Tíminn - 17.10.1978, Blaðsíða 21
Þriöjudagur 17. október 1978
21
Lystræninginn
Ég hef ekki séð Lyst-
ræningjann, siðan tveir
ræningjar komu i vet-
ur, og annar þeirra
seldi mér tvær ljóða-
bækur á uppsprengdu
verði, sem var rán. En
nú er komið nýtt hefti,
merkt 10 (heldég), en i
fljótu bragði sé ég ekki
neitt um árgang og
tölublað, eins og gjarn-
an er haft með i ritum
ráðsettra borgara. Að-
eins að þetta sé 10.
hefti, október 1978.
Það er ávallt gaman að fá
Lystræningjann, jafnvel þótt
maður sé ekki biiinn að borga
árgjaldið. Það er arnsUgur yfir
blaðinu og margt nytt aö sjá. Að
vísu er maður ekki sammála
öllu fremur en fyrri daginn, en
þaö skiptir ekki öllu máli, mest
er um vert, aö nú virðist vera
unnt að halda úti menningarriti,
þvi það er Lystræninginn, þótt
róttæklingar hafi gleypt hann
eins og annaö menningarfóður
þessa lands.
Það kemur i ljós að ritstjór-
arnir telja það vafamál hvort
unnt verður aö gefa ritið Ut
framvegis, til þess vantar þá
fleiri kaupendur, alveg sama
þótt þeir hafi hætt við að breyta
ræningjanum i klámrit, eins og
þeir boðuðu seinast, eða þar
áður. Þeir segja I bréfi til les-
enda:
,,Enn vantartöluvert uppá að
áskrifendur blaösins séu það
margir að áskriftargjöld geti
staðiö undir Utgáfunni og við
höfum ekki fjárhagslegt bol-
magn til að hefja auglýsinga-
herferð, þess vegna leitum við
hjálpar ykkar, taliö við vini og
kunningjasem eru listunnendur
og fáið þá til að gerast áskrif-
endur að blaðinu. Þá þætti okk-
ur vænt umaö þið senduð okkur
linu og segðuð ykkar álit á blað-
inu, við vitum að ymsu er ábóta-
vant, þess vegna eru allar
ábendingar um hvað má betur
fara vel þegnar.
Þvi miður kemur ársrit okkar
um erótiskar bókmenntir ekki
út fyrr en undir áramót og
veldur þar mestu erfiöur fjár-
hagur. Að lokum: þrátt fyrir
ýmsa erfiðleika munum við
halda ótrauðir áfram útgáfunni,
fullvissir þess að með ykkar
hjálp munum við sigra i vixla-
striðinu mikla.
Blaðaefni og bækur
Lystræninginn gefur út tima-
ritið og þeir gefa út bækur.
I fyrra gáfu þeir út ljóð eftir
þá Birgi Svan Simonarson og
Pétur Lárusson. 1 árgefa þeir út
leikritiö Skáld-Rósu eftir Birgi
Sigurðsson, og ljóð eftir Jón frá
Pálmholti og Jónas E. Svafár.
Efni Lystræningjans er fjöl-
breytt að þessu sinni og ritiö er
nú prentað á venjulegan hátt.
Blaðið hefst á sögu eftir Þor-
stein Antonsson. Þá koma ljóð
eftir Leif Jóelsson. Leifur er
ekki mikið skáld ernþá. Kvæöin
erueins og hugsanir manna sem
eru að vakna eftir uppskurð,
það er ekki svo gott fyrir aöra
að átta sig á þeim.
Vigfús Andrésson ritar Langa
slangan. Þaö er töggur í þeirri
frásögn, en frásagnarlistin er
stundumeinkennileg, t.d. þetta:
„Llna bíður með óþreyju inná
baöi og stigur ölduna. Hún
horfir oni fullt klósettið.
Skelfing getur maöurinn verið
seinn á sér. Þaö er sosum ekki i
fyrsta skiptið sem seinlætið t
honum gerir henni grikk.
Veit hann ekki að það er
hættulegt að halda svona i sér?
Hann er ekki að hugsa um það
hann Óli kallinn, ónei.
Hann er vanari aö hugsa um
L.YSTR4EIMIIMGII\ll\i 10
eitthvaö annað i þá veruna sem
lýtur aö þessum efnum.
Hún er orðin æst.
Ekki gat hún fariö út á nátt-
kjólnum að leitaaö slöngunni og
ekki gat hún létt á sér nema i
klósettiö.
Allt i einu starir hún út i ekk-
ertið, andlitið verður einsog
skjóða með samandregiö opiö
næstneðst.
Ef hana misminnti ekki þá
faldi hún f löskuna sem hún stal
af honum I siðasta fyllirii,
innanf slöngurúllunni.
Hún slær að sér náttkjólnum
og stekkur út i morgunkulið”.
Svona er manni fariö að förl-
ast.
Jass og leikhús og...
