Tíminn - 25.08.1978, Blaðsíða 11
friLt.'.H.mi:
Föstudagur 25. ágúst 1978
11
'T*
Lokið við gerð tilraunavegar um
núverandi vegur
AM — Við afgreiðslu siðustu
vegaáætlunar voru veittar
fimm milljónir króna til gerðar
tilraunavegar i Mánárskriðum.
Gerð þessa vegar er nú að
mestu lokiö og átti blaöið tal af
Guðmundi Svavarssyni, um-
dæmisverkfræöingi á Akureyri,
um þetta mál.
Garðar sagði, aö hér væri um
að ræða tveggja kilómetra lang-
an veg og hefði lagning hans
gengið vonum framar, en þó
skyldi tekið fram, að þetta væri
aðeins ýtuslóð, ef svo mætti að
orði komast. Tilgangurinn væri
enda ekki annar en sá, að vita
hvernig vegarstæðinu reiddi af
i vetur og næsta vor, en ekki er
kunnugt um hvernig snjóalög-
um háttar þarna eöa skriðuföll-
um. A 600 metra kafla liggur
vegurinn i i gegnum skriður, og
sagði Guðmundur að þann hluta
leiðarinnar heföu menn óttast
mest.
Núverandi vegur um Mánár-
A þessari mynd sést núverandi vegur og sá nýrri. Hæöarmunurinn er geysimikill, enda er slysa-
hætta taiin minnka að mun.
Jarðýtan að störfum i Mánárskriöum.
skriður liggur I allt aö 171 metra
hæð og á honum er 14% halli, en
nýi vegurinn fer hæst i 65-70
metra hæö og er nær láréttur.
Yröi að honum mikil samgöngu-
bót, vegna minni slysahættu og
auðveldari ferða að vetri til. Að
sjálfsögðu verður vegurinn ekki
nýttur að sinni til neinna ferða
né flutninga, en liklega yrði
þetta'þó sú framtiöarbraut, sem
vonir standa til.
Mánárskríður
Liggur 106 metrum lægra en
50 ára farþegaflug á Islandi:
Flugsýning á Reykjavíkurflugvelli
ESE — 1 gær var blaðamönnum
kynnt dagskrá flugdagsins 1
Reykjavik, sem haldinn verður
n.k. laugardag i tilefni af 50 ára
afmæli farþegaflugs á Islandi. Að
venju kennir ýmissa grasa meðal
dagskráratriða, en eitt að þvi sem
lögö var mikil áhersla á, varð að
hafa sýninguna eins fjölbreytta
og framast var kostur. 1 þvi sam-
bandi leituðu forráöamenn flug-
dagsins liðsinnis starfsmanna
ýmissa erlendra sendiráða i von
um að þeir gætu haft milligöngu
um að fá hingað erlend sýningar- -
atriði og má segja að undirtektir
sendiráðsmanna hafi verið
framar öllum vonum og þvi er
dagskráin fjölbreytt að sama
skapi, þrátt fyrir að litill timi
væri til stefnu.
Meðal sérstaklega áhuga-
verðra sýningaratriða ber að'
nefna listflug breska listflugs-
mannsins Tony Bianchi sem
kemur hingað sérstaklega til þess
að sýna listflug á hinni nýju Cap
10 listflugvél, en hún er nýlega
komin i eigu nokkurra Islendinga.
Bianchi sýndi mikinn velvilja er
leitað var til hans um að sýna á
flugdeginum, þvi að hann fékk sig
lausan frá sýningu, sem hann átti
að taka þátt i erlendis og sýnir
hann hér endurgjaldslaust. Þá er
ástæða til þess að benda mönnum
á, að til sýnis verða m.a. elsta
flugvél landsins, eina tviþekjan
sem hér er til i flughæfu ástandi,
tvær DC 3 vélar, en það mun vera
orðin sjaldgæf sjón að sjá tvo
þrista hlið viö hlið hér á Noður-
hveli jarðar, auk fjölda margra
annarra dagskráratriða.
Aður en dagskráin sjálf hefst er
gert ráð fyrir að einar 15 einka-
flugvélar fari i hópflug yfir borg-
ina og verða þær lentar áður en
dagskráin hefst kl. 14.
1. Tvær Douglas Dakotur eða
Þristar koma fljúgandi yfir svæð-
ið. önnur er frá danska flughern-
um en hin frá Landgræðslunni.
Þær lenda báðar.
— geysifjölbreytt dagsskrá
2. Tvær Lockheed P-3 Orion
kafbátaeftirlitsflugvélar munu
fljúga yfir svæðið. önnur er frá
norska flughernum og mun hún
framkvæma nokkur hjáflug og
lenda siðan, en hin er frá Varnar-
liðinu og mun lenda eftir fyrsta
samflugið.
3. Þota Arnarflugs mun sýna
hjáflug en ekki lenda.
4. Björgunarsveitin á Kefla-
vikurflugvelli mun sýna hvernig
þyrla tekur eldsneyti á flugi og
þyrlan mun ■ siðan sýna hæfni
sina. Eldsneytisvélin, Lockheed
HC-130E Hercules mun ekki
lenda, en hins vegar Sikorsky HH-
3E þyrlan.
5. Breskur listflugmaður, Tony
Bianchi kemur sérstaklega til að
sýna listflug á hinni nýju Cap 10
listflugvél. Cap 10 vélin er i eigu
nokkurra Islendinga.
6. Fjórar McDonnell Douglas F-
4E Phantom þotur munu sýna
fylkingarflug og aöflug en ekki
lenda.
7. Tvær Lockheed T-33A æf-
ingarþotur munu sýna fylkingar-
flug og aðflug en ekki lenda.
8. Félagar úr Fallhlifarklúbbi
Reykjavikur munu sýna fall-
hlifarstökk.
9. Félagar úr Svifflugfélagi
Reykjavikur munu sýna svifflug.
10. Fokker F-27 Friendship
flugvél F.í. mun sýna hjáflug.
11. Orion flugvel bandariska
flotans mun sýna flugtak meö
hámarksafköstum (maximum
performance take-off).
12. Hópflug hinna gömlu og
góðu Piper Cub flugvéla.
13. Transsall C-160 frá vestur-
þýska-flughernum flýgur yfir og
lendir. Auk þessa munu þotur
Flugleiða koma yfir flugvöllinn
eftir þvi sem áætlanir þeirra
leyfa. Undirbúningsnefnd flug-
sýningarinnar tekur enga ábyrgö lega eins og að framan er upp
á þvi aö röö atriða veröi nákvæm- talið.
Dougias DC 3 frá danska flughernum.
TF-TOG hefur um langt árabii séö um að draga þau vélarlausu fyrir-
brigði er svifflugvélar nefnast á loft og þvi kjörið að sýna slikan grip á
fiugsýningu.
Transall C-160 frá vestur-þýska flughernum.