Fréttablaðið - 29.10.2006, Side 50
www.remax.is Allar RE/MAX fasteignasölur eru sjálfstætt reknar og í einkaeign
104 Reykjavík
Verð: 52.000.000
Stærð: 188 fm
Fjöldi herbergja: 6
Byggingarár: 1944
Bílskúr: Já
RE/MAX Mjódd kynnir glæsilegt einbýlishús á Langholtsvegi. Húsið er á tveimur hæðum og er nýbúið að
endurnýja að nánast öllu leyti. Baðherbergi eru tvö, svefnherbergi þrjú og stofur þrjár. Tveir inngangar
eru í húsið. Bílskúr er með húsinu. Nýtt parket er á gólfum og náttúruflísar. Innréttingar úr kirsuberjavið á
baði og í eldhúsi eru nýjar. Allir skápar í herbergjum einnig nýir. Öll tæki í eldhúsi og baði eru ný. Hiti er í
gólfi í eldhúsi og baði. Falleg lóð. Hagstæð lán áhvílandi.
Jónas Örn
Jónasson hdl.
lögg. fasteignasali
jonas@remax.is
110 Reykjavík
Stærð: 111,1 fm
Fjöldi herbergja: 4
Byggingarár: 1985
Brunabótamat: 13.365.000
RE/MAX Mjódd kynnir glæsilega 89,2 fm íbúð á 2. hæð í blokk í árbænum. Húsið er klætt og
“viðhaldsfrítt” m/ stæði í bílskýli, 21,2 fm. Komið er inn í forstofu með granítflísum á gólfi og fataskápum.
Eldhús er á vinstri hönd með uppr. innréttingum. Granítflísar eru á borðum og ný eldavél. Í búðinni eru 3
svefnherbergi með skápum. Gott sjónvarpshol er á hægri hönd. Baðherbergi með nýuppgerðri
innréttingu og baðkari með sturtu. Parket er á íbúðinni og flísar á baðherbergi. Sameign og lóð mjög fín.
Jónas Örn
Jónasson hdl.
lögg. fasteignasali
jonas@remax.is
220 Hafnarfjörður
Stærð: 144,5
Fjöldi herbergja: 4
Byggingarár: 1964
Bílskúr: Já
Gott 116 fm. einbýlsihús á einni og hálfri hæð ásamt 28,5 fm. bílskúr, samtals 144,5 fm. Húsið er
steniklætt, gler hefur verið endurnýjað að stórum hluta. Lóðin er stór 685,5 fm. Þetta er eign sem svo
sannarlega er vert að skoða og býður upp á mikla möguleika. Björn sölufulltrúi tekur á móti ykkur við
sölusýningu í dag.
Björn Skorri
Sölufulltrúi
bjorn@remax.is
Rúnar S.
Gíslason hdl.
lögg. fasteignasali
201 Kópavogur
Stærð: 121,4
Fjöldi herbergja: 4
Byggingarár: 1996
Brunabótamat: 17.995.000
Bílskúr: Bílahús
Góð 4ra herbergja íbúð á 2 hæðum. Stór svefnherbergi.Bílageymsla. Hérna er gott að vera enda stutt í
allar áttir og ekki hægt að vera meira miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu, Smáralind, Kópavogsdalur og
öll önnur þjónusta rétt handan við hornið. Björn sölufulltrúi tekur á móti ykkur í dag og sýnir þessa eign.
Björn Skorri
Sölufulltrúi
bjorn@remax.is
Rúnar S.
Gíslason hdl.
lögg. fasteignasali
220 Hafnarfjörður
Stærð: 78,9 m2
Fjöldi herbergja: 2
Byggingarár: 1995
Brunabótamat: 11.300.000
Bílskúr: Stæði
Neðri sérhæð í Setberginu. Íbúðin er efst í hlíðunum og því með fallegt útsýni. Komið er inn í forstofu
með góðum skápum og þaðan opið hol sem tengir íbúðina. Til vinstri er góð stofa með útgengi á verönd
og miklum gluggum og stórt svefnherbergi. Beint áfram er eldhús með miklu vinnuplássi og borðkrók. Til
hægri er geymsla og þvottahús og baðherbergi með baðkari.
Einar
Sölufulltrúi
einar@remax.is
Þórunn Þórðardóttir
lögg. fasteigna
fyrirtækja & skipasali
Nanna
Sölufulltrúi
nanna@remax.is
113 Reykjavík
Stærð: 127 m2
Fjöldi herbergja: 4
Byggingarár: 2006
Brunabótamat: 23.735.000
Bílskúr: Bílskýli
Ný björt og falleg endaíbúð á 3. hæð í steinuðu lyftuhúsi rétt hjá GR. Íbúðin er mjög vel skipulögð. Komið
inn í anddyri með góðum skápum og þaðan farið í bjarta stofu með útgengi á stórar flísalagðar
suðursvalir. Öll svefnherbergi eru stór og góð. Innréttingar eru frá HTH. Í eldhúsi er AEG
keramikhelluborð og háfur við gott vinnupláss og AEG ofn í vinnuhæð. Baðherbergi er flísalagt í hólf og
gólf og þar er bæði sturta og bað. Við anddyri er rúmgott sér þvottahús og lítið auka herbergi.
Einar
Sölufulltrúi
einar@remax.is
Þórunn Þórðardóttir
lögg. fasteigna
fyrirtækja & skipasali
Nanna
Sölufulltrúi
nanna@remax.is
Selfoss
Stærð: 190,7
Fjöldi herbergja: 5
Byggingarár: 2004
Brunabótamat: 29.650.000
Bílskúr: já
Timburhús, steníklætt, með sambyggðum bílskúr. Hiti í gólfi. Öll gólf eru flísalögð. Allar innréttingar eru af
vönduðustu gerð úr rauðeik frá Fagus. Fjögur svefnherbergi eru í húsinu, þrjú með góðum skápum frá
Fagus. Stórt baðherbergi með gullfallegri innréttingu, lítið forstofusalerni. Björt og góð stofa með
uppteknu lofti. Glæsileg eldhúsinnrétting. Gott þvottahús með miklu skápaplássi. Rúmgóður bílskúr
með góðu millilofti og þar er eitt herbergjanna. Vönduð og spennandi eign. Stutt í skóla.
Snorri
Sölufulltrúi
ss@remax.is
Þórarinn
Jónsson hdl.
lögg. fasteignasali
201 Kópavogur
Stærð: 81 fm
Fjöldi herbergja: 3
Byggingarár: 1996
Brunabótamat: 13.650.000
Snyrtileg 3 herbergja íbúð á 2 hæð í góðu fjölbýli. Komið er inn í flísalagða forstofu/hol með skápum.
Stór parketlögð stofa með útgengi út á svalir. Flísalagt eldhús með snyrtilega hvíta innréttingu.
Baðherbergi með flísum á gólfum og veggjum, baðker og innrétting. Tvö rúmgóð svefnherbergi með
góðum skápum. Í kjallara er sameiginlegt þvottahús með sér stæði fyrir þvottavel og 5,59 fm sérgeymsla
sem ekki er inn í fermetratölu íbúðarinnar.
Guðný Alda
Sölufulltrúi
gudny@remax.is
Þórarinn
Jónsson hdl.
lögg. fasteignasali