Tíminn - 25.08.1978, Side 3
Föstudagur 25. ágúst 1978
3
Landsþing
sveitar-
félaga
— verður haldið
4. til 6. sept.
KEJ—Dagana 4. til 6. september
verður haldið landsþing Sam-
bands islenskra sveitarfélaga að
Hótel Sögu i Reykjavik. Lands-
þing þetta er haldið á fjögurra
ára fresti og að sögn Unnars
Stefánssonar ritstjóra Sveitar-
stjórnarmála eiga að þessu sinni
268 kjörnir fulltrúar sveitarfélag-
anna rétt til setu á þinginu. Aðal-
verkefni þingsins verða að kjósa
nýja stjórn og fulltrúaráð en aðal-
umræðumál þingsins verða tvö
þ.e. verkaskiptingin milli rikis og
bæja og hins vegar staðgreiðslu-
kerfi gjalda. Dagskrá þingsins
hefur að öðru leyti ekki verið
nánar ákveðin.
Páll Sigurösson um geðdeildarmálið:
„Trúi ekki öðru en
afhending fari fram
á næstu vikum”
SJ — Ég trúi ekki öðru en ein-
hver hluti geðdeildarinnar verði
afhentur stjórnarnefnd rikis-
spitalanna á næstu vikum, sagði
Páll Sigurðsson, ráðuneytis-
stjóri og formaður stjórnar-
nefndarinnar, Timanum.
Það er yfirstjórnar mann-
virkjagerðar á Landsspitalalóö,
sem skipuð er af Menntamála-
ráðuneyti og Heilbrigðisráöu-
neyti, að afhenda göngudeild-
ina, 1. áfanga geðdeildarinnar,
en 2. áfangi veröur væntanlega
tilbúinn i október,svo sem Tim-
inn hefur greint frá. Timinn
reyndi árangurslaust að ná tali
af Jónasi Haralz formanni yfir-
stjórnar mannvirkjagerðarinn-
ar i gær.
Þá var einnig reynt að fá um-
sögn Tómasar Helgasonar, yfir-
læknis á Kleppi um málið, en
hann var erlendis ennfremur
Grétars Ólafssonar, formanns
læknaráðs Landsspitalans, sem
byrjaði i sumarleyfi i gær og
ekki náðist til. Timanum tókst
ekki heldur að ná tali af
Magnúsi Karli Péturssyni rit-
ara læknaráösins, sem einnig er
i sumarleyfi.
Tftrkitlýásféhttl Wt'tt<t0Íitðis og tuigrtnnís
Páll Andreasson, forstjórí Meitilsins:
VUja heldur vera á 80% atvinnu-
leysisbótum en
vinna hjá
okkur
— hráefnið liggur undir
skenundum og í ráði er að
fá erlendan viimukraft
jTÚlltuR 'OSUAST
ESE — Eins og alkunna er þá
bendir allt til þess að velflestum
frystihúsum hér sunnanlands og
reyndar viðar um land verði lok-
að um næstu mánaðamót, ef ekk-
ert verður gert fyrir þann tima til
þess að leysa rekstrarvandamál
frystihúsanna. Þrátt fyrir að
málum sé þannig háttað að nú er
búið að loka fjölmörgum frysti-
húsum á Suðurnesjum og önnur
hafa lýst þvi yfir að lokað veröi
um næstu mánaðamót og starfs-
fólki sagt upp þá er mjög mikill
skortur á vinnuafli i sumum
frystihúsanna.
Blaðið fregnaði I gær, að eitt
þeirra frystihúsa, sem lýst hefur
veriðyfir að stöðvist um mánaða-
mótin að öllu óbreyttu.Meitillinn
h.f. i Þorlákshöfn.sé I það miklum
vandræðum vegna skorts á
vinnuafli að forráðamenn frysti-
hússins hafi tekið það til bragðs
að leita fyrir sér um vinnuafl er-
lendis. Itrekaðar auglýsingar hér
heima eftir vinnuafli hafa ekki
borið árangur og á meðan fer
hráefnið i salt og i skreið.
Blaðið hafði I gær samband viö
Pál Andreasson forstjóra Meitils-
ins og var hann að þvi spurður
hvort satt væri að fyrirtækið hefði
leitað eftir þvi að fá vinnukraft
erlendis frá. .
