Fréttablaðið - 29.10.2006, Qupperneq 69
SUNNUDAGUR 29. október 2006 21
Þ
að fyrsta sem grípur
augað þegar gengið
er upp að húsi Hönnu
og fjölskyldu hennar
í Mosfellsbæ er stórt
Liverpool-skilti við
hliðina á útidyrunum og gefur það
vísbendingu um það sem tekur við
þegar inn er komið. Plaköt, félags-
fánar og fleira merkt Liverpool
hangir upp um alla veggi heimilis-
ins og að sjálfsögðu býður Hanna
upp á kaffi í Liverpool-bollum.
Svefnherbergin eru með Liver-
pool-gardínum og sængurverum
auk þess sem plaköt prýða vegg-
ina.
„Ég held þessi Liverpool-áhugi
sé bara meðfæddur en ég hef hald-
ið með liðinu allt frá því ég man
fyrst eftir mér,“ segir Hanna og
rifjar upp þegar hún sat og horfði
á Bjarna Fel lýsa vikugömlum
knattspyrnuleikjum á laugardög-
um á sínum æskuárum. „Ég er
uppalin í sveit í Borgarfirði og þar
var ekkert knattspyrnulið þannig
að ég hafði ekki tök á að æfa fót-
bolta þegar ég var að alast upp. Ég
spilaði samt fótbolta í öllum frí-
mínútum í skólanum og nýtti öll
önnur tækifæri sem gáfust til að
spila,“ segir Hanna sem fylgist
með enska boltanum hvenær sem
færi gefst. „Helgarnar hjá mér
fara reyndar að miklu leyti í að
fylgja börnunum í mót og leiki
enda eru þau öll fjögur á kafi í
íþróttum. Strákarnir þrír eru allir
í fótbolta og einn í handbolta að
auki en stelpan er í frjálsum,
þannig að flestar helgar eru undir-
lagðar í þetta.“
Hanna segir síðasta sunnudag
þó hafa verið alveg geggjaðan.
„Það voru tveir frábærir leikir.
Fyrst var Liverpool - Manchester
United og síðan Real Madrid -
Barcelona. Svona dagar eru nátt-
úrulega algjörir lúxusdagar.“
Árlega á Anfield
Þrátt fyrir að Hanna sé svo áhuga-
söm um knattspyrnu og prýði
heimilið með munum og plakötum
merktum Liverpool, þá hefur eig-
inmaður hennar, Einar Þór Magn-
ússon, ekki minnsta áhuga á knatt-
spyrnu. „Ég hef reynt að vekja
áhuga hjá honum með ýmsum
ráðum en honum er bara frekar
mikið sama um þetta allt saman,“
segir Hanna og bætir því við að
hann hafi þó látið sig hafa það að
fara með henni á leik með Liver-
pool eftir miklar fortölur. „Hann
fór síðan sjálfviljugur á annan leik
þannig að þetta er kannski ekkert
alveg vonlaust. Samt hef ég hann
grunaðan um að hafa haft meiri
áhuga á stemningunni og umhverf-
inu en leiknum sjálfum, en þetta
kemur allt.“ Sjálf hefur Hanna
farið á fimm leiki með Liverpool
en heimsækir Anfield, heimavöll
félagsins, á hverju ári þegar hún
ferðast sem fararstjóri fyrir
Bobby Charlton-knattspyrnuskól-
ann. „Mér líður eins og ég sé
komin heim í hvert sinn sem ég
kem þangað enda er frábært að
geta komist þangað svona oft.“
Hanna segist oft hafa verið
spurð að því hvort allt þetta Liver-
pool-dót fengi að hanga á veggjun-
um ef einhver annar á heimilinu
væri aðdáandi en ekki hún. „Ég
hreinlega treysti mér ekki til að
svara þeirri spurningu enda er
það svo fjarlægt.“
sigridurh@frettabladid.is
STOFUMYNDIN Hanna er hæstánægð með myndina sem hangir fyrir ofan sófann
í stofunni en þar sjást Liverpool-menn fagna Evrópumeistaratitlinum árið 2005.
Í höndunum heldur hún á árituðum fótbolta sem hún fékk frá 5. flokki karla í
knattspyrnu hjá Aftureldingu. „Þessi verður mjög verðmætur eftir nokkur ár þegar
strákarnir verða orðnir þekktir knattspyrnumenn,“ segir Hanna stolt.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SMÁ MÓTVÆGI Eiginmaður Hönnu, Einar Þór Magnússon, sá um að skreyta þennan
vegg í sólstofunni. Hanna segir þennan bar vera smá mótvægi við allt fótboltadótið á
heimilinu en bílnum breytti Einar sjálfur í bar.
Liverpool-lífsstíll
Hanna Símonardóttir er fjögurra barna móðir í Mosfellsbæ og hefur brenn-
andi áhuga á knattspyrnu. Liverpool er liðið hennar og styður hún það af lífi
og sál eins og heimili hennar ber glöggt merki um. Sigríður Hjálmarsdóttir
hitti Hönnu og ræddi við hana um þennan gríðarlega knattspyrnuáhuga.
Þetta einstaka tilboðsfargjald
gildir til allra áfangastaða
Flugfélags Íslands innanlands
er fyrir börn 2 - 11 ára í fylgd
með fullorðnum og í sömu bókun
gildir 16. okt. - 6. nóv.
býðst eingöngu þegar bókað er
á netinu www.flugfelag.is
bókanlegt frá 13. október
Í S
L E
N
S K
A
A
U
G
L Ý
S I
N
G
A S
T O
F A
N
E H
F .
/ S
I A
. I
S
- F
L U
3 4
4 7
2
1 0
/ 2
0 0
6
1 kr. aðra leiðina + 739 kr.
(flugvallarskattur og tryggingargjald)
Aðeins 1 króna fyrir börnin
www.flugfelag.is | 570 3030
ÞRIÐJA LEIKÁRIÐ Edda er ánægð með
að hefja þriðja leikárið af Alveg brilljant
skilnaði þrátt fyrir að vera í fullu MBA
námi á Bifröst.
Leikkonan Edda Björgvinsdóttir
er að hefja þriðja leikárið með ein-
leikinn Alveg brilljant skilnaður
vegna mikillar eftirspurnar. Sjálf
hafði Edda hugsað sér að taka frí
frá leikhúsinu í vetur til að sinna
MBA námi sínu við Háskólann á
Bifröst. „Ég ætlaði ekkert að koma
nálægt leiklist á meðan ég væri í
háskólanum en það er greinilegt
að ég á ekkert að fá að yfirgefa
hana í þessi tvö ár sem ég er í skól-
anum,“ segir Edda glöð í bragði og
bætir því við að þetta sé nú allt
skrifað í skýin. „Það eru engar til-
viljanir í lífinu og ef maður hlust-
ar þá er maður leiddur þangað
sem maður á að fara. Það er mín
trú.“
Spurð hvort hún sé ekkert orðin
leið á verkinu segir Edda: „Ef leik-
rit er skemmtilegt og maður teng-
ir vel við það þá er ekkert hægt að
fá leið á því vegna þess að óþekkta
stærðin er alltaf áhorfendurnir.
Þess vegna eru engar tvær sýn-
ingar eins. Það er alltaf ný upplif-
un að leika jafnvel þó orðin séu
þau sömu þá er andrúmsloftið
aldrei eins. Það er ekki hægt að
útskýra þetta fyrir þeim sem ekki
hafa reynt það en leikarar vita
þetta.“
Edda segir það mjög sérstakt
að fá að leika þetta hlutverk því
það sé svo margt í verkinu sem
höfði til svo mikils fjölda. „Það
eru algjör forréttindi að fá að leika
þetta svona mikið,“ segir hún
og telur sýningarnar ekki koma
niður á náminu í vetur.
sigridurh@frettabladid.is
Engar tvær
sýningar eins