Tíminn - 17.10.1978, Blaðsíða 3

Tíminn - 17.10.1978, Blaðsíða 3
 Þriöjudagur 17. október 1978 3 Fimm sovéskar flutningavélar í Reykjavík Niöurstööur rannsóknar Félagsvisindadeildar H.Í. Félagslega hamlaðir verst settir á vinnu- Viöhorfiö var einna jákvæöast til einstaklinga sem eru likam- lega hamlaöir. Enginn neitaöi likamlega hömluöum beint um vinnu.en i mörgum tilvikum er húsnæöisaöstaöan þaö slæm aö erfitt er fyrir mjög likamlega hamlaöan mann aö komast leiöar sinnar á vinnustaönum. T.d. virtist húsnæöi og vinnuaöstaöa þeirra fyrirtækja sem athuguö voru i yfirgnæfandi meirihluta ekki gera ráö fyrir starfsmanni i hjólastóli eöa 87%. Alls komu 165 hamlaöir fram i könnuninni og voru 107 ennþá viö störf. Ekki voru allir þessir 107 stööugir starfskraftar, þar sem stór hópur var áfengissjúklingar sem margir hverjir mættu óreglulega. ATA — Um hádegisbiliö á sunnudag lentu fimm sovéskar flutningavélar á Reykjavikur- flugvelli. Ætlunin er, aö þær fari áieiöis til Gander i dag, ef mótvindur veröur ekki of mikill. Aö sögn Sigmundar Sigfiis- sonar, varöstjóra I Flugstjórnarmiöstöö er hér um aö ræöa tveggja hreyfla flutn- ingavélar af geröinni Antonov 26. Þær eru ekki ósvipaöar Fokker-Friendship vélum Flugfélagsins i útliti, nema hvaö Antonov-vélarnar eru heidur stærri. Líklegtmá telja, aö hér sé um hervélar aö ræöa, sennilega birgöaflutningavélar. Áætlun- arstaöur er Havana á Kúbu Flutningavélarnar sovésku á Reykjavikurflugvelli markaðínum FI —Nýkomnar eru niöurstöður rannsóknar á viöhorfum til hamlaðra á vinnumarkaöinum, sem gerö var af Félagsvisinda- deildHáskóIa tslands aö tilhlutan Endurhæfingarráös. 87 manna hópur, mest valinn af tilviljun 52 verkstjórar og atvinnurekendur og 35 starfsmenn fyrirtækja geröu grein fyrir viöhorfum sin- um. Þaö kom greinilega i Ijós aö viðhorf til hamlaöra voru mjög mismunandi. Þeir sem höföu „setiö inni”, þ.e. félagslega hamlaöir voru einna verst settir. Þvi næst komu áfengissjúklingar, þá andlega hamlaöir — viöhorfiö til geöveikra var óttablandiö, en i mörgum tilvikum var taliö aö þroskaheftir gætu gert ýmislegt væriþeim stjórnaö og gefin tæki- færi. Odýrara að reka sparisjóð en banka Kás — Þrátt fyrir þaö aö bankar séu yfirleitt reknir i miklu stærri einingum heldur en sparisjóöir.þá viröast þær stóru einingar ekki skila betrinýtingu hvað reksturinn varöar. Þessar upplýsingar komu fram á fundi sem forráöamenn Sambands Islenskra sparisjóöa héldu meö blaöamönnum fyrir skömmu. Samkvæmt þeim töl- um, sem þar voru birtar, viröist launakostnaöur vera mun lægri i sparisjóöum en i bönkum. Ef tekin er hlutfallstala launa- kostnaöar af heildartekjum árs- ins 1977 þá er launakostnaöur nálægt 20.94% hjá bönkunum en 16.34% hjá sparisjóöunum. Hverjar sem ástæöurnar eru fyrir þessum mismun, þ.e. aö stærri einingar skili ekki hag- kvæmari rdcstri, þá tala tölurn- ar sfnu máli. 3 slösuðust í árekstri í Mývatns- sveit — 2 þeirra fluttir til Reykjavikur I sjúkraflugvél ATA — í gærdag varð árekstur við verslun Kaupfélagsins i Reyni- hlið i Mývatnssveit. Þrir farþegar hlutu meiðsli og einn var talinn i lifs- hættu. Slysiö varö meö þeim hætti aö jeppabifreiö var ekiö afturábak frá verslun Kaupfélagsins út á þjóöveginn og I veg fyrir stóran vöruflutningabil. Bilarnir lentu saman og slösuöust þrlr farþegar jeppabifreiöarinnar en báöir öku- mennirnir eru taldir ómeiddir. Tveir hinna slösubu voru fluttir meö sjúkraflugvél til Reykjavik- ur og var annar talinn i lúshættu. Þriöji farþeginn var fluttur. i sjúkrahúsið á HUsavik. Jeppabifreiöin er talin ónýt og töluvert tjón varö á vöru- flutningabilnum. HLÖÐUBRUNI í HÚNAVATNSSÝSLU M.