanngjörn leiga. ■■■ VERKPALLAR. TENGIMÓT UNDIRSTÖÐUR Verkp&llari VIÐ MIKLATORG.SÍMI 21228/ »...og <pf þeim upp málið á okkur báðum« »Þeir skera svampinn alveg eins og maður vill og sauma utan um hann líka, ef maður bara vill.« »Já, Lystadún svampdýnur...« »Hættu nú aö tala, elskan mín« ...efni til að spá í LYSTADÚNVERKSMIÐJAN DUGGUVOGI 8 SÍMI 846 55 MALLO! Sendum í póstkröfu um land allt Vandaö sófasett N. á ótrúlega lágu verði Staðgreiðsluverð aðeins Husga9n|d» 222.300 Jon Loftsson hf Hnngbraut 121 Simi 10600

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.