Tíminn - 20.06.1978, Blaðsíða 13

Tíminn - 20.06.1978, Blaðsíða 13
12 Þriðjudagur 20. júnf 1978 Þriöjudagur 20. júnf 1978 13 „Frá rannsóknarblaða- ¥ Lýsir yfir neyðar- óstandi í Zambíu Sjó bls. 7 mennsku Er „Leirfinnur" loks kominn bak við lós og sló? Stöðugar yfirheyrslur í Geirfinnsmálinu BRETAR jÚTFYRIR jí DAG? | Hótuðu að sigla út á hádegi fengju I þeir ekki vernd frá freigátunum 1 Bresku togararnir á g Isiandsmiöum liótuöu m snemma i morgun að 5 sigla út fvrir 2(ki milna ■ landhrlgina. ef þeir § voru t kki búnir að fá g lierskipavertHl a há- m degiidag. l*rjú herslýp ” eru á sveimi rétt vift 2(Kt ■ milna miirkin. «g þaft I (a*ki huu innatt vift tiu Oani'tija togar»»lui>»tj!>raruu hfíur fanðvaxáDdi umlanfarna ttaga. ug þeir haía <*kki þorað að hWyta i \«‘iðaríaTurn sinum \ gærkvúldt tengu þt*tr fynrmapli Srd Huli um að drvif«i vvr rcynu aft s.tumiu v»*ifvur Km hvt*rjir |n*u ra hiyddu fyrurmjrl unum um að drettu s«n . on varft skip vaka yfir tuttugu tugurum s«*m lata ri'ka & Instilíirfu I.andhvIgij*gÆ’$lan hvyrftt i talstuft aft lugata.vktpNtjUrarnir iircnltlu aikva'ftt um aft laru ui ta ALþingis 99 Vilmundur Gylfason birtir siöastl. föstudag grein i Dag- blaðinu sem hann nefnir: Frá rannsóknarblaðamennsku til Alþingis. Eins og fyrirsögn greinarinnar bendir til, þakkar „Geng úr Guðmundi - ekki úr ÍR..." — sjú íþróttaopnu ■x Föstudagur 20. janúar 1976. T 20. tbl. 66. 4rg. jpyi Alvorlegar ósakanir á hendur dimsmálaróðuneytinu: SAKAÐ UM AÐ HEFTA RANN SÓKN í CEIRFINNSMÁLINU t föstudagsgrein sinni i Visi i dag gerir Vil- tnundur Gylfason harða hriö aö dómsmálaráðu- nevtinu, fyrir afskipti þess af rannsóknum mála. Ilann segir. aö tvisvar sinnum hafi ráöuneytið haft óeðlileg afskipti af siikum mái- um. A einum staö í greínínm segir Vilmundur: ..Þegar rannsókn stóö sem h*st vegna hvarfs Geir- íinm> Einarssonar siðast liöinn veiur var maöur nokkur vfir- heyröur aí iogregluniönnum og ymsar athuganír geröar á högum hans. Þar var á vetlvangi sami maö- urinn og nU hefur aftur og vegna annarra uþplýsinga verið hneppt- ur i gxsluvaröhald. Þegar iög- reglumann voru aö yfírheyra liann koni bréf frá dómsmála- ráöuneyti, þar var eínislega !ög- regiutnönnunum sagt að háétla aö áreíta þennan mann Kell mál- iö mikils til niöur. og var þaö svo þangaö tíl nú íyrir nokkrum dög- um. I að minnsta kosti annað sinn hindraöi dOmsmálaráðherra gang rOttvtsinnar Og þaö heföí hugsanlega getað veríö I eitt skipti íyrir öll. Kn nú liafa þessi mál fengiö á sig nyja mynd.” Visir hafði satnband viö ViJ- mund Gylfason ug spurðí hann hverjar heímiidír háús va*ru fyrír þeim ásökunum. sem hann ber domsmálaráöuneytiö. ..Heimild min fyrír slöara d*mínu, sem Og nefni, er Ilaukur Guömundsson, rannsOknarlög- reglurnaður úr Keflavik," EinniR haföt blaöiö samband víö donismálaráðherra, Olaf Jöhannesson. og spuröi hanri hvort rett væri, aö dOnismála táöutieytiö heffti i tvigang heft framgang réttvfsínnar I þt*im málum. sem Vílmun' ur