Tíminn - 23.08.1978, Page 13
Miövikudagur 23. ágúst 1978
13
1 1 **•
I , |
Þann 19. þessa mánaöar landaöi Skeiöfaxi 430 tonnum af sementi f nvja geyminn, sem lekur 900 tonn.
Ilælingin tók aöeins 4 tfma, en þessi geymir er hinn eini sinnar geröar utan Reykjavikur.
20 ár frá stofnun Steiniðjunnar:
Móttökugeymar fyrir 900 tonn
af sementi rísa á ísafirði
A þessu ári eru liðin 20 ár frá
þvi að Jón Þórðarson byggingar-
meistari hóf fyrst starfsemi sina i
fjörunni við Grænagarð. Starf-
semi þessi byrjaði meö stofnun
Steiniðjunnar h.f, sem fyrst
framleiddi hleðslustein til hús-
bygginga, en fór siðar út i alls
konar byggingarstarfsemi. Arið
1975 voru siðan stofnuð félögin
Vesttak h.f., sem rekur steypu-
stöð og annast verktakastarfsemi
og Garður h.f., sem nú rekur um-
fangsmikla by ggi nga r v öru -
verslun með timbur, steypu-
styrktarjárn o.fl. ásamt visi að
fullkomnu trésmlðaverkstæði.
Auk þess hefur Jón Þórðarson
staðið fyrir umfangsmikilli verk-
takastarfsemi og kranaleigu i
eigin nafni á þessu timabili.
brátt fyrir mikla grósku i at-
vinnulifi á Vestfjörðum undan-
farin ár, hefur litil sem engin
ibúafjölgun orðið i fjðrðungnum,
en meðalaldur ibúðarhúsnæðis á
þessu svæði er hærri en i öðrum
landshlutum og framboö ibúðar-
húsnæðis litið þrátt fyrir tals-
verða byggingastarfsemi á svæð-
inu. Var það mikið átak að reisa
steypustöö á Isafirði, sem þjónar
svo til öllum norðanverðum Vest-
fjörðum, þ.e.a.s. Isafiröi, Bol-
ungarvik, Súðavik, Flateyri og
nærliggjandi sveitum.
Annað blað var brotið fyrir
þrem áum, þegar úrvals bygg-
ingarefni var sótt af sjávarbotni i
landi Isafjarðarkaupstaðar, en þá
var nær allt nýtanlegt byggingar-
efni þrotið á svæðinu og alvarlegt
vandamál farsællega leyst. Sam-
tals hefur nú verið dælt á land um
30.000 rúmmetrum af sjávarmöl
fyrir steypustöðina, sem siðan er
hörpuö og mulin i landi. Arangur-
inn af þessu ersá, að steypustöðin
framleiðir nú steinsteypu i besta
gæðaflokk, sem stenst allar þær
kröfur, sem til slikrar framleiðslu
er hægt að gera við fullkomnustu
aðstæður.
Þriðja stóra sporið i framfara-
átt hefur nú verið stigið með
byggingu geyma til móttöku fyrir
laust sement, sem rúma allt að
900 tonn af lausu sementi, en með
tilkomu slikra geyma næst betri
hagkvæmni i flutningum á
sementi og stuðlað er að meiri
jafnréttisaðstöðu við steypufram-
leiðendur á höfuðborgarsvæöinu
og i stærri þéttbýliskjörnum
landsins, sem kemur öllum til
góða, ekki sist húsbyggendum.
Byggingarframkvæmdir
sementsgeymanna hófust i
desember 1977 og gerði Gunnar
Baldvinsson, verkfræðingur,
allar teikningar á vegum Al-
mennu verkfræðiskrifstofunnar
h.f. i samráði við Sementsverk-
smiðu rikisins, sem réði stærö og
gerð geymanna að öllu leyti. Bogi
Sigurðsson, verkstjóri hjá
Sementsverksmiðju rikisins sá
um tækjaval og uppsetningu
nauðsynlegs búnaðar, en Sem-
entsverksmiðjan lét i té margs
konar tæknilega þjónustu og út-
vegaði allar nauðsynlegar upp-
lýsingar og tæki.
Umfang steypustöðvarinnar
árið 1977 var framleiðsla og sala á
um 8.000 rúmmetrum af steypu,
þrátt fyrir stuttan framkvæmda-
tima, en stöðin er nær verkefna-
iaus sex mánuði á árinu.
Launagreiöslur til starfsmanna
árið 1977 voru tæplega 65
milljónir króna og opinber gjöld
vegna starfsemi þess árs nærri 45
milljónir, en þar af nam sölu-
skattur rúmlega 35 milljónum.
Fyrirtækin eru nú betur búin til
að takast á við vaxandi bygg-
ingarframkvæmdir á sinu
þjónustusvæði svo byggðalagið
geti gengið i takt við timann móti
framtið sinni og skortur á ibúöar-
húsnæöi veröi ekki til fyrirstöðu
nauðsynlegri ibúafjölgun á
þessum uppgangstimum hér á
Vestfjörðum.
öllum þeim sem hér hafa lagt
hönd á plðginn ber að færa
' Byggöin i Króknum.
Nýbygging ishúsfélags tsfirðinga.
Kyrirtæki Jóns Þórðarsonar, Stciniöjan, Vcrktak og Garður hafa verið
mikil lyftistöng við nýbyggingar á tsafirði og i grannbyggðunum. Uér
cru vcrkamannabústaöir við Fjaröarstræti I smiöum.
þakkir, Otvegsbanka Islands
fyrir skilning og fyrirgreiðslu,
Sementsverksmiðju rikisins og
framkvæmdastjórum hennar,
bæði Svavari heitnum Pálssyni og
eftirmanni hans og loks bæjar-
yfirvöldum á tsafirði, sem verið
hafa skiiningsrik á þörf bættrar
þjónustu við húsbyggjendur og
hafa veitt rúmgott afhafnasvæöi i
bæjarlandinu og itrekuð leyfi til
dælingar á sjvarmöl úr landi
kaupstaðarins, án nokkurs endur-
gjalds, sem húsbyggjendur hafa
notið góðs af i lægra steypuveröi
og betri þjónustu.
Fulltrúaráð Framsóknarflokksins í Reykjavík:
ferðahappdrætti
Glæsilegt
Fulltrúaráð Framsóknarfélag-
anna i Reykjavik efnir til glæsi-
legs ferðahappdrættis til stuön-
ings starfeemi flokksins i Reykja-
vik og til þess að standa straum af
nýafstöðnum kosningum, sem
hafa komiö þyngra niður á
flokknum nú en endranær, þar
sem tvennar kosningar hafa
verið, báðar nú á þessu ári.
Fullur hugur er á þvi hjá full-
trúaráðinu að hefja nú með
haustinu öflugt flokksstarf er
miöi að þvi að endurheimta þaö
fylgi sem flokkurinn átti I borg-
inni fyrir siðustu kosningar og er
nú unnið að skipulagi að þvi
starfi. öllum hlýtur að vera ljóst,
að enda þótt unnið sé mikið og
gott sjálfboöaliðsstarf af fjöl-
mörgum velunnurum flokksins og
flokksmönnunum sjálfum, þá
veröur aldrei i nútíma-þjóðfélagi
komist hjá verulegum útgjöldum
i sambandi við starf stjórnmála-
flokka hér.
Framsóknarflokkurinn hefur
ætiö leitast við aö halda kostnaði
viö flokksstarfiö i lágmarki og
hefur það ekki háð honum i
stjórnmálabaráttunni og mun
veröa leitast við að halda þeirri
stefnu áfram enda þótt blikur séu
á lofti er bendi til þess aö aðrir
flokkar hafi stóraukið fjármála-
umsvif sin með þeim árangri sem
raun ber vitni um.
Happdrætti það sem nú er
hleypt af stokkunum er hin venju-
lega leið til þess aö afla fjár til
starfseminnar.
Að þessu sinni var valin sú leið
að efna til óvenju veglegs ferða-
happdrættis og er það von full-
trúaráðsins, að stuöningsmenn
flokksins bregðist vel við nú sem
endranær.
Heimsending miöa er hafin og
ennfremur eru miöar til sölu á
skrifstofu flokksins að Rauðarár-
stig 18 og eru þeir sem ekki fá
senda heim miða beðnir að hafa
samband við skrifstofuna.
