Tíminn - 25.08.1978, Blaðsíða 12

Tíminn - 25.08.1978, Blaðsíða 12
12 Föstudagur 25. ágúst 1978 Bragi Kristjánsson skrifar um heimsmeistaraeinvígið Stutt ialnteflisskák Kortsnoj tefldi 15. skákina s.l. þriðjudag, þött margir heföu búist við, að hann tæki frá eftir töp i 13. og 14. skákunum. Upp kom róleg byrjun, en heims- meistarinn fórnaði snemma peði og fékk góða stöðu. Korts- noj geröi enga tilraun til að halda i peöið og jafnaðist tafliö eftir mikil mannakaup. 15. skákin Hvitt: Kortsnoj Svart: Karpov Katalónsk byrjun. 1. c4 Rf6 2. Rc3 e6 3. Rf3 d5 4. d4 Be7 5. g3 ... Kortsnoj hefur áður i þessu ein- vigileikið 5.Bg5og 5. Bf4 i þess- ari stöðu, en rní velur hann ró- legri byrjun. 1 7. einvigisskak Karopvs og Kortsnojs 1974 kom þessi byrjun upp, en ekki sama afbrigði: (Kortsnoj með hvitt) 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. g3 d5 4. Bg2 dxc4 5. Rf3 c5 6. 0-0 Rc6 7. Da4 Bd7 8.Dxc4 cxd4 9. Rxd4 Hc8 10. Rc3 Da5 o.s.frv. Karopv vann þá skák og náði með þvi þriggja vinninga forskoti, sem þó dugöi honum aðeins til 3-2 (19 jafn- tefli) sigurs I einviginu. 5. ...0-0 6. Bg2 dxc4 7. Re5 Rc6 Karopv fórnar peöi til aö koma mönnum sinum fljótt I spiliö. Venjulega er leikiö hér 7.... c5 8. dxc5 Dxdl+ 9. Rxdl Bxc5 10. Rxc4 Rc6 11. Be3 Bb4+ 12. Bd2 Bxd2+ 13. Rxd2 Bd7 14. Rc4 Hfd815. Rc3 Kf8 með jöfnu tafli (Kortsnoj — Petrosjan, 9. skák i áskorendaeinvigi II Ciocco 1977. 8. Bxc6 ... Hviti biskupinn er mjög sterkur maður og þvi er vafasamt að láta hann af hendi, þótt hvitur vinni peð i framhaldi skákar- innar. Eðlilegra var 8. Rxc6 bxc6 9. Bxc6 Hb8 o.s.frv. 8. ... bxc6 9. Rxc6 ... Ef hvitur leikur 9. 0-0 er komin upp sama staða og i 1. skák Kortsnojs og Petrosjans, II Ci- occo 1977, en framhald þeirrar skákar varð: 9. ... c5 10. dxc5 Bxc5 11. Da4 Rd512. Re4Rb6 13. Dc2 Be7 14. Rxc4 Rxc4 15. Dxc4 Dd5 með jöfnu tafli. 9. ... De8 10. Rxe7+ Dxe7 11. Da4 c5 Til greina kemur 11. ... e5 með hótuninni Bc8-h3. 12. Dxc4 cxd4 13. Dxd4 e5 14. Dh4 ... Svartur hefur góö færi fyrir peð- ið, sem hann fórnaði. Hvftur á eftir að hrókera og hvitu reitirn- ir á kóngsarmi hans eru veikir (h3, g2). Hvitur verður að koma i veg fyrir 14. ... Bh3, þvi eftir það á kóngur hans hvergi skjól. 14. ... Hb8 15. Bg5 ... Kortsnoj reynir ekki að halda peðinu, enda væri staða hans heldur óskemmtileg eftir 15. 0-0 Hb4 t.d. 16. e4 Db7 17. Hel Bg4 o.s.frv. 15. ... Hxb2 16. 0-0 ... Eftir 16. Rd5 Db7 17. Rxf6+ gxf6 18. 0-0 fxg5 19. Dxg5+ Kh8 20. Df6+ verður skákin jafn- tefli. 