Fréttablaðið - 29.10.2006, Blaðsíða 17
SUNNUDAGUR 29. október 2006 17
Neyðarmóttakan er staðsett á
slysa- og bráðadeild Landspít-
ala - háskólasjúkrahúss í
Fossvogi og hefur verið þar til
húsa frá stofnun, 8. mars 1993.
Aðgengi er allan sólarhinginn,
bæði fyrir konur og karla sem
hafa orðið fyrir nauðgun eða
tilraun til nauðgunar og er
þjónustan þeim sem leita til
hennar að kostnaðarlausu. Auk
þess er þjónusta Neyðarmót-
töku forgangsþjónusta, sem
þýðir að þeir sem þangað snúa
sér þurfa ekki að bíða eftir
aðhlynningu á biðstofu.
Alger nafnleynd ríkir og ef
málið er kært til rannsóknar-
lögreglu þá veitir brotaþoli
skriflega heimild sína til þess
að nota megi læknaskýrslur og
sakargögn sem tekin voru í
málinu. Sakargögn eru geymd í
allt að fjóra mánuði en skýrsl-
ur, vottorð og ástandslýsingar
auk ljósmynda eru geymd
áfram. Ákvörðun um að kæra
er alfarið í höndum brotaþola
og eru öll gögn geymd í níu
vikur og því þarf ekki að taka
slíka ákvörðun strax. Þó er það
lagaleg skylda að tilkynna til
barnaverndaryfirvalda ef
unglingur er yngri en 18 ára.
Slíkt er gert í samráði við
ungmennin.
Hjá móttökunni eru allir
starfsmenn á bakvöktum og
kallaðir til ef þörf þykir á. Þar
starfa tólf hjúkrunarfræðingar
og sjö læknar sem vinna við
meðferð kvensjúkdóma. Auk
þess starfa þar fimm ráðgjafar,
fimm lögfræðingar og tveir
sálfræðingar þar sem hlutverk
Neyðarmóttökunnar er að draga
úr eða koma í veg fyrir andlegt
og líkamlegt heilsutjón sem
afleiðingu af kynferðislegu
ofbeldi. Þá er einnig veitt
lögfræðileg ráðgjöf.
Eftir fyrstu heimsókn á
Neyðarmóttökuna eru brotaþol-
ar boðaðir þrisvar í endurkomu-
tíma; eftir tvær vikur, þrjá
mánuði og sex mánuði. Þess er
gætt að sami læknir og hjúkrun-
arfræðingur sem sinntu
brotaþola í fyrstu heimsókn
sinni endurkomutímum.
Starfsemi neyðarmóttöku
Það eru margir sem sinna aðstoð vegna nauðgunar eða annarra kynferðis-
brota. Ef þú hefur, eða einhver sem þú þekkir hefur orðið fyrir nauðgun eða
öðru kynferðisbroti, er hægt að leita til:
• Neyðarmóttöku vegna nauðgunar á Slysa- og bráðamóttökudeild Land-
spítala - háskólasjúkrahúsi Fossvogi
• Neyðarmóttöku vegna nauðgunar á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri• Sjúkrahúsa út á landsbyggðinni• Heilsugæslustöðva• Lögreglu um allt land• Fulltrúa Félagsmálastofnanna um allt land• Stígamóta• Barnahúss, Barnarverndarstofu• Rauðakrosshússins• Hins hússins• Skóla; til skólahjúkrunafræðinga, kennara og námsráðgjafa• Félagasamtaka sem vinna að velferð barna; Barnaheill, Samfok, Heimili
og skóli, Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur
AÐSTOÐ VEGNA NAUÐGANA
Á NEYÐARMÓTTÖKUNNI STENDUR
BROTAÞOLA TIL BOÐA:
1. LÆKNISSKOÐUN: Er fyrst og fremst til að tryggja velferð brota-
þola. Þar eru áverkar metnir og meðhöndlaðir auk þess sem tekin
eru sýni til að útiloka sýkingar og þungun. Þá er í boði aðhlynning
og dvöl á sjúkrahúsinu í sólarhring eða lengur ef þörf krefur
vegna líkamlegra áverka, andlegrar vanlíðunar eða félagslegra
vandamála.
2. RÉTTARLÆKNISSKOÐUN: Skoðun, sýnataka og varðveisla gagna.
Frásögn brotaþola af atburðinum er skrásett og ástand og útlit
brotaþola við komuna á slysadeild er skráð í læknaskýrslu.
Nákvæm líkamsskoðun er framkvæmd þar sem allir allir áverkar
eru skoðaðir og skráðir, tekin sýni til DNA-rannsókna, tekin hár-
sýni, fatnaður skoðaður og geymdur. Þá eru teknar ljósmyndir af
áverkum ef tilefni þykir til.
3. ANDLEG AÐHLYNNING: Veittur er sálrænn stuðningur fyrir
brotaþola og hans nánustu. Brotaþola er sýnd umhyggja og nær-
gætni og er látinn finna fyrir því að honum sé trúað. Boðið er upp
á þjónustu sálfræðings og viðtalsmeðferð. Það er algerlega val
brotaþolans hvort hann þiggi þessa þjónustu.
4. ÞJÓNUSTA LÖGFRÆÐINGS: Allir brotaþolar eiga rétt á viðtali við
réttargæslumann hvort sem kært er í málinu eða ekki. Sú þjónusta
er honum að kostnaðarlausu. Réttargæslumaðurinn fylgir kær-
anda til lögreglu ef hann vill kæra. Ef um barn yngra en 18 ára er
að ræða er haft samband við barnaverndaryfirvöld, en þau mál
eru 38 prósent þeirra sem koma inn á borð neyðarmóttöku.
koma fréttir af alvarlegum nauðg-
unarmálum þá er það reynsla bæði
okkar og Stígamóta að það koma
fram fleiri konur.“
Fjölgun í yngsta aldurshópnum
Eyrún segir að eðli þeirra árása
sem komi til kasta neyðarmót-
tökunnar hafi ekki breyst mikið
frá því að hún var sett á laggirnar.
„Flest brotin verða ennþá á heim-
ili geranda eða þolanda. Oftar en
ekki þekkjast þeir. Hann er náinn
vinur, kunningi, fyrrverandi kær-
asti eða jafnvel maki. Það er allt í
því. Í fyrra var eina verulega
fjölgunin í aldurshópnum 12 til 15
ára. Þá leituðu 24 einstaklingar á
þeim aldri til okkar. Árið áður voru
þeir 12. Við höfum verið að fá allt
niður í 10 ára gömul börn hingað
inn. Það er dapurlegt miðað við
þann áróður og umræður sem hafa
verið um þessi mál í samfélaginu
að það skuli ekki vera að skila
sér.“
Yfirleitt eru gerendur í þessum
aldurshóp eldri en þolendurnir.
„Þetta geta verið strákar á aldrin-
um 17 og eitthvað yfir tvítugt. Það
er áberandi í yngsta aldurshópnum
að þetta eru mun eldri strákar. Því
miður virðist ætla að verða aukn-
ing á milli ára í komum til okkar. Í
fyrra voru þetta 130 mál en það
sem af er þessu ári eru þegar
komin upp 121. Yfirleitt fáum við
tvö til þrjú mál á viku. En þetta
kemur alltaf í bylgjum eins og vill
gerast með svo marga hluti.“