Tíminn - 16.06.1978, Síða 13

Tíminn - 16.06.1978, Síða 13
Föstudagur 16. júni 1978 M'i'ÍBiil 13 mun betur sést hversu ágætur árangur var hjá Blákaldi og Stormi sem báöir hlupu á aöeins 0,5 sek. lakari tima en bezt hefur náöst i ár. Hún Ragnhildur Guðjónsdóttir sat hesta bæði I gæðingakeppni og kappreiðum og hlýtur að vera mesti uppáhaldsknapi þeirra Mánafélaga. Gæðingar t A-flokki var efstur Valur 11 v. grár frá Sauöárkróki, eigandi og knapi Viöar Jónsson.einkunn 7,93. Annar varö Stefnir rauö- blesóttur frá Kirkjubæ 6 v. eig. og kn. Einar Þorsteinsson eink- unn 7,83 og þriðji Fifill 7 v. bleikur eigandi Steinn Jónsson, knapi Eyjólfur ísólfsson, eink- unn 7,78. Vindheima-Blakkur er úr Skagafirði eins og nafnið bendir til hann er 7 v. brúnn og varð efstur i B-flokki gæöinga með 8,10 i einkunn. Eig og kn.er Hákon Kristinsson. Ljúfur 6 v. sótrauöur frá Hindisvik varð annar með 7,88 Eig. Lúövik Bjömsson kn. Bragi Sigtryggs- son og Þengill 13 v. rauöur úr Miðfirði varð þriðji meö 7,60. Ragnhildur Guðjónsdóttir á hann og sat. Unglingar Þráinn Mariusson á Perlu varð fyrstur i flokki unglinga 12 ára og yngri þá kom Sigurlaug Auðunsdóttir á Létti og Gunn- laugur Sævarsson varð þriðji á Nasa. 1 eldri flokki 13-17 ára varð Páll Gunnarsson á Mugg hlutskarpastur svo Kristinn Skúlason á Gassa og Gunnar Auðunsson á Svip varö þriðji. Eins og aðrir verðlauna Kefl- vikingar aö sjálfsögðu fyrstu þrjá keppendur i hverri keppnisgrein. Að auki verð- launa þeir þá þrjá hesta félags- manna sem beztum árangri ná i hverri grein. Þessi háttur er mjög til fyrirmyndar og for- maöur félagsins Maja Loebell segir að þetta fyrirkomulag hvetji félagsmenn mjög til þátt- töku i mótum félagsins. Veður var leiðinlegt á sunnu- daginn á Mánagrund, sterkur vindur i fang keppenda og kuldi og siðdegis bættist viö úöarign- ing. Aðstæöur voru þvi með versta móti á þessum velli og árangur eftir þvi. Nokkur óhöpp urðu á hlaupabrautinni,hestar rákust saman og knapar duttu af en engin meiðsl urðu. Stjórn mótsins virtist nokkuð laus i reipum og hægagangur óþarf- lega mikill en bað kann að vera að einhverju leyti veörinu að kenna. S.V. Vegleg minn- ingargjöf til Fáskrúöar- bakkakirkju Við messu i Fáskrúðarbakka- kirkju sunnudaginn 4. júni sl. voru fermd fimm börn. Við það tækifæri veitti söfnuðurinn við- töku veglegri minningargjöf um Ingibjörgu Guðmundsdóttur á Miðhrauni en það var fagurlega útskorinn armstóll. Gefendur voru börn Ingibjarg- ar og tengdabörn en þau höfðu áður gefiö kirkjunni gjöf til minn- ingar um föður sinn, Þórð Kristjánsson sem um langt skeiö var söngstjóri og organisti við kirkjuna. Ingibjörg heitin heföi orðiö 85 ára þann 16. mai sl. Hún var alla tið mikill velunnari kirkjunnar og lét sér annt um hana. Söfnuðurinn færir gefendum hugheilar þakkir fyrir þessa höfðinglegu gjöf. Mikið kalsaveður var aðfara- nótt þessa sunnudags og fram- eftir degi en glaðnaði til og lægði er á leið dag. Tónleikar i Bústaðakirkj u Nú um helgina er staddur hér á landi kór EDGEWOOD COLLEGE, Madison Wiscons- in, U.S.A. Kórinn heldur tónleika i Bú- staðakirkju á sunnudags- kvöld, og hefjast þeir klr 20.30. Efnisskráin er mjög fjölbreytt og veröur meöal annars flutt Missa Brevis (Lauda Sion) eftir Richard Zgodova, lög úr Jesus Christ Superstar, negrasálmar og fleira. 1 kórnum eru 20 söngvarar en stjórnandi er Vernon Sell, aöstoðar prófessor i tónlist við Edgewood College, og undir- leikari Louise Straub. Kórinn kemur hér við á heimleið úr 3 vikna tónleika- ferð um Frakkland, sem farin var i tilefni 50 ára afmælis skólans. Samþykktir siðasta aðal- fundar KEA ESE —A siðasta aöalfundi KEA, sem haldinn var um siöustu helgi voru m.a. samþykktar eftirfar- andi tillögur: „Aðalfundur Kaupfélags Eyfirð ingahaldinn 9. og 10. júni 1978 fel- ur stjórn félagsins að gangast fyrir viðtækri könnun á afstöðu viðskiptavina félagsins til þeirrar verzlunarþjónustu sem félagið veitir á lélagssvæðinu. Athugun þessi beinist annars vegaraðþjónustufélagsinsað þvi er tekur til dagvöru og sérvöru, hvað sé til fyrirmyndar og hvar mætti betur fara. 1 þvi sambandi verði sérstaklega kannaö hvort viðskiptavinir félagsins leggi meira upp úr fjölbreytni i voru- vali þó það geti leitt til þess aö verðlag verði hærra en ella. t annan stað verði kannaö hver sé afstaða félagsmanna og við- skiptavina félagsins til þeirrar þróunar siðustu ára að hafa verzlanir færri en stærri. Einnig verði kannað hvort áhugi sé fyrir því að reistur verði svonefndur stórmarkaður á Akureyri. Stjórnin leggi niðurstöður þess- arar könnunar fyrir næsta aðal- fund félagsins”. Þá var einnig samþykkt tillaga um sameiningu Kf. Olafsfiröinga og Kf. Eyfirðinga samhljóöa, en slika tillögu þurfa tveir félags- fundir i röð að samþykkja. Færeyski leikflokkurinn Gríma: Sýnir kvæðið um kópakonuna Eins og skýrt hefur veriö frá mun færeyski leikflokkurinn Grima koma hingaö til lands á næstunni og færa hér upp Kvæöið um kópakonuna. Akveðiö er að sýna leikritiö tvisvar i Vestmannaeyjum og komið hefur til tals að sýna þaö einnig á Akureyri, Kópavogi og Neskaupstað. Leikflokkurinn Grima kemur hingaö úr hálfs mánaðar leikför um Danmörku þar sem viötökur voru hinar beztu. BHMSINSIÖÐIN vrmroRGi I gamla austurbænum, við eina elstu götu borgarinnar: Lindar- götu. Ársfundur Norræna krabbameinssambandsins: Læknaþing um erfðir og krabbamein Nýir þjónustuhættir á gömlum og þekktum stað. Velkomin á Vitatorg. OLÍUVERZLUN ÍSIANDS HE Eftir helgina verður haldinn i Reykjavik ársfundur Norræna krabbameinssambandsins, Nor- disk Cancerunion, en þaö er sam- band krabbameinsfélaga á öllum Noröurlöndum. Formenn hinna einstöku félaga eru fulltrúar þeirra i sambandinu. Á for- mannafundum þessum hafa einnig setið framkvæmdastjórar félaganna. Krabbameinsfélögin á Norður- löndum eru frjáls samtök ein- staklinga. Aðaltilangur Nordisk Cancerunion er að auka kynni milli krabbameinsfélaganna og með fundum, umræðum eöa á annan hátt að veita upplýsingar um markmið og starfsemi félag- anna i hverju landi fyrir sig og ræða möguleika á sameiginlegum verkefnum. Hinir árlegu fundir eru haldnir til skiptis fimmta hvert ár i hverju landi. Að þessu sinni er röðin komin að Krabbameins- félagi Islands og veröur fundur- inn haldinn hér i Reykjavik 20. júni. 1 tilefni af fundi Nordisk Can- cerunion veröur haldið læknaþing um erfðir og krabbamein. Þetta er i fyrsta sinn sem slikt þing er haldiö hér i tengslum við fund Norræna krabbameinssam- bandsins. Þingið sækja um 40 vis- indamenn allir frá Norðurlöndum nema tveir sem koma frá Banda- rikjunum. Annar þeirra Dr. David E. Anderson tekur þátt i visindamannaþinginu og heldur þar erindi. Hinn Bandarikjamaðurinn prófessor J.N.P. Davies, heldur fyrirlesturiLögbergistofu nr. 101 þriðjudaginn 20. júni kl. 17:00. um: Nýjungar I faraldsfræði krabbameins með sérstöku tilliti til Hodgkins sjúkdóma á vegum minningarsjóðs prófessors Niels Dungal. Læknaþingið verður haldið i aöalkennslustofu Landspitalans og byrjar kl. 9 f.h. miðvikudaginn 21. júni. Einnig munu yfirlæknar krabbameinsskránna á Norður- löndum og starfsfólk þeirra þinga þessa sömu daga.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.