Fréttablaðið - 29.10.2006, Side 4
4 29. október 2006 SUNNUDAGUR
STJÓRNMÁL Geir H. Haarde, for-
sætisráðherra og formaður Sjálf-
stæðisflokksins, hlaut tæp 96 pró-
sent atkvæða í fyrsta sætið í
prófkjöri sjálfstæðismanna í
Reykjavík. Hann var hæstánægð-
ur með eigin kosningu. „Það getur
enginn maður verið vanþakklátur
sem fær yfir 90 prósent atkvæða í
svona kosningu og ég er mjög
þakklátur fyrir þetta traust.“
Geir les ekki annað úr niður-
stöðum baráttunnar um annað
sætið en að hörð barátta hafi verið
milli þriggja manna. „Einn hlaut
að vinna sigur en ég tel ekki að
þetta sér sérstakt áfall fyrir þá
sem ekki náðu þessu sæti. Allt eru
þetta örugg þingsæti og forystu-
sæti í okkar baráttu fyrir næstu
kosningar.“ Hann segir að í heild
séu niðurstöðurnar ánægjulegar.
„Það eru fimm konur í tólf efstu
sætunum, þarna kemur inn nýtt
fólk í nokkrum mæli sem bætist
við þá miklu þingreynslu sem við
höfum og þingmennirnir eru að fá
góða útkomu myndi ég segja.“
Guðfinna Bjarnadóttir og Illugi
Gunnarsson hlutu bæði góða kosn-
ingu og höfnuðu ofar en fjórir
þingmenn flokksins. Geir segir
Guðfinnu fá í raun ótrúlega góða
kosningu miðað við að hún sé ný í
stjórnmálum. „Þetta er sjaldgæft
fyrir manneskju sem ekki hefur
haft afskipti af stjórnmálum en
hún hefur getið sér gott orð á
öðrum vettvangi. Illugi kemur líka
sterkur inn en hann hefur auðvit-
að verið viðriðinn stjórnmálin
lengi.“
Og Geir horfir bjartsýnn til
kosninganna í vor. „Listinn á að
skila okkur mjög góðum úrslitum
og við eigum að stefna að því að
sæti ellefu og tólf verði okkar bar-
áttusæti.“ bjorn@frettabladid.is
GENGIÐ 27.10.2006
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
118,7107
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
67,73 68,05
128,06 128,68
85,82 86,30
11,511 11,579
10,329 10,389
9,301 9,355
0,5708 0,5742
100,02 100,62
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
1. sæti Geir H. Haarde
2. sæti Guðlaugur Þór Þórðarson
3. sæti Björn Bjarnason
4. sæti Guðfinna S. Bjarnadóttir
5. sæti Illugi Gunnarsson
6. sæti Pétur Blöndal
7. sæti Ásta Möller
8. sæti Sigurður Kári Kristjánsson
9. sæti Birgir Ármannsson
10. sæti Sigríður Á. Andersen
11. sæti Dögg Pálsdóttir
12. sæti Grazyna M. Okuniewska
Listinn miðast við stöðuna þegar búið
var að telja 8.500 atkvæði af um 10 þús.
PRÓFKJÖR
Sjálfstæðisflokksins
Ellefta og tólfta sæti
verða baráttusætin
Konur höfnuðu í þremur af tíu efstu sætum prófkjörs Sjálfstæðisflokksins. Þrír
nýir frambjóðendur eru meðal tíu efstu. Formaður Sjálfstæðisflokksins segir
niðurstöðuna eiga að skila flokknum góðum úrslitum í kosningunum í vor.
SPÁÐ Í ÚRSLITIN Geir H. Haarde, Ásta Möller og Dögg Pálsdóttir skoða hér nýjustu
tölur sem voru kynntar á hálftíma fresti. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Ég hækka mig miðað við prófkjörið
fyrir fjórum árum og get auðvitað ekki
verið annað en ánægður með það,“
segir Birgir Ármannsson alþingismað-
ur.
„Þetta er ágæt kosning út af fyrir
sig, en en ég sóttist eftir að komast
hærra. Samkeppnin
var hörð og inn var
að koma nýtt fólk
sem er þekkt af störf-
um sínum á öðrum
vettvangi. Það er í
sjálfu sér fagnaðar-
efni að fá það fólk
sterkt inn og ég held að þetta verði
sterkur listi þegar á hólminn er kom-
inn,“ segir Birgir.
Ágæt kosning
„Ég er afskaplega sáttur við mína
stöðu og mjög þakklátur fyrir þann
stuðning sem ég hef fengið.
Ég er stoltur af
þeim lista sem mér
sýnist vera að koma
út úr þessu prófkjöri.
Ég held þetta sé mjög
öflugur listi sem muni
ná góðum árangri í
kosningunum í vor.“
Illugi segir að fyrirséð hafi verið að
hart yrði tekist á í prófkjörinu. „Þarna
voru margir að sækja í efstu sætin í
þessu prófkjöri og því auðvitað tekist
á. En nú einhendum við okkur í að
undirbúa kosningarnar í vor.“
Afskaplega sáttur
„Þetta eru vissulega ákveðin von-
brigði, en maður hlítir að sjálfsögðu
vilja kjósenda,“ segir Pétur Blöndal
alþingismaður. „Við
höldum prófkjör
til að fá fram vilja
sjálfstæðismanna í
Reykjavík. Þetta er
góður listi og ég kvíði
ekki kosningunum.“
„Ég sé ekki ástæðu til
annars en að taka þetta sæti. Kannski
hefur aðferð mín að hringja ekki í fólk
ekki átt upp á pallborðið, en ég breyti
varla mínum aðferðum, mér finnst
asnalegt að hringja í fólk. Það er ekki
mjög málefnalegt.“
Ákveðin vonbrigði
Sigurður Kári Kristjánsson segir það
ákveðin vonbrigði að lenda í áttunda
sætinu, en hann stefndi á það fjórða.
„En ég gerði auðvit-
að ráð fyrir því að ég
gæti lent í neðra sæti,
enda er ég langyngst-
ur þarna, þótt ég hafi
setið í fjögur ár inni
á þingi. Ég held samt
sem áður að listinn
sé góður og það er engan bilbug á
mér að finna,“ sagði Sigurður. „Ég er
auðvitað mjög þakklátur þeim fjöl-
mörgu sem studdu mig.“
Aðspurður um hvað komi honum
mest á óvart við úrslitin nefndi hann
fyrst árangur Guðlaugs Þórs. „Það eru
merkileg pólitísk tíðindi að Guðlaugur
Þór skuli hafa náð öðru sætinu.“
Góður listi
„Það var hörð barátta í öðru og þriðja
sætinu og ég er að ná nokkuð góðri
niðurstöðu,“ segir Ásta
og bendir á að átta
hafi sóst eftir efstu
þremur sætunum.
Ásta segir stöðu
kvenna á listanum
sterka nú þegar þrjár
konur eru meðal tíu
efstu. Ásta segir Guðlaug koma mjög
sterkan út úr prófkjörinu. „Þarna er öfl-
ugur stjórnmálamaður sem fólk telur
til alls líklegan. Björn er sterkur stjórn-
málamaður en hann hefur sjálfur sagst
vera á leiðinni út. Kannski hefur hann
goldið þess og fólk því horft á Guðlaug
sem framtíðarstjórnmálamanninn.“
Staða kvenna sterk
VIÐBRÖGÐ FRAMBJÓÐANDAVIÐBRÖGÐ FRAMBJÓÐANDA
„Ég er mjög ánægð með þennan
árangur, að sjálfstæðismenn skuli
treysta mér, ungri konu í framboði,
fyrir þessu sæti sem
við lítum á sem öruggt
þingsæti í vor.“
Sigríður segist
ánægð með að vera
þriðji nýliðinn inn af
öllum þeim nýju fram-
bjóðendum sem tóku
þátt. „Árangur Guðfinnu er glæsilegur
og sýnir að menn hafa miklar vænt-
ingar til hennar.
Öruggt þingsæti
STJÓRNMÁL Viðbrögð Guðfinnu S.
Bjarnadóttur, rektors Háskólans
í Reykjavík, við úrslitum próf-
kjörsins voru allt í senn undrun,
þakklæti og ánægja. „Mér hefur
gengið vel í atvinnulífinu og
kannski vita margir af mér
þaðan,“ svarar hún aðspurð um
ástæður þessa góða gengis. Hún
vill þó ekki útiloka að það hafi
haft sitt að segja að hún er kona.
„Það hlýtur að koma til álita en
ég vil samt standa og falla með
fyrri verkum.“
Guðfinna segir að framboðs-
listi flokksins sé mjög sterkur og
hún hlakkar til að fá að þjóna
þjóðinni og Sjálfstæðisflokknum.
Góður árangur Guðfinnu í
prófkjörinu er athyglisverður í
því ljósi að þetta er í fyrsta skipti
sem hún gefur sig að pólitísku
starfi og gekk hún nýlega í Sjálf-
stæðisflokkinn. Guðfinna segist
ekki hafa talið það við hæfi að
vera í stjórnmálaflokki samtímis
því að stýra Háskólanum í
Reykjavík.
Guðfinna segir hjarta sitt þó
alltaf hafa slegið með Sjálfstæð-
isflokknum. „Það eru grundvall-
argildi í flokknum sem hafa allt-
af hugnast mér vel þannig að ég
hef verið sjálfstæðismaður frá
blautu barnsbeini.“
- bþs
Guðfinna S. Bjarnadóttir segir árangur sinn í prófkjörinu í raun ótrúlega góðan:
Undrandi, þakklát og ánægð með úrslitin
GUÐFINNA S. BJARNADÓTTIR Útilokar ekki að það hafi skipt máli að hún er kona en
vill standa og falla með fyrri verkum. Guðfinna hefur ekki tekið þátt í pólitísku starfi
fyrr og er nýgengin í Sjálfstæðisflokkinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM