Fréttablaðið - 29.10.2006, Síða 16
29. október 2006 SUNNUDAGUR16
E
yrún hefur starfað á
neyðarmóttöku vegna
nauðgana allt frá
stofnun hennar árið
1993. Hún segir að sér
sýnist sem aukning
hafi orðið í málum þar sem ókunn-
ugir menn ráðast að konum í mið-
borginni um helgar á síðustu 2-3
árum. „Við sjáum að þetta er alltaf
að aukast. Þá eru jafnvel tveir til
þrír saman í hóp. Þótt þeir taki
ekki allir beinan þátt í nauðgun-
inni þá eru þeir allir óbeinir þátt-
takendur. Oft taka þeir líka beinan
þátt með því að halda fórnarlamb-
inu eða aðstoða á annan
hátt við nauðgunina.“
Stutt í ofbeldishneigð-
ina
Aðspurð um hvað valdi
þessari aukningu segir
Eyrún það ekki hlut-
verk neyðarmóttöku að
skilgreina hvað valdi en
að hana gruni að óhóf-
leg notkun á áfengi og
fíkniefnum spili þar
stóra rullu. „Fólk er
náttúrulega að skemmta
sér langt fram eftir
nóttu og dómgreindin
minnkar við mikla
drykkju eða neyslu
jafnvel harðari efna. Þá
er einfaldlega mjög
stutt í ofbeldishneigð-
ina. Menn verða hvat-
vísir og þráðurinn í
þeim styttist. Það þarf
oft mjög lítið til þess að
hleypa af stað nauðgun.
Konur segjast kannski
ekki nenna að tala við
einhvern eða biðja þá
um að láta sig í friði. En
við getum ekki skil-
greint hvað það er sem
fær þá til að fram-
kvæma svo alvarlegt
ofbeldisverk. Við skilj-
um þetta ekki frekar en
aðrir.“
Höfða til samborgaralegrar
ábyrgðar
Eyrún telur ekki að til séu neinar
skyndilausnir til að vinna gegn
því þjóðfélagsmeini sem nauð-
ganir eru. „Það er fyrst og fremst
að höfða til samborgaralegrar
ábyrgðar. Að fólk láti það ekki
afskiptalaust ef það verður vitni
af því að verið sé að áreita fólk
eða jafnvel ráðast á það. Það á að
skipta sér af því. Ef konur eru
mikið drukknar eða illa til reika
þá eiga vinir og aðrir í kringum
viðkomandi að láta sig það varða
og koma í veg fyrir að hún sé að
fara með einhverjum
afsíðis.“
Allt eftirlit til bóta
Eftirlit skiptir miklu
máli að sögn Eyrún-
ar. „Líkt og lögregla
og borgaryfirvöld
hafa verið að nefna
þá verða hugsanlega
settar upp fleiri eft-
irlitsmyndavélar.
Við vitum að mál
hafa verið upplýst
vegna þess að
myndavélarnar hafa
gert sitt gagn. Þar
má nefna myndavél-
ar inni á skemmti-
stöðunum þar sem
fyrstu kynnin eiga
sér oft á tíðum stað.“
Hún telur betri
lýsingu á hættuleg-
um svæðum og sýni-
lega löggæslu líka til
mikilla bóta. „Fólk
er þúsundum saman
í miðborginni um
helgar. Stór hluti
þess fólks er ekki
með dómgreind sína
í lagi vegna þess að
það er undir áhrifum
áfengis. Fólk tekur
því sénsa og gerir
eitthvað sem það
hefði hugsanlega
ekki gert edrú. En samstarf
okkar við lögreglu er gott og hún
er mjög ábyrgðarfull við að koma
með fólk á neyðarmóttökuna ef
það er minnsti grunur um kyn-
ferðisafbrot. Það skiptir miklu
máli að hafa lögregluna í
námunda. Bara það að lögreglu-
bílar séu sýnilegir svo að fólk
sem er í vanda geti leitað til
þeirra skiptir sköpum.“
Karlmenn oftast gerendur
Eyrún segir að þær nauðganir sem
komi inn á borð neyðarmóttökunn-
ar séu nánast undantekningar-
laust framdar af karlmönnum.
