Fréttablaðið - 29.10.2006, Blaðsíða 12
29. október 2006 SUNNUDAGUR12
timamot@frettabladid.is
MERKISATBURÐIR
1863 Alþjóða Rauði krossinn er
stofnaður.
1919 Alþýðublaðið kemur út í
fyrsta sinn. Útgáfunni var
hætt 1997.
1922 Elliheimili tekur til starfa í
húsinu Grund við Kapla-
skjólsveg.
1925 Íslenskir einnar og tveggja
krónu peningar eru settir í
umferð.
1929 Verðbréfamarkaðurinn í
Bandaríkjunum hrynur.
Dagurinn hefur verið
nefndur svarti þriðjudag-
urinn.
1975 Stjórnartíð Francos hers-
höfðinga á Spáni lýkur.
1998 Hinn 77 ára gamli öld-
ungadeildarþingmaður
John Glenn heldur út
í geim í annað sinn á
ævinni.
EINAR ÖRN BENEDIKTSSON
TÓNLISTARMAÐUR ER 44 ÁRA
Amstur dagsins getur verið
hektískt og brjálað en það á
sín rólegu móment á milli.
Þau koma reyndar helst í
svefni þannig að ef maður
sefur ekki vel þá er maður í
vondum málum.
Á þessum degi árið 1618
var Sir Walter Raleigh
hálshöggvinn.
Raleigh var enskur ævin-
týramaður, rithöfundur og
ekki síst frægur fyrir að
vera uppáhaldshirðmaður
Elísabetar fyrstu Englands-
drottningar. Á valdatíma
hennar fór Raleigh fyrir
þremur könnunarleið-
öngrum til Ameríku þar
sem hann kom á fót fyrstu
ensku byggðinni árið
1587. Þegar hann sneri
aftur féll hann í ónáð
drottningar vegna leynilegs
hjónabands síns við Bessy
Throckmorton sem hafði
verið ein af brúðarmeyjum
drottningar. Raleigh og
eiginkona hans voru fang-
elsuð í Tower of London.
Hann gat þó keypt þau
laus og hélt sig fjarri hinni
öfundsjúku drottningu
eftirleiðis.
Þegar Elísabet lést árið
1603 var Raleigh talinn
ógna Jakobi I konungi og
var þar af leiðandi fang-
elsaður á ný og dæmdur
til dauða. Hann slapp þó
með skrekkinn, hlaut lausn
og leiddi enn einn leið-
angurinn til Ameríku. Þar
sem áform hans um að
finna gull fóru í vaskinn var
dauðadómur hans endur-
nýjaður við heimkomuna.
ÞETTA GERÐIST: 29. OKTÓBER 1618
Raleigh gerður höfðinu styttri
Okkar innilegustu þakkir fyrir vináttu,
hlýhug og samúð við andlát og útför
elsku móður okkar, tengdamóður, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
Borghildar Ásgeirsdóttur
áður til heimilis að Blikahólum 2,
Reykjavík,
sem lést á Hrafnistu í Reykjavík, sunnudaginn 8. okt-
óber. Sérstakar þakkir eru færðar öllu starfsfólki á
hjúkrunardeild F-2 fyrir hlýja og góða umönnun.
Reynir Ásgeirsson Björg Rósa Thomassen
Baldur Gunnarsson
Gunnhildur Gunnarsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur.
Hjartans þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug
við andlát og útför elskulegs föður okkar,
stjúpföður, tengdaföður, afa og langafa,
Jósafats Sigurðssonar
frá Siglufirði, Eyjabakka 6, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunar-heim-
ilisins Sóltúns fyrir góða umönnun.
Þóranna Sigríður Jósafatsdóttir Jónsteinn Jónsson
Sigurður Gunnar Jósafatsson Ingigerður Baldursdóttir
Elenóra Margrét Jósafatsdóttir Sigurður H. Ingimarsson
Þorfinna Lydia Jósafatsdóttir Þorkell V. Þorsteinsson
Örn Einarsson Steinþóra Sumarliðadóttir
Stella Einarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
80 ára afmæli
Karitas Finnbogadóttir
er 80 ára í dag 29. október.
Innilega til haming ju
með daginn.
Þín fjölskylda.