Kæru félagar
Vinsamlegast athugið:
Sumarfri og aörar tafir hafa
valdið þvl að ekki hefur tekist að
hrinda happdrættinu af stað eins
fljótt og fyrirhugað var þegar
happdrættismiðarnir voru
prentaðir. Það hefur veriö
ákveðið að fresta drætti i happ-
drættinu til 29. sept. og biðjum við
ykkur velvirðingar á þeim drætti.
Kær kveðja
St jórn fulltrúaráðsins.
Til stuðningsmanna og velunn-
ara Framsóknarflokksins.
Enn einu sinni leitum við til
ykkar, ykkar sem um áraraðir
hafið stutt við bakið á Fram-
sóknarflokknum i baráttu hans
fyrir bættu þjóðfélagi, sem byggt
verði upp án öfganna bæði til
hægri og vinstri. Alltaf hafið þiö
brugðist vel við og væntum við
þess aö svo verði enn enda aldrei
verið meiri þörf en einmitt nú,
þegar flokkurinn hefur orðiö fyrir
meira áfalli en dæmi eru til.
Flokkurinn hefur oröið að þola
harðvitugar árásir frá and-
stæðingum sinum, sem bornar
hafa verið uppi af svivirðilegum
rógium mennog málefni meir en
áður hefur þekkst.
Flokkurinn treysti á dómgreind
fólks og svaraöi þessu takmarkaö
en greinilegt er aö áróður þessi
hefur haft áhrif á það fylgi er
laustengdast var við flokkinn og
þvi fór sem fór. Nú þarf að hefja
sókn og hrinda þeim árásum sem
gerðar hafa verið á flokkinn. Þaö
verður ekki gert nema með sam-
hentu átaki og stuðningi ykkar.
Þvi treystum við enn einu sinni á
að þiögefiðokkur góö ráð er duga
hefjið andsvar bæði i ræöu og riti
og svarið af einurð álognum svi-
virðingum en litið um leið gagn-
rýnum augum á gerðir og athafn-
ir okkar manna og bendið á það
sem miður fer, svo og hvernig
bæta megi úr þeim göllum er á
okkar stefnumálum og gerðum
eru
Starfiö framundan er mikið og
starfið að baki siöustu kosninga
var mikið. Allt kostar þetta fjár-
muni. Stjórn fulltrúaráös Fram-
sóknarfélaganna hefur þvi enn
einu sinni hrundið af stað happ-
drætti og það glæsilegu ferða-
happdrætti til þess aö afla fjár til
þessa starfs. Við væntum góðra
undirtekta hjá ykkur og biðum
þess vongóð að þiö styöjið starf
okkar með þvi að kaupa hjálagða
miöa.
Vonum að heppnin verði meö
ykkur og óskum þeim er vinninga
hljóta góðrar ferðar og þökkum
ykkur öllum veittan stuðning fyrr
og nú.
Jón A. Jónasson
Guðm. Gunnarsson
Þóra Þorleifsdóttir
Sigurður Haraldsson
Gestur Jónsson
Guðlaug Andrésdóttir
frá Anastöðum,
Þorsteinsgötu 9, Borgarnesi
lézt 18. ágúst s.l.
Utförin verður gerð laugardaginn 26. ágúst, kl. 14 frá
Borgarneskirkju.
Þórarinn Sigurösson,
börn, tengdabörn og barnabarnabörn.
Útför hjartkærs sonar okkar og bróöur
Sntára Kristjáns Oddssonar
sem lést af slysförum þann 19. ágúst, veröur gerð frá
Fossvogskirkju föstudaginn 25. ágúst kl. 3 e.h.
Gróa Engilbertsdóttir, Oddur Armann Pálsson,
Jóhanna Halldóra Oddsdóttir.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúö við andlát og
jarðarför föður okkár
Þórarins V. Magnússonar
Frá Steintúni
Dætur hins látna.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur
samúð og vináttu við andlát og jarðarför
Stefáns Stefánssonar
Stöövarfiröi
Anna Vilbergsdóttir,
synir, tengdadætur, barnabörn og faöir hins látna.