16. ... De6 17. Bxf6 Dxf6 18. Dxf6 gxf6 19. Habl Hxbl 20. Hxbl Be6 Eina spurningin i þessari stöðu er, hve lengi keppendur vilja teflaáfram. Úrslitin veröa jafn- tefli i öllum tilvikum. 21. f3 Hc8 22. Hcl Hb8 23. Hc2 Hc8 24. Kf2 Bxa2 25. Hxa2 jafn- tefli. Jafnteflisleg biðskák 1 16. skákinni tefldi Kortsnoj loksins franska vörn, sem gafst honum svo vel i einviginu viö Karpov 1974. Karpov tefldi ró- lega i byrjun og tókst ekki aö nýta sér smávægilega stöðu- yfirburði. Skákin fór i bið og töldu sérfræöingarnir á Filips- eyjum Kortsnoj standa heldur betur, en ekki virðist þó staðan vera annað en jafntefli. íe.skákin. Hvitt: Karpov Svart: Kortsnoj Frönsk vörn 1. C4 e6 Loksins teflir Kortsnoj upp- áhaldsbyrjunina sina. 2. d4 d5 3. Rd2— Karpov teflir undantekninga- litiö þessa rólegu uppbyggingu, sem kennd er við hinn látna þýska meistara, Siegbert Tarr- asch. 3. — c5 önnur algeng leið er hér 3. — Rf6 4.e5 Rfd7 og nú getur hvitur valiö á milli 5.f4 og 5.Bd3. 4. exd5 Hvitur getur einnig haldið spennunni lengur á miðborðinu með 4.Rgf3 Rc6 5.Bb5 o..s.frv. 4. — exd5 Eftir 4. — Dxd5 5.Rgf3 nær hvitur örlitiö betra tafli, t.d. 5. — csd4 6.Bc4Dd6 7.0-0 Rf6 8.Rb3 Rc6 9.Hel a6 10.a4 Be7 ll.Rfxd4 Rxd4 12.Dxd4 Bd7 13.BÍ4 Dxd4 14,Rxd4 o.s.frv. 5. Bb5+ Karpover vanur að leika 5.Rgf3 i þessari stöðu. í einviginu við Kortsnoj 1974 lek hann þannig, en það gafst ekki sérlega vel. 5. — Bd7 Eða 5.— Rc6 6.De2+ Be7 7.dxc5 Rf6 8.Rb3 0-0 9.Be3 (9.Rf3 Re4 10.Be3 He8 11.0-0-0 Rxc5 12.Bc4 Rxb3 13. Bxb3 Be6 með jöfnu tafli) 9. — He8 10.0-0-0 a5 11.a4 Bd7 12.RÍ3 Ra7 113.Rfd4 Re4 með nokkuö jafnri stöðu. 6. De2+ De7 Eftir 6. — Be7 7.dxc5 Rf6 8.Rb3 0-0 9.Be3 He8 10.Rf3 a6 ll.Bxd7 Rbxd712.0-0Rxc5 13.Rfd4 hefur hvitur örlitið betra tafl. 7. Bxd7+ Rxd7 8.dxc5 Rxc5 9.Rb3 Dxe2+ 10.Rxe2 Rxb3 1 alfræðibókinni frá 1974 er hvitur talinnstanda örlitið betur eftir 10. — Ra4 U.Rbd4 vegna veikleikans á d5. Einnig hefur verið leikið hér 10. —Re6 ll.Be3 Rf6 12.0-0-0 b6 13.Hhel 0-0-0 14. Red4 með betra tafli fyrir hvit. 11. axb3 Bc5 12. Bd2 — önnur leiðer hér 12.Rc3 Rf6 (12. — 0-0-0 13.Ha5 með betra tafli fyrir hvit) 13.Ra4 og hvitur stendur betur. 12. — Re7 13.Rf4 — I skákinni Euwe-Botvinnik, heimsmeistaramótinu 1948, varð framhaldið 13.Bc3 Rc6 (betra 13. — 0-014.0-0 með örlitið betra tafli fyrir hvit) 14.Hdl og hvitur hefur betra tafl. 13. — 0-0 14.0-0 Hfd8 Hvítur stendur örlitið betur I þessari stöðu vegna veikleikans á d5, en ekki tekst heims- meistaranum aö notfæra sér þaö. 15, Rd3 Bb5 16.C3 f6 Eftir 16. —d4 17.C4 stöðvarhviti riddarinn svarta peðiö á d4 og hvitur getur farið aö notfæra sér peðameirihlutann á drottn- ingarvæng. 17. Hfdl Kf7 18. Kfl Rf5 19. Bel Re7 20. Rb4 Hd7 21. Hd3 Had8 22. Hadl Kc6. Kortsnoj kemur i veg fyrir c3-c4. 23.Bd2 Rc6 hótunarinnar 28. — a5. 28. — Hb5 29.Hal — Svartur hótaði 29. — a5. 29. — Hdb7 30.Hd2 Ke6 31.Ha6 H5b6 32.Ha2 Kd6 33.Ke2 He7 + 34.Kd3 a6 35.Hdl Kc7 36.Haal Kd8 37.f3 He5 38.Kd4 Kc7 39.Hel Kd6 40.f4 Hxel 41.Hxel a5 42.bxa5. 24.RXC6 — Eftir þennan leik jafnar svartur taflið, en Karpov verður að koma i veg fyrir Rc6-e5. 24. — bxc6 25.b4 Kf7 26.Be3 Bxe3 27.Hxe3 Hb8. Endatafliö er jafnt, þvi hvitur getur ekki sótt að veiku peð- unum á a7 og c6. 28.He2 Hvitur valdar peðiö á b2 vegna 1 þessari stöðu lék Kortsnoj bið- leik. Eftir 42. — Hxb2 43.Hal c5+ 44.Kd3 Hb7 er liklegt, að skákin verði jafntefli. 10 þúsund Chrysler utanborðshestöfl Fyrir skömmu seldi Seifur Vélar og tæki h.f. sitt tiuþúsund- asta hestafl af Chrysler utan- borðsmótorum. Alls hafa verið seldar á fimmta hundraö Chrysler utanborösmótorar, frá þvi aö Seifur-Vélar og tæki, tók viö Chrysler Marine umboðinu i ársbyr jun 1974. Þeir sem keyptu tiuþúsundasta hestaflið voru þeir Ari Bergmann og Ævar Guð- mundsson en þeir keyptu 55 hest- afla mótor. 1 tilefni þessa at- burðar fengu þeir 100 þús. kr. viöurkenningu frá fyrirtækinu sem þeir geta ráöstafað aö eigin vild. Fyrsti Chrysler utanborös- mótorinn kom til landsins I mai 1974 og þá strax varð veruleg eftirspurneftir þessum mótorum, og þaö sem eftir var ársins seld- ust 100 mótorar. Nú eru komnir á boðstóla frá Chrysler ný gerð innanborös- mótora.eru þetta bensin- og disil- vélar, allt að 330 hestöfl og þegar hafa nokkrar veriö seldar til Is- lands en það færist sifellt I vöxt, að menn taki stærri mótora og fylgist vélarstærðin nokkuð að viö stærri báta sem fólk kaupir. Utanborðsmótorarnir frá Chrysler hafa verið framleiddir frá þvi stuttu eftir strið. Fram til ársins 1965 hétu þeir West Bond, en þá keyptu Chrysler verk- smiðjurnar fyrirtækiö og um leið var skipt um nafn. Jafnhliða þvi sem Seifur-Vélar og tæki h.f. selur Chrysler utan- borðsmótora selur fyrirtækiö einnig mikið af skemmtibátum. Fyrst og fremst er um að ræða báta af Shetland og Fletcher gerðum og eru nú á milli 40 og 50 Shetland bátará tslandi af mörg- um stæröum. Starfsmenn Seifs-Véla og tækja h.f. eru 4 en framkvæmdastjórar eru Stefán G. Stefánsson og Magnús Pétursson. Stefán G. Stefánsson ásamt þeim Ara Bergmann og Ævari Guðmundssyni fyrir framan mótorinn sem þeir keyptu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.