Ó.-ATA — Það var krafta- verk aö hér fór ekki verr en raun er á sagöi Árni Jónsson bóndi á Sölvabakka I Engi- hliöarhreppi i A-Ilúnavatns- sýslu i viötali viö Timann I gær, en aöfaranótt sunnudagsins varö eldur laus i fjóshlööu á bænum. Þar brann meginhlutinn af þeim 800 rúmmetrum af þurr- heyi, sem i hlööunni voru, auk þess sem þak og dyraum- búnaður hlöðunnar brann til ösku. Arni sagöi aö fólk á bænum hefði allt veriö sofnaö utan þess aö aldraöur faöir hans var vak- andi. Hefði hann litið út um gluggann klukkan eitt um nótt- ina. Sá hann þá eldflygsur fljúga utan viö svefnherbergis- gluggann sinn. Vakti hann Arna semrauk þegarútogvar þá þak hlööunnar alelda en hlaöan er sambyggö fjósi, geymsluhús- næöi og ibúöarhúsinu. — Mitt fyrsta verk var aö bjarga kúnum út og innan skamms kom slökkviliðið á Blönduósi og gegndi slökkvi- starfinu af mikilli röggsemi. Auk slökkviliösins kom fjöldi manna frá Blönduósi og ná- grannabæjunum og vann allt þetta fólk mikiö afrek viö aö bjarga húsum og þvi sem unnt var, af heyinu. Engar skemmdir uröu á fjós- inu og veggir hlööunnar virðast litiðskemmdir. Mikiö lán var aö vindur var af suö-vestri og stóö þvi af ibúöarhúsinu. Framhald á bls. 19. Þakiö brunnið en veggirnir standa. 1 gær var byrjaö aö smiöanýjar sperrur og þakviöir voru aftur komnir á hlööuna á Sölvabakka i gærkvöldi. Mynd: Magnús Ólafssson. Vinnuslys um borð í þýskum togara ATA — Um sjöleytiöá sunnudag- inn varö alvarlegt vinnuslys um borö í þýskum togara sem var á veiöum viö island. Háseti höfuö- kúpubrotnaöi en vegna veöurs var ekki hægt aö flytja hann til lands fyrr en i gærmorgun. Að sögn Óskars Þórs Karlsson- ar hjá Slysavarnafélaginu barst þeim hjálparbeiöni rétt fyrir klukkan 19 á sunnudaginn. Vinnu- slys haföi oröiö um borö i togaranumBremerhaven BX-681, — háseti höfuðkúpubrotnaði sem var staddur 280 mllur vest-norð-vestur af Garðskaga. Hásetihafði oröiö á milli toghlera og gálga og haföi hlotið mikil höfuömeiðsl. Slysavarnafélagiö geröi strax ráöstafanir til aö sækja manninn en fljótlegasta aöferðin var aö nota þyrlu. En þaö var ekki fram- kvæmanlegt á sunnudagskvöldiö, bæöi vegna veöurs (þaö voru 7-8 vindstig á þessum slóöum) og svo var myrkur aö skella á. Þetta er langt flug og þvi heföi oröið aö setja eldsneyti á þyrluna á miöri leiö en til aö geta þaö þarf gott skyggni og veöur þarf aö vera gott. Þegar þetta var ljóst var náö i lækni sem haföi samband viö is- lenskan stýrimann togarans og var þvi hægt aö veita slasaöa há- setanum einhverja aöhlynningu. Klukkan 6 I gærmorgun fór þyrla ásamt Herculesvél frá varnarliðinu tilmóts viö togarann og sótti hinn slasaða mann. Þyrlan lenti klukkan 10:52 Reykjavik og hásetinn var lagöur inn á slysadeild. Hann reyndist höfuökúpubrotinn og liöan hans var eftir atvikum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.