Fréttablaðið - 27.08.2006, Síða 73
SUNNUDAGUR 27. ágúst 2006 33
FRÍTT Á LEIKINN
Stórleikur í Kaplakrika
Landsbankadeild karla
Sunnudaginn 27. ágúst kl. 17:00
FH og Breiðablik í samstarfi við Landsbanka Íslands bjóða
Hafnfi rðingum og Kópavogsbúum frítt á leikinn
Hafnarfjarðarmafían verður á staðnum
Athugið: Takið börnin með á völlinn
Boðið verður upp á afmarkað leiksvæði fyrir börn
Á svæðinu verður hoppukastali og fl eiri leiktæki
FÓTBOLTI Tveir leikir fara fram í
Landsbankadeild karla í dag en þá
klárast 15. umferð deildarinnar.
FH tekur á móti Breiðablik í
Kaplakrika en Valsmenn heim-
sækja Fylkismenn í Árbæinn.
Verði úrslit leikjanna beggja hag-
stæð fyrir FH þá verða þeir
Íslandsmeistarar þriðja árið í röð.
FH verður eðlilega að vinna
sinn leik og á sama tíma þarf Valur
að tapa stigum í Árbænum. Þjálf-
ari Fylkis, Leifur Sigfinnur Garð-
arsson, getur því komið sínum
gömlu félögum til hjálpar í dag en
hann var aðstoðarþjálfari hjá FH
áður en hann tók við Fylkisliðinu.
Íslandsmeistararnir hafa hikst-
að örlítið síðustu vikur og fjögur
stig í síðustu fjórum leikjum bera
vitni um það. Miðvörðurinn
Ármann Smári Björnsson segir
FH-inga staðráðna í að rífa sig upp
í dag en hann leikur kveðjuleik
sinn fyrir félagið í dag en hann
hefur samið við norska úrvals-
deildarfélagið Brann.
„Það væri náttúrulega frábært
að kveðja sem meistari en þetta
verður mjög erfiður leikur enda er
Breiðablik að berjast fyrir lífi
sínu,“ sagði Ármann Smári en
hann á ekki von á því að FH leggi
leikinn í dag upp neitt öðruvsi en í
síðustu leikjum þótt ekki hafi
gengið sem skyldi.
„Það eina sem við ætlum að
breyta er að vinna. Við höfum
verið slakir í síðustu leikjum og ég
kann eiginlega enga sérstaka skýr-
ingu á því af hverju það hafi verið.
Við höfum ekki verið að skora nóg
og vörnin hefur verið að misstíga
sig einnig örlítið. Vonandi tekst
okkur að stoppa upp í götin og sýna
fólkinu hvað í okkur býr,“ sagði
Ármann Smári Björnsson. - hbg
FH getur orðið Íslandsmeistari í knattspyrnu þriðja árið í röð í dag:
Kemur Leifur sínum gömlu
félögum til aðstoðar?
LEIFUR SIGFINNUR Getur aðstoðað sína
gömlu félaga í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÁRMANN SMÁRI BJÖRNSSON Leikur kveðjuleik sinn með FH í dag. Hann vill skilja við
félagið með sigri og sem Íslandsmeistari. Hann mun einnig reyna að pota inn eins og einu
marki. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
GOLF Tiger Woods fer mikinn í
golfheiminum þessa dagana og
vinnur svo gott sem öll mót sem
hann mætir á þessa dagana en
hann er nýbúinn að vinna opna
breska og PGA-meistaramótið.
Hann leiðir eftir tvo hringi á
Bridgestone-mótinu sem fram fer
í Ohio en hann hefur unnið þetta
mót í fjögur skipti en alls hefur
hann sjö sinnum tekið þátt í mót-
inu.
Ekki gekk hringurinn stór-
slysalaust hjá Tiger því á 18. holu
skaut hann upp á þak klúbbhúss-
ins og þaðan fór boltinn út á bíla-
stæði. Fletta varð upp í reglunum
til að bregðast við þessu furðulega
atviki og úr varð að Tiger fékk að
að láta boltann falla án refsingar.
Eins og þessi uppákoma hafi
ekki verið nógu furðuleg þá kom
Paul McGinley beint í kjölfar Tig-
ers og skaut sínum bolta einnig út
á bílastæði. - hbg
Tiger Woods:
Hreinlega
óstöðvandi
TIGER WOODS Einfaldlega langbestur.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
KÖRFUBOLTI Sextán liða úrslitin á
heimsmeistaramótinu í körfu-
knattleik hófust í gær með fjórum
leikjum en hinir fjórir leikirnir
fara fram í dag.
Aðalleikur gærdagsins var við-
ureign Litháa og Ítala og þar
gerðu Litháarnir sér lítið fyrir og
sigruðu, 71-68. Ítalir fengu fjöl-
mörg tækifæri undir lokin á víta-
línunni þar sem þeim brást boga-
listin.
Manu Ginobili fór fyrir liði
Argentínu sem lagði Nýja-Sjá-
land, 79-62, en Ginobili skoraði 28
stig í leiknum. Spánn lagði Serba
þar sem Paul Gasol skoraði 19 stig
og tók 16 fráköst. Að lokum lögðu
Tyrkir Slóvena þar sem Erkan
Serdoka fór mikinn í fjórða leik-
hluta. - hbg
HM í körfubolta:
Litháen lagði
Ítalíu
MANU GINOBILI Ætlar alla leið með Arg-
entínu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES