Fréttablaðið - 29.10.2006, Blaðsíða 73
SUNNUDAGUR 29. október 2006 25
[ LEIKLIST ]
UMFJÖLLUN
Stjórnendur Þjóðleikhússins
hafa í meira en hálfa öld fallið í
þá freistni að kippa á svið nýju
skemmtiefni frá West eða Broad-
way og trommað upp með trúð-
ana sína gestum sínum til
skemmtunar á föstudags- og
laugardagskvöldum.
Stundum hefur þetta gengið
vel, stundum ekki. Þetta eru
svörtustu blettirnir í sögu húss-
ins, þessi óskiljanlegu einskis-
verðu verk sem halda kommer-
sjal leikhúsum uppi. Þau eru
grunn, gamaldags og einfeldn-
ingsleg. Þau brjóta í bága við lög
um Þjóðleikhús.
Þar eru þau sýnd vegna þess
að kommersjal leikhús hefur
ekki komist á legg hér á landi.
Kommersjal leikhús kemst ekki
á legg hér á landi vegna þess að
ríkisstyrkt leikhús eru alltaf að
grípa í svona verk. Sem er synd.
Stórfengleg! er verk úr þess-
ari skúffu. Það er eins konar
brandaraverk: ósmekkleg en
elskuleg amerísk kelling syngur
falskt. Erindi þess er að réttlæta
fúskarann og segja svei við þá
sem hlæja að öllum sem ekki eru
fullburða á sínum vettvangi. Það
er gert með því að gera grín að
slíkri persónu úr sögunni og
hennar tilburðum á listasviðinu.
Og sumir áhorfendur á frumsýn-
ingu hlógu úr sér góminn, jafn-
vel að fimmaurabröndurum leik-
skáldsins.
Styrkur sýningarinnar eru
vinsældir sem Ólafía Hrönn
Jónsdóttir nýtur, ekki aðeins
meðal starfsfólks Þjóðleikhúss-
ins og embættismanna sem eru
lunginn af frumsýningargestum
þar á bæ núorðið, heldur almenn-
ings: á þau mið er róið.
Og metnaðurinn fyrir hönd
listakonunnar er ekki stærri en
þetta hjá Tinnu Gunnlaugsdóttur
og hennar samstarfskonum. Í
lágkúruna skal senda hana. Það
er ekki verið að bjóða henni Mut-
ter Courage, einhvern þann part
sem hæfir listrænum þroska
Lollu á þessum stað í ferli henn-
ar. Nei elskulega kómík hennar
skal nota og þann hæfileika, að
hún getur gólað falskt ef hún vill
og lærir, til að telja inn krónurn-
ar.
Að öllu leyti ber sýningin þess
merki hver ætlunin er: hún er lít-
ilsigld í útliti, fátækleg og ódýr
að öllu leyti. Það er hrátt þýðing-
arbragð af ódýrum textanum,
ungliðunum er vorkunn að vera
komnir í þau klisjukenndu hlut-
verk sem leikhúsið býður þeim
uppá í start og þau eru svo lítil-
þæg að þiggja. Öllum aðstand-
endum er minnkun af þessu
verki.
En mest þó leikhússtjórninni.
Eru ráðgjafar leikhússtýrunnar
orðnir svona meðvirkir eða eru
þessu ósköp máski ættuð frá
dramatúrgunum? Svona stór-
fenglegt drasl á Þjóðleikhús sem
nýtur almannastyrkja sem menn-
ingarstofnun ekki að setja á svið.
Það nýtur þeirra til annarra
verka. Sextíu miljónir sem leik-
húsið er að bæta við sig í fjárlög-
um þessa árs eru til annars. Ofan
á allt hitt. Og þegar allt er talið
þá er ekki fjarri að þessi leiksýn-
ing kosti skattgreiðendur það –
sextíu milljóna fimmaurabrand-
ari – sem Þjóðleikhús hefur ekki
efni á.
Páll Baldvin Baldvinsson
Stórfenglegt drasl
Um næstu helgi verður opnuð
sýning í Listasafni Reykjavíkur
sem vakið hefur mikla athygli
bæði í Bretlandi, Noregi og
Bandaríkjunum. Hún kallast
Uncertain States of America –
Bandarísk list á þriðja árþús-
undinu. Þar verða sýnd verk
eftir vonarstjörnur samtíma-
myndlistarinnar í dag.
Sýningin var opnuð í Ósló í
fyrra og hefur farið bæði til New
York og London þar sem henni
er nýlokið. Sigurför hennar held-
ur áfram eftir viðdvölina í Lista-
safni Reykjavíkur þegar hún fer
til Kaupmannahafnar og Kína.
Til marks um hversu sýning-
arstjórunum hefur tekist vel við
val ungra bandarískra lista-
manna á sýninguna má nefna að
á síðum listatímaritsins Flash
Art yfir efnilegustu listamenn
samtímans eru ellefu af þeim
fjörutíu og fimm sem verk eiga
á sýningunni.
Flash Art leitaði til eitt hund-
rað gagnrýnenda og eitt hundrað
galleríista til að fá hjá þeim álit
á því hvaða 100 listamenn það
væru sem skiptu máli í dag ef
frá eru taldir Matthew Barney,
Damien Hirst og Maurizio Catt-
elan. Ekki kom á óvart að margir
listamannanna lentu bæði á lista
gagnrýnendanna og galleríist-
anna. Á lista gagnrýnendanna
voru fjórir af listamönnunum
sem sýna í Listasafni Reykjavík-
ur, í 12. sæti og ofar. Þetta eru
þau Trisha Connelly (9) Paul
Chan (10) og tvíeykið Allora &
Calzadilla (12). Þau tvö fyrst-
nefndu lentu líka á lista gallerí-
istanna.
Á lista galleríistanna er einn-
ig að finna fjóra listamenn af
topp tuttugu myndlistarmönnun-
um sem verk eiga á sýningunni.
Kelley Walker og Wady Guyton
eru þar á meðal en sá síðarnefndi
er einn þeirra listamanna sem
kemur hingað til lands í tilefni af
sýningunni. Walker og Guyton
vinna innsetningu sína í samein-
ingu en hún samanstendur af 900
málningardósum og 50 málverk-
um sem þeir máluðu saman á
fáeinum vikum. Trisha Donnelly
er ofarlega á báðum listunum en
hún hefur vakið gríðarlega
athygli fyrir áhrifamikil hljóð-
verk.
Eins og mörg önnur verk á
sýningunni verður verki Donn-
elly fundinn óhefðbundinn stað-
ur en það verður sett upp í lyftu
Hafnarhússins. Lyftan gefur
fulla ástæðu til að taka sér ferð
upp á þriðju hæð hússins, skrif-
stofuhæðina, en þar verður í
fyrsta sinn sett upp sýning í
rýminu fyrir framan skrifstof-
urnar. Um er að ræða innsetn-
ingu Mario Ybarra sem endur-
speglar reif-menninguna með
myndbandi, hljóði og myndum
og gestir geta valið sér tónlist til
að hlusta á.
Í kaffiteríu Hafnarhússins
setur listamaðurinn Christian
Holstad upp glymskratta sem
spilar lög að vali gesta og í and-
dyrinu verður hengd upp ný
útfærsla á risavöxnum banda-
ríska fánanum í útfærslu Franks
Benson. Listamaðurinn og hönn-
uðurinn Matthew Brannon er
einn þeirra sem koma hingað til
landsins og verða verk hans m.a.
í anddyri Hafnarhússins en þess
má geta að samstarf tókst á með
Listasafninu og Brannon sem
felst í því að hann hannar allt
kynningarefni fyrir sýninguna.
Einn af yngstu listamönnun-
um á sýningunni, Devendra Ban-
hart, er ekki síður þekktur sem
tónlistarmaður og hefur gefið út
nokkrar plötur. Þess má geta að
á meðal þeirra hundrað gagn-
rýnenda sem voru álitsgjafar
hjá Flash Art er að finna tvo af
þremur sýningarstjórum sýn-
ingarinnar, þá Daniel Birnbaum
og Hans Ulrich Obrist. Halldór
Björn Runólfsson er líka á meðal
álitsgjafa. Og annar Íslendingur
er tengdur listanum því Ragnar
Kjartansson er á listanum yfir
200 bestu myndlistarmenn sam-
tímans að mati gagnrýnenda.
Því er svo við að bæta að Pier-
re Huyghe, sem nú sýnir í Tate
Modern í Lundúnum, er í 34.-39.
sæti gagnrýnenda listans en
hann verður með einkasýningu í
Hafnarhúsinu snemma á næsta
ári.
- pbb
Sundruð ríki skoðuð í myndlist
FRÁ SÝNINGUNNI VESTANHAFS Hún
hefur hvarvetna vakið umtal.
Þjóðleikhúsið: Stórfengleg
HÖFUNDUR: PETER QUILTER
Niðurstaða: Grunnt, gamaldags, einfeldn-
ingslegt. Sextíu milljóna fimmaurabrandari.