Tíminn - 11.10.1978, Page 9

Tíminn - 11.10.1978, Page 9
Miövikudagur 11. október 1978 9 Pétur Grétarsson spjallar við Tímann um Jazzvakningu - félag áhugafólks um jazztónlist Fyrir tveimur dögum stakk ungur maður höfðinu inn um gættina á ritstjórn- arskrifstofu Timans. Var þar kominn fulitrúi Jazz- vakningarpi í persónu Péturs Grétarssonar. Var honum vel fagnað og var hann umsvifalaust tekinn tali og spurður spjörunum úr. Pétur, hvaö er Jazzvakning gamalt félag? — Jazzvakning var stofnuð af nokkrum jazzáhugamönnum þann 27. september 1975, þannig að þetta er fjórða starfsárið. Hvernig var starfscminni hátt- aö i upphafi? — Við vorum langmest með svokölluð tónlistar- og jazzkvöld og gáfu þau góða raun og aðsókn- in var yfirleitt góð. — A tónlistar- kvöldum reyndum við, sem mest að fá unga og efnilega hljóðfæra- leikara til að koma fram og spila og má geta þess að hljómsveitin Tivoli hóf feril sinn hjá okkur. — Reyndar hét hún þá Kvintett Ólafs Helgasonar. — Siöan vorum við með Jazzkvöld nokkuö reglu- lega og þá fengum við þekkta jazzara til að spila fyrir okkur, en þetta er bara svo þröngur hópur hljóöfæraleikara, sem er i þessu, að fólk kemur ekki endalaust til að sjá sömu andlitin aftur og aft- ur. V jflzzvflKnmG — Nú, siðan fengum við Jazzkjallarann að Frikirkjuvegi og þar höfum við litinn sal til afnota. — Fyrst reyndum við að hafa reglulega jazzkvöld einu sinni i viku, þá venjulega á mánu- dögum, en eftir þvi sem á leið minnkaði aðsóknin, mest vegna þess að hópurinn, sem spilar jazz er svo þröngur og þvi er ekki endalaust hægt að koma með eitt- hvaö nýtt. — Engu að siður skap- aðist oft skemmtileg ,,klúbb- stemming” i kjallaranum og hann er ágætur undir þessa starf- semi, sem slikur. Hvenær hófuö þiö aö flytja inn jazztónlistarmenn? —Þaö var nú ekki fyrr en s.l. vetur. — Við fengum fyrst hingað Horace Parlan með trio sitt. — Við komumst i kynni við Nils Vinther frá Danmörku og hann hefur verið okkur afar hjálplegur og t.d. fengum við Parlan i gegn- um Vinther. — Það var hálfgerö- ur byrjendabragur á þessu hjá okkur þá, enda höfðum við litla sem enga reynslu i tónleikahaldi og þvi stússi sem fylgir þvi. — Parlan hélt þrenna tónleika hérna. — Þeir fyrstu voru haldnir i Hamrahliðarskólanum og var aðsókn mjög þokkaleg, en tón- leikarnir voru haldnir á laug- ardegi, sem er siður en svo hent- ugasti timinn til tónleikahalds. — Siðan spilaöi trióið á Hótel Esju og Hótel Loftleiðunum fyrir troð- fullu húsi i bæði skiptin, en salirn- ir voru að visu ekki mjög stórir. — Með Parlan léku þeir Doug Rainey á gitar og Wilbur Little á bassa. — Rainey þessi er mjög efnilegur jazzgitarleikari, en hann er aðeins rúmlega tvitugur að aldri. V WJflZZVflKflinG Siðan fenguö þiö Nieis Henning örsted Pedersen til landsins ekki satt? — Jú, hann kom hérna i april ásamt triói sinu, en i þvi voru auk hans sjálfs, Philip Catherine á gítar, en hann gekk fyrir skömmu til liðs viö hollensku hljómsveit- ina Focus og Billy Hart á tromm- ur, en Hart þessi er mjög reyndur trommari og m.a. spilað með Herbie Hancock og Miles Davies svo einhverjir séu nefndir. — Tónleikarnir voru frábærlega vel heppnaðir og að sögn var þetta magnaöasti konsert sem menn höfðu almennt augum litið. — Var hann klappaður tvivegis upp og ætlaði fagnaðarlátunum aldrei að linna. — Þarna gekk allur undir- búningur mun betur, enda var ekki sami byrjendabragurinn á hlutunum og þegar Horace Parlan kom. Varö einhver hagnaöur af tón- leikum Pedersen? — Nei, en þetta hangir svona á sléttu, enda er Jazzvakning rekin með það sjónarmið i huga, að tón- listin skipi fyrsta sætið og pen- ingahliðin kemur siðan á eftir. — Við höfum reynt að reka þetta sem ,,non-profit” félag og það hefur tekist svona