Tíminn - 21.05.1978, Blaðsíða 10

Tíminn - 21.05.1978, Blaðsíða 10
10 Sunnudagur 21. mai 1978 — stúdentauppreisn og vorleysing Forsetatið de Gaulle einkenndist á yfirboröinu, af mikilli festu á flestum sviðum. Eftir hið mikla umbreytinga- timabil frá 1958 til þess að Alsir hlaut sjálfstæði 1962 kom timi rólegrar þróunar. — Frönsku nýlendurnar og verndarsvæðin höföu fengið sjálfsákvörðunar- rétt um framtið sina, og tengslin við Frakkland voru leyst án verulegra átaka. Frakkar höfðu sér til mikils léttis losnað úr Vietnam-feninu. Þeir unnu að þvi að koma sér upp kjarnorku- vopnum, og tókst það. Velsæld óx og framleiðsla til Utflutnings varð æ meiri. Staða frankans efldist, og hin sjálfstæða utan- rikisstefna de Gaulle leiddi til þess að taka varð tillit til sér- stöðu Frakka i flestum meiri háttar málum. Vietnamstriðið skyggði á öll önnur alþjóðamál eftir að Kúbu- deilan 1962 var til lykta leidd. Frakkar, undir forystu de Gaulle, gagnrýndu Bandarikja- menn fyrir þátttöku sina i þvi. Jafnframt þvi einsetti de Gaulle sér að efla Evrópu, bæði til þess að skapa nokkurs konar þriðja afl i' alþjóðapólitik, og eins til að styrkja Frakkland með vinsam- legri sambúö við bæði Vest- ur-Þýzkaland og Sovétrikin. Ahrif Frakka voru þvi talsverð á þessum tima og endurspegl- aöist það innanlands. André Malraux var menningarmála- ráðherra og beitti sér fyrir miklum umbótum á mörgum sviðum þeirra mála. 1 tækni og visindum gerðu Frakkar einnig stórátak til að komast I fremstu Stúdentar i aprilsól á grasslétt' unum í Nanterre. Átökin voru að hefjast um þetta ieyti. 6. maf I latfnuhverfinu I Paris. Stúdentar grýta lögregluna með götusteinum. Fjórir stúdentar hafa verið dæmdir fyrir þátttöku I aðgerðunum i Sorbonne 3. mai. Hreinsunardeildin var i verkfalli og rusl og sorp safnaðist saman á götum Parisar. röð. Tvimælalaust eru Frakkar i fremstu röð á flestum sviðum menningar og visinda, og átti de Gaulle sinn þátt i, að fremur en hitt var ýtt undir aukinn hlut þeirra i þeim efnum. Staðnað þjóðfélag Undir yfirborðinu var þó flest littbreytt frá þvi, sem áður var. Frakkar eru mikil landbúnað- arþjóð og verulegur hluti fram- leiðslu þeirra er vin og aðrar landbúnaðarafurðir. Lengi hef- ur verið óbrúanlegt djúp á milli iðnaðarborganna og verzlunar- miðstöðvanna i landinu og sveitaþorpanna og dreifbýlla landbúnaðarhéraða. Paris og landsbyggðin eru hugtök, sem túlka þessa skiptingu i huga flestra Frakka. Gamaldags landbúnaður, með litilli fram- leiðni, iðnaður sem meir og meir varð háður erlendu fjár- magni, skólakerfi sem verið hafði óbreytt áratugum, jafnvel öldum saman, stjórnkerfi, sem byggðist á mikilli miðstýringu og ákvörðunum embættis- manna i Paris, allt þetta átti hlut að þeim atburðum, sem urðu i Frakklandi i mai 1968, tíu árum eftir að de Gaulle kom til valda að nýju. Mai 68 er fyrir löngu orðið sérstakt hugtak, menningarlega og stjórnmála- lega, ekki bara i Frakklandi heldur um allt norðurhvel jarð- ar. Hér verður ekki gerö tilraun til að lýsa þessum atburðum. Einungis vildi ég rifja upp nokkur atriði um hina viðburða- riku mai daga fyrir tiu árum. Pólitik og menning Frakkar hafa löngum haft yndi af pólitiskum umræðum og heimspekilegum vangaveltum um eðli þjóðfélagsins. Franskir menntamenn hafa gjarnan tekið ákveðna pólitiska afstöðu, ann- aðhvorttil hægrieða vinstri, og ekki látið sitt eftir liggja i deil- um um innanlandsmál. Fjöldi franskra visinda- og mennta- manna hefur látið að sér kveða með blaðagreinum, þátttöku i fundum, undirskriftasöfnun o.sirv. Þessi mikli áhugi ein- kenndi einnig stúdentahreyfing- ar i landinu, og leiötogar i hin- um fjölmennu stúdentasamtök- um hafa haft pólitisk áhrif langt umfram það, sem venjulegt er i flestum öörum löndum. Þótt de Gaulle hefði hina mestu skömm á starfsaðferöum hinna póli- tiskuflokka i landinu varð hann þó að viðurkenna nauðsyn þess að styðjast við pólitisk samtök á þingi. Lýðveldissambandið

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.