Legsteinar
Kynningarafsláttur af
völdum tegundum
Fjölbreytt úrval
Hagstæð verð
Stuttur afgreiðslufrestur
�����������������������������������������
����������������������� �������������
����
�� �����
���������
�����
����������
LEGSTEINAR
OG FYLGIHLUTIR
Í MIKLU ÚRVALI
Þökkum samúð og hlýhug við andlát
og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Þorbjargar Bjarnadóttur
Þakkir til starfsfólks á Droplaugarstöðum, á
Landspítala og til annarra sem önnuðust hana
í veikindum hennar.
Elsa Þ. Axelsdóttir Pálmi Ólason
Björk Axelsdóttir Jón S. Pálsson
Þyri Axelsdóttir Ásgeir L. Guðnason
Davíð Axelsson Selma K. Albertsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Matthías Jónsson
frá Lækjarbotnum, til heimilis að
Hæðargarði 33,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánudaginn
30. október kl. 13.00.
Inga Ísaksdóttir
Friðrik Axel Þorsteinsson Helga Þ. Einarsdóttir
Steinunn Jóna Matthíasdóttir
Ísak Jakob Matthíasson Hulda Gunnarsdóttir
og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Gísli Gíslason
fyrrverandi verslunarmaður, Hvassaleiti 56,
sem lést á Droplaugarstöðum 23. október, verður
jarðsunginn frá Langholtskirkju mánudaginn 30. okt.
kl. 15.00.
Ingibjörg Níelsdóttir
Kristinn Gíslason Auður Björg Sigurjónsdóttir
Halldóra Gísladóttir Reynir Ragnarsson
Kjartan Gíslason Ólöf S. Jónsdóttir
Óskar Gíslason Heiða Waage
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Hjörleifur Sveinbjörnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegs föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Bjarna Jónatanssonar.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild A-6 á
Landspítalanum í Fossvogi
fyrir hlýja og góða umönnun.
Sævar Jóhann Bjarnason
Katrín Bjarnadóttir Guðmundur Guðmundsson
Soffía Jóna Bjarnadóttir Guðlaugur Ómar Leifsson
Agnes Helga Bjarnadóttir Róbert Lee Tómasson
barnabörn og barnabarnabörn
Dómkirkjan í Reykjavík fagnar 210 ára vígsluafmæli í dag
en hún var vígð þann 30. október árið 1796. Að sögn séra
Hjálmars Jónssonar verður töluvert haft við í kirkjunni í
dag og næstu vikur í tilefni afmælisins. „Það er hátíðar-
guðsþjónusta í dag þar sem biskup Íslands, herra Karl Sig-
urbjörnsson, prédikar. Dómkórinn mun flytja Messu Moz-
arts ásamt þeim Hallveigu Rúnarsdóttur, Sesselju
Kristjánsdóttur, Snorra Wium og Bergþóri Pálssyni, undir
stjórn Marteins H. Friðrikssonar organista,“ segir Hjálmar
sem mun þjóna fyrir altari auk annarra þjónandi presta
Dómkirkjunnar og vígslubiskupa Skálholts og Hóla.
„Tónlistardagar Dómkirkjunnar hófust um helgina og
standa til 17. nóvember en þá verða hinir ýmsu tónlistarvið-
burðir í kirkjunni. Einn af hápunktum Tónlistardaganna er
flutningur Dómkórsins á Missa Choralis eftir Liszt í Hall-
grímskirkju,“ segir Hjálmar.
Dómkirkjan er að auka talsvert miðborgarstarf sitt og er
nú verið að undirbúa kvöldkirkju sem verður eitt til tvö
kvöld í viku. „Þar verða bænastundir og lágstemmd tónlist
auk þess sem hægt verður að ræða einslega við prest og
leggja fram bænarefni,“ segir séra Hjálmar Jónsson, Dóm-
kirkjuprestur.
DÓMKIRKJAN 210 ÁRA: AFMÆLISHÁTÍÐ
Í KIRKJUNNI
Tónlistin í
hávegum höfð
SÉRA HJÁLMAR JÓNSSON DÓMKIRKJUPRESTUR Hjálmar segir Dóm-
kirkjuna vera að auka verulega miðborgarstarfið, meðal annars með
svokallaðri kvöldkirkju þar sem flutt verður tónlist í bland við bæna-
stundir. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI