Fréttablaðið - 28.10.2006, Blaðsíða 18
28. október 2006 LAUGARDAGUR18
��������������������������������������� ������������� ������������
���������� ��������
Ef þú kaupir Miele þvottavél færðu kaupverðið
endurgreitt með betri meðferð á þvottinum þínum
���������������������� ��� ������������ ���
��������������� ������� ����� ��� ���������
����������� �����
������ ������������ ���� �������� �� ����������
��� �������� ����� ����������� ��� �������� ������
��������������������������������
������ ������������ ������� ������� ��� ������
������������
Íslenskt stjórnborð
AFSLÁTTUR
30%
ALLT AÐ
1. VERÐLAUN
í Þýskalandi
W2241WPS
����� ���������� �������
���������� ����� ������������ �����������
����������������
�������������� ������������ ����������
���������������
��������������� ������������ ����������
����������������
MIELE ÞVOTTAVÉL
- fjárfesting sem borgar sig
Hreinn sparnaður
Fáa grunaði á unglingsárum Hild-
ar Petersen á Seltjarnarnesinu að
nú í byrjun nýrrar aldar
yrði henni hampað fyrir
að standa að jafnréttis-
stefnu í banka. Hildur
hefur liðna viku verið í
forsvari fyrir Sparisjóð
Reykjavíkur og nágrennis
en þar hefur hún setið í
stjórn í tvígang. Spron
hlaut á dögunum viður-
kenningu Jafnréttisráðs
fyrir skýra jafnlauna-
stefnu og árlega könnun á
afstöðu starfsmanna til
jafnréttis í fyrirtækinu.
Hildur er af þriðju kyn-
slóð verslunarmanna og
atvinnurekenda í Reykja-
vík. Faðir hennar var
Hans Pétur Petersen og
það var undir hans fram-
kvæmdastjórn sem fyrir-
tæki fjölskyldunnar hófst
í það veldi sem flestum
landsmönnum er kunnugt.
Fólkið hennar Hildar var
hluti af samfélaginu sem
setti svip á kvosina í
Reykjavík, bæði með
verslun sinni í Banka-
stræti 4 og húsi þar sem
Hans og systkini hans
ólust upp í við Skólastræti.
Petersenarnir voru fjöl-
skyldan í Skólastrætinu.
Fyrirtækið stofnaði
Hans eldri 1907 en tók að
höndla með ljósmynda-
vörur 1920 og snemma fór
hann að bjóða upp á
Kodak-vörur og er fyrir-
tækið í dag einn elsti viðskipta-
vinur þeirra Kodakmanna. Hans
lést 1938 og tók þá Guðrún amma
Hildar við stjórn fyrirtækisins.
Konur í Petersen-fjölskyldunni
eru raunar kunnar að því að ganga
hiklaust í störf sem karlar hafa
kynokað. Hildi bregður því til
fósturs. Hans yngri tók við stjórn
fyrirtækisins og stýrði því til
dauðadags 1977. Hildur var þá
enn við nám í viðskiptafræði við
háskólann en kunningjahópi henn-
ar þótti einsýnt að skammt væri í
að hún settist í stjórn fyrirtækis-
ins. Hún varð framkvæmdastjóri
þess tveimur árum síðar. Hún var
24 ára.
Æskuár sín átti Hildur aftur á
Nesinu þar sem foreldrar hennar
reistu sér hús. Hún gekk síðan í
Menntaskólann í Reykjavík. Hún
var hlédræg stúlka á þessum
árum og fór ekki mikið fyrir henni
en var samt virk í samkvæmislífi
félaga sinna í skóla, enda kvenna-
hópurinn af Nesinu sem þá sat
Menntaskólann harður í horn að
taka í djamminu. Þaðan lá leiðin
beint í háskólann og áður en varði
var hún orðin fullorðinn fram-
kvæmdastjóri.
Ragnhildur Ásmundsdóttir
hafði starfað hjá Hans Petersen
þegar Hildur kom þangað til
starfa og vann með henni í yfir
tvo áratugi. Hún sagði aðkomu
Hildar að fyrirtækinu hafa ráðist
fyrir hvatningu jölskyldu hennar,
bæði Hans faðir hennar og Adolf
Karlsson framkvæmdastjóri sem
tók við af honum hafi látist bráð-
lega og hinni ungu konu hafi því
verið vandi á höndum, en hún hafi
frá upphafi reynst sterkur fram-
kvæmdastjóri. „Hún var framsýn
og vildi ekki stöðnun, heldur leit-
aði stöðugt nýrra leiða til að
styrkja reksturinn,“ sagði Ragn-
hildur. Hildur hafi leitt fyrirtækið
í gegnum reglulegar breytingar
og því hafi verið góður skóli að
starfa með henni.
Hún hafi viljað gera
símenntun starfs-
fólks að einkenni
fyrirtækisins, hafi
fundað mánaðar-
lega með þeim og
reynst frjór fram-
kvæmdastjóri í
grein sem var í mik-
illi og örri þróun.
„Hvernig getum við
gert betur og hvað
tekur við,“ var ein-
att spurt.
Að auki segir
Ragnhildur að þær
hafi tengst persónu-
lega og orðið góðar
vinkonur. Hans Pet-
ersen hafi í tíð henn-
ar bæði fengið jafn-
réttisverðlaun og
gæðastjórnunar-
verðlaun.
Hildur var meðal
þeirra kvenna sem
stofnuðu Félag
kvenna í atvinnu-
rekstri. Margrét
Kristmannsdóttir
framkvæmdastjóri
Pfaff-Borgarljósa
var í þeim hópi og
segist hafa fyrst
kynnst Hildi á þeim
vettvangi fyrir rétt
fimm árum. Þar er
Margrét nú formað-
ur en Hildur vara-
formaður. Segir
Margrét ekki hafa borið skugga á
samstarf þeirra: „Hún er dugleg
og fylgin sér, henni leiðist kyrr-
staða og stöðnun. Hún vill hreyf-
ingu á hlutunum. Hún er heiðar-
leg og stendur við orð sín. Hún er
bara heilsteyptur karakter, traust
og þægileg, enda hefur hún verið
farsæl í því sem hún tekur sér
fyrir hendur. Svo er hún skemmti-
leg þess utan.“
Í hópi kynsystra Hildar er hún
kölluð stjórnarformaður Íslands í
spaugi svona rétt til áminningar
um að þessi forni titill Halldórs
Jónssonar getur líka verið kvenna-
megin. Hildur er ekki aðeins til
forystu í stjórn SPRON heldur er
heldur hún líka um stjórnartauma
í Kaffitári.
Það kom ýmsum á óvart þegar
Hildur var gerð að stjórnarfor-
manni í Áfengis og tóbaksverslun
ríkisins árið 1996. Almenningur
hefur á þessum tíu árum séð stór-
tækar breytingar á einkasölunni
og má hluta af þeirri nútímavæð-
ingu rekja til beinna áhrifa Hild-
ar.
Hildur giftist Halldóri Kol-
beinssyni lækni. Þau eru jafnaldr-
ar og eiga tvö börn.
Hildur er dæmi um þriðju kyn-
slóð íslenskra verslunarmanna
sem hefur fylgt tímanum. Hans
Petersen tók hún á markað 1998
og þá seldi fjölskyldan hlut í fyr-
irtækinu. Aldamótaárið var það
keypt að fullu af Skeljungi. Hild-
ur sneri sér þá að umsýslu fast-
eigna og stjórnarstörfum – fast-
eignafélag fjölskyldunnar er
nefnt eftir Guðrúnu ömmu henn-
ar – það er ekki nema von að það
finnist kvennabragur á þeim fyr-
irtækjum sem Hildur Petersen
hefur komið nærri.
MAÐUR VIKUNNAR
Þetta er kjarnakona
HILDUR PETERSEN
STJÓRNARFORMAÐUR
������������������������������
������������������������������
��������������
�������
����������
����
������������
�������������� �
Allar nýjustu upplýsingar
og fréttir á ensku á
vefnum reykjavik.com og
í blaðinu Reykjavikmag.
Allt um allt sem skiptir máli í Reykjavík