Fréttablaðið - 29.10.2006, Side 6
6 29. október 2006 SUNNUDAGUR
KJÖRKASSINN
Hefur þú keyrt bíl undir áhrif-
um áfengis?
Já 57,6%
Nei 42,4%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Tókst þú þátt í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík?
Segðu skoðun þína á visir.is
VINNUMARKAÐUR Eiður Eiríkur
Baldvinsson, tengiliður starfs-
mannaleigunnar 2b ehf., sagði í
vitnaleiðslum, fyrir Héraðsdómi
Austurlands í lok september, að
Oddur Friðriksson, yfirtrúnaðar-
maður á Kárahnjúkum, hefði lagt
til að starfsmannaleigan 2b bæri á
hann fé til að fá starfsfrið á Kára-
hnjúkum.
Oddur Friðriksson hafnar þess-
um ásökunum alfarið og segir að
andlitið hafi dottið af sér þegar
hann hafi heyrt þetta í réttinum.
„Þetta eru tilhæfulausar ásakan-
ir,“ segir hann og kveðst vera að
skoða sína stöðu í samráði við lög-
mann.
„Ég gaf skýrt til kynna að þetta
væri bara þvæla en að ég áskildi
mér jafnframt rétt til að ganga
lengra í þessu máli. Ég mun grípa
til viðeigandi ráðstafana og læt
lögmanninn um að ákveða það. Ég
ætla að fá að halda því fyrir mig í
augnablikinu hvað það verður
nákvæmlega,“ segir hann.
Sverrir Albertsson, fram-
kvæmdastjóri Afls starfsgreina-
félags, segir að samstarfsnefnd
verkalýðshreyfingarinnar hafi
tekið málið fyrir og líti það alvar-
legum augum. Ákveðið hafi verið
að rasa ekki um ráð fram og skoða
málið vel áður en ákveðið verði til
hvaða aðgerða verði gripið.
„Nefndin á eftir að taka form-
lega ákvörðun um hvaða skref
verður stigið næst en ég held að
við hljótum að óska eftir rannsókn
á þessum ummælum. Þetta eru
alvarlegustu ásakanir sem hægt
er að bera fram á trúnaðarmann
verkalýðsfélags og verkalýðs-
hreyfingin getur á engan hátt setið
undir þessu,“ segir hann.
Sverrir bendir á að ásakanirnar
komi frá manni sem hafi verið
uppvís að því að hlunnfara og
féfletta erlenda verkamenn.
„Menn blása á þetta. Þetta er róg-
burður af verstu tegund.“
Vitnisburður Eiðs er til kominn
vegna innheimtumáls Afls á van-
goldnum launagreiðslum til hátt í
tuttugu pólskra starfsmanna
starfsmannaleigunnar 2b á Kára-
hnjúkum í fyrra. Verkalýðshreyf-
ingin taldi að mennirnir hefðu
ekki fengið launin sín greidd í
samræmi við samningsbundin
réttindi og að starfsmannaleigan
hefði virst halda eftir launum án
þess að fyrir lægi skriflegur samn-
ingur.
Vitnaleiðslur hafa farið fram í
innheimtumálinu gegn 2b og er
búist við að dómur verði kveðinn
upp í næstu viku.
ghs@frettabladid.is
EIÐUR E. BALDVINSSON, TENGI-
LIÐUR 2B Eiður E. Baldvinsson,
tengiliður 2b, sagði fyrir héraðs-
dómi að Oddur Friðriksson
yfirtrúnaðarmaður hefði viljað
fá greiðslu fyrir starfsfrið á Kára-
hnjúkum.
ODDUR FRIÐRIKSSON YFIRTRÚN-
AÐARMAÐUR Yfirtrúnaðarmaður
á Kárahnjúkum, Oddur Friðriks-
son, var sakaður um mútuþægni
í vitnisburði fyrir Héraðsdómi
Austurlands í lok september.
Málið verður rannsakað.
Ásakanir um mútu-
þægni í héraðsdómi
Yfirtrúnaðarmaður á Kárahnjúkum hefur verið sakaður um mútuþægni gegn
því að fyrirtæki fái starfsfrið. „Tilhæfulausar ásakanir,“ segir hann. Verkalýðs-
hreyfingin getur ekki setið undir þessu og mun láta rannsókn fara fram.