Vernharöur Linnet ritar um
Horace Parlan og kappana
hans.Þaö las égekki, fæ nóg um
þetta i Timanum og i slödegis-
blööunum.
Pétur örn, Sigfús Bjartmars-
son og Einar Kárason eiga svo
ágæt kvæði þar á eftir en Pétur
Hraunfjörð á eina konu i húsi,
sem er saga.
Kvæðin eru áhugaverö, lik-
legafjölbrautaskáldskapur, eða
þeir eru grunnskólaskáld, þvi
svonaerumenn aðeins fyndnir i
skólanum, þar sem samskiptin
eru auöveld og allir hugsa eins.
Ég á eftir að spila lagið hans
Atla Heimis, sem er við ljóð
Þórarins Eldjárn. Enskriftin er
góö, þvi tónskáldin fá ný tæki-
færi með ofsettinu.
Sverrir Hólmarsson ritar
lærða grein um leikárið
1977-1978. Hann skrifar túlk-
andi, og er grein hans hin at-
hyglisverðasta.
Sverrir er nýtur gagnrýnandi,
en helst til dapur á köflum.
Einar Már Guðmundsson er
skemmtilegt skáld og verö ég að
birta öll kvæðin hans hér. Það
liggur beinast við.
Mannleg samskipti
gefðu mér sjúss
en vertu ekkert að hafa
fyrir þvi
að segja mér ævisögu þina
Drög að skilgreiningu
skyndilega stoppa ég
og skoða hlykkjótt spwr min
I snjónum
mér er spurn hvort
ég hafi lagt krók á leiö mina
einsog evrópukommúnistarnir
nei ég er bara fullur
Á 31. þingi fylkingar-
innar
orðið er laust
leigubilarnir eru lausir
allt er laust nema ég
sem sit hér fastur
Ef þetta er ekki frambæri-
legur skáldskapur, þá þekki ég
hann ekki.
Þar næst kemur einþáttung-
ur eftir Kristján Rey: TIL-
BURÐIR. Vel samið og traust
eins og allt sem hann sendir frá
sér. Þaö er lifsmark með þætt-
inum lika. Þar næst kemur Hitt
og þetta og minningarorð eru
um ungan mann, Gunnlaug Vil-
hjálmsson.
Rætt er um Ferðaleikhúsiö,
sem þau hjónin Kristln Magnús
og Halldór Snorrason hafa rekiö
af miklum dugnaöi I mörg ár og
siðan kemur plötulisti og bóka-
listi frá plötu- og bókaþjónustu
blaösins.
Klykkt er svo út meö kvæöum
eftir þr júskáld, en þaö eru Halli
Steini, Inga Rut og Agúst Guö-
mundsson. Þau eru að byrja.
Jónas Guðmundsson
fólk í listum
Orðsending til bænda
Ath. að veturinn er rétti timinn til að láta
yfirfara búvélarnar.
Siminn okkar er 99-4166.
Bila & búvélaverkstæði
A. Michelsen
Hveragerði
HEILDSALA — SMASALA
Tfrs
ARMULA 7 - SIMI 84450
Sunnlendingar - bændur og j
byggingamenn
Höfum fyrirliggjandi töiuvert magn af
timbri i ýmsum stærðum á hagstæðu
verði. Heflum og sögum timbrið sam-
kvæmt óskum yðar,yður að kostnaðar-
lausu.
Komið eða hringið og við veitum allar
nánari upplýsingar.
Byggingafélagið Dynjandi s.f.
Gagnheiði 11. Selíossi.
Simi 99-1826 og 99-1349.
fffl Frá skólatannlækningum
Reykjavíkurborgar
Skólatannlæknar Reykjavikur munu
annast tannlæknisþjónustu við börn á
aldrinum 6-12 ára i grunnskólum
Reykjavikur i vetur.
Gert er ráð fyrir, að skólatannlæknarn-
ir anni verkefnunum og verði þvi reikn-
ingar frá öðrum tannlæknum vegna
þessara aldurshópa ekki endurgreiddir
hjá Sjúkrasamlagi Reykjavikur, nema
með leyfi yfirskólatannlæknis.
Y f irskóla tannlæknir.
Tilkynning til
söluskatts-
greiðenda
Athygli þeirra sem selja i smásölu bæði
söluskattsfrjálsar og söluskattsskyldar
vörur er hér með vakin á þvi að þeir skulu
skila tveim söluskattsskýrslum fyrir
septembermánuð 1978. Skal önnur skýrsl-
an varða sölu timabilið frá 1.-14. septem-
ber en hin timabilið frá 15.-30. september.
Póstlagðar hafa verið 2 september-skýrsl-
ur til flestra þeirra sem hér um ræðir.
Berist umræddum aðilum ekki 2 skýrslur
eru þeir beðnir að afla sér þeirra hjá
skattstjórum og umboðsmönnum þeirra
eða innheimtumönnum rikissjóðs.
Rikisskattstjóri 13. október 1978