nefntr 1 greín stnm. Dúmsmálaráöherra neitaöi aö tjá sig um málið fyrr en hann heföi kynnt sör ásakanir þ*r, sem bornar eru á ráöuneytiiö. Blaða- maftur bauftst þa til aö lesa upp hverjar þær ásakanir v*ru, en alit kortt fvrir ekki, engin yfirlys íng (ekkst At./VS Einsdœmi í fangelsissögu ísfands Vilmundur þaö svokallaöri rannsóknarblaöamennsku sinni, aö hann muni taka sæti á þingbekk innan tiöar. Jafnframt kemst hann svo aö oröi aö hann og félagar hans hafi ranglega veriö bornir þeim sökum I Tlmanum að hafa haldið uppi sviviröilegri rógsherferö á hendur tilteknum stjórnmála- flokki. Timinn telur rétt I tilefni af þessum ummælum Vilmundar aö bregða upp litils háttar sýnishorni af hinni svonefndu rannsóknarblaöamennsku hans og félaga hans. Leirfinnur Slðari hluta janúarmánaðar 1976 var Arni Gunnarsson sem nú er ritstjóri Alþýöublaðsins, fréttastjóri VIsis og ritstjóri I veikindaforföllum Þorsteins Pálssonar. Rannsókn Geirfinns- málsins stóö þá sem hæst. Þá varfyrir nokkru búið aösetja I gæzluvarðhald menn sem slöar þykir upplýst aö hafi orðið Geir- finni Einarssyni aö bana. Þeir höfðu svo boriö sakir á aöra menn sem siöar reyndust sak- lausir. Vegna þessa ranga áburðar höföu þeir veriö settir I gæzluvaröhald. Svo vildi til aö einum þessara ranglega fangelsuðu manna svipaöi til leirhaussins sem Haukur Guömundsson lögreglumaöur haföi látið útbúa þegar hann fékkst við rannsókn Geirfinns- málsins, en leirhaus þessi gekk manna á milli undir nafninu Leirfinnur, Sögunni vikur nú að rann- sóknarblaðamennsku Árna og Vilmundar. Hinn 29. janúar birtir Vlsir frásögn á forsiðu undir risastórri fyrirsögn: Er „Leirfinnur” loks kominn bak viö lás og slá? Daginn eftir þennan undirbúning Árna kem- ur Vilmundur sjálfur fram á rit- völlinn i Vísi. En Árna þykir ekki nóg að birta ritsmið hans heldur býr til um hana forsiðu- frétt undir fyrirsögn sem nær yfiralla forsiöu blaösins. Fyrir- sögnin var á þessa leið: „Alvarlegar ásakanir á hendur dómsmálaráöuneytinu: Sakaö um aö hefta rannsókn 1 Geirfinnsmálinu.” Vilmundur Gylfason. Árni Gunnarsson Heimildar- maður Vilmundar Forsíðugreinin sem var merkt Arna Gunnarssyni og öörum blaðamanni hljóöaöi á þessa leið: „I föstudagsgrein sinni i VIsi i dag gerir Vilmundur Gylfason harða hrið aö dómsmálaráðu- neytinu fyrir afskipti þess af rannsóknum mála. Hann segir aö tvisvar sinnum hafi ráðu- neytið haft óeðlileg afskipti af sllkum málum. A einum stað i greininni segir Vilmundur: „Þegar rannsókn stófeemhæstvegna hvarfs Geir- finns Einarssonar siðast liðinn vetur var maður nokkur yfir- heyrður af lögreglumönnum og ýmsar athuganir geröar á hög- um hans. Þar var á vettvangi sami maöurinn og nú hefur aftur og vegna annarra upplýsinga verið hrepptur i gæzluvarðhald. Þegar lögreglumenn voru að yfirheyra hann kom bréf frá dómsmálaráðuneyti. Þar var efnislega lögreglumönnunum sagt að hætta að áreita þennan mann. Féll málið mikils til niður og var það svo þangað til nú