TÓNLEIKAR Karlakórinn Fóstbræð-
ur stóð fyrir hátíðartónleikum í til-
efni af 90 ára afmæli kórsins í gær.
Yfirskrift tónleikanna var Brennið
þið vitar en lagið, eftir Pál Ísólfs-
son, frumflutti kórinn á Alþingis-
hátíðinni árið 1930.
Árni Harðarson, kórstjórnandi,
var að vonum hæstánægður á
afmælisdeginum og sagði tónleik-
ana einn af hápunktunum á hans
15 ára ferli sem kórstjórnandi
Fóstbræðra. „Fóstbræður hafa
komið við sögu á ýmsum hátíðis-
stundum þjóðarinnar eins og
Alþingishátíðinni 1930 og Lýðveld-
ishátíðinni 1944 og nú fær þjóðin
að vera viðstödd hátíðisstund hjá
okkur,“ sagði Árni rétt fyrir tón-
leikana.
Á tónleikunum sungu Fóstbræð-
ur lög sem spönnuðu sögu kórsins
við undirleik Sinfóníuhljómsveit
Íslands. Frumflutt var tónverk
Áskels Mássonar við kvæði úr
ljóðaflokki Hannesar Péturssonar.
Kórinn flutti einnig tónverk
Gustavs Holst sem hafa ekki
heyrst áður á tónleikum hérlendis
og lagið Army of me eftir Björk.
Karlakórinn Fóstbræður hefur
lengi verið fremstur á sínu sviði
og fóru áhorfendur ekki varhluta
af því í gær. - jóa
Vel heppnaðir afmælistónleikar í Háskólabíói:
Karlakórinn Fóstbræður níræður
BRENNIÐ ÞIÐ VITAR Fóstbræður komu fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands á 90
ára afmælistónleikum í Háskólabíói í gær. Fóstbræður sungu af lífi og sál við góðar
undirtektir kórunnenda í salnum. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
UMFERÐ Á milli 40 og 45 tonn af
grjóti féllu á veginn í Óshlíð rétt
innan við Óshólavita í miklum
skriðum seinnipart föstudags.
Engir vegfarendur voru á ferð
þegar skriðurnar féllu.
Fyrsta skriðan féll um klukkan
hálf fimm og svo önnur hálftíma
síðar. Er talið að um 20 til 25 tonn
af grjóti hafi fallið í þeim skriðum
að sögn lögreglunnar í Bolungar-
vík en mikil rigning var á svæð-
inu. Þriðja skriðan féll síðan
klukkan tíu um kvöldið. Fóru þá
tvö tíu tonna grjót yfir veginn og
brutu vegrið.
Vegurinn var ruddur í þrígang
til að greiða fyrir umferð og tálm-
ar settir upp til að þrengja veginn
á svæðinu. Við slíkar aðstæður er
einungis leitast við að halda vegin-
um opnum og aðeins unnið við það
í björtu að sögn Guðmundar Björg-
vinssonar, starfsmanns hjá Vega-
gerðinni. „Og það er alltaf staðin
vakt af manni sem fylgist með
meðan verið er að moka í burtu. Á
mánudaginn verður síðan farið í
að hreinsa skriðurnar í burtu.“
Guðmundur segir ekki óalgengt
að skemmdir verði á bílum vegna
grjóthruns í Óshlíðinni og verði
þær aðallega vegna þess að fólk
ekur á grjót sem fallið hefur á
veginn. En slys hafa ekki orðið á
fólki í marga áratugi. „Maður er
eiginlega hissa hvað við sleppum
vel. Menn keyra þetta viðstöðu-
laust og eru ekkert að stoppa að
gamni sínu.“ - sdg
Hætta skapaðist á veginum milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur vegna grjóthruns:
Tugir tonna af grjóti féllu í Óshlíðinni
GRJÓTSKRIÐAN VIÐ VEGINN Svipað magn af grjóti féll á sama stað í vorleysingunum,
að sögn Guðmundar.