„Þetta eru nánast eingöngu brot
karlmanna gegn konum. Við fáum
frá einum upp í sex karlmenn á ári
til okkar og þá eru gerendurnir
eiginlega alltaf karlmenn. Einung-
is tvö af þeim 1.405 málum sem
hafa komið inn á borð neyðarmót-
tökunnar frá upphafi eru þannig
að karlmenn telji sig hafa orðið
fyrir ofbeldi frá konum.“
Konur oft sakbitnar
„Konur sitja oft uppi með sektar-
kennd eftir að þeim hefur verið
nauðgað vegna þess að þær hugsa
kannski að þær hefðu aldrei átt að
ganga þá leið heim sem þær fóru
og annað í þeim dúr. En það eru
karlmennirnir sem gera þetta. Við
verðum að beina athyglinni að því
að það eru gerendurnir sem bera
ábyrgðina á þessu, ekki þolend-
urnir. Þeir bera alla þessa ábyrgð.
Það verður því einfaldlega að
höfða til karlmanna til að draga úr
þessum árásum. Komast að því
hvað það er sem fær þá til að beita
þessu ofbeldi og nota vald sitt á
þennan hátt.“
Helmingur mála kærður
Einungis helmingur þeirra mála
sem koma til neyðarmóttökunnar
er kærður til lögreglu. Eyrún segir
það algerlega mat þess einstakl-
ings sem verði fyrir árásinni hvort
hann kæri eður ei. Það sé ekki
þeirra hlutverk að hafa áhrif á
það, en öllum er þó boðið upp á að
ræða við lögmann.
„Gerandinn er svo oft ókunnug-
ur. Þá hefur þolandinn yfirleitt
verið að skemmta sér og endað
jafnvel í samkvæmi en veit ekkert
með hverjum hann fór með eða
var. Svo er komið með konur hing-
að hverja einustu helgi sem eru
nánast afvelta af ölvun eða jafnvel
í áfengisdái. Þetta eru möguleg
fórnarlömb þeirra sem leggjast
svona lágt. En þolendurnir upplifa
þetta oft þannig að það sé erfitt að
kæra einhvern sem þær þekkja
ekki og að illa gangi að sanna
þannig mál. Svo eru fórnarlömbin
oft að draga til baka kærur vegna
þess að þau eru að fá alvarlegar
hótanir frá gerendunum, jafnvel
líflátshótanir. Konurnar meta
þetta þannig að þær geti verið í
lífshættu ef þær kæri.“
Eyrún segir að umfjöllun um
svona brot í fjölmiðlum og annars
staðar leiði oft til þess að fleiri
konur komi fram. „Þegar það
Samborgaraleg ábyrgð allra
Nauðgunarmál sem upp hafa komið í Reykjavík á undanförnum vikum hafa valdið miklum óhug meðal borgarbúa. Í öllum
tilfellum réðust ókunnugir menn á ungar stúlkur eftir að þær höfðu verið við skemmtanahald í miðborginni. Öll málin eru enn
óupplýst. Þórður Snær Júlíusson ræddi við Eyrúnu B. Jónsdóttur, deildarstjóra á neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeld-
is, um þessar nauðganir, almennt starf neyðarmóttökunnar og hvað sé mögulega hægt að gera til að sporna við því kynferðis-
ofbeldi sem þrífst í Reykjavík nútímans.
Svo eru fórn-
arlömbin oft
að draga til
baka kærur
vegna þess
að þau eru að
fá alvarlegar
hótanir frá
gerendunum,
jafnvel lífláts-
hótanir.
EYRÚN JÓNSDÓTTIR
DEILDARSTJÓRI NEYÐ-
ARMÓTTÖKU VEGNA
NAUÐGANA
Nauðgun
Misneyting
Sifjaspell
Kynferðisbrot gegn börnum
Prentun, útbreiðsla eða varsla kláms
11
21
6
23
30
11
21
2
23
41
7
27
4
24
23
13
19
5
19
25
19
38
5
19
43
2001 2002 2003 2004 2005
Samkvæmt upplýsingum frá neyðarmóttöku eru einungis helm-
ingur þeirramála sem koma inn á borð til þeirra kærð til lögreglu.
KYNFERÐISBROT Í REYKJAVÍKURBORG
Fjöldi einstakra kynferðisafbrota í umdæmi lögreglustjórans í
Reykjavík á árunum 2001-2005 samkvæmt árskýrslu
Alls 145
Alls 161
Alls 171
Alls 130
Alls 140
EYRÚN B. JÓNSDÓTTIR Segir að aukning hafi orðið undanfarin ár í málum aþr sem óþekktir menn ráðist að konum eftir að þær hafi
verið við skemmtannahald um helgar. Hún segist ekki geta skilgreint hvað það sé sem fær menn til að fremja slík ofbeldisverk.