fyrir nokkrum dögum. í að minnsta kosti annaö sinn hindraði dómsmálaráð- herra gang réttvisinnar. Og það hefði hugsanlega getað verið i eitt skipti fyrir öll. En nú hafa þessi mál fengið á sig nýja mynd”. Vlsir hafði samband við Vil- mund Gylfason og spurði hann hverjar heimildir hans væru fyrir þeim ásökunum sem hann ber dómsmálaráöuneytiö. „Heimild mín fyrir síðara dæminu sem ég nefni er Haukur Haukur Guömundsson. Sighvatur Björgvinsson Guömundsson rannsóknarlög- reglumaður úr Keflavik.” Grein Vilmundar þarf ekki að rekja hér, þar sem meginefni hennar er birt i framangreindri fréttagrein Árna. Aðalefni hennar eru dylgjur og aðdrótt- anir um að dómsmálaráöherra hafi stöðvaö rannsókn Geir- finnsmálsins, þegar athuganir Hauks fóru aö beinast að manni þeim sem þótti likjast Leir- finnsmyndinni og nú hafði verið hnepptur i gæzluvarðhald vegna ásakana sem siðar reyndust meö öllu rangar. Sighvats- þáttur En rannsóknarblaðamennsk- unni var ekki hér með lokiö. Næsta fundardag Alþingis hinn 2. febrúar kvaddi Sighvatur Björgvinsson sér hljóðs utan dágskrár og flutti langa ræðu, sem var byggö á heimildum Hauks og dylgjum Vilmundar. Siðan var þessum dylgjum og árásum haldiö áfram i siðdegis- blöðunum, unz rannsókn máls- ins leiddi hið rétta I ljós. Til þess að reyna aö fá höggstað á Ólafi Jóhannessyni var ekki hlifzt við að beina spjótum aö manni sem ranglega hafði verið dreginn inn i Geirfinnsmálið og hann með þvi verið borinn hinum þyngstu sökum. Hefði sakleysi hans ekki sannazt, væri hann nú dæmdur af þeim sem lögðu trúnað á framangreindan málflutning. Dómsmálaráðherra myndi og enn búa viö þær aödróttanir að hann heföi reynt að stöðva rann- sókn Geirfinnsmálsins. Tlminn lætur svo lesendum sinum eftir að dæma um hvort þeim finnst réttara að kalla slika starfshætti rannsóknar- blaðamennsku eða rógsherferð af verstu tegund. KOSNINGAGETRAUN RAUÐA KROSSINS Jón Hákon Magnússon framkv.stjóri Látra- strönd 6 Reykjavik. EG SPÁI: Fjöldi þingmanna er verður Alþýðubandalag 11 13 Alþýðuflokkur 5 9 Framsóknarflokkur 17 15 Samtök frjálsl. og vinstri manna 2 0 Sjálfstæðisflokkur 25 22 Aðrir flokkar og utanflokka 0 1 Samtals 60 60 Svona einfalt er að vera með. Klippið þessa spá út og berið saman við aðrar sem birtast. ALLIR MEÐ! RAUÐI KROSS ÍSLANDS HJÁLPARSJÓOUR Atvinnurekendur! Við auglýsum eftir atvinnu fyrir unglinga á okkar vegum. Um er að ræða störf i sumar eða siðar. Þeir sem áhuga hafa og skilning á að liðsinna og greiða götu þeirra ungmenna sem e.t.v. hafa stigið sin fyrstu vixlspor eða eiga við önnur vandamál að striða. Vinsamlegast hafið samband við okkur. Unglingaheimili rikisins Kópavogsbraut 17, simar 4-17-25 og 4-29-00. Atvinna Verkstjórar óskast Bæjarútgerð Hafnarfjarðar óskar eftir að ráða verkstjóra í fiskiðjuver sitt. Umsækjendur sendi umsókn sína til Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar, Vesturgötu 11-13, Hafnarfirði.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.