Páll svaraði þvi til, að það væri
rétt að sá möguleiki hefði verið
athugaður, hvort hægt væri aö fá
hingað til lands 15-20 ástralskar
stúlkur til vinnu i Meitlinum og
hefði Sölumiðstöð Hraðfrystihús-
anna haft milligöngu um að
F ya.i'ftHUáAbS <Va/ Flu TNtN éfs
'A STtJLUUM TfL S7AZFA
hta' nzysríHúsr Mttr?LsrN3 */f
; þcflLA'kS HCFN, 'OSUASL STjóltM
i/ZftKALý&SFéiAáSfMS £tT?& Áé
STÚLKUH V HuÍKAáeZé*,
SLH HAFA HUér a> STA&FA
órlSff' Siá FHAM t/t’h
Fym.tl 2 3 . ptssA
6c Rjr<e*w v
7StA*k-A%' í, 42f2j
i* **ss
Auglýsing sem hengd var upp i Hveragerði
Ljósmynd Páll Þorleifsson
kanna málið. Páll tók það þó
fram, að ekki yrði af þessum
ráðningum ef ekki yrði búið að
leysa vandamál frystihúsanna
fyrir mánaðamót en ef þaö yrði
ekki gert þá yrði starfsemi i
frystihúsinu sjálfhætt.
Þá var Páll að þvi spurður
hvers vegna leitað hefði verið
eftir vinnuafli erlendis fyrst svo
margir væru nú atvinnulausir eft-
ir aö sumum frystihúsanna á
Suðurnesjum hefði veriö lokað.
Páll sagöi að i sumar hefðu veriö
óvenjumiklir erfiðleikar við að fá
fólk i vinnu. Eftir að starfsemi i
frystihúsum á Suöurnesjum fór
að dragast saman, þá voru for-
ráðamenn Meitilsins bjartsýnir
um að hægt yrði aö fá fólk til
vinnu, en þvi miöur þá hefur
annað komið á daginn. Eftir að
hafa auglýst eftir starfsfólki i út-
varpi blöðum og með götuaug-
lýsingum árangurslaust, hefði
hann snúið sér til Karls Steinars
Guðnasonar, alþingismanns i
Keflavik og beðið hann um að
hafa milligöngu um að reyna að '
fá eitthvað af þvi fólki sem nú er
atvinnulaust i Keflavik og viöar á
Suðurnesjum til vinnu i Meitlin-
um og hefði Karl Steinar tekið
þeirri málaleitan mjög vel. En
enginn hefði komið til vinnu. Mér
viröist sem svo, að það vanti alla
ábyrgðartilfinningu hjá sumu af
þessu fólki. Það kýs fremur að
vera á 80% atvinnuleysistrygg-
ingabótum, en að taka við þeirri
vinnu sem þvi býðst hér og þvl
hlýtur sú spurning að vakna,
hvort ekki sé hér um að ræða
gróflega misnotkun á almannafé,
sagði Páll Andreasson að lokum.
Herská ugla
í Eyjafirði
Það skeður margt skrýtið fyr-
ir norðan ekki siður en syðra. t
Degi á Akureyrisegir að brand-
ugla hafi ráðist á hross og hafi
þau átt fótum fjör að launa.
Dagur:
,,Það bar við i sumar á bæ
einum i Arnarneshreppi, að
brandugla var svo aðgangshörð
viðhrossi haga, að þau létu fæt-
ur forða sér. Hefur uglan eflaust
átt hreiður þar nærri sem hún
hefur viljað verja. Við hey-
skaparfólk var hún einnig nokk-
uð nærgöngul á sömu slóðum.
Branduglur eru fremur sjald-
gæfar en munu þó árlega verpa
á nokkrum stöðum við Eyja-
fjörð.”
Meitilliim bætíst
í hópinn
MÓL — Stjórn frysti-
hússins Meitilsins h.f. i
Þorlákshöfn hefur
ákveðið að fyrirtækið
stöðvi rekstur sinn um
næstu mánaðamót, þ.e.
nema ný viðhorf skapist
fyrir þann tima.
í fyrradag gerði framkvæmda-
stjóri Meitilsins I Þorlákshöfn
sveitarstjóranum þar og for-
manni verkalýðsfélagsins, grein
fyrir stöðu fyrirtækisins. Kom
þar fram, að rekstur þess væri
mjög neikvæðurog tap verulegt.
Vanskil hefðu varið vaxandi og
enda þótt viðskiptabanki fyrir-
tækisins hefði sýnt skilning á
erfiðleikum þessum og veitt
fyrirtækinu nokkra fyrirgreiðslu,
væri nú svo komið, að fullkomin
óvissa rikti um möguleika til
áframhaldandi reksturs.
Páll Andreasson, fram-
kvæmdastjóri Meitilsins, tjáði
Tímanum I gærkvöldi, að á þriðja
hundrað manns væru nú á launa-
skrá hjá fyrirtækinu, ef sjómenn-
irnir eru taldir með.
Meitillinn h.f. er nú með tvo
báta á slnum smærum auk tog-
arans Jóns Vidah'ns, enviðskipta-
bátarnir eru nokkrir.