þokkalega hingað til, en við erum ekkert gróðafyrirtæki og höfum ekkert slikt i huga. V öexter Gordon — Hann mun halda tónieika á vegum Jazzvakningar I dáskólabiói þann 18. okt. n.k. wjflzzvflKnmG Svo viö snúum okkur að Dexter Gordon, sem er væntanlegur nú á næstu dögum. Hvenær verða tón- leikar hans? — Dexter verður með tónleika i Háskólabiói þann 18. október og með honum koma þrir hljóðfæra- leikarar,þeir Rufus Reid á bassa, George Cables á piano og Eddie Gladden á trommur og allir eru þeir negrar. — Gordon spilar i anda „cool- sound” stefnunnar eða svölu- sveiflustefnunnar eins og hún hef- ur verið nefnd hér. — Dexter Gordon var kosinn besti tenórsaxafónleikarinn i Down Beat fyrir árið 1978 en það er tvi- mælalaust virtasta jazztimarit heims. — Gordon er talinn hafa haft mikil áhrif á meistara John Coltrane. Niels-Henning-örsted-Pedersen. Hann var hér á tslandi f april á vegum Jazzvakningar. Niels hefur um árabil veriö aöalbassaleikari Dcxter Gordon á þeim piötum, sem Dexter hefur gert fyrir Steeple-Chase út- gáfufyrirtækiö I Danmörku. — Þessi Jazz, sem þeir spila er einna vinsælasti jazzinn, hérlend- is ásamt gömlu Goodmann sveifl- unni og höfðar einna mest til fólks hér. — Við vonum aö. við fáum aldrei svo stórt númer, að við neyðumst til að halda tónleika i Laugardalshöllinni. — Það er allt annað en gaman að sitja inn i miðju handboltamarki og hlusta á jazz. — Við vorum hálf undrandi á Listahátið að halda tónleika með Oscar Peterson i Höllinni. — Það má koma hér fram i sambandi við fjárhaginn hjá okkur, að það er vægast sagt helviti hart, að rikiö skuli fá jafnmikið i sinn hlut og þeir tónlistarmenn sem spila hérna á okkar vegum. — Mér er til efs að Listahátið hafi þurft að borga slikt til rikisins. V WJflZZVflKniflG Nú eruö þiö meö Jazzplötu i bi- gerö, ekki satt? — Jú platan er núna sem stend- ur i pressun út i Hollandi, en á henni verður verkið Samstæður eftir Gunnar Reyni Sveinsson. — Þetta er kammerjazzverk og var frumflutt á Listahátiö 1970 og er- um við með upptöku frá þeim tima, en upptakan var gerð i Rikisútvarpinu sama ár. — Plata þessi er nokkuð söguleg þvi það má eiginlega segja að þetta sé fyrsta jazzplatan, sem gefin er út hérlendis. — Verkið er rúmlega 38 minútna langt og er að minu mati mjög skemmtilegt. — Þeir sem leika á plötunni eru, Gunnar Reynir Sveinsson á slagverk, Reynir Sigurðsson á vibrafón, örn Armannsson á gitar og selló, Gunnar Ormslev á altosax, Jón Sigurösson á bassa, Guðmundur Steingrimsson sá um upptökuna. — Platan verður gefin út i 1000 eintökum til að byrja með og við vonumst bara til þess, að jazzáhugafólk sjái sóma sinn i að kaupa plötuna. Eruð þiö meö eitthvaö fleira á prjónunum? — Já blessaður vertu. — Duke Jordan kemur hérna til landsins i nóvember og með honum verður m.a. Danny Richmond trommari og hann er algjört æði. — Duke þessi Jordan hefur t.d. leikið með Charlie Parker, en Parker er einn af upphafsmönnum svonefnds be bop-jazz. — Danny Richmond leikur t.d. alltaf með Charles Mingus, besta jazzbassista heims, og Mingus spilar heldur trommaralaus en án Richmond. — Viö vitum ekki enn nákvæm- lega hvaða bassaleikari kemur með þessum tveimur en það éerö- ur einhver góður. — Þetta er svona prógrammið fram að áramótum, en við ætlum einnig að reyna að hafa jazzkvöld einu sinni i mánuöi og vonumst eindregiö til þess, að fólk fjöl- menni á þau. Þá má geta þess hér i lokin, að hið nýja merki jazzvakningar er hannað af Sigurjóni Jónassyni. Eins og sjá má hér á siðunni er merkið hið smekklegasta og væri æskilegt aö fleiri félög legðu meira upp úr slikum merkjum, sem tvimæla- laust vekja mikla athygli.séu þau skemmtilega úr garði gerö